Morgunblaðið - 22.03.1995, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUDANSARARNIR, sem þátt tóku í keppninni, frá vinstri: Hildur Ýr Arnarsdóttir og Þröstur R.
Jóhannsson, Kara Arngrímsdóttir og Jón Pétur Úlfljótsson, Unnur Berglind Guðmundsdóttir og Jóhann
Orn Ólafsson, Kristín Vilhjálmsdóttir og Ragnar Sverrisson.
SIGURVEGARAR í flokki 16 ára og eldri, Árni Þór
Eyþórsson og Erla Sóley Eyþórsdóttir.
Glæsileg tugþraut-
arkeppni í dansi
PANS
íþróttahúsið við
Strandgötu í
Ilafnarfirði
KEPPNISTRÍÓ DANS-
RÁÐS ÍSLANDS
8 og 10 dansakeppni í samkvæm-
isdönsum með fijálsri aðferð og
eins dans keppni,
laugardag 18. mars.
ÁRIÐ 1986 stóð Dansráð ís-
lands, þá nýstofnað, fyrir sinni
fyrstu danskeppni á Hótel Sögu.
Síðan þá hefur vegur dansíþrótt-
arinnar farið vaxandi, keppni
fjölgað og árangur íslenskra
dansara á erlendum vettvangi
farið fram úr vonum bjartsýnustu
manna.
Síðastliðinn laugardag fór
fram danskeppni í 10 dönsum,
með frjálsri aðferð, í íþróttahús-
inu við Strandgötu í Hafnarfirði.
Það var Dansráð Islands sem
hafði veg og vanda að þessari
keppni, sem og venjulega. Um
50 pör höfðu skráð sig til keppn-
innar í 10 dönsum og mikill fjöldi
fólks var samankominn til að
fylgjast með þessari glæsilegu
danskeppni. Keppnir sem þessar
fara þannig fram að keppendur
keppa í öllum dönsum, bæði
standarddönsum og suður-amer-
ískum dönsum, og það par sem
er með flest stig úr báðum dans-
flokkum samanlögðum, ber sigur
úr býtum. Standarddansamir
fimm eru: enskur vals, slow foxt-
rott, tangó, vínarvals og
quickstep, en suður-amerísku
dansarnir fimm eru: cha, cha,
samba, rúmba, pasó doble og jive.
Keppt var í fjórum flokkum og
kepptu flokkar 12-13 ára og
14-15 ára í 8 dönsum (ekki í
pasó doble og vínarvalsi), en
flokkar 16-18 ára og 16 ára og
eldri og atvinnumenn kepptu í
öllum 10 dönsunum.
Samhliða 10 dansakeppninni
var boðið uppá keppni í einum
dansi, með grunnaðferð í öllum
aldurflokkum frá 8-9 ára uppí
50 ára og eldri.
Það var forseti Dansráðs ís-
lands, Heiðar R. Ástvaldsson,
sem setti keppnina. Að setningu
lokinni kom danshópur frá Jass-
balletskóla Báru með stutt sýn-
ingaratriði, fallegt dansatriði í
stíl við ákaflega fallega tónlist.
Það var aldursflokkurinn
14-15 ára sem reið á vaðið að
þessu sinni, þetta er fjölmennasti
flokkurinn og jafnfram sá lang-
jafnasti. I honum hófu um 20 pör
leikinn, og dönsuðu þau suður-
amerísku dansana í fyrri hlutan-
um. Þar var margt frábærra
dansara og fínnst mér langt síðan
keppnin var svo hörð sem raun
bar vitni og vissulega kom það á
óvart að sjá tvö af okkar sterk-
ustu pörum dansa ekki í úrslitum
í suður-amerísku dönsunum, pör
sem hafa yfirleitt verið í 3. til
5. sæti í gegnum árin. Keppnin
í standarddönsunum var ekki eins
spennandi, þar voru yfirburðir
langflestra úrslitaparanna aug-
ljósir og nokkuð fyrirsjáanlegir.
Sigurvegaramir í þessum flokki
hafa verið að banka á dyrnar hjá
margföldum íslandsmeisturum í
mörg ár og reyndar komist inn
stöku sinnum. Þau unnu að þessu
sinni ákaflega verðskuldaðan sig-
ur og gaman var að horfa á þá
útgeislun sem kom frá þessu pari.
Næstur í röðinni var flokkur
16 ára og eldri. Þar eru á ferð-
inni gamalreyndir dansarar og
er keppnin í þessum flokki yfír-
leitt mjög jöfn, sérstaklega á
milli efstu 2ja paranna. Að þessu
sinni fannst mér þó ekki spuming
hvora megin sigurinn lenti,
systkinin Árni og Erla hafa að
mínu mati ekki dansað af svo
miklum krafti í langan tíma, það
var hrein unun að horfa á þau
hvortheldur sem er í standardd-
önsunum eða suður-amerísku
dönsunum. Að sama skapi hafa
Gunnar og Anna, sem lentu í
öðru sæti, oft dansað betur og
sýnir það og sannar að dagsform-
ið skiptir orðið ákaflega miklu
máli í danskeppnum á Íslandi í
dag; tæknilegur munur á pörun-
um er ekki eins mikill og áður
var.
