Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/RAX Vorverkin að hefjast HEFÐBUNDIN vorverk eru nú víða að hefjast og hafa margir gripið fegins hendi þau tækifæri sem gefist hafa til slíkra verka í góðviðrinu sem ríkt hefur á sunn- anverðu landinu undanfarna daga. Þegar ljósmyndari Morgun- blaðsins var á ferðinni á Álftanesi í byrjun vikunnar var greinilegur vorhugur í mönnum þar sem þeir voru að undirbúa túnin í nágrenni Bessastaða fyrir áburðargjöf. Bankamaður sýknaður af ákærum vegna gjaldeyrismillifærslna Misnotaði á engan hátt aðstöðu sína HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur sýknað Kristján Gunnarsson, fyrrverandi forstöðumann hagdeild- ar Búnaðarbanka íslands, sem hagnaðist á rúmlega 2 ára tímabili um 27,9 milljónir króna á millifærsl- um milli 5 gjaldeyrisreikninga í bankanum, af ákæru um að hafa gerst sekur um umboðssvik og brot í opinberu starfi. „Ákærði misnot- aði á engan hátt aðstöðu sína né stöðu sem starfsmaður bankans við ofangreindar millifærslur sínar og leyndi yfirmenn sína í engu við- skiptum sínum við bankann með gjaldeyri, þvert á móti gerði hann sérstakt samkomulag um afsláttar- kjör vegna millifærslnanna," segir í dómi héraðsdóms. Kristjáni var gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína með kerfisbundnum og skipulegum millifærslum, 431 talsins, á milli fímm gjaldeyrisreikninga sinna í bankanum. Millifærslumar vom ávallt gerðar síðdegis, skömmu fyr- ir lokun bankans og í samræmi við upplýsingar sem hann hafði aflað sér og fyrir lágu um áorðnar breyt- ingar einstakra gjaldmiðla á al- þjójðagjaldeyrismarkaði. í ákærunni sagði að Kristjáni hafi verið ljóst að útilokað hafí ver- ið fyrir bankann að veijast þeim gengismismun sem af millifærslun- um leiddi þar sem millibankavið- skipti við Seðlabanka Íslands með gjaldeyri hafí einungis verið opin til hádegis. Hagnaðist um 28 millj. á 2 árum Með þessu hafí hann náð fram stórfelldum hækkunum á skráðum gjaldeyrisinnistæðum sínum, og nam hagnaðurinn 20-25 millj. kr. umfram hagstæðustu ávöxtunar- kjör en í lok þessa tveggja ára tíma- bils voru innistæður á reikningun- um samtals 40,4 milljónir króna en þar af voru einungis 12,3 milljónir króna vegna hreinna innborgana hans. Upphaf þessara viðskipta Kristjáns var að danska sendiráðið keypti einbýlishús hans og greiddi kaupvirðið í Bandaríkjadölum. í héraðsdómi kemur fram að á þessu tímabili hafí Seðlabankinn að jafnaði einu sinni á dag skráð það gengi sem gilti á erlendum mörkuð- um að morgni hvers dags og því hafí verið útilokað fyrir þá banka sem höfðu opin gjaldeyrisviðskipti allan daginn, eins og Búnaðarbank- ann, að fírra sig tapi vegna milli- færslna, sem gerðar voru eftir há- degi þegar Seðlabankinn lokaði fyr- ir kaup og sölu gjaldeyris. Bankastjórum hafi verið kunnar þessar reglur en einu ráðstafanimar sem bankinn hafi gert til að veija sig tapi hafi verið að eiga ávallt nægan gjaldeyri. Fyrst árið 1992 hafí Búnaðarbankinn sett takmark- anir á millifærslur gjaldeyris úr ein- um gjaldmiðli yfír í annan með þeim hætti að millifærslur á fjárhæðum yfír 1 milljón króna þyrftu að fara fram fyrir kl. 10.30 að morgni. Samdi um afslátt við bankastjóra Þá hafí á þeim tíma sem ákæran fjallar um gilt sú regla hjá bönkum að millifærslur á gjaldeyrisreikning- um voru reiknaðar þannig að gjaldmiðill var keyptur á kaupgengi dagsins en nýr