Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Skipasmíðastöðin á ísafirði hefur smíði á alíslenskri skútu
Verður leigð
ferðamönnum
ísafirði. Morgunblaðið
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur milli Skipasmíða-
stöðvarinnar hf. á Isafirði og
Guðmundar Thoroddsen, mynd-
listarmanns á ísafirði, um smíði
á 12 metra langri og 3,8 metra
breiðri skútu sem ætlað erað
þjóna ferðamönnum er til ísa-
fjarðar koma á næstu árum.
Aætlað er að smíði á skrokki
skútunnar ljúki í vor en að henni
Iokinni verður hafist handa við
að byggja ofan á hana og inn-
rétta. Að sögn Guðmundar
standa vonir til að skútan verði
tilbúin fyrir fyrstu viðskiptavin-
inaí maí 1996.
„Ég held að þetta sé í fyrsta
skipti sem slík skúta er að öllu
leyti hönnuð og smiðuð hér á
landi. Hér er um að ræða sam-
starfsverkefni Skipasmíðastöðv-
arinnar, Sigurðar Jónssonar,
smábátahönnuðar á Akureyri,
og Guðmundar Thoroddsen,
eins af eigendum skútunnar.
Þetta er fyrsta nýsmíðaverkefn-
ið okkar í langan tíma og því
kærkomið verkefni," sagði Sig-
urður Jónsson, framkvæmda-
stjóri Skipasmíðastöðvarinnar, í
samtali við blaðið.
„Hugmyndin er upprunalega
komin frá mér og í framhaldi
af því stofnuðum ég og eigin-
konan, Elísabet Gunnarsdóttir
arkitekt, fyrirtæki um smíðina
og reksturinn. f framhaldi af
því höfum við talað við vini og
kunningja sem eru mjög svo
áhugasamir um að vera með í
dæminu. Skútan er fyrst og
fremst hugsuð sem þjónustu-
tæki fyrir ferðamenn sem geta
tekið hana á leigu með tveggja
manna áhöfn, skipsljóra og
leiðsögumanni, og haldið í tíu
daga ferðir um Vestfirði en
svefnpláss er fyrir átta manns
um borð. Skútan verður öllum
til reiðu en aðalmarkaðssetn-
ingin mun fara fram í Frakk-
landi. Þetta verður viðauki við
ferðamannaþjónustuna á svæð-
inu,“ sagði Guðmundur Thor-
oddsen.
Ekki boðið áður upp
á slíka þjónustu
Guðmundur sagði að vonir
stæðu til að skútan yrði tilbúin
í maí á næsta ári og var hann
bjartsýnn á framhaldið, þar sem
ekki hefði verið boðið upp á
slíka þjónustu fyrr hér á Iandi.
„f Chile og Argentínu eru slík-
ar skútur leigðar út og er tölu-
verð ásókn í þær. Endanlegur
kostnaður við smíðina liggur
ekki enn fyrir en frumáætlanir
gera ráð fyrir að fullbúin muni
skútan kosta um 13 milljónir
króna. Hér er um tilraunaverk-
efni að ræða og því höfum við
fengið 500 þúsund króna aðstoð
til verksins frá Byggðastofnun.
Morgunblaðið/Siguijón J. Sigurðsson
MARSELLÍUS Sveinbjörnsson verkstjóri og Guðmundur Thorodd-
sen takast í hendur yfir kjöl skútunnar að samningi undirrituðum.
Verslunar-
skólinn
afturkall-
ar tilboð
VERSLUNARSKÓLI íslands dró í
gær til baka tilboð sitt um kaup-
hækk'un til kennara í HÍK. Þorvarð-
ur Elíasson skólameistari sagði að
þetta hefði verið gert þar sem kenn-
arar krefðust 5% hækkunar til við-
bótar við tilboð skólans, en það hefði
falið í sér 18,7% kauphækkun. Már
Vilhjálmsson, formaður hagsmuna-
nefndar HÍK, sagði að kennarar
væru tilbúnir til að ræða áfram við
stjórnendur Verslunarskólans.
