Morgunblaðið - 22.03.1995, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 33
AÐSENDAR GREINAR
Foreldralína Barna
heilla - símaráðgjöf
SAMTÖKIN Barnaheill vinna að
öllu sem getur orðið til hagsbóta
börnum, hvað varðar þroska,
menntun, heilbrigði og félagslega
aðstöðu. Áhugi á velferð barna hef-
ur farið ört vaxandi á undanförnum
árum og hefur t.d. verið fullgiltur
á íslandi Barnasáttmáli Sameinuðu
þjóðanna sem fjallar um mannrétt-
indi bama. Fylgir þessu sívaxandi
áhugi á uppeldi bama, uppeldisað-
ferðum og þátttöku fullorðinna í
því að skapa börnum heilbrigða
framtíð. Jafnframt verður að viður-
kenna að í nútímasamfélagi er tölu-
vert um vandamál sem hafa áhrif
á uppeldi og umönnun barna. Álag
á foreldrum er mikið, félagsleg
staða margra er bágborin og ýmsir
efast um réttindi sín og skyldur
gagnvart börnum. Þá hefur þeim
fjölgað sem koma nálægt uppeldi
barna, samfélagið er flóknara og
börn standa frammi fyrir margfalt
fleiri valkostum í lífínu en áður,
bæði góðum og slæmum.
Frá stofnun samtakanna Barna-
heilla hefur verið rætt um nauðsyn
þess að koma á fót fjölskylduráð-
Það er rík þörf fyrir
ráðgjöf, segir Kristín
Jónasdóttir, eins og
foreldralínuna.
gjöf. Óljóst er á þessari stundu
hvort og þá hvernig slík þjónusta
yrði starfrækt fyrir fjölskyldumar
í landinu. Á síðasta landsþingi sam-
takanna var ákveðið að hefja þó
rekstur upplýsinga- og ráðgjafar-
þjónustu fyrir alla þá sem láta sig
varða velferð barna. Slík þjónusta
er nú orðin að veruleika.
Ókeypis símaráðgjöf
Barnaheill bjóða nú upp á ókeyp-
is ráðgjöf í gegnum síma undir
heitinu Foreldralínan. Síminn er
grænt númer 800 6677 og er boðið
upp á þessa þjónustu tvisvar í viku,
á mánudögum og miðvikudögum
frá kl. 17-19. Uppeldisráðgjöf og
forvarnarstarf eru lykilhugtökin á
bak við þessa nýju þjónustu og er
markmiðið að allir fái viðunandi
ráðgjöf í gegnum sím-
ann eða verði vísað
áfram til frekari úr-
ræða þegar það á við.
Við símann sitja sér-
fræðingar á sviði upp-
eldismála og lögfræði,
sem hafa unnið með
málefni barna en al-
gerri nafnleynd er,
heitið þeim sem
hringja.
Fyrir hverja
er ráðgjöfin?
Tilgangur Foreldr-
alínunnar er að gefa
ráð til þeirra sem eru
í vanda staödir og hafa áhyggjur
af börnum, til þeirra sem hafa
spumingar um uppeldismál eða
þeirra sem telja sig ekki vita nóg
um rétt sinn og skyldur. Foreldra-
línan er fyrir hvem og einn sem
telur sig þurfa á einhverri aðstoð
að halda við að tryggja velferð
barna svo sem foreldra, systkini,
afa, ömmur og önnur skyldmenni,
nágranna og vini. Markmið foreldr-
alínunnar er bæði að aðstoða þá
sem eiga við ákveðinn vanda að
stríða en markmiðið er einnig að
gefa almennar upplýsingar um upp-
eldis- og réttindamál barnanna al-
veg frá fæðingu til 18 ára aldurs.
Hjá öllum hljóta að vakna sj)um-
ingar sem snerta böm. Ymsar
spurningar vakna strax
við fæðingu barns, svo
sem um faðerni og rétt
foreldra til aðstoðar.
Umönnun ungbarns er
ekki vandalaus og
mörg álitaefni koma
upp þegar bamið fer
að sýna sjálfstæðan
vilja og hafa eigin skoð-
anir. Síst fækkar
spurningunum eftir því
sem barnið vex og
þroskast. Hvernig á að
haga samskiptum við
barnið? Hvað er því fyr-
ir bestu? Hvemig á að
setja og framfýlgja
reglum? Hvernig á að ráða við ungl-
inginn og taka á agavandamálum,
og svo mætti lengi telja.
