Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
JÓHANNES HALLDÓRSSON,
Mávahlíð 15,
Reykjavfk,
frá Gröf, Rauðasandi,
er andaðist þann 19. mars, verður kvaddur frá Fossvogskapellu
23. mars kl. 15.
Jarðað verður í Sauðlauksdal laugardaginn 25. mars.
Systkini hins látna.
Eiginmaður minn,
JÓHANNES STEFÁNSSON
frá Norðfirði,
til heimils að Bólstaðarhlíð 45,
lést á heimili sínu 20. mars.
Fyrir hönd aðstandenda.
Soffía Björgúlfsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞURÍÐUR HELGADÓTTIR
frá Kaldbak,
Eyrarbakka,
andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands 19. mars.
Inga Guðjónsdóttir, Gunnar Olsen,
Alda Guðjónsdóttir, Jón Gunnar Gíslason,
Guðmundur Guðjónsson, Guðbjörg Vígiundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Kveðjuathöfn um dóttur okkar, systur og mágkonu,
BERGÞÓRU GUÐRÚNU ÞORBERGSDÓTTUR,
fer fram í Árbæjarkirkju fimmtudaginn 23. mars kl. 15.00.
Vinsamlegast minnist hennar með framlögum til Samtaka um
tónlistarhús, Aðalstræti 2, sími 562 9277.
Hildur Bjarnadóttir, Þorbergur Þorbergsson,
Bjarni Þorbergsson, Tinna Gunnarsdóttir,
Gunnlaugur Brjánn Þorbergsson.
t
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
JÓNU ELÍSABETAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
sfðast til heimilis
á Hrafnistu i Reykjavík,
(áður Hátúni 8, Reykjavík),
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 23. mars kl. 15.00.
Eiður Steingrfmsson, Soffía G. Þorsteinsdóttir,
Rósa Sólveig Steingrfmsdóttir, Már Þorvarðarson
og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN JÓNSSON
fyrrv. yfirflugumferðarstjóri,
Kópavogsbraut 1,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð að
morgni þriðjudagsins 21. mars sl.
María Hafliðadóttir,
Hafliði Örn Björnsson, Maja Guðmundsdóttir,
Hilmar Þór Björnsson, Svanhildur Sigurðardóttir,
Steinunn Ásta Björnsdóttir, Jórr Frímann Eirfksson,
Sigrfður Birna Björnsdóttir, Steen Haugaard,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og
tengdafaðir,
ÞÓRIR KONRÁÐSSON
bakarameistari,
Krummahólum 29,
Reykjavfk,
lést í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði
20. mars.
Fylkir Þórisson,
Helga Þórisdóttir,
Jens Þórisson,
Jón Þórisson,
Konráð Þórisson,
Vörður Þórisson,
Þorbjörg Þórisdóttir,
Hrönn Jónsdóttir,
Bárbel Valtýsdóttir,
Hrafnhildur Óskarsdóttir,
Ragnheiður Steindórsdóttir,
Margrét Auðunsdóttir,
Margret Benedikz,
Ólafur R. Pálsson.
HÓLMFRÍÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Hólmfriður Guðmundsdótt-
ir fæddist í Litlu-Tungu í
Miðfirði í Vestur-Húnavatns-
sýslu 18. ágúst 1909. Hún lést
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 17. febrúar síðastliðinn
og fór útför hennar fram frá
Hvítasunnukirkjunni á Akur-
eyri 28. febrúar.
AÐ LÖNGU dagsverki loknu er
Hólmfríður Guðmundsdótir gengin
inn til fagnaðar herra slns. Foreldr-
ar hennar voru hjónin Kristveig Sig-
valdadóttir og Guðmundur Guð-
mundsson. Systkinin sem upp kom-
ust voru fimm og var hún í miðið.
Elstur var Jóhannes, þá Kjartan,
síðan Hólmfríður, Sigvaldi og yngst
er Margrét sem býr í Reykjavík.
Skólaganga Hólmfríðar var stutt,
eins og þá var oft siður til sveita,
en það háði henni ekki á lífs-
göngunni, því eðlisgreind hafði hún
góða og var vel ritfær. Mörg falleg
ljóð orti hún til vina sinna og sam-
ferðamanna.
Hólmfríður dvaldi í Miðfirði í
Litlu-Tungu og í Tjarnarkoti lengst
af, en fór einn vetur til Reylq'avíkur
og þar komst hún fyrst á kristilega
samkomu hjá Hjálpræðishernum,
þá rétt um tvítugt, og kynntist vel
foreldrum Óskars Jónssonar á Hem-
um. Hún sótti reglulega samkomur
hjá Ármanni Eyjólfssyni á Njálsgöt-
unni. Fréttir bárast norður til Akur-
eyrar af þessari lifandi trúuðu
stúlku sem var svo djörf og einlæg
í trúnni. í árslok 1933 fluttist hún
til Akureyrar og bjó lengst af á
Oddeyrargötu 11. Hún vann sam-
fleytt í ullarverksmiðjunni Gefjuni
til ársins 1951 og undi hag sínum
vel eins og eftirfarandi vísur, sem
húm samdi, gefa til kynna. -
Gaman er á Gefjun
giöð ég uni þar.
