Morgunblaðið - 22.03.1995, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
‘ i
VIÐSKIPTI
Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn hf.
Hagnaður um
181 milljón
AFKOMA Eignarhaldsfélagsins Al-
þýðubankans hf. stórbatnaði á sl. ári
og nam hagnaður 181 milljón saman-
borið við 259 milljóna króna tap árið
áður. Það tap skýrðist að stærstum
hluta með breyttum reikningsskilað-
ferðum_ og lækkun á gengi hluta-
bréfa í íslandsbanka, segir í frétt frá
félaginu. Eigið fé skv. efnahags-
reikningi nemur um 961 milljón og
hlutafé 701,5 milljónum. Innra virði
félagsins hækkaði úr um 1,2 í 1,37
á árinu og eiginfjárhlutfall úr 77% í
81%. Hluthafar í árslok voru 980.
Jákvæða afkomu félagsins á síð-
asta ári má m.a. rekja til hækkunar
á gengi hlutabréfa í íslandsbanka
þar sem það er stærsti hluthafi bank-
ans með 12,7% hlutdeild. Bókfært
verð hlutabréfa í bankanum er 581
milljón eða um 58% af heildareignum
Eignarhaldsfélagsins. Þar að auki á
félagið hluti í 15 öðrum félögum sem
bókfærðir eru á 212 milljónir.
Markmið félagsins er að á hveijum
tíma sé sem næst 60-65% af eignum
þess í hlutabréfum hlutafélaga sem
skráð eru á Verðbréfaþingi Islands,
5-10% í erlendum hlutafélögum og
allt að 30% í hlutabréfum í óskráðum
félögum. Vantar nokkuð á að þessu
markmiði sé náð vegna eignarhlutar-
ins í íslandsbanka.
Á síðasta ári fjárfesti félagið í 5
óskráðum hlutafélögum fyrir 155
milljónir. Þar af nam fjárfesting í
Samskipum 50 milljónum, 25 milljón-
um í Samvinnuferðum-Landsýn hf.,
48,7 milljónum í SR-mjöli hf., 17,7
milljónum í Tæknivali og 8 milljónum
í Vestfirskum skelfiski hf.
Á aðalfundi félagsins á fímmtudag
verður lagt til að greiddur verði 6%
arður af hlutafé.
... Úr reikningum Olíufélagsins hf.
cSSOl gg dótturfyrirtækja árið 1994
Rekstrarreikninpur Miiijónir króna 1994 1993
Rekstrartekjur Rekstrargjöld 8.395 8.066 8.526 8.247
Rekstrarhagn. f.ljárm.tekjur og (fjárm.gj.) 329 279
Fjármunatekjur og (fjárm.gjöld) 55 (10)
Hagnaður fyrir reikn. tekju- og eignaskatt 384 269
Hagnaður 240 198
Efnahagsreikningur Miiijónir króna 1994 1993
Elgnlr:
Veltufjármunir 2.538 2.895
Fastafjármunir 4.391 4.207
Eignir samtals 6.929 7.102
Skuldir og eigið fó:
Skammtímaskuldir 1.910 2.230
Langtímaskuldir 1.466 1.547
Skuldir samtals 3.376 3.777
Eigið fé 3.553 3.325
Skuldir og eigið fé samtals 6.929 7.102
SjÓÖStreymÍ______________Milljónir króna 1994__________1993
Veltufé frá rekstri 610 513
QQ4 1 QQ'3
Eiginfjárhlutfall 51%47%
Trúirenn
áraf-
magnsbíla
Genf.Reuter.
FRANSKI bifreiðaframleiðandinn
Peugeot hefur ennþá trú á möguleik-
um rafknúinna bíla þrátt fyrir efa-
semdir sérfræðinga — ef stjórnvöld
veita nokkra fjárhagsaðstoð.
Peugeot hefur sýnt trú sína með
því að bjóðast til að selja nokkrar
rafknúnar útgáfur af gerðum sínum
106 og Citroen AX á næstu mánuð-
um.
Margir sérfræðingar telja að raf-
magnsbílar eigi sér enga framtíð
nema að til komi einhver ný og stór-
brotin tækniuppgötvun eða tilskip-
anir frá stjómvöldum um að ákveðið
hlutfall bifreiða verði að vera raf-
magnsbílar.
I Kaliforníu hafa verið samþykkt
lög um bann við mengun frá 2%
bifreiða, sem þar verða seldar 1998.
Þar með eru bílaframieiðendur
neyddir til þess í raun og veru að
bjóða rafknúna bíla, sem þeir telja
óhagkvæma og of dýra.
Með 12 milljóna
dollara laun á ári
Hagnaður Olíufélags-
ins hf. 240 milljónir
Armonk, New York. Reuter.
IBM hefur skýrt frá því að Louis
Gerstner stj ór narf ormaður hafi
fengið 2.6 milljóna dollara bónus
í fyrra og heildarlaun hans 1994
hafi numið tæpum 12.4 milljón-
um dollara að undanskildum rétti
til að kaupa tiltekinn fjölda
hlutabréfa á tilteknu verði.
