Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 15 LANDIÐ Mikil lífs- björgí loðnunni ísafirði - Fiskvinnslufyrirtæk- ið Þuríður hf. í Bolungarvík hefur að undanfömu fryst um 210 tonn af loðnuhrognum og er vertíðin sem lauk á fostudag sú næst stærsta til þessa í Bolungarvík. Þrátt fyrir að fryst höfðu verið um 48 tonnum meira nú en á síðustu vertíð var verðmæti framleiðslunnar töluvert lægra en þá. Vertíðin byrjaði 9. mars og afkastageta verksmiðjunnar er um 20 tonn á sólarhring. Hreinsunin fór fram allan sólarhringinn og var unnin samhliða annarri vinnslu í hús- inu. „Þetta var kærkomin búbót enda töluvert mikil lífsbjörg í þessari framleiðslu þrátt fyrir að verðmæti framleiðslunnar hafí verið 50% lægra en á síð- ustu vertíð. Skilaverð þessara 210 tonna er um 23 milljónir króna en á síðustu vertíð fryst- um við 162 tonn, þar sem skila- verðið var 36 milljónir króna,“ sagði Albert Haraldsson, verk- stjóri hjá Þuríði. Tún blá af svellgaddi Borg í Eyja- og Miklaholts- hreppi - Eftir margra vikna norðanrosa og stundum fárviðri hefur veðurfar farið hlýnandi. En hvort það er varanleg hlýja er stór spurning. Nú hefur rignt hér dálítið og kemur það sér vel því vatns- ból hafa þomað og vatnsraf- stöðvar, sem hér eru á nokkrum bæjum, hafa ekki skilað fullum afköstum vegna vatnsskorts. Nokkuð hefur rifið snjó af sum- um túnum þegar vætan kom og eru túnin blá af svellum. Hætt er við að kaihætta sé fyrir hendi ef ekki þiðnar fljót- lega. Fréttaritari hafði tal af bónda í Helgafellssveit. Hjá honum er rúmlega eins metra þykkt lag af snjó á túninu. Hann kannaði hvernig ástand túnsins væri undir þessu og var túnið einn svellgaddur. Eldur í feiti á Sjúkrahúsi Suðurlands Selfossi - ELDUR kom upp í eldhúsi Sjúkrahúss Suðurlands á sunnudag, 19. mars. Starfs- fólk eldhússins var við pönnu- kökubakstur er feitin ofliitnaði og það kviknaði í henni. Eldurinn læsti sig í borðplötu úr tré og allmikill reykur mynd- aðist. Starfsfólkið slökkti eld- inn og slökkviliðsmenn sem komu á vettvang reykræstu eldhúsið. Jarðgöngin undir Breiðadals- og Botnsheiði Samgönguráðherra sprengir síðasta haftið á morgun Heildarkostnaður við göngin er áætlaður um fjórir milljarðar króna ísafirði - Ráðgert er að Halldór Blöndal sam- gönguráðherra muni sprengja síðasta haftið í Breiðádalsafleggjara Vestfjarðaganganna um miðjan dag á morgun, fimmtudag. Erfitt er að segja til um endanlegan heildar- kostnað við mannvirkjagerðina nú, þar sem mörgum verkþáttum er ólokið, en reiknað er með að hann verði nálægt 4.000 milljónum króna. Það er um 15% yfir upphaflegum áætlun- um og er viðbótarkostnaðurinn að mestu til kominn vegna ófyrirséðs vatnsrennslis. Sprengingin á morgun fer fram miðja vegu milli gangamóta og munna í Breiðadal, eða tæpum þremur kílómetrum frá hvorum ganga- munna. Lengd ganganna frá munna í Tungud- al að gangamunna í Breiðadal er 5.930 metrar. Viðstaddir athöfnina verða, auk ráðherra, fulltrúar Vegagerðar ríkisins, fulltrúar verktak- ans, alþingismenn, sveitarstjómarmenn og fleiri gestir, alls um 150 manns. Fyrsta skotið í september 1991 Verksamningur milli Vegagerðar ríkisins og Vesturíss sf., um gerð ganganna var undirritað- ur 6. júní 1991 og jarðgangagerðin hófst form- lega 5. september sama ár er samgönguráð- herra, Halldór Blöndal, hleypti af fyrsta skoti. Þann 16. febrúar 1994 var sprengt í gegn í Botnsdalsgöngum. 