Morgunblaðið - 22.03.1995, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995
AKUREYRI
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Vistun grunnskólanema næsta skólaár samþykkt
Börn í 1. til 4. bekk fái
vistun utan skólatíma
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti á fundi í gær tillögu skóla-
nefndar um vistunarmál fyrir
grunnskólanemendur sem taka gildi
frá og með næsta skólaári.
í þeim felst m.a. að nemendum
í 1. til 4. bekk í grunnskólum bæjar-
ins verði boðið upp á vistunartilboð
utan kennslutíma á tímabilinu 7.45
til 17.15 alla virka daga. Þau eru
ætluð þeim nemendum þessara ár-
ganga þar sem foreldrar óska eftir
að fá slfka þjónustu þann tíma sem
óskað er eftir hveiju sinni og þarf
að panta fyrirfram fyrir minnst
mánaðartímabil. Foreldrar bama
sem nýta þjónustuna greiða 100
krónur á klukkustund, en þó að
hámarki 6.500 krónur á mánuði
fyrir allt að 4 tíma á dag og skal
greiða fyrirfram fyrir hvern mánuð.
Þá er skólunum gert að veita fötluð-
um bömum og börnum með sérþarf-
ir þá þjónustu utan kennslutíma
hveiju sinni sem lög og reglugerðir
kveða á um.
Ásta Sigurðardóttir formaður
skólanefndar kynnti tillögurnar á
fundi bæjarstjórnar og sagði það
metnaðarmál að gera eins vel og
hægt væri, húsnæðismál skólans
væru þyngst í vöfum, víða væru
þrengsli en vissulega væri allt hægt
með góðum vilja.
Starfsmaður ráðinn til að
sinna félagsmálum
Þá samþykkti bæjarstjórn einnig
að ráðinn verði tímabundið, frá
apríl til júlí á næsta ári, uppeldis-
menntaður starfsmaður, sérstakur
verkefnisstjóri við að koma á fót
námskeiðahaldi og fleim utan
skólatíma.
Skólanefnd héfur einnig lagt til
að allir nemendur sem dvelja 5
klukkustundir eða lengur samfellt
í skólanum fái þar létta máltíð og
hægt verði að velja milli þess að
neyta nestis sem komið er með að
heiman eða kaupa létta máltíð í
skólanum og þegar aðstæður leyfa
verði hægt að kaupa þar heita
máltíð.
Einnig kemur fram í tillögum
skólanefndar að frá næstu áramót-
um verði í hveijum skóla stefnt að
fjölbreyttum tilboðum námskeiða
fyrir nemendur í 4. til 10. bekk,
að danskennsla verði tekin upp í
tilteknum bekkjum frá og með
næsta skólaári og að unnið verði
að undirbúningi vistunartilboða fyr-
ir 10 til 16 ára fatlaða nemendur
sem ekki hafa tök á að nýta sér
almenn vistunartilboð og miðstöð
þessarar þjónustu verði í einum
skóla bæjarins. Þessum tillögum var
vísað til frekari umræðu í bæjarráði.
Bæjarfulltrúar sem til máls tóku
voru sammála um að um mikið
framfaramál væri að ræða.
Tilþrif á
svellinu
AKUREYRARMÓT í listhlaupi
fór fram á skautasvæði Skautafé-
lags Akureyrar síðdegis á mánu-
dag og mátti þar sjá unga og
efnilega listhlaupara sýna hvað
í þeim býr.
Valgerður Sólnes fór með sig-
ur af hólmi í flokki 10 ára og
yngri, Jódís Eiríksdóttir varð í
öðru sæti, Hjördís Bessadóttir í
því þriðja, Sigrún María Magnús-
dóttir og Sunna Hrafnsdóttir
deildu með sér fjórða til fimmta
sæti og Kristín Arnadóttir varð
í því sjötta.
Anna Rut Jónsdóttir bar sigur
úr býtum í flokki 11 ára og eldri,
Auður Pálsdóttir varð í öðru
sæti, Rakel Þorsteinsdóttir í
þriðja, Berglind Einarsdóttir í
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ANNA Rut Jónsdóttir sigraði
í flokki 10 ára og eldri.
fjórða og Hulda Dröfn Jónsdótt-
ir ífimmta sæti.
í karlaflokki varð Ingólfur
Þorsteinsson í fyrsta sæti og Sig-
urður Magnússon í öðru sæti.
Snjóhengja skemmdi bíla
STÓR snjóhengja féll af þaki fjöl-
býlishúss við Vestursíðu í fyrra-
kvöld og ofan á tvo bíla sem stóðu
á bílastæði undir húsinu. Báðir bíl-
arnir skemmdust nokkuð, að sögn
varðstjóra lögreglunnar á Akureyri.