gjaldmiðill seldur á milligengi, þ.e. meðaltali kaupgeng- is og sölugengis. Kristján Gunnars- son gerði hins vegar samkomulag um frávik frá þessari reglu við bankastjóra Búnaðarbankans og naut afsláttar þannig að öll við- skipti hans voru reiknuð á kaup- gengi. „Akærði fór í engu leynt með þessi viðskipti. Fór hann í biðröð eins og hver annar viðskiptavinur og naut engrar sérstöðu er hann færði gjaldeyrinn á milli reikning- anna. Þær upplýsingar sem ákærði aflaði sér í bankanum um hreyfíng- ar á gjaldmiðlum hveiju sinni og. notaði sér við millifærslurnar voru ekkert trúnaðarmál innan bankans og fjöldi viðskiptamanna bankans millifærði gjaldeyri á sama veg og ákærði á þessum árum,“ segir í dómnum og jafnframt að ekkert sé komið fram sem bendi til þess að maðurinn, sem sagðist hafa fylgst með skjá þar sem birtust upplýs- ingar frá erlendum gjaldeyrismörk- uðum, á leið í og úr matar- og kaffítímum, hafí eytt vinnutíma sín- um í að afla þessara upplýsinga, þvert á móti hafí yfírmenn bankans borið að hann hafi stundað vinnu sína með eðlilegum hætti. Því taldi dómurinn að maðurinn hefði ekki brotið af sér, sýknaði hann af öllum refsikröfum og felldi allan kostnað vegna málsins á ríkis- sjóð. Skipt um hjarta o g lungu í ELÍSABET Jóhannsdóttir frá ísafírði gekkst undir hjarta- og lungnaskiptaaðgerð á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg síðastlið- inn laugardag. Að sögn Jóns Dalbús Hróbjarts- sonar, sendiráðsprests í Gautaborg, líður Elísabetu eftir atvikum vel, en aðgerðin stóð fram á aðfaranótt sunnudags. Elísabet er 45 ára gömul og hafði hún beðið I um tvö ár eftir að kom- Islendmgi ast í aðgerðina. Eiginmaður hennar er Torfí Einarsson og er hann með Elísabetu í Gautaborg. Síðast var skipt um hjarta og lungu í íslendingi á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í september síðastliðn- um, en þá gekkst Ásdís Stefánsdótt- ir úr Garði undir slíka aðgerð. Að sögn Jóns Dalbús bíður nú enginn íslendingur eftir aðgerð af þessu tagi, en einn hefur beðið eftir hjarta- skiptaaðgerð frá því í desember. Aróður í skólum gegn sinuíkveikjum Hús nærri sinu- svæðum í ákveð- inni hættu Jón Viðar Matthíasson SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík, Lögreglan og Garðyrkjustjóri Reykjavíkur efna þessa dagana til átaks í grunn- skólum landsins þar sem fræðsla um skaða vegna sinuelda er skýrð fýrir nemendum. Jón Viðar Matthíasson varaslökkvil- iðsstjóri segir að það teljist til vorverka Slökkviliðsins að slökkva sinuelda og nú sé tímabært að stemma stigu við slíku athæfi með samstilltu átaki ofan- greindra aðila í samvinnu við foreldra og börnin sjálf. „Það á að setja kraft í þetta núna því eins og veðráttan hefur verið að undanfömu er hætta á að börn og ungl- ingar fari á kreik og kveiki sinuelda. Þetta er átaks- verkefni slökkviliðs, lögreglu, gatnamálastjóra og garðyrkju- stjóra. Við ætlum að fara í alla skóla borgarinnar og tala við bömin. Við ætlum í skólana á miðvikudag, fimmtudag og föstudag í þessari viku og helst að fara í sem flesta skóla í þess- ari viku. Þetta er viðkvæmasti tíminn hvað varðar sinuelda og auk þess er álagið í skólunum meira núna en nokkru sinni áður vegna verkfalls kennara. Við höfum fengið góðar undirtektir frá skólunum enda em þeir með- vitaðir um vandann. Margir skól- anna liggja í jaðrinum á byggð- inni og starfsfólk þeirra sér því