Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ I I í s s I i Smáfólk SEE THAT H0U5E USE'RE COMINé TO? THEY 5AT IT'S A HAUNTEP H0U5E.. Sérðu húsið sem við erum að koma að? Það er sagt að það sé reimt þar... Ég trúi ekki á draugahús ... En ég ætla að ganga hérna meg- in við þig_ BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Til útskýringar fyrir lesendur Morgunblaðsins: Guðni Ágústsson er ekki krúnurökuð fótboltabulla Frá Hrafni Jökulssyni: ÞAÐ ER alkunna, að í leyndum síns hjarta dreymir marga af odd- vitum Framsóknar um að hreiðra um sig í stjórnarráðinu í kompaníi með Sjálfstæðisflokknum. Þessi þrá framsóknarmaddömunnar eftir faðmlagi stóra flokksins brýst ein- att fram með undarlegum hætti. Á laugardaginn birtist þannig í Morg- unblaðinu kynlegt klögubréf frá Guðna Ágústssyni, leiðtoga Fram- sóknarflokksins á Suðurlandi, vegna greinarkoms sem undirritað- ur birti í Dagskránni á Selfossi. Nú er Dagskráin að vísu gott blað, og útbreitt á Suðurlandi, en ekki verður séð í fljótu bragði hvers- vegna Guðni Ágústsson þarf að klaga í Morgunblaðið þótt honum líki ekki efni lítils blaðs á lands- byggðinni. Þetta heitir líklega að hefna þess á Alþingi sem hallast á í héraði. En ef Guðna er sáluhjálp í því að skæla utan í Moggann er ekki nema sjálfsagt að láta það eftir honum. Nauðsynlegt er að skýra í örfá- um orðum tilefni klögnbréfs Guðna Ágústssonar. Á fimmtudaginn skrifaði undirritaður litla grein í Dagskrána þar sem afstaða Guðna Ágústssonar til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) var gerð að umtalsefni. Allir muna hvernig málþófsliðið sló upp tjöld- um í ræðupúlti Alþingis og spjó þaðan svartagallsrausi og heims- endaspám um þær hrikalegu afleið- ingar sem EES hefði. Aldrei hefur annað eins öfugmælasafn verið kveðið á Alþingi: Yfírvofandi var stórfelld innrás útlendinga, sem ætluðu að sölsa landið undir sig, uns svo yrði komið að Islendingar yrðu homrekur í eigin landi. Mál- þófsliðið hélt því fram fullum fetum að þessir ófyrirleitnu útlendingar ætluðu ekki aðeins að leggja í rúst- ir atvinnuvegi þjóðarinnar heldur hefðu þeir uppi mikil áform um að kaupa íslenska dali og heiðar og fjöll. í grein minni í Dagskránni aug- lýsti ég líka eftir þeim þúsundum atvinnuleysingja sem áttu að flykkjast til Islands í kjölfar EES- samningsins. Ég hef nefnilega ekki orðið var við innrásarliðið, og út- lendingaeftirlitið segir mér að í fyrra, fyrsta heila árið sem EES- var í gildi, hafi flust hingað færrí útlendingar en árið áður. Hingað komu 482 ríkisborgarar frá EES- löndunum, en á hinn bóginn flutt- ust 2.303 íslendingar til landa EES. Ofugmæli Guðna Ágústssonar og félaga dæma sig auðvitað sjálf. Nú viðurkenna allir að EES hefur reynst íslensku efnahagslífí mikil lyftistöng. Þjóðhagsstofnun metur ávinning samningsins allt að þrem- ur milljörðum króna fyrstu árin en sex milljarða þegar fram í sækir. EES-samningurinn er þannig ein af helstu máttarstoðum efnahags- batans sem nú er smám saman að skila sér til fólks. Afstaða Guðna Ágústssonar til EES-samningsins kom svo sem ekki á óvart. Hann á sameiginlegt með andlegum skoðanabræðrum sínum að vera dauðhræddur við útlendinga og treystir sér greini- lega ekki til að eiga við þá sam- skipti á jafnréttisgrundvelli. Hin heimóttarlega sýn Guðna á veröld- inni er ekki til marks um mikla dirfsku, og hræðsluáróður hans gegn útlendingum hljómar einsog bergmál löngu liðinnar fortíðar. ísland fyrir íslendinga í grein minni í Dagskránni gerði ég líka að umtalsefni hin fleygu orð Guðna Ágústssonar á fundi Stöðvar 2 á Selfossi. Aðspurður um afstöðu sína til nýbúa sagði hann að ísland ætti að vera fyrir íslend- inga, með þeim eina fyrirvara að hingað mætti ættleiða börn og stofna til hjónabanda við útlend- inga! Guðni segir lesendum Morgun- blaðsins, að í kjölfar þáttarins hafi hann verið kallaður „rasisti, kyn- þáttahatari, krúnurökuð fótbolta- bulla og þar fram eftir götunum, en ekkert af þessu er rétt, enda væri þá illa fyrir mér komið“. Af samhenginu í hinu stórfurðu- lega grátskrifí Guðna má ráða, að undirritaður hafi kallað hann þess- um ónefnum. Það er mikil fírra. Ég sagði einungis að Guðni Ágústs- son væri engum líkur, og að í sölum Alþingis hefði hann einkum getið sér orð sem eins konar pólitískur uppvakningur úr grárri forneskju. Hann hefði jafnan af einurð og brúnaþungri festu lagst gegn öllum framfaramálum, enda hefði líklega gleymst að segja honum að 20. öldin er fyrir allnokkru gengin í garð. Ég sagði ennfremur að sú yfir- lýsing, að Island væri fyrir íslend- inga, væri með þeim ólíkindum að ætla mætti að þar talaði miðill fyr- ir hönd löngu dauðra brúnstakka. Auðvitað er Guðni Ágústsson enginn kynþáttahatari. Hann er fyrst og fremst pólitískur heimaln- ingur sem óttast og skelfist veröld- ina fyrir utan túngarðinn. Guðni er enginn rasisti, heldur moldar- kofapólitíkus sem hefur asklok fyr- ir himin. Og mér er ljúft og skylt að staðfesta að þaðan af síður er Guðni Ágústsson krúnurökuð fót- boltabulla. HRAFN JÖKULSSON, Eyrarbakka. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.