Til samanburðar fékk Gerstn-
er um 7.5 milljónir dollara í laun
1993, árið þegar hann Iét af starfi
framkvæmdastjóra hjá RJR Nab-
isco og tók við stjórn stærsta
tölvufyrirtækis heims. Með laun-
um 1993 var heldur ekki talinn
með réttur til kaupa á tilteknum
fjölda hlutabréfa á tilteknu verði.
Þessar tölur eru meðal upplýs-
inga, sem eru birtar fyrir árs-
fund IBM 25. apríl. Á fundinum
munu hluthafar meðal annars
greiða atkvæði um laun fram-
kvæmdastjóra og velja nýja
stjórn að sögn IBM.
Við ákvörðun bónusar fram-
kvæmdastjóra 1994 var tekið til-
lit til góðrar afkomu fyrirtækis-
ins á árinu og skerfs Gerstners
til þess að sögn IBM.
HAGNAÐUR af rekstri Olíufélags-
ins hf. var 240 milljón krónur á ár-
inu 1994, borið saman við 198,4
milljóna hagnað 1993. Rekstrartekj-
ur Olíufélagsins voru 8.395 milljónir
króna 1994, sem var 1,6% lækkun
frá fyrra ári, þegar tekjurnar námu
8.526 milljónum. Rekstargjöld lækk-
uðu á móti um 2,2%, úr 8.247 millj-
ónum í 8.066 milljónir.
Olíufélagið hf. jók markaðshlut-
deild sína um rúmlega 0,6 prósentu-
stig á milli ára, og það var áfram
stærsta olíufélag á 'íslandi með
44,8% hlutdeild. Sala félagsins var
nær óbreytt á árinu 1994 frá árinu
áður, eða rétt tæp 280.000 tonn.
Innflutningur fyrirtækisins nam
266.000 tonnum, sem var 44% af
heildarinnflutningi olíufélaganna.
Rekstrarhagnaður fyrir fjár-
magnsliði nam 329 milljónum króna
árið 1994 samanborið við 279 millj-
ónir árið áður. Fjármagnstekur um-
fram fjármagnsgjöld námu 55 millj-
ónum, en þessi liður var neikvæður
um 10 milljónir árið áður. Samtals
var hagnaður fyrir reiknaðan tekju-
og eignarskatt 384 milljónir, en 240
milljónir eftir skatt eins og áður var
getið.
Skuldir minnka um 400 m.kr.
Eigið fé félagsins var 3.553 millj-
ónir í árslok 1994, sem var 51% af
heildarfjármagni félagsins, en 1993
var eiginfjárhlutfallið 47%. Arðsemi
eigin fjár var 7,2%. Skuldir Olíufé-
lagsins lækkuðu úr 3.777 milljónum
króna í 3.376 milljónir, eða um nær
11%. Eignir voru 6.929 milljónir bor-
ið saman við 7.102 milljónir 1993.
. • 11
Uppsöfnuð heimild Olís til útgáfu jöfnunarhlutabréfa hefur áhrif á skattamál
Ónýtt heimild
lækkar söluhagnað
Sala Sunds hf. á 45%
hlutafjár í Olís hefur
vakið upp spurningar
um skattlagningu sölu-
hagnaðarins. Hanna
Katrín Friðriksen
kynnti sér reglur um
þessi mál og upplýs-
ingaskyldu til Verð-
bréfaþings vegna við-
skiptanna.
SAMKVÆMT því sem Morg-
unblaðið kemst næst
greiddu Olíufélagið hf.
(Esso) og Texaco ríflega
þrefalt nafnverð fyrir 45,5% hlut
Sunds hf. í Olíuverslun íslands hf.
(Olís). Eignarhlutur Sunds, sem er
í eigu Gunnþórunnar Jónsdóttur,
var um 305 milljónir króna að nafn-
verði og kaupverðið skv. heimildum
Morgunblaðsins um einn milljarður.
í skattalögum segir
um sölúhagnað af eignar-
hlutum í félögum að
hagnaður af sölu hluta-
bréfa teljist að fullu til
skattskyldra tekna á
söluári og skipti ekki máli hve lengi
skattaðili hafi átt hin seldu hluta-
bréf.
Hagnaður af sölu hlutabréfa telst
vera mismunur á söluverði þeirra
annars vegar og kaupverði hins
vegar. Samkvæmt skattalögunum
eru tvær aðferðir til þess að meta
kaupverð hlutabréfa við útreikning
söluhagnaðar. Annars vegar er hægt
að taka upphaflegt kaupverð hluta-
bréfanna og hækka það svo eða
lækka skv. verðbreytingarstuðli.
Hins vegar er hægt að ákveða kaup-
verð hlutabréfa í hendi seljenda með
því að taka samanlagt nafnverð
hlutabréfanna og þeirra jöfnunar-
hlutabréfa sem hann hefur fengið
úthlutað eða heimilt hefði verið að
úthluta honum.
Áhrif jöfnunar-
hlutabréfanna
í tilfelli Sunds hf. þykir enginn
vafi leika á að hagkvæmara sé fyrir
seljandann að nota síðari
aðferðina til þess að
ákveða kaupverð hluta-
bréfanna, enda sé það
mun hærra þannig reiknað
og söluhagnaður því lægri.