Þorvarður sagði bersýnilegt á
afstöðu HÍK að það vildi fyrst semja
við ríkið áður en það semdi við
Verslunarskólann. Hann sagði að
skólinn sætti sig við þá niðurstöðu
og myndi bíða eftir úrslitum við-
ræðna kennara og ríkisins.
Már sagði að HÍK teldi ekkert
því til fyrirstöðu að fallast á ósk
Verslunarskólans um að gera sér-
stakan samning við félagið. „En
hann verður þá líka að innibera all-
ar þær greinar sem taka á kjörum,
ráðningarfestu og réttarstöðu kenn-
ara við skólann eins og aðrir kjara-
samningar á almennum markaði
gera.“
HÍK óánægt með drögin
Már sagði að mikið hefði vantað
á að HÍK hefði verið sátt við þau
samningsdrög sem stjórnendur
Verslunarskólans lögðu fyrir samn-
inganefnd félagsins. í drögunum
hefði verið að finna nokkuð mörg
atriði sem hefðu falið í sér kjara-
skerðingu frá núgildandi samningi.
Akvörðun meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
Hagvirkismálið til
ríkissaksóknara
ODDVITAR meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hafa óskað eftir því
við embætti ríkissaksóknara, að fram fari opinber rannsókn á því hvort
um refsivert athæfi hafi verið að ræða í fjármálalegum viðskiptum Hafnar-
fjarðarbæjar við Hagvirki-Klett hf., á árunum 1992 til 1994.
Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi
Alþýðuflokks, segir gott að fá úr
því skorið hvort um eitthvað sak-
næmt sé að ræða í viðskiptum
bæjarins við fyrirtækið.
I frétt frá Magnúsi Gunnarssyni,
oddvita sjálfstæðismanna, og
TÆKJUM fyrir um fjórar milljónir
var í fyrrinótt stolið frá Kvikmynda-
gerðinni Garpi við Norðurstíg. Verð-
mætust voru kvikmyndatökuvél og
tölvuklippikerfi sem var nýkomið til
landsins.
Að sögn Guðbergs Davíðssonar,
eiganda Garps, var farið inn í klippi-
tölvuna, sem er af nýjustu og full-
komnustu gerð, og öllu stolið innan
úr henni, m.a. örgjörvanum, en kass-
inn skilinn eftir. Fyrsta verkefnið,
sem unnið var í tölvunni var mynd
um Einar Má Guðmundsson, sem
átti að sýna í Sjónvarpinu eftir um
tvær vikur.
Auk þess var stolið geislaspilara
Magnúsi Jóni Árnasyni, bæjarstjóra
og oddvita Alþýðubandalags, segir
að beðið sé um rannsóknina í fram-
haldi úttektar Löggiltra endurskoð-
enda hf., á umræddum viðskiptum.
í þeirri úttekt komi fram alvarlegar
ábendingar og líkur leiddar að
og nokkrum tugum geisladiska, sím-
um, símsvörum, faxtæki, ferðatölvu,
prentara og myndbandstæki. Guð-
bergur segir að innbrotsþjófarnir
hafi greinilega bara verið að leita
að verðmætum því þeir hafi skilið
eftir ávísanahefti og gamla Macin-
tosh-tölvu.
Guðbergur segir að honum finnist
ólíklegt að hægt verði að koma kvik-
myndatökuvélinni í verð hérlendis
vegna þess hve allir þekkist vel og
markaðurinn sé lítill. Vélin var
tryggð en það var klippitölvan hins
vegar ekki vegna þess að hún var
nýkomin til landsins.
hugsanlegum lögbrotum. Sem
sveitarstjórnarmenn hafi þeir leitað
til félagsmálaráðuneytisins og ósk-
að eftir úrskurði á framkomnum
ásökunum.
