Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 13
V<J urjr miM 5? r MORGUNBLAÐIÐ ______________________________________________________________________MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 13 FRÉTTIR Fundur með stjórnmála- mönnum um lánamál náms- manna BARÁTTUFUNDUR námsmanna- hreyfínganna verður haldinn í sal 2 í Háskólabíói í dag, miðvikudaginn 22. mars, kl. 12.10. Fundurinn er í umsjón Stúdentaráðs H.í. og hefst með umfjöllun Dags B. Eggertsson- ar um afleiðingar lánasjóðslaganna og breytingar á LÍN og stefnu náms- manna í lánamálum. Fulltrúar allra sjórnmálaflokka sem bjóða fram á landsvísu mæta og greina frá stefnu síns flokks í málefnum Lánasjóðsins. Fulltrúar flokkanna á fundinum eru Gunnar I. Birgisson, stjórnarformaður LÍN f.h. Sjálfstæðisflokks, Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra f.h. Alþýðuflokks, Finnur Ingólfsson, fv. stjórnarmaður LÍN f.h. Framsóknar- flokks, Kristín Ástgeirsdóttir, full- trúi í menntamálanefnd Alþingis f.h. Kvennalista, Svavar Gestsson, fv. menntamálaráðherra f.h. Alþýðu- bandalags, Mörður Árnason, fv. stjórnarmaður í LÍN f.h. Þjóðvaka. —...--»■ ♦ ♦----- ■ FRAMBJÓÐENDUR Kvenna- listans í Reykjavík verða til viðtals daglega á kosningaskrifstofunni Laugavegi 17. 2. hæð, milli kl. 17 og 19. Einnig eru frambjóðendur tilbúnir að koma á fundi með félaga- samtökum eða á vinnustöðum. Þriðjudagur 21. mars: Kristín Ást- geirsdóttir og Þórunn Sveinbjarn- ardóttir, miðvikudagur 22. mars: Guðrún Halldórsdóttir og Guðný Guðbjörnsdóttirj fimmtudagur 23. mars: Kristín Ástgeirsdóttir og María Jóhanna Lárusdóttir, föstu- dagur 24. mars: Þórunn Svein- bjarnardóttir og Guðný Guð- björnsdóttir, mánudagur 27. mars: Kristín Ástgeirsdóttir og Guðrún Halldórsdóttir. ■ SKATTAR á tímum kosninga- baráttunnar er yfirskrift opins fund- ar sem BSRB gengst fyrir miðviku- daginn 22. mars kl. 20.30 í Félags- miðstöðinni Grettisgötu 89. Eftir- taldir forystumenn þeirra stjóm- málaflokka og samtaka sem bjóða fram á landsvísu hafa framsögu: Jón Baldvin Hannibalsson, Alþýðu- flokki, Steingrímur J. Sigfússon Alþýðubandalagi/Óháðum, Guð- mundur Bj;irnason, Framsóknar- flokki, Kristín Ástgeirsdóttir, Kvennalista, Geir H. Haarde, Sjálf- stæðisflokki, Jóhanna Sigurðardótt- ir, Þjóðvaka. Fundarstjóri er Atli Rúnar Halldórsson fréttamaður. Nýjungar í kosningabaráttunni Flokksformenn á flettiskiltum AUGLÝSINGAR á fletti- og ljósa- skiltum eru nýmæli í kosninga- baráttu hérlendis og hefur fletti- skiltum með formönnum þriggja flokka verið komið fyrir víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis- flokkur hafa einnig gert samning við Kvikskjáinn hf. um auglýs- ingar á Ijósaskiltum þess. Alþýðuflokkurinn hefur leigt 20 skilti í fjórum kjördæmum og auglýsir víðs vegar í Reykjavík, á Reykjanesi, Akranesi og Akur- eyri. Framsóknarflokkurinn auglýsir á sex skiltum og Sjálf- stæðisflokkurinn á fjórum fletti- skiltum og tveimur Ijósaskiltum. Kvikskjárinn leigir út ljósa- skilti á Kringlunni og ofan á Tunglinu í Lækjargötu og segir Samúel Þórarinsson auglýsinga- hönnuður að leiga á skiltinu í viku, sem þýðir 1.400 birtingar í tíu sekúndur, kosti tæp 30.000, tvær vikur, eða 2.800 birtingar, kosti tæp 58.000 og fjögurra vikna leiga, 5.600 birtingar, kosti tæp 112 þúsund, að virðisauka- skatti undanskildum. Ofmetið áróðursbragð Ólafur Ingi Ólafsson annar eigandi Islensku auglýsingastof- unnar, sem annast auglýsinga- gerð fyrir Sjálfstæðisflokkinn, segir að flettiskiltin hafi fyrst verið notuð fyrir borgarstjórnar- kosningarnar siðastliðið vor. „Flokkarnir eru að feta hver í annars fótspor með þetta núna en ég held að þetta sé svolítið ofmetið áróðursbragð," segir Ólafur Ingi. „Hendur auglýsand- ans eru afar bundnar. Þetta er líkt og skjámynd í sjónvarpi og jafnvel takmarkaðra en það því auglýsandinn er í samkeppni við allt umhverfið og einungis örfáar sekúndur til að koma skilaboðun- um á framfæri." Ólafur Ingi segir ennfremur að birting á einum fleti flettiskilt- is í einn mánuð kosti um 50.000 krónur og síðan sé kostnaður við myndgerðina áþekkur, eða um 50.000 krónur. Hvert skilti hefur þrjá fleti. Deilur um sjávarútvegsstefnu í Framsóknarflokki á Reykjanesi Deilt á frambjóðendur FRAMBJÓÐENDUR Fram- sóknarflokksins á Reykjanesi voru gagnrýndir af samflokksmönnum sínum vegna þeirrar sjávarútvegs- stefnu sem þeir hafa boðað, á opnum stjórnmálafundi sem Fram- sóknarflokkurinn stóð fyrir sl. sunnudagskvöld í Sandgerði. Siv Friðleifsdóttir, efsti maður á lista flokksins á Reykjanesi, sagði í samtali við Morgunblaðið að eðlilega væru skiptar skoðanir innan flokksins um þessi mál og fundurinn hefði verið mjög fjörug- ur. Hún sagðist hafa fengið nokkr- ar pillur og vægar hótanir á fund- inum frá einstökum fundarmönn- um sem hefðu verið algerlega ós- ammála hugmyndum frambjóð- endanna en það væri ekkert nema eðlilegt þegar um væri að ræða svo stórt hagsmunamál þjóðarinn- ar. „Auðvitað eru ekki allir sam- mála um þessa stefnu, enda það miklir hagsmunir í húfi að það verða sennilega aldrei allir sam- mála um þetta. Við höfum sett fram nýjar áherslur í kvótakerfinu en viijum að aflamarkið verði áfram við lýði. Við viljum að þorsk- heimildir verði færðar að einhveiju leyti af togurum yfir á bátaflotann og teljum að það leiði til þess að veiðarnar verði vistvænni og að við fáum betra hráefni,“ segir Siv. Sjávarút- vegsstefna Kvennalistans KVENNALISTINN á Suðurlandi verður með opinn fund um sjáv- arútvegsstefnu Kvennalistans í Snótarsalnum, Heiðarvegi 7, Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 23. mars, kl. 20.30. Á fundinum verða Drífa Kristj- ánsdóttir sem skipar 1. sæti Kvennalistans á Suðurlandi og Kristín Ástgeirsdóttir þingkona Kvennalistans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.