eyðilegginguna sem sinueldar hafa í för með sér. Mörg útivist- arsvæði hafa verið byggð upp í borgjnni sem borgarbúar eru farnir að notfæra sér í miklum mæli. Það væri synd ef íkveikjur ná að eyðileggja svona náttúru- perlur. Það er alltaf eitthvað sem lætur á sjá á hveiju ári en gatna- málastjóri og garðyrkjustjóri era nú með menn á vakt allan dag- inn og fram eftir kvöldi á við- kvæmustu stöðunum. Það hefur verið okkur í slökkviliðinu ómet- anleg hjálp að hafa þessa aðila með okkur. Við sjáum að þetta skilar vaxandi árangri með árun- um,“ segir Jón Viðar. „í fyrra kviknaði illa í Ell- iðaárdalnum. Sumir halda að þeir séu að vinna þörf vorverk með því að kveikja í sinu en svo er ekki því með því espa menn upp snarrótina og hún verður ennþá kræfari næsta ár. Einnig hafa menn haft áhyggjur af hús- um sem liggja á opnum svæðum, eins og t.d. í Elliðaárdalnum hjá Rafstöðinni. Húsin þar liggja mjög nálægt sinusvæðunum og þau era í ákveðinni hættu. Hús- eigendur hafa slegið þar ræmur í sinuna eða rótað upp jörðinni fyrir utan garðana til að veija hús sín ef sinueldar era kveiktir. Margir hafa lagt gífurlega vinnu í ræktun garða sinna og ómetan- leg tjón getur orðið ef sinueldur kemst í garðana sem hefur oft tekið marga áratugi að rækta upp.“ Eru böm ekki meðvituð um afleiðingar þess að kveikja sinu- elda? „Sumt af þessu er fíkt en reyndar hefur borið á því að um stálpuð börn og unglinga er að ► Jón Viðar Matthíasson varaslökkviliðsstjóri er fædd- ur 28. júlí 1959. Hann er verk- fræðingur að mennt og tók brunaverkfræði sem sérsvið. Hann hóf störf hjá Slökkviliði Reykjavíkur 1991. Hann er kvæntur og á þijú börn. ræða. Mörg börn era mjög með- vituð um skaðann sem sinueldur getur valdið og taka þátt í slökkvistarfi. Oft byijar þetta á fikti en svo missa þau þetta út úr höndunum á sér og þá er oft of seint að slökkva. Fuglalífið er oft í mikilli hættu því varp er að fara af stað um þetta leyti. Fuglarnir geta orðið hvekktir og koma jafnvel aldrei aftur á sum svæðin. Með því að kveikja sinu- elda er verið að rýra gildi útivist- arsvæðanna á allan máta.“ Er þá aldrei réttlætanlegt að kveikja sinueld? „Ekki innan borgarmarkanna og þá ekki nema undir eftirliti þeirra aðila sem hafa með málið að gera, þ.e. garðyrkjustjóra og hann ákveður þá svæðið. Það er þó með algerri undantekningu að slíkum úrræðum er beitt. Við ætlum að koma inn á það við börnin hve mikilvægt er að vemda náttúruna og enginn geri neitt gott með því að kveikja í sinu. Með því sé hætta á því að verðmætum sé fómað og dæmi er um að börnum stafi bráð hætta af þegar þau verða innikróuð í sinu- bruna. Það hefur gerst að þau hafi kró- ast inni.“ „Það fer mikill tími í það hjá slökkviliðinu að sinna útköllum vegna sinuelda, útköll- in skipta tugum á hveiju ári. í fyrra vora óvenjumörg útköll því við fengum tvö sinutímabil þá. Mikill þurrkur var í febrúar og þá voru mörg útköll og svo aftur í apríl og maí. Við sjáum samt að það hefur dregið úr sinueldum en ég held samt að það verði alltaf að hafa vakandi auga fyr- ir þessu og góðan árangur í gangi nákvæmlega eins og gert er í umferðarmálum. Þáttur for- eldra er að ræða við börnin og fá þau til að skilja mikilvægi þess að vernda náttúrana. Einn- ig þurfa þeir að gæta þess að börn séu ekki með eldfæri á sér.“ í fyrra voru óvenjumörg útköll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.