Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tillögur um breytingar í yfirstjórn Reykjavíkurborgar Æðstu embætt- ismönnum fækkað um tvo TILLÖGUR að nýju skipulagi á yfirstjóm Reykjavíkurborgar var kynnt á fundi borgarráðs í gær. Gert er ráð fyrir að fækka næstu undirmönnum borgarstjóra um tvo, úr fimm í þijá. Þeir verði borgarritari, borgarverkfræðingur og framkvæmdastjóri menningar- og félagsmála en það er nýtt emb- ætti, sem stendur til að auglýsa síðar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins munu borgarlögmaður og skrifstofustjóri borgarstjómar, sem koma næst borgarstjóra nú, heyra undir borgarritara sam- kvæmt tillögunum. Skipuð verði stjórnkerfisnefnd I tilefni af skýrslunni um breyt- ingar á stjómkerfi borgarinnar, sem Hagvangur hf. gerði, lögðu borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins fram tillögu ásamt bók- un þess efnis að borgarráð skipi fimm manna stjómkerfisnefnd, sem hafi það hlutverk að endur- skoða samþykktir um stjómkerfi borgarinnar auk þess að fjalla sér- staklega um framlagðar tillögur. í bókuninni segir að allur sá umbúnaður sem hafí verið um stjórnsýsluúttekt Stefáns Jóns Hafstein og hástemmdar yfirlýs- ingar R-listans um óskilvirkt og óskýrt stjórnkerfi Reykjavíkur- borgar, komi nú fram í tillögum sem þrengi að og dragi úr rekstri borgarstjórnarembættisins meðal annars með því að fækka næstu undirmönnum borgarstjóra úr fímm í þijá, lengja boðleiðir og §ölga öðrum embættum. Hvergi væri hægt að sjá að grunnbreyt- ingar auki skilvirkni kerfísins. Þá segir: „í ljós kemur að allur þessi umbúnaður var aðeins til að draga úr áhrifum fáeinna emb- ættismanna en færa öðrum aukin völd. Stofnað er til nýrra embætta sem eru skýrð á takmarkaðan hátt og tengsl nýrra yfírmanna og undirmanna þeirra víða óljós. Auk þess eru gerðar breytingar á stöðu æðstu embættismanna Reykjavíkurborgar. Borgarráðs- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa sig reiðubúna til frekari umfjöllun- ar um þessa tillögu en telja bæði sjálfsagt og mikilvægt að þeim verði vísað til stjómkerfísnefndar, sem borgarstjóri hefur marglýst yfir að sett verði á laggirnar." í bókun borgarstjóra segir að tillögur að nýju skipulagi séu lagð- ar fram til fyrstu kynningar. Þær feli í sér talsverðar breytingar á stjórnskipulagi ráðhússins sem ástæða væri að ætla að borgar- ráðsmenn þyrftu að kynna sér. Sjálfstæðismenn hafí hins vegar kosið að gera um tillöguna póli- tískan ágreining og hafi því í raun lýst yfír að þeir séu ekki til við- ræðna um tillöguna og þar með dæmt sig úr leik. Tillaga minnihluta orðin tóm Þá segir: „Tillaga þeirra um sér- staka stjómkerfisnefnd og yfírlýs- irig um að þeir séu reiðubúnir „til frekari umfjöllunar um þessa til- lögu“ er í ljósi þessa orðin tóm og tæplega hægt að taka alvarlega. Það kemur því í hlut borgarfulltrúa Reykjavíkurlistans að takast á við nauðsynlegar breytingar á skipu- lagi ráðhússins sem m.a. leiða af auknum verkefnum Reykjavíkur- borgar, aukinni skuldasöfnun í tíð sjálfstæðismanna og breyttum kröfum og þörfum í nútíma borgar- samfélagi." Staða borgarritara Lagt til að Helga verði ráðin BORGARSTJÓRI leggur til að Helga Jónsdóttir verði ráðin borg- arritari. Tólf umsóknir bárust um starfið. Afgreiðslu var frestað á fundi borgarráðs í gær. Auk Helgu sóttu um starfið, Birgir Guðmunds- son, Katrín Atla- dóttir, Magnús Brynjólfsson, Sig- urður Örn Sig- urðsson, Skúli