Morgunblaðið - 22.03.1995, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
FRÉTTIR
UNNIÐ í skozkri laxeldisstöð.
EFTA-dómstóllinn dæmir
í skozka laxeldismálinu
Urskurður ESA
ógiltur vegna
ónógs rökstuðnings
DÓMSTÓLL EFTA kvað í gær upp
dóm í máli Samtaka skozkra lax-
eldisstöðva (SSGA) gegn Eftirlits-
stofnun EFTA (ESA). Dómurinn
ógilti þann úrskurð ESA, að stofn-
unin hefði ekki lögsögu til að fjalla
um þær fullyrðingar SSGA, að
norska ríkisstjórnin veitti ólöglega
ríkisaðstoð til norskra laxeldis-
stöðva.
Málsatvik voru þau að 24. febr-
úar á síðasta ári lagði SSGA fram
kvörtun til ESA, þar sem því er
haldið fram að norskur laxeldisiðn-
aður hafi fengið ríkisaðstoð, and-
stætt ákvæðum samningsins um
Evrópskt efnahagssvæði. Óskað
var viðeigandi rannsóknar.-
Mánuði síðar svaraði ESA og tók
fram að viðeigandi ákvæði EES-
samningsins veittu Eftirlits-
stofnuninni ekki vald til að fjalla
um ríkisaðstoð við sjávarútveg og
væri málið því fellt niður. SSGA
höfðaði mál fyrir EFTA-dómstóln-
um til ógildingar þessari ákvörðun.
ESA hefur ekki
fullnaðarúrskurðarvald
EFTA-dómstóllinn telur, gagn-
stætt því sem ESA hélt fram, að
ESA hafi tekið ákvörðun um að
fella málið niður og að sú ákvörðun
hafi falið í sér lok málsins af hálfu
ESA. Hins vegar hafi ESA ekki
fullnaðarúrskurðarvald um gildis-
svið EES-samningsins og ákvörðun
um lögsögu hljóti að vera háð end-
urskoðun.
í öðru lagi telur dómstóllinn að
SSGA hafí beina einstaklings-
bundna hagsmuni af ákvörðun
ESA, þar sem samtökin gæti hags-
muna yfírgnæfandi meirihluta
skozkra laxeldisstöðva.
Rökstuðning skorti
í þriðja lagi ógildir dómstóllinn
ákvörðunina vegna brots á grund-
vallarskilyrði varðandi málsmeð-
ferð, þ.e. vegna ófullnægjandi
rökstuðnings. Dómurinn telur að
jafnvel þótt ástæður ákvörðunar-
innar hafí verið gefnar munnlega
í síma fullnægi það ekki þeim
ákvæðum í EES-samningnum að
ESA skuli rökstyðja ákvarðanir sín-
ar. Dómstóllinn telur að SSGA
hafi því ekki getað metið hvort
ákvörðunin væri rétt og hvort
ástæða væri til að leita endurskoð-
unar dómstóla. Auk þess væri dóm-
stóllinn sjálfur sviptur eftirlitsvaldi
sínu, nema fullnægjandi rökstuðn-
ingur kæmi til.
Ákvörðun ESA var dæmd ógild
og stofnunin dæmd til að greiða
málskostnað.
Belgíska lögreglan gerir áhlaup
Grunur um flársvik
í ferðamáladeild ESB
Brussel. Reuter.
FJÁRSVIKADEILD belgísku
lögreglunnar gerði í gær áhlaup
á skrifstofur framkvæmda-
stjórnar ESB vegna gruns um
að ferðamálasjóðir hafi verið
misnotaðir.
Breska sjónvarpsstöðin ITN
sýndi myndir af því er lögreglu-
menn fóru yfir skjöl í ferðamála-
deild framkvæmdastj órnarinnar
en þar starfa þrír embættis-
menn. Hafa þeir verið leystir frá
störfum timabundið á meðan á
rannsókn málsins stendur.
Nikolaus van der Pas, tals-
maður Jacques Santer, forseta
framkvæmdastj órnarinnar,
staðfesti að rannsókn væri í
gangi og sagði að lögreglan
hefði framkvæmt hana að frum-
kvæði framkvæmdastjórnarinn-
ar. Erubættismennirnir þrír,
Frakki og tveir Grikkir, hefðu
að auki verið sviptir diplóma-
tískri friðhelgi.
Málið snýst um peninga er
greiddir voru vegna verkefna í
tengslum við Ferðamálaár Evr-
ópu árið 1990, að sögn sjónvarps-
stöðvarinnar. Leikur grunur á
að allt að 30 milljónir króna
hafi verið greiddar af fyrirtækj-
um til að fá verkefnin.
Búast má við að þetta mál ýti
enn frekar undir umræðu um
það innan sambandsins hvernig
sameiginlegum sjóðum þess sé
varið. Endurskoðendur ESB
gagnrýndu í skýrslu sinni varð-
andi árið 1993 að lélegt innra
eftirlit byði hættunni heim varð-
andi misnotkun ESB-sjóða.
í fjársvikaskýrslu sem fram-
kvæmdastjórnin lét vinna í fyrra
kemur fram það mat að allt að
rúmlega 30 milljarðar hafi verið
sviknir úr sameiginlegum sjóð-
um sambandsins árið 1993 sem
hafi verið 50% meira en árið
áður.
Alþjóðaviðskiptastofnunin, WTO
Ruggiero líklegur
framkvæmdastj óri
Seoul. Reuter.