Hjá Olís hefur í gegnum árin safn-
ast upp heimild til útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa fyrir háar ijárhæðir. Ein-
ar Benediktsson, framkvæmdastjóri
Olís, segist ekki hafa tiltækar ná-
kvæmar upplýsingar um hve ónýtt
heimild félagsins til útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa sé mikil. Hann segir þó
að um síðustu áramót hafi verið
miðað við gengið 2,60-2,70, þannig
að kaupverð í hendi seljanda sem
kemur til frádráttar söluverði er þá
nafnvirði hlutafjárins margfaldað
með þessu gengi. í stuttu máli þýðir
þetta að aðeins söluverð umfram
2,60-2,70 er skattskylt.
Sé millivegurinn farinn og miðað
við gengið 2,65 fæst kaupverð þeirra
bréfá sem Sund seldi með því að
margfalda nafnverð bréfanna, 305
milljónir, með 2,65. Útkoman er 808
milljónir króna. Mismunurinn á
söluverði á eignarhluta Sunds hf. í
Olís og kaupverðinu, 808 milljónum,
telst skattskyldur söluhagnaður. Ef
miðað er við að söluverðið hafl verið
milljarður er söluhagnaðurinn um
200 milljónir króna.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
í gær mun Gunnþórunn, skv. upplýs-
ingum blaðsins, hafa náð samningum
um jrfirverð fyrir hlutabréf Sunda.
Það þýðir í raun að hún hafí samið
við kaupendurna, Esso og Texaco,
um að greiða tekjuskattinn sem féll
á Sund vegna sölunnar eða um 100
milijónir króna, skv. framansögðu.
Olíuverslun íslands hf. er skráð á
Verðbréfaþingi Islands. I reglum um
skráningu hlutabréfa á Verðbréfa-
þingi íslands frá júní 1993, segir
að stjórn þingsins skuli tilkynnt
strax og félaginu, í þessu tilfelli
Olís, sé kunnugt um að eignaraðild
einhvers hluthafa, einstaklings eða
lögaðila, hafi breyst þannig að at-
kvæðisréttur hans hækki upp fyrir
eða lækki niður fyrir eftirtalin þrep:
10%, 20%, 33,3% 50% og 66,7%. Við
sölu Sunds hf. á 45,5% í félaginu
eignaðist Olíufélagið hf. 35,44% hlut
og Texaco jók hlut sinn úr 25,37%
í 35,44%.
Ekki yfirtaka
„Markmiðið með þessari upplýs-
ingagjöf er fyrst og
fremst að upplýsingarnar
komi upp á yfirborðið og
að allir hafí sama aðgang
að þeim,“ segir Tómas
Örn Kristinsson,
framkvæmdastjóri Verðbréfaþings
íslands. „í ljósi þess hvernig þetta
gerðist, þ.e. að viðskiptin voru
tilkynnt á blaðamannafundi og það
um helgi, myndi ég ætla að það
skaðaði ekki þó það hafi ekki komið
formleg tilkynning frá þeim enn.
Þeir segjast enda ekki vera búnir
að ganga formlega frá hlutunum."
Þeir aðilar sem koma að máli
vegna viðskiptanna með eignarhlut
Sunds í Olís þurfa ekki að tjlkynna
Verðbréfaþingi um kaupverðið skv.
reglum þingsins. Aðspurður hvort
það væri ekki umdeilanlegt þegar
um jafn stóran eignarhlut væri að
ræða sagði Tómas að hafa þyrfti í
huga að hér væri ekki um yfirtöku
að ræða á einn eða annan hátt þar
sem Sund hefði átt fyrir 45% í Olís.
Erlendis væri reglurnar hins vegar
víðast þannig að ef ákveðinn aðili
keypti jafnstóran eignarhluta og hér
um ræðir af mörgum smærri hlut-
höfum bæri honum skylda til að
bjóða öðrum hluthöfum að kaupa
þeirra hlutabréf á sama gengi, enda
væri þá um yfirtöku að ræða.
Hér á landi er ekki um slíkar regl-
ur að ræða, en rétt er að benda á
tillögur að breyttum samþykktum
íslandsbanka hf. sem lagðar verða
fram á aðalfundi félagsins og fela
m.a. í sér innlausnarskyldu stórs
hluthafa á eign annarra í íslands-
banka, eignist hann meira en þriðj-
ung í hlutabréfum bankans.
— Eitt að lokum. Nú keyptu Esso
og Texaco hlutabréf Sunds hf. í Olís
og þar sem Olíufélagið er skráð á
Verðbréfaþingi þarft að tilkynna þau
viðskipti. Hvað ef Esso og
Texaco hefðu keypt Sund
hf. ogþannig eignast bréf-
in í Olís?
„Mín túlkun á reglum
þingsins er sú að það hefði
ekki þurft að tilkynna kaupin ef svo
hefði verið,“ sagði Tómas Om Krist-
insson, framkvæmdastjóri Verð-
bréfaþings íslands.
200 milljón
ír skatt-
skyldar
Yfirverð
rennur til
skattslns
m
t