Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 2. AÐSENDAR GREIIMAR Málsmeðferð barna- verndarmála Hrefna Friðriksdóttir ÞANN 29. október 1994 var haldin ráð- stefna á vegum Barna- heilla um mannréttindi barna. Er hér birtur hluti erindis sem þar var flutt. Hvað er átt við með málsmeðferð? Með barnaverndar- málum er hér átt við mál sem koma til kasta barnaverndaryfirvalda skv. lögum um vernd bama og ungmenna nr. 58/1992. Eg ætla ekki að fara í gegnum það hvenær afskipti bamaverndaryfírvalda eru réttlæt- anleg. Ég ætla heldur að huga að formreglunum — eða spumingum um það hveijir eigi að taka ákvarð- anir og hvernig eigi að komast að niðurstöðu í þessum málum. Barnavernd og mannréttindi barna Skv. þeim grunnreglum um mannréttindi sem löggjöf okkar hvílir á eiga afskipti barnaverndar- yfirvalda af fjölskyldum að heyra til undantekninga. Er m.a. ákvæði til verndar friðhelgi heimilisins í 66. gr. stjórnarskrár íslands nr. 33/1994 og í Mannréttindasátt- mála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, er lögð áhersla á friðhelgi einka- lífs, fjölskyldu og heimilis. Mikil- væg ákvæði eru í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 1989, sem var fullgiltur af íslands hálfu árið 1992, en skv. 7. gr. sáttmálans skal tryggja rétt barns til þess að þekkja foreldra 'sína og njóta umönnunar þeirra, skv. 8. gr. skal virða rétt barns til þess að viðhalda fjölskyldutengslum og skv. 9. gr. skal tryggt að barn verði ekki skil- ið frá foreldrum sínum gegn vilja þeirra nema nauðsyn beri til. Þann- ig er gengið út frá því að hagsmun- ir barna verði alla jafna best tryggðir með því að þau alist upp hjá eigin fjölskyldu. Stundum vaknar þó grunur um að velferð barns sé í hættu innan fjölskyldunnar t.d. vegna framferð- is foreldranna. Bæði Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna og íslensku barnaverndarlögin gera ráð fyrir að börn eigi að búa við það sem skilyrðislaus mannréttindi að þeim verði komið til hjálpar við þessar kringumstæður. Aðgerðir barna- verndaryfirvalda geta því verið nauðsynlegur liður í að treysta sjálfsögð mannréttindi barna. klæðnaður Það er samspil rétt- inda fjölskyldunnar og réttinda bamanna sem er svo erfitt í fram- kvæmd. Til hvers þarf að huga að málsmeðferðar- reglum? Afskipti barna- verndaryfirvalda af fjölskyldum eru í raun- veruleikanum oft fyrir- boði einhvers konar hörmunga. Foreldrar eru oft mjög ósáttir við afskipti yfirvalda, eru ósammála því að að- búnaði barns sé ábótavant og upp- lifa gjarnan aðgerðir sem beinar árásir gegn hagsmunum barnsins. Yfírleitt er þetta uppnám viðbót við bágborið ástand sem kann að vera á heimili og því miður þurfa börnin iðulega að þola miklar þján- ingar í þessu stríði. Til að ná sem farsælastri lausn erfiðra barnaverndarmála er mjög brýnt að móta ásættanlegar reglur um málsmeðferð. Reglurnar þurfa að vera skýrar, sanngjarnar, fyrir- sjáanlegar og með því markmiði að aðilar geti borið traust til kerfis- ins. Reglurnar þurfa þannig að vera til þess fallnar að treysta réttaröryggi allra þeirra sem að málunum koma. Ég tel mjög vert að skoða hvort ekki skorti á'eitt- hvað í málsmeðferð barnaverndar- mála á íslandi svo að markmiðum þessum verði betur náð. Ég vil leggja ríka áherslu á að ég er ekki að halda því fram að niðurstöður barnaverndaryfirvalda séu frekar efnislega rangar en rétt- ar. En