Færð var víða erfið um götur
bæjarins í gærdag eftir að hlánaði.
Á hitamælum við lögreglustöðina
fór hitinn mest í 4,5 stig í gær en
spáð hafði verið allt að 8 til 10 stiga
hita. Kvaðst varðstjóri nokkuð
ánægður með að svo mikil þíða
hefði ekki orðið, betra væri að snjór-
inn færi hægt og rólega, það skap-
aði minni hættu á vatnstjónum.
Kvöldmess-
ur á föstu
FASTUR liður í starfi Akureyrar-
kirkju um árabil eru sérstakar
kvöldguðsþjónustur á miðviku-
dagskvöldum á sjö vikna föstunni.
Píslarsagan er lesin og hugleidd
og eingöngu sungnir sálmar úr
Passíusálmum séra Hallgríms Pét-
urssonar. í stað vígslusöngs og
bænagjörðar er fluttur sérstakur
bænasöngur, litanía.
Oftast hafa nágrannaprestar
ásamt kór og organista annast eina
af þessum guðsþjónustum og svo
verður í kvöld, miðvikudagskvöldið
22. mars, þegar sóknarprestur
Hríseyjarprestakalls, séra Hulda
Hrönn Helgadóttir, annast föstu-
guðsþjónustuna ásamt kór Stærri-
Árskógskirkju og Guðmundi Þor-
steinssyni organista.
Samvera
eldri borgara
SAMVERA eldri borgara verður í
Glerárkirkju á morgun, fimmtu-
dagskvöldið 23. mars,- frá kl.
15-17.
Samveran hefst með stuttri
helgistund í kirkjunni, síðan er
gengið í safnaðarsalinn þar sem
færi gefst á að spjalla og hlýða á
söng og þá er fólk hvatt til að
taka með sér spil. Boðið verður
upp á veitingar gegn vægu verði.
Morgunblaðið/Magnús H. Magnússon
Hólmavík á kafi í snjó
Fannfergið á Hólmavík er orðið með ólíkindum sem annars stað-
ar á Ströndum. Skaflar vefja sig um allt kauptúnið og bíllinn
verður ekki hreyfður fyrr en bráðnar. Það er rétt svo að menn
hafi yfirsýn af húsþakinu, þegar svo háttar til að hús standa
ofarlega í byggðinni. Aðrir sjá bara í snjóstálið og heiðan himininn.
Melur kaupir
franskan togara
Vestmannaeyjum - Fulltrúar Mels
hf., sem er í eign Vinnslustöðvar-
innar í Vestmannaeyjum og Meitils-
ins í Þorlákshöfn, skrifuðu á mánu-
dagskvöld undir samning um kaup
á togara frá Frakklandi. Togarinn
kemur í stað Sindra sem seldur var
til Noregs í vetur.
Togarinn, sem Melur hf. keypti,
heitir Sneca Nordica og var smíðað-
ur í Frakklandi 1984. Hann er 50
metra langur og 12,3 metrar á
breidd, búinn 2700 hestafla Warts-
ila Wasa aðalvél. Skipið var gert
út sem fullvinnsluskip og er búið
öllum vinnslubúnaði en það hefur
legið síðastliðin tvö ár í Frakk-
landi. Seljandi mun skila skipinu
með flokkunarfélagsvottorði, auk
þess sem skipið verður sandblásið,
málað og lagfært á annan hátt.
Skipið er þokkalega tækjum búið
og útbúið til flottrollsveiða en búist
er við að eitthvað þurfi að end-
urnýja af tækjum.
Að sögn Úlfars Steindórssonar,
fjármálastjóra Vinnslustöðvarinnar,
er kaupverð skipsins 215 - 220
milljónir króna og var skrifað undir
kaupsamning með fyrirvara af
hálfu kaupenda um fjármögnun og
samþykki stjórnar Mels hf., en án
allra fyrirvara af hálfu seljanda.
Úlfar sagði að skipinu yrði flaggað
til íslands en það yrði á B skrán-
ingu, sem þýðir að það er ætlað til
úthafsveiða en ekki veiða innan ís-
lenskrar lögsögu.
Morgunblaðið/Kári Jðnsson
Kennarar auka
sitt í verkfal
Drek
KENNARAR á Laugarvatni
sem eru allir í verkfalli þessa
dagana sitja ekki auðum hönd-
um því þeir nota tímann til að
efla þrek sitt og þol.
Gengið er á skíðum í ná-
grenni staðarins auk þess sem
farið er í lengri ferðir. Á
fyrstu helgi verkfalls fóru þeir
með hópi kennara frá Akra-
nesi upp á Lyngdalsheiði og
fyrir skömmu gekk hópur
kennara inn í leitarmannakofa
í Kringlumýri á Lyngdalsheiði
um 11 km leið í dásemdar-
veðri.