19. desember 1994 var umferð hleypt á milli Súgandafjarðar og ísa- fjarðar takmarkaðan tíma á dag, fjóra daga í viku. Jarðgangagerðin hefur að mestu gengið vel Helstu stærðir jarðganga Heildarlengd 8.683 m Tvlbreið göng 2.168 m Einbreið göng með útskotum 6.515 m Heildarlengd með vegskálum 9.113 m Lengd útskota er 32 m, þar af 16 m í fullri breidd. Pjarlægð milli útskota er 160 m. Bergstyrkingar: Sprautusteypa 12.500 m! Bergboltar 8.500 stk. Breidd tvíbreiðra ganga 7,5 m Breidd einbreiðra ganga 5,0 m Hæð ganga 6,3-7,2 m Hönnuð fríhæð 4,6 m Hámarkshæð ökutækja 4,2 m Heildarrúmtak útgraftar 320.000 m* af föstu bergi. Vegskálar: Lengd í Tungudal 120 m Lengd í Botnsdal 140 m Lengd í Breiðadal 170 m Breidd 7,5 m Hæð 7,7 m Magnsteypu 3.160 m’ Nýir vegir 9.000 m Rúmtak 550.000 m* frá því að komið var böndum á stóra fossinn sem opnaðist inn í Breiðadalsgöngin í júlí 1993 og hefur fossinn minnkað með tímanum og er nú um 400 1/s en var yfir 2.000 1/s í upphafi. Hluta vatnsins í fossinum verður væntanlega veitt inn á Vatnsveitu ísafjarðar nú í sumar. Nú þegar sprengingum er lokið verður hafíst handa við endanlegar bergstyrkingar í Breiða- dalsgöngum og síðan verður frárennsliskerfi lagt í gólfíð. í Botnsdalsgöngum eru vatnslagn- ir í gólfi nánast frágengnar og fljótlega verður byijað á uppsetningu vatnsvama í gangaþak. Unnið verður við ýmsan frágang í göngunum til hausts auk þess sem vegagerð verður fram haldið og klæðning lögð á alla veggi utan ganga. Almenn umferð um göngin í desember Markmiðið er að opna öll göngin til bráða- birgða fyrir almenna umferð í desember næst- komandi. Malbikun vegar í göngunum og ýmis lokafrágangur fer síðan fram sumarið 1996. Aðalverktaki er Vesturís sf., sem er sameign- arfyrirtæki ístaks hf. í Reykjavík, Skánska AB í Svíþjóð, Selmer A/S í Noregi og E. Pihl & Sön í Danmörku. ístak hf. er í forsvari samsteyp- unnar. Við verkið starfa nú um 55 manns, þar af fjórir Skandinavar. Fegurðarsamkeppni Suðurnesja verður haldimi í Stapa á laugardaginn Morgunblaðið/Björn Blöndal STULKURNAR sem taka þátt í keppninni um titilinn fegurðardrottning Suðurnesja 1995. í fremri röð frá vinstri til hægri eru: Sigrún Gróa Magnúsdóttir, Keflavík, Eygló Elísabet Kristinsdóttir, Sandgerði, Inga Fríða Guðbjörnsdóttir, Keflavík, og Brynja Lind Sævarsdóttir, Keflavík. I aftari röð frá vinstri til hægri eru: Ragnheiður Lína Kjartansdóttir, Grindavík, Anna María Róbertsdótt- ir, Njarðvík, Jóhanna Björg Guðmundsdóttir, Njarðvík, Berglind Sigþórsdóttir, Njarðvik, Nanna Dögg Vilhjálmsdóttir, Keflavík, Vala May Mason, Keflavík, og Brypja Björk Harðardóttir, Njarðvík. 11 stúlkur keppa um titilinn Keflavik - Fegurðarsamkeppni Suðurnesja fer fram í Stapa á laug- ardagskvöldið og að þessu sinni taka 11 stúlkur þátt í keppninni. Stúlkumar sem keppa um titil- inn fegurðardrottning Suðuraesja eru eftirtaldar: Sigrún Grúa Magnús- dóttir, 18 ára úr Keflavík, Eygló EHsa- bet Kristinsdóttir, 19 ára úr Sandgerði, Inga Fríða Guðbjörnsdóttir, 18 ára úr Keflavík, Brypja Lind Sævarsdóttir, 19 ára úr Keflavík, Ragnheiður Lína Kjart- ansdóttir, 18 ára úr Grindavík, Anna María Róbertsdóttir, 20 ára úr Keflavík, Jóhanna Björg Guðmundsdóttir, 20 ára úr Njarðvík, Berglind Sigþórsdóttir, 18 ára úr Njarðvík, Nanna Dögg Vilþjálms- dóttir, 18 ára úr Keflavík, Vala May Mason, 18 ára úr Keflavík, og Bryiya Björk Harðardóttir, 19 ára úr Njarðvík. Að sögn Agústu Jónsdóttur, umboðsmanns keppninnar á Suð- urnesjum, voru stúlkuraar valdar eftir ábendingum í janúar og síðan hófst undirbúningurinn að sjálfri keppninni í febrúar. Þetta er í 10. skipti sem þau Ágústa og Páll Ketilsson standa fyrir þessari keppni. í dómnefnd keppninnar eru: Sigtryggur Sig- tryggsson formaður, Bjargey Ein- arsdóttir, Jón Kr. Gíslason, Kristín Stefánsdóttír og Þórunn Lárus- dóttir. Alveg Einstök ædi TILBOD ...sem ekki verður endurtekið! flöeins þessi eina sending. Umbodsmenn um land allt. AEO MO AEO AEO A£0 ASO A£0 ASC AEG Þvottavél Lavamat 6251 VinduhraSi 1000 og .700 snúningar á mín.Ullarvagga. UKS kerfi. Bíó kerfi. Takki fyrir aukaskolun. Orkunotkun 1.8 kwst.Öko kerfi. Variomatik vinding. Verb nú 89.140,- Stabgr. kr. 82.900,- Venjulegt verb á sambærílegri vél er a.m.k. 12.000,- kr. hærra. BRÆÐURNMR PJQRMSSONHF i Lágmúla 8, Sími 38820 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.