það er svo með réttlætið að það er ekki nóg að efnisleg niðurstaða ágreinings kunni að vera rétt, það skiptir miklu máli að þeir sem deila trúi því að beitt hafi verið réttum og sanngjörnum aðferðum við að komast að sem bestri niðurstöðu. Það er grundvall- Aðalókosturinn við málsmeðferð barna- verndarnefnda er sá, segir Hrefna Friðriks- dóttir, að sami aðili rannsakar mál, aflar og metur gögn og úrskurðar um eigin uppástungur. arforsenda réttarríkis að þegnarnir telji að úrskurðaraðilum sé trey- standi. Því er stundum haldið fram að núgildandi málsmeðferðarreglur tryggi ágætlega réttaröryggi barna þó þær tryggi ekki að sama skapi réttaröryggi foreldranna. Þetta getur þó varla staðist. Ef réttarör- yggj foreldra er ekki nægilega tryggt við meðferð máls, t.d. máls um að svipta foreldri forsjá barns, þá eykur það tortryggni í garð hins endanlega úrskurðar og dregur þannig úr . „réttmæti" hans. Ef hægt er að efast um réttmæti úr- skurðar barnaverndaryfirvalda um að svipta foreldri forsjá, þá er um leið hægt að efast um að gætt hafi verið hagsmuna barnanna. Það má þannig ekki gleymast að þessar ákvarðanir snúast um samspil milli réttinda foreldra og réttinda barna. Ef foreldri er mjög ósátt við ákvörðun þá er einnig hætta á að það hafi áhrif á sálarástand og framtíð þess barns sem málið snýst um. Hver á að fara með úrskurðarvald í barnaverndarmálum? íþyngjandi ákvörðun, eins og að svipta foreldri fgrsjá barns, er mjög erfið og afdrifarík aðgerð. Þess vegna er eðlilegt að athyglin bein- ist að því hvort bæta þurfi máls- meðferð á því sviði. Það er gífur- lega mikilvægt að vanda til máls- meðferðar við frumákvörðun um forsjársviptingu. Líkur foreldra á að fá börn sín aftur minnka oft með hveijum degi sem líður frá því að forsjársvipting á sér fyrst stað. Börn eiga rétt á stöðugleika í lífi sínu og þau mynda fljótt tengsl við þann sem sýnir þeim ástúð og hlýju. Málskot úrskurðar um forsjársvipt- ingu er oft því miður nánast eins og vítahringur — eftir því sem tíminn líður rofna tengsl barns við foreldra og ný tengsl myndast sem varhugavert getur verið að ijúfa. Frumúrskurðarvald um forsjár- sviptingu er nú í höndum barna- verndarnefnda. Aðalókosturinn við málsmeðferð barnaverndarnefnda er sá að sami aðilinn rannsakar mál, aflar gagna, metur gögnin, stingur upp á úrræðum og úrskurð- ar um eigin uppástungur. Finnst foreldrum að þeir hafi litla mögu- leika til þess að hafa áhrif á niður- stöðu. Þessi málsmeðferð skapar vantraust aðila í garð nefndarinnar og um leið vantraust á úrskurðum hennar. Það skaðar svo aftur allt barnaverndarstarf á landinu. Úrskurðarvald er víða í höndum dómstólanna en.við setningu laga nr. 58/1992 var þessari leið hafn- að. Þó var viðurkennt að dómstóla- leiðin væri eflaust best til þess fall- in að tryggja rétt foreldranna. Málsmeðferð fyrir dómstólum byggir á traustum meginreglum með það markmið að tryggja rétta- röryggi málsaðila og réttlátar nið- urstöður. Fólk sættir sig almennt við að dómstólar ráði til lykta ágreiningi á þann skásta veg sem við kunnum. Til samanburðar má nefna að dómstólum er treyst fyr- ir því að leysa úr ágreiningi for- eldra um forsjá barna vegna skiln- aðar. Það má vel vera að stjórnvalds- leiðin sé heppilegri og fóru Norð- menn t.d. þá leið við síðustu endur- skoðun sinna barnaverndarlaga árið 1992. En jafnvel þá tel ég nauðsynlegt