Geta varðað við refsilög
Þá segir: „Ráðuneytið svaraði
málaleitan okkar þann 11. mars
1995 og tekur ekki efnislega á
málinu en vekur athygli á því að
séu ávirðingar þær sem bornar eru
fram réttar þá geti þær varðað við
refsilög og að rannsókn slíkra mála
sé í höndum lögreglu. Málið snýst
um meðferð opinbers fjár og þá
ábyrgð sem því fylgir. Leikreglur
þurfa að vera skýrar og þegnar
þessa lands eiga rétt á að vita hvaða
heimildir þarf til að útdeila því fé.
Í þessum málum þurfa að vera
hreinar línur og þess vegna sjáum
við ekki annan kost vænni en að
vísa málinu áfram í þeirri vissu að
málið fái efnislega meðferð."
Minnihlutinn fagnar
ákvörðuninni
Tryggvi sagðist í sjálfu sér fagna
þessari ákvörðun. „Menn eru búnir
að vera með rógburð, dylgjur og
ásakanir á hendur fyrrverandi
meirihluta og það er gott að fá úr
því skorið hvort hér sé um eitthvað
saknæmt að ræða,“ sagði hann.
„Ég hef aldrei skilið hvað vakir
fyrir mönnum með þessu að færa
pólitíkina út í réttarkerfið en það
er þeirra höfuðverkur. Ég fagna
því að þetta muni leiða í ljós að
málið hefur verið rugl hjá þeim frá
upphafi til enda.“
Brotist inn í kvikmyndagerð í fyrrinótt
Tækjum fyrir 4
milljónir stolið
BRETARNIR lögðu upp frá Bjargtöngum 4. mars síðastliðinn. Með
þeim á myndinni eru félagar í björgunarsveit SVFÍ á Patreksfirði.
Breski leiðangTirinn kominn í Hrútafjörð
Héldu sig á láglendi
í versta veðrinu
BRETARNIR fjórir, sem eru á
göngu yfir þvert landið, eru nú
staddir í Reykjaskóla í Hrútafirði
en þeir lögðu af stað frá Bjargtöng-
um 4. mars sl. Ferð þeirra hefur
gengið samkvæmt áætlun, en þeir
hafa hagað henni eftir veðri og
farið niður á láglendi þegar það
hefur versnað.
Björgunarsveitir Slysavarnafé-
lags íslands á Patreksfirði og Reyk-
hólum hafa fylgst með ferð þeirra
og hafa Bretarnir gefið upp ná-
kvæma staðsetningu í gegnum bíla-
síma á hvetjum degi.
Heyrðu ekki veðurspá
í þijá daga
Að sögn Seans Chapple leiðang-
ursstjóra lentu þeir í vandræðum í
síðustu viku vegna þess að ein síma-
rafhlaðan var ekki fullkomlega
hlaðin og heyrðu þeir af þeim sökum
ekki veðurspá I þrjá daga. Þeir
reyndu þó að lesa í skýin eftir bestu
getu til að spá í veðrið sjálfir.
Þeir héldu niður á láglendi þegar
þeim sýndist óveður í uppsiglingu
og í Geiradal mættu þeir félögum
í björgunarsveit SVFÍ á Reykhólum.
Þeir fengu inni í eyðibýli í tvo daga
meðan versta veðrið gekk yfir fyrir
síðustu helgi. Þeir fylgdu síðan vegi
síðasta hlutann áður en þeir komu
að Reykjaskóla, þar sem þeir ætla
að vera í nokkra daga.
Degi á undan áætlun
Sean sagði í samtali við blaða-
mann í gær að allir leiðangursmenn
væru við góða heilsu, eitthvað væri
þó um blöðrur og eymsli sem þeir
ætla að láta jafna sig meðan þeir
dvelja í Reykjaskóla.
Þeir halda áfram á fimmtudag
og ætla að verða á Hveravöllum
eftir næstu helgi. Þrátt fyrir að
hafa beðið af sér veður í síðustu
viku eru þeir einum degi á undan
áætlun.