KIM Chul-su, alþjóð-
legur viðskiptafulltrúi
Suður-Kóreustjórnar,
ætlar að hætta að
keppa eftir stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá Al-
þjóðaviðskiptastofnun-
inni, WTO. Skýrði suð-
ur-kóreska ríkisút-
varpið frá þessu í gær
og hafði eftir heimild-
um, að hann hefði fall-
ist á tillögu Banda-
ríkjastjórnar um að
hann yrði aðstoðar-
framkvæmdastjóri
stofnunarinnar.
Að Kim frágengnum
yrði aðeins einn eftir af þeim, sem
upphaflega sóttust eftir því að verða
framkvæmdastjóri WTO. Það er
Renato Ruggiero
ítalinn Renato Ruggi-
ero, frambjóðandi Evr-
ópusambandsins. Áður
hafði Carlos Salinas de
Gortari, fyrrverandi
forseti Mexíkós, hætt
við vegna pólitískra
hneykslismála í landi
sínu.
Mest fylgi við
Ruggiero
Embættismaður í
s-kóreska utanríkis-
ráðuneytinu sagði, að
viðræður hefðu átt sér
stað bak við tjöldin
milli Suður-Kóreu,
Bandaríkjanna og Evrópusam-
bandsins. í síðustu viku ákváðu
fulltrúar aðildarríkja WTO að
ganga frá skipan framkvæmda-
stjóra innan tíu daga en Ruggiero
nýtur langmests fylgis í stöðuna.
í gærkvöldi lýsti Mickey Kantor
viðskiptafulltrúi yfir stuðningi við
Ruggiero fyrir hönd Bandaríkja-
stjórnar.
Ruggiero er 64 ára gamall og er
fæddur í Napolí. Hann var sendi-
herra ítala hjá Evrópubandalaginu
og síðar fulltrúi landsins í fram-
kvæmdastjórninni. Síðustu fjögur
árin hefur hann starfað fyrir FIAT,
stærsta einkafýrirtæki Ítalíu. Ruggi-
ero þykir slyngur samningamaður,
jarðbundinn og úrræðagóður.
WTO, Alþjóðaviðskiptastofnunin,
tók til starfa um síðustu áramót
og leysti þá GATT, Almenna sam-
komulagið um tolla og viðskipti, af
hólmi.
Reuter
ELÍSABET Bretadrottning
skoðaði í gær hverfi fátækra
blökkumanna í Höfðaborg og
einnig ráðhúsið, þar sem hún
hélt upp á 21 árs afmæli sitt
með dansleik þegar hún kom
síðast til Suður-Afríku ásamt
föður sínum árið 1947. Áður
hafði hún verið viðstödd messu
„þakkargjörðar og sátta“ í til-
Drápanna
í Sharpeville
minnst
efni af fyrsta mannréttindadeg-
inum í Suður-Afríku, sem hald-
inn verður árlega 21. mars.
Þann dag fyrir 35 árum drápu
suður-afrískar öryggissveitir
69 blökkumenn í bænum
Sharpeville, í grennd við Jó-
hannesarborg. Á myndinni
heilsar drottningin félögum í
kirkjukórnum fyrir messuna
ásamt friðarverðlaunahafanum
Desmond Tutu erkibiskup.
Ráðstefnu um stöðugleika í A-Evrópu lokið
Samþykkt ráðstefn-
unnar sögð takmörkuð
París. Reuter.
FULLTRÚAR fyrrum Sovétlýðvelda
á ráðstefnu um stöðugleika í Aust-
ur-Evrópu beindu í gær athyglinni
að öllum þeim fjölda efnahagserfið-
leika, deilna um landamæri og stöðu
minnihlutahópa sem enn eru óleyst-
ar og ógna heimsfriði. Þrátt fyrir
að fulltrúar á ráðstefnunni í París
kepptust við að bera lof á árangur
hennar, vöktu nágrannar Rússlands
í suðri og vestri athygli á átökunum
í lýðveldum gömlu Júgóslavíu og
Kákasus en samningur sem undir-
ritaður var á ráðstefnunni á mánu-
dag, nær ekki yfír þau. Ráðstefn-
unni lauk í gær.
Samningnum var ætlað tryggja
góð samskipti nágrannaríkja og að
leysa deilur um landamæri og stöðu
minnihlutahópa níu Mið- og Austur-
Evrópuríkja, sem gefnar hafa verið
vonir um aðild að Evrópusamband-
inu, ESB.
Líkur á fleiri ráðstefnum
Alain Juppé, utanríkisráðherra
Frakklands, bar lof á niðurstöðu
ráðstefnunnar við lok hennar í gær
og sagði hana hafa verið „fyrstu
meiriháttar tilraunina til að draga
úr líkum á átökum frá lokum kalda
stríðsins.“ Gagnrýni þess efnis að
ekki hefði verið nóg að gert, svar-
aði hann með því að segja að líklegt
væri að sams konar ráðstefnur yrðu
haldnar um ástandið í Mið-Austur-
löndum, Kákasus og á Balkanskaga
ef friður kæmist þar á.
Alexander Chikvaidze, utanríkis-
ráðherra Georgíu, var hins vegar
ekki eins sáttur. Sagði hann að án
samkomulags um lausn landamæra-
og minnihlutadeilna í fyrrum Sovét-
lýðveldum væri „öll umræða um
stöðugleika- tímaeyðsla sem ætti
aðeins heima í sögubókum“. Vísaði
hann m.a. til átaka Azera og Arm-
ena, svo og stríðsins í Tsjetsjníju.
Þá benti sendiherra Tyrklands,
Tansug Bleda, á að þjóðirnar mættu
ekki gleyma þeirri staðreynd að of-
beldisverk og þjóðernishreinsanir
virtust enn borga sig í fyrrum Júgó-
slavíu.