Thoroddsen, Sig- uijón Högnason og Sveinn Guð- mundsson. Fjórir umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka. Helga Jónsdóttir er fædd 22. mars 1953. Hún hefur síðustu misseri starfað við Alþjóðabankann í Washington en starfaði áður í forsætisráðuneytinu. Helga Jónsdóttir Glerskálinn við Iðnó Mikill vatnselgur í asahláku í Eyjum S I I I I Engin formleg beiðni borist um niðurrif HARALDUR Blöndal formaður byggingarnefndar Iðnó, segir að engin formleg beiðni hafí borist frá borgaryfírvöldum um að glerskál- inn við Iðnó verði íjarlægður. Ef til þess kæmi yrði það að gerast í samkomulagi milli eigenda húss- ins. Haraldur sagði að engin ákvörð- un hefði verið tekin í borgarstjórn um að íjarlægja glerskálann. „Glerskálinn var samþykktur at- hugasemdalaust í borgarráði og borgarstjórn," sagði hann. „Hann var einnig samþykktur af húsafriðunamefnd en það eru allir sammála um að glerið sem sett var í skálann sé ekki eins og það á að vera. Arkitekt hússins vildi hafa glært gler og húsafriðun- amefnd hefur einnig óskað eftir því að það verði glært. Húsafriðun- arnefndin hefur ekki óskað eftir að skálinn verði rifinn." Ekki rifinn Haraldur sagðist sjálfur vera hlynntur þvi að skálinn verði ekki rifínn. Hann réði úrslitum um að hægt yrði að nýta húsið eins og upphaflega var ætlað, sem fjölnota samkomuhús og kaffíhús. „Bygg- ingamefndin hefur ekki tekið neina ákvörðun um að rífa skálann,“ sagði hann. „Það er verið að skoða málið og engar formlegar óskir hafa borist frá borgaryfirvöldum til bygging- amefndarinnar. Menn em ósáttir við þetta dökka gler, það er vitað. Það verður að fínna lausn sem all- ir eru sáttir við.“ Andlát JÓHANNES STEFÁNSSON JÓHANNES Stefáns- son fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Síldar- vinnslunnar á Norðfírði lést á heimili sínu, Ból- staðarhlíð 45, í Reykja- vík 20. mars síðastlið- inn, 82ja ára að aldri. Jóhannes fæddist 9. mars 1913 á Nesi í Norðfirði, sonur hjón- anna Stefáns Guð- mundssonar og Sess- elju Jóhannesdóttur. Jóhannes var við nám í Menntaskólanum á Akureyri en hvarf úr skóla árið 1932 vegna veikinda. Hann var verkamaður í Neskaupstað 1933-38 og bæjar- skrifari hjá bæjarsjóði Neskaupstað- ar 1938-45 og framkvæmdastjóri Pöntunarfélags alþýðu 1947-53. Jóhannes var framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna og Olíusamlags útgerðarmanna í Nes- kaupstað frá 1953-81, er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Jafn- framt framkvæmdastjóri Sfldar- vinnslunnar hf. og Nesútgerðar hf. um tveggja ára skeið. Framkvæmda- stjóri Söltunarfélagsins Áss 1960-68, bæjarfulltrúi í Neskaup- stað 1938-74, varaforseti bæjar- stjómar 1946-58, for- seti 1958-74 og í stjóm Sparisjóðs Norð- fjarðar frá 1940. Jóhannes var í fram- boði til Alþingis fyrir Sósíalistaflokkinn og Alþýðubandalagið í Norður-Múlasýslu 1942-59 og formaður Verkalýðsfélags Norð- fjarðar og Þróttar um margra ára skeið. Hann var í stjóm Sfldar- vinnslunnar hf. frá stofnun árið 1957 og formaður stjómar í 20 ár. Einnig var hann fréttaritari Ríkisútvarpsins í ein 30 ár. Jóhannes Stefánsson, Lúðvík Jós- epsson og Bjarni Þórðarson voru helstu forystumenn Norðfirðinga um áratugaskeið. Lúðvík var þingmaður og ráðherra, Bjami var bæjarstjóri og Jóhannes veitti atvinnufyrirtækj- um bæjarins forstöðu. Þeir eru allir látnir. Jóhannes kvæntist hinn 29. nóv- ember 1940 Soffíu Björgúlfsdóttur sem fæddist í Neskaupstað 10. febr- úar 1921. Synir þeirra eru Valgarð- ur, fæddur 23. maí 1942, og Ólafur, fæddur 6. september 1948. Vatn flæddi inn í 18 hús Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson GÍFURLEGT vatn er í Heijólfsdal, jafnvel miklu meira en á blautustu þjóðhátíð, eins og Eyjamaður einn orðaði það í gær. Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. MIKIL rigning í fyrrinótt og gær olli asahláku í Vestmannaeyjum sem varð til þess að mikill vatnselgur varð í bænum. Vatn flæddi inn í 18 hús og urðu talsverðar skemmd- ir. Götur bæjarins vom í gærmorgun eins og stórfljót og Heijólfsdalur er eins og stöðuvatn að sjá. Vatn tók að flæða inn í kjallara og hús sem standa lágt snemma í gærmorgun og höfðu starfsmenn bæjarins í nógu að snúast við að losa vatn úr húsum og ræsa fram stíflur sem mynduðust. Ragnar Baldvinsson, verkstjóri hjá Vest- mannaeyjabæ, sagði að gengið hefði þokkalega að ráða við flóðin en þó hefði talsvert tjón orðið á nokkmm stöðum. Mest tjón taldi hann hafa orðið í húsum við Nýjabæjarbraut og Smáragötu en auk þess hefði orðið tjón í Félagsheimili Þórs. Hann sagði að starfsmenn bæjarins hefðu unnið af krafti við að forða húsum frá skemmdum í allan gærdag. Hann sagði að ástæða þessara miklu flóða í Eyjum væri mikill klaki í jörð og þegar svona miklar leysing- ar yrðu við þær aðstæður hefði hol- ræsakerfi bæjarins engan veginn undan. Holræsakerfíð hefði verið svo yfírfullt að lok á holræsabmnn- um sem em í götum bæjarins hefðu þeyst upp. 30 tonn flæddu inn í íþróttasal í félagsheimili Þórs flæddi vatn inn í íþróttasal og giskuðu starfs- menn sem unnu við að dæla vatninu upp á'að um 30 tonn hefðu flætt inn í salinn. Ekki lá ljóst fyrir hversu miklar skemmdir hefðu orðið á íþróttasalnum. Dúkur er á gólfi hans og var vonast til að hann myndi ekki skemmast en óttast var að klæðning á veggjum væri mikið skemmd. LJóst er að tjón nemur einhveij- um milljónum þó enn eigi eftir að meta hversu mikið það er. í gær- kvöldi vora starfsmenn bæjarins enn á fullu við að aðstoða fólk við að dæla úr kjöllumm og bjóst Ragnar við að unnið yrði frameftir við þau störf. Víða í Eyjum hafa myndast tals- verðar tjarnir í lautum en mest vatnsmagn er í Heijólfsdal sem er nánast á kafí í vatni. Samfellt vatn er frá rótum Fjósakletts inn í Dal- botn og víðast er dýpið vel á annan metra og til dæmis em danspallar þjóðhátíðar á um metra dýpi og í gærkvöldi var vatnsborð í Dalnum enn að hækka. Morgunblaðið/Björn Blöndal Flóð á Reykjanesbraut TALSVERÐUR elgur myndaðist á Reykjanesbraut við Fitjar í leysingunum í gær og flæddi þar yfir veginn á löngum kafla. Af þessu urðu þó ekki teljandi tafir á umferð, en nokkrir öku- menn lentu þó í því að bleyta rafkerfið við að aka of hratt í elginn. Nokkuð um vatnsleka í hlákunni SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík sinnti í gær á annan tug útkalla vegna vatnsleka í hlákunni. Að sögn Ragnars Sólonssonar, varðstjóra hjá Slökkviliðinu, var þó ekki eins mikið um vatnsskaða og reiknað hafði verið, með miðað við veðurspá og flest tilfellin sem komu upp í gær voru minniháttar. Nokkurt tjón varð þó í húsi við ljarnarstig á Seltjarnarnesi, þar sem flæddi inn í íbúð með parketgólfí. Þá flæddi vatn inn í geymslur og eitt íbúðarherbergi í fjölbýlishúsi við Hjaltabakka í gærmorgun og olli nokkru tjóni. Að sögn Ragnars var tjón minniháttar á öðrum stöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.