Góður Guð á hæðum,
gefur bænasvar.
Ánægjan er yfir mér,
eins og fyrr í dag.
Glöð ég vinn í gami hér
og Guð minn blessar hag.
Hún hætti þá störfum og sneri
sé að líknar- og hjúkranarstörfum
heima á Oddeyrargötu 11 og sinnti
þar tveimur trúsystram, þeim Guð-
rúnu Oddsdóttur og Rósu Randvers-
dóttur. Eftir andlát þeirra sneri hún
sér að öðra starfi, sem henni var
hugleikið, að breiða út „gott kristi-
legt lesefni", „eða bamið sitt“, eins
og hún orðaði það sjálf, og notaði
bamakerra til að hafa blöð og bæk-
ur í. Hennar svæði var Akureyri og
sveitir Eyjafyarðar, Vestur-Húna-
vatnssýsla og ekki gleymdi hún eyj-
unum, Hrísey og Grímsey. Árið
1981 greindist hún með ólæknandi
sjúkdóm, sem var bólga í slagæð á
gagnauga og lyfin sem hún þurfti
að taka ollu mikilli úrkölkun í hrygg
og seig hún talsvert saman.
Bamakerranni var þá lagt, en
„barnið hennar" lifði. í stað þess
að ganga um og selja blöð og bæk-
ur kom hún oft eða hringdi á safn-
aðarskrifstofuna til að kaupa bækur
handa ættingjum og bænabömum
sínum.
Jólagjafir hennar vora „gott
kristilegt lesefni“. í gegnum það
hafði hún fengið að upplifa þá mestu
gleði, sem nokkur maður getur
reynt, frelsið í Kristi Jesú og það
vildi hún einnig að bænabömin og
ættingjar hennar fengju að upplifa.
Árið 1936 var Hvítasunnusöfn-
uðurinn stofnaður hér á Akureyri
og var hún einn af frumherjunum,
meðlimur nr. 5. Hún var alla tíð ein
af trúföstustu meðlimum safnaðar-
ins og ekki lét hún veður eða þreytu
halda sér frá samkomunum.
Hólmfríður var ekki mikið fyrir
ytra skart og glingur og krafðist
einskis, en lét sér nægja sinn deilda
verð. Hún hafði lægsta ellilífeyri,
aðeins um 35.000 krónur á mánuði,
og af þessum fáu krónum lagði hún
töluvert til starfsins. Já, Guð hafði
lagt kirkjubygginguna á hjarta
hennar. Hún hafði bók, sem hét „af
sérstökum tilefnum". Það byijaði
þannig að hún þurfti að skipta um
gömlu útidyrahurðina á Oddeyrar-
götu 11. Þegar til átti að taka kom
í ljós að hægt var að laga gömlu
hurðina og kostaði það aðeins brot
af nýrri hurð. En mismunurinn fór
ekki í hana sjálfa, hann var lagður
inn á bókina, „af sérstökum tilefn-
um“. Hún sagði upp áskrift að dag-
blaðinu Degi, en áskriftargjaldið fór
inn á bókina „af sérstökum tilefn-
um“. Með reglulegu millibili hringdi
Fríða í afgreiðslu Dags til að spyija
hvort áskriftargjaldið hefði ekki
hækkað og öfugt við aðra áskrifend-
ur varð hún svo glöð, þegar hækkun
átti sér stað, því þá gat hún lagt
meira inn á bókina „af sérstökum
tilefnum“.
Þegar húseignin á Oddeyrargötu
11 var seld lét hún hveija einustu
krónu af sínum- hluta eignarinnar
renna til kirkjubyggingarinnar og
var hún svo glöð að geta gert þetta
á meðan hún lifði. Eg gleymi ekki
brosinu hennar þegar hún kom með
gjafír sínar.
Fljótlega eftir að við hjónin flutt-
um til Akureyrar fundu bömin okk-
ar ömmur á Oddeyrargötu 11. Oft
fóra þau í heimsókn til Fríðu, Heiðu
og Þrúðu á Oddeyrargötuna og
fengu pönnukökur, sem Fríða hafði
bakað, og aldrei gleymdu þær af-
mælum bamanna. Þegar hún veikt-
ist og engar pönnukökur vora á
boðstólum spurði sonur okkar
Þrúðu, hvort hún kynni ekki að
baka pönnukökur. Þegar Þrúða
svaraði því neitandi hvatti hann
hana til að læra það. Hann lét hana
einnig vita að nú ætlaði hann að
hætta að koma í heimsókn. Ástæðan
var, að Fríða færi að deyja. En Fríða
var ekkert að deyja.