Þá var komið að yngsta
flokknum í 10 dansakeppninni;
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SIGURVEGARAR í flokki
14 til 15 ára, Brynjar Örn
Þorleifsson og Sesselja Sig-
urðardóttir.
flokki 12-13 ára. Það er alltaf
gaman að horfa á þennan flokk,
sjá nýgræðinginn, framtíðina!
Um þennan flokk er ekki hægt
að segja að hann hafí verið
spennandi. Bensi og Berglind
voru algert yfirburðapar, það
komst enginn með tæmar þar
sem þau höfðu „hælana"! Helsta
spennan var í niðurröðun á sæt-
unum 3-5, að mínu mati voru þau
nokkuð óvænt! Þessi flokkur er
ákaflega efnilegur, þá sérstak-
lega í suður-amerísku dönsunum
og verður ákaflega gaman að sjá
þann árangur sem þau eiga eftir
að sýna um ókomna framtíð.
Næstsíðasti flokkurinn sem sté
á stokk, með sínum dansi var
flokkur 16-18 ára. Sá flokkur var
nokkuð sterkur, sérstaklega í
standarddönsunum, mér fannst
þeir vera áberandi betri hjá flest-
um pörunum. Úrslitin komu ekk-
ert á óvart, þau voru nokkuð
eftir bókinni og mjög sanngjöm.
Rúsínan í pylsuendanum var
viss um að ungu pörin hafi stolið
einhveijum stigum frá þeim. Allt
eru þetta frábærir dansarar og
mikið fagfólk.
Dómaramir vora þrír og komu
frá Danmörku, Englandi og Hol-
landi og verð ég að segja eins
og er að ákaflega margt kom
mér á óvart í þeirra dómum, sér-
staklega dómum í undanúrslit.
Eg verð að segja eins og ég hef
áður sagt að það er tími kominn
til að fjölga dómurum úr 3 í 5,
flokkamir era orðnir það jafnir
að 3 dómarar ráða varla við að
dæma þá.
Starfsmenn keppninnar stóðu
sig mjög vel og sérstaklega vil
ég benda á einstaklega fallega
og vel valda tónlist í 10 dansa-
keppninni.
Keppnin var ákaflega vel
heppnuð í flesta staði og virtist
vera vel undirbúin og held ég að
flestir hafí skemmt sér konung-
lega á þessari miklu danshátíð
sem þessi keppni var.
Jóhann Gunnar Arnarsson
ÚRSLIT
12-13 ára:
1. Benedikt Einarsson og Berg-
lind Ingvarsdóttir, DJK
2. Eðvarð Þór Gíslason og Ásta
Lára Jónsdóttir, DJK
3. Skapti Þóroddsson og Heiða
B. Vigfúsdóttir, ND
14-15 ára:
1. Brynjar Öm Þorleifsson og
Sesselja Sigurðardóttir, DSM
2. Sigursteinn Stefánsson og El-
ísabet Sif Haraldsdóttir, DJK
3. Þorvaldur Gunnarsson og Jó-
hanna Ella Jónsdóttir, DAH
16-18 ára:
1. Davíð Arnar Einarsson og
Eygló Karólína Benediktsdótt-
ir, DJK
2. Olafur Már Sigurðsson og
Hilda Björg Stefánsdóttir,
DJK
3. Victor B. Victorsson og Sædís
Magnúsdóttir, ND
16 ára og eldri:
1. Ámi Þór Eyþórsson og Erla
Sóley Eyþórsdóttir, DJK
2. Gunnar Már Sverrisson og
Anna Björk Jónsdóttir, DAH
3. Davíð Arnar Einarsson og
Eygló Karólína Benediktsdótt-
ir, DJK
Atvinnumenn:
1. Jón Pétur Úlfljótsson og Kara
Arngrímsdóttir
2. Þröstur R. Jóhannsson og
Hildur Ýr Arnarsdóttir
3. Jóhann Örn Ólafsson og Unn-
ur Berglind Guðmundsdóttir
4. Ragnar Sverrisson og Kristín
Vilhjálmsdóttir
VIKTOR B. Viktorsson og
Sædís Magnúsdóttir kepptu
í flokki 16 ára og eldri og í
flokki 16 til 18 ára.
svo keppni atvinnumanna. Að
þessu sinni voru atvinnupörin 4
og held ég að þau hafi aldrei
verið fleiri í 10 dansakeppni áð-
ur. Keppni atvinnumannanna var
mjög skemmtileg, þó svo að sig-
urvegararnir hafi unnið með
nokkrum yfirburðum, en ég er
SIGURVEGARAR í flokki
16 til 18 ára, Davíð Arnar
Einarsson og Eygló Karol-
ína Benediktsdóttir.