Þá kemur það fyrir að hið opin-
bera hefur afskipti af börnum vegna
þess að þau þykja í hættu vegna
hegðunar fullorðinna eða vegna eig-
in hegðunar. Hér þurfa foreldrar
og aðrir sem að málum koma oft
að fá upplýsingar um rétt sinn og
stöðu bamsins. Skilnaðir foreldra
eða sambúðarslit hafa aukist til
muna en þá þarf að taka ákvarðnir
sem snerta börn, svo sem ákvarðan-
ir um forsjá og umgengni. Við þess-
ar aðstæður þurfa þeir sem standa
bömunum næst oft á upplýsingum
og aðstoð að halda til að ákvarða
sameiginlega og í samvinnu við
barnið, eftir aldri þess og þroska,
hvað sé barninu fyrir bestu. Hvem-
ig er velferð þess best tryggð?
Þörf fyrir ráðgjöf
Samtökin Bamaheill meta það
svo að rík þörf sé fyrir ráðgjöf eins
og Foreldralínuna, eða þjónustu
sem veitir alhliða upplýsingar um
börn. Bamaheill vilja koma enn
frekar til móts við almenning með
því að bjóða upp á þverfaglega ráð-
gjöf félagsráðgjafa, lögfræðings og
sálfræðings. Sérfræðingamir geta
m.a. rætt sín á milli um þær spúm-
ingar sem upp koma og þannig
veitt ráðgjöf sem spannar fleiri en
eitt svið daglegs lífs. Það skal ítrek-
að að fullum trúnaði er heitið.
Við allar ákvarðanir sem teknar
em um málefni barna skal það
hafa forgang sem börnunum er
fyrir bestu. Á þetta jafnt við um
ráðstafanir af hendi hins opinbera,
við lögfræðilegar úrlausnir mála og
ákvarðanir foreldra. Mat á því hvað
börnum er fyrir bestu hlýtur m.a.
að vera einhvers konar samspil lög-
fræði, sálfræði, uppeldisfræði, fé-
lagsfræði og heilbrigðrar skynsemi.
Er það von Bamaheilla að Foreldra-
línan geti lagt hér eitthvað af mörk-
um og að þessi þjónusta komi að
góðum notum.
Fyrir hönd Barnaheilla.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
V
Kristín Jónasdóttir
| Þú nærð stjórn á mataræðinu með þessu námskeiði fyrir fullt |
og allt. Ekki fleirri kúrar og eingin barátta.
Fiöldi takmarkast við átta á hvert námskeið.
iúna getur þú hætt að reykja á þægilegan hátt eins og fjölmargir
iðrir sem hafa farið í dáleiðslu til að losna viö löngun og vöntun
gagnvart reykingum.
Fjöldi takmarkast við átta á hvert námskeið.
HVAÐ SEGJA ÞAU?
Marselía
Gísladóttir:
Ég er búin að
léttast um 26
kíló síðan
rjóvember '94
Ég hef stjórn á
mataræðinu.
Dags. 10/3 '95
Guðmundur
Sigurgeirsson:
Þann 6. janúar
1992 hætti ég að
reykja með hjálp
dáleiðslu hjá
Friðriki Páli.
JónP.
Ragnarsson:
Ég hætti að reykja
með hjálp dáleiðslu
hjá Friðriki í nóv
'94 Það var auðvelt
að hætta með
dáleiðslu.
Sölvi Magnússon:
Ég reykti tvo og
hálfan pakka á dag
en 11. september
1991 fór ég til
Friðriks. Síðanþá
hefur ekki hvarflað
að mér að r<ykja
Jónína
Qunnarsdóttir:
Ég hætti að re/kja
í tanúar 1992 og
3akka ég dáleiðslu
íjá Friðriki Páli
tversu auð\elt
3að var fyrir mig
að hætta.
Davíð Jóhannsson
og Margrét
Einarsdótir:
Við hættum bæði að
v reykja með hjálp
dáleiðslu hjá Friðriki
i PáU.
Okknr fannst auðvdt jwð að liætta með hjálp dáleiðsiu
cgvið erum laus við allalöngun og vöntun gjagnvait
reykingum.
FRIÐRIK PALL AGUSTSSON R.P.H., C.Ht,
VIÐURKENNDUR DÁLEIÐSLUFRÆÐINGUR
SIMI 5 870 803