Ég minnist samverastundanna á
Oddeyrargötunni. Þangað vora allir
velkomnir og oft var litla stofan
þéttsetin af fólki, sem lofaði Guð í
söng og hljóðfæraleik. Á slíkum
stundum var Fríða í essinu sínu.
Þessar stundir líða seint úr minni.
Þegar við byijuðum að byggja
þessa nýju kirkju og ég lagði arki-
tektinn fram til fyrirbænar lét hún
ekki þar við sitja. Hún fór að venja
komur sínar á stofuna hans með
pönnukökur og „gott kristilegt les-
efni“. Hann var einn af mörgum
bænabömunum hennar. Fríða stóð
ekki á torgum og hrópaði, en trú-
boði var hún.
Þegar ég hringdi eða hitti hana
og spurði hvemig hún hefði það í
dag var svarið ævinlega; „Þökk og
lof“ eða „Guð er góður“. Ekki kvart-
aði hún að fyrra bragði, en sagði
gjarnan er hún var spurð um heilsu-
far: „Takk fyrir, það mætti vera
betra."
Hún lifði fyrir líðandi stund. Hún
velti sér ekki upp úr fortíðarvanda
eða hafði áhyggjur af framtíðinni,
og þegar læknirinn hennar sagði
að hjarta hennar væri orðið veikt
svaraði hún svo ósköp rólega: „Það
endist mér.“
Hólmfríður var orðvör og dæmdi
engan, en hafði hreinar línur gagrt-
vart synd og náð og kallaði ekki
rangt rétt.
Osk Fríðu var að vera sönn bæna-
kona. Hún átti sér bænabók og
skráði öll þau nöfn og bænarefni
sem hún bað fyrir. Fyrsta nafnið í
bænabókinni var Lilja Óskarsdóttir,
kristniboðinn okkar í Eþíópíu. I
seinni tíð hafði Guð lagt á hjarta
hennar að biðja fyrir fyrirtækjum
bæjarins og veðrinu.
Síðustu árin bjó hún í Borgarhlíð
4d eða þar til hún var flutt á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri, þar
sem hún andaðist 85 ára að aldri.
Bænakonan Fríða er farin og
skarð hefur myndast í bænamúrinn.
í dag leitar Guð að einhveijum
sem vill skipa sér í skarðið, landinu
okkar til vamar. Himinninn hefur
eignast en við höfum misst og henn-
ar verður sárt saknað.
Það er dýrmætt að fá að kynnast
fólki sem er jafn heilsteypt og fals-
laust í trú sinni og Hólmfríður var.
Blessuð sé minning hennar.
Vörður L. Traustason,
forstöðumaður
Hvítasunnukirkjunnar,
Akureyri.
Sér unni engrar hvíldar
var öðrum gleðilind,
hún sáði sannleiksorði
þar sðnn var fyrirmynd.
Hún kynnti blðð og bækur
með brosið kunna á vðr,
og stórar fómir færði
ei fékkst um eigin kjðr.
Hér augljóst athöfn hennar
ber ávöxt sem og tal.
Nú hefur kallið hljómað
frá himins dýrðarsal.
Hún greindi andblæ orðsins
það eins á hinstu stund.
Og sæl hún leið að lokum
á Lausnara síns fund.
(Jóhann Sigurðsson)
Cranio-Sacral Balancing
Jöfnun höfuöbeina- og spjald-
hryggkerfis hefur skilað árangri
m.a. í endurhæfingu, gagnvart
langvarandi verkjum og ýmsum
þroskaseinkunum. Nám í þrem-
ur stigum 150 klst. Vegna for-
falla eru tvö pláss laus á 1. stig
25.-31. mars.
Upplýsingar í sfma 641803.
□GLITNIR 5995032219 I 1 FRL.
ATKV.
□ HELGAFELL 5995032219
Vl/V 2 - Frl.
I.O.O.F. 9 = 1763228V2 = 9.II
I.O.O.F. 7 = 3228V2 =FV.
Hörgshlíð 12
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
SAMBAND ISLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöld kl. 20.30 í
Kristniboðssalnum. Kristniboðs-
hópurinn Básúnan sér um efnið.
Allir velkomnir.
Líföndun
7 vikna námskeiö hefst í dag
kl. 20.00.
S4lfn««lþjánuau,
Gunnars Gunnarss.,
simi 641803.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Skrefið kl. 18.00 fyrir 10 til 12
ára krakka.
Almenn samkoma kl. 20.30.
Ræðumaður er Absalom Dlam-
ini, orku- og umhverfismálaráð-
herra Swazilands.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
# ÍSIANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Aðalfundur Ferðafélags
íslands 1995, Mörkinni 6
Miðvikudaginn 22. mars verður
haldinn aðalfundur Ferðafélags
fslands. Fundurinn hefst kl.
20.00. Félagsmenn sýni félags-
skirteíni (1994) við innganginn.
Fundarstaður er Mörkin 6 (nýi
salurinn). Venjuleg aðalfundar-
störf.
Ferðafélag fslands.