Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 7
íslandsflug-
Með kaup-
rétt á nýrri
skrúfuþotu
ÍSLANDSFLUG hf. hefur tryggt sér
kauprétt á um tíu ára gamalli 19
sæta Dornier-skrúfuþotu sem er í
eigu flugfélags á Norðurlöndum og
verður hún afhent um miðjan júní
næstkomandi ef allt fer eftir áætlun
að sögn Ómars Benediktssonar
stjórnarformanns íslandsflugs.
Hann kvaðst reikna með að vélin
verði í notkun í innanlandsflugi hér-
lendis í sumar, en síðan eigi menn
jafnvel von á að hún verði leigð til
útlanda. Ekki sé heldur útilokað að
selja hana áfram. Ómar segir að
fyrirtækið hafí fengið vélina á mjög
hagstæðum kjörum, en vildi ekki
greina frá kaupverði að svo stöddu.
Ekki verði fækkað í flugkosti ís-
landsflugs þrátt fyrir tilkomu Dorni-
er-vélarinnar.
Ómar segir að fyrirtækið fái sí-
fellt fleiri óskir um ýmis verkefni
og leigu á vélum sem það hafi ekki
getað sinnt til þessa, en með kaupum
á Dornier-vélinni ætti að vera mögu-
legt að anna slíkum beiðnum.
Trygginga-
bætur hækka
um 4,8%
VEGNA nýgerðra kjarasamn-
inga á almennum vinnumark-
aði hækká allar bætur al-
mannatrygginga nú um 4,8%
Greiðslur frá Trygginga-
stofnun til einstaklings, sem
nýtur óskerts elliiífeyris, tekju-
tryggingar, heimilisuppbótar
og sérstakrar heimilisuppbótar
munu þannig hækka úr 48.028
krónum í 50.334 krónur á
mánuði.
Þessi hækkun á bótum er
afturvirk til 1. mars en kemur
til framkvæmda 1. apríl nk.
Þá greiðir Tryggingastofnun
út samanlagða hækkun fyrir
mars og apríl. Upphæðir bóta
verða því nokkru hærri í apríl
en mánuðina á eftir. Einstak-
lingur með óskertan ellilífeyri,
fulla tekjutryggingu, heimilis-
uppbót og sérstaka heimilis-
Gjaldþrot Vínils
204 millj.
204 milijónir króna töpuðust í gjald-
þroti Vínils hf., fyrirtækis sem
lengst af starfstíma sínum hét
Steinar hf. og starfaði á sviði hljóm-
plötuútgáfu.
Vínill hf. varð gjaldþrota í sept-
ember 1993 og var nýlega greint
frá skiptalokum í Lögbirtingablað-
inu.
Samtals var lýst kröfum fyrir
204,2 milljónir króna, auk vaxta
og kostnaðar, en engar eignir fund-
ust í þrotabúinu til að greiða kröfu-
höfum.
623 millj. tap á
þrotabúi Isnó
TAP kröfuhafa í þrotabú fiskeldis-
fyrirtækisins Isnó, sem varð gjald-
þrota í apríl 1992, nam um 623
milljónum króna.
Skiptum í þrotabúinu er nýlega
lokið. Lýst var almennum kröfum
fyrir 615,9 milljónir króna og
greiddist ekkert upp í þær.
Samþykktar forgangskröfur
voru 9,1 milljón króna og upp í þær
fengust greiddar 1.700 þúsund
krónur eða 19,2%.
ísnó starfaði m.a. í Árnessýslu,
Vestmannaeyjum og Kelduhverfi.
_ jepP*'
9 _jaK/örU H° , 1 n \áQU
drtfi 09 ac
öer1SÍríSðe^rfe'en
ggve^o
að
• IrÁAtVt*
\eðuri'U.
yð\Du