að bæta núverandi fyrirkomulag og móta málsmeð- ferðarreglur sem líkjast því sem gerist fyrir dómstólunum. Finnst mér athugandi að frumúrskurðar- vald um forsjársviptingu verði í höndum hlutlauss stjórnvalds, skip- uðu mönnum með sérþekkingu. Barnaverndarnefndir gætu verið áfram til staðar með það hlutverk að styðja við bakið á fjölskyldu, gera áætlanir um úrræði o.s.frv. Ef talið væri rétt að grípa til að- gerða gegn vilja foreldra, ætti barnaverndarnefnd þann kost að gera skriflegar rökstuddar, kröfur fyrir stjórnvaldinu sem færi með úrskurðarvaldið. Síðan yrði rekið ágreiningsmál þar sem sóknaraðili yrði barnaverndarnefnd og varnar- aðilar foreldrarnir og barnið eftir* atvikum, sem myndi skapa ákveðið jafnræði með aðilum. Stjórnvaldið sem úrskurðaði myndi hafa eftirlit með gagnaöflun aðilanna eða sjá um í samráði við aðila að gagna yrði aflað frá óháðum sérfræðing- um. Málflutningur færi svo fram eftir svipuðum reglum og fyrir dómstólum. Málskotsréttur Spurning um frumúrskurðar- vald er ekki það eina sem kallar á breytingar á núgildandi lögum. Eins og úrskurðarvaldinu er núna farið, á skv. lögum að leysa endan- lega úr málum á stjórnvaldsstigi, hjá barnaverndarnefnd með mál- skotsrétti til barnaverndarráðs og er ekki gert ráð fyrir að mál fari til dómstólanna. En um leið hafa íslendingar fullyrt á alþjóðavett- vangi að hægt sé að krefjast end- urskoðunar fyrir dómstólum. í 9. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er gerð sú krafa að hægt sé að skjóta forsjársviptingarúr- skurðum til dómstóla. Við fullgild- ingu samningsins af hálfu íslands var því lýst yfir að dómstólar geti endurskoðað ákvarðanir stjórn- valda skv. 60. gr. stjórnarskrár- innar. Að óbreyttum lögum eru því fjögur úrskurðarstig í barna- verndarmálum, barnavernd- arnefnd, barnaverndarráð, héraðs- dómur og Hæstiréttur. Þá eru ekki til neinar sérreglur um dómstóla- meðferð þessara mála svo sem æskilegt er. Niðurstaða Það er því að mínu mati nokkuð brýnt að huga að breytingum á málsmeðferð barnaverndarmála. Það þarf að tryggja réttaröryggi allra aðilanna, tryggja jafnræði og faglega, skjóta og örugga úrlausn sem um leið er lykillinn að bættum mannréttindum barnanna, velferð þeirra og bjartari framtíð. Höfundur er lögmaður og vinnur m.a. fyrir BnrnaheiU. HEILBRIGÐISRAÐUNEYTIÐ heldur því fram að tilvísanaskyldan sé í þágu sjúklinga ÞETTA E rRAIUGT Það er ekki í þágu gamals fólks og lasburða að fara tvær ferðir í stað einnar til að komast til læknis, fyrst á heilsugæslustöðina og síðan til n sérfræðingsins sem það á erindi við. Tilvísanaskyldan er fjandsamleg sjúklingum sem eiga erindi við sérfræðinga EFTIRTALDIR LÆKNAR MUNU EKKI STARFA SAMKVÆMT TILVÍSANASKYLDU: HÁLSNEF- OG EYRNALÆKNAR Datiiel Guðnasoti Eittar Ólafison Einar Sindrason Eittar Thoroddsen Erlingur Þorsteinssoti Fribrik Guðbrandsson Friðrik Páll Jónsson Hannes Hjartarson Kristján Guðtnundsson Ólafiir F Bjarnasoti Páll M. Stefánsson Sigurður Júlíusson Sigtirður Stefánsson Stefán Eggertssott Stefátt Skaftason Stefáti Ólafsson Þórir Bergmundsson HEILA- OG TAUGASKURÐLÆKNAR Arott Bjö'rnsson Bjarni Hannesson Kristinn Guðmundsson Þórir Ragnarssott KRABBAMEINSLÆKNAR Guðjón Baldursson Guðrnundur Benediktsson Helgi Sigurðssoti Jótt Hrafitkelsson Kjartan Magnússon Sigurður Árnason Sigurður Björttsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.