Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
lagi ekki til mörg eintök á landinu
og í öðru lagi var þessi bíll mjög lítill
í sniðum. Eg hef að minnsta kosti
ekki borið annað eintak augum.
Það var á leiðinni frá Selfossi að
heimili þeirra að Vogi við Ölfusá sem
Valgerður nefndi við mig að Hall-
grímur væri strangur og kröfuharð-
ur kennari og að ég skyldi hafa það
hugfast að það væri ekki af neinni
illkvittni heldur af væntumþykju sem
að hann vildi að nemendur sínir
næðu árangri. Það kom svo í hennar
hlut að fylgjast með að ég spjaraði
mig og að ég léti ekki bugast af
námskröfunum. Ég fann að ég var
velkominn inn á heimili þeirra hjóna.
Þeim hafði ekki áskotnast að eign-
ast nein börn sjálf -þannig að ég
fann að þau tóku sérstöku ástfóstri
við þá sem þau höfðu hjá sér í vist.
Valgerður var einstaklega vingjam-
leg og elskuleg kona sem lét ,sig
miklu skipta að manni liði vel á heim-
ili hennar.
Húsið þeirra stóð andspænis Sel-
fossi við Ölfusá, norskt timburhús
sem Valgerður hafði haft veg og
vanda af að Iáta reisá á meðan
Hallgrímur dvaldi við störf erlendis.
Þarna var yndislegt að vera, enginn
hávaði, engin umferð, eina hljóðið
sem heyrðist var tifið í veggklukk-
unni og niðurinn í Ölfusá sem rann
hljóðlega framhjá með seiðmagnandi
töfrum.
Ég minnist þess að sitja við borð
í innri stofu þeirra hjóna og glíma
rið þýska stíla. Hallgrímur sat þá
gjarnan í vinnuherbergi sínu en
Valgerður -var frammi við. Það var
alltaf mikið að snúast hjá henni í
allskonar félagsmálum sem hún
sinnti af alúð og áttu hug hennar
allan, enda var Valgerður mikill
skörungur til orðs og æðis. Heimili
hennar naut fágaðrar og listrænnar
smekkvísi sem hún bjó yfir. Sérhver
hlutur hafði sinn tilgang og allt sam-
an spilaði þetta saman í takt við
hvert annað sem skapaði þann sér-
staka anda sem ríkti á heimilinu.
Á kveðjustund eru mér þessar
minningar ofarlega í huga. Ég stend
í mikilli þakkarskuld við Valgerði,
örlæti hennar, umhyggja og velvild
í minn garð er nokkuð sem ég hef
búið að æ síðan.
Ættingjum Valgerðar votta ég
einlæga samúð mína.
Guðjón H. Gunnarsson.
Útför Valgerðar Tryggvadóttur
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag.
Hún var önnur í aldursröð sjö systk-
ina í Laufási við Laufásveg, en sú
fyrsta þeirra sem kölluð er burt.
Hún Dista, eins og hún var oftast
kölluð, átti ljúfa æsku á Laufásveg-
inum. Á þeim tíma bar umhverfið
keim af frelsi sveitalífsins, jafnvel
búskap, en inni í Laufási ríkti glað-
værð systkinahópsins og annarra,
sem áttu þar heima, því að segja
má, að húsið hafi oft á tíðum verið
gjörnýtt, svo notað sé nútíma orða-
lag, og bjuggu þar bæði skyldir og
vandalausir í samlyndi. Um var að
ræða uppvaxandi æsku, þar sem
hver einstaklingur hafði sín sterku
lyndiseinkenni, en bundin voru vina-
bönd sem entust alla tíð. Faðir Val-
gerðar átti stóran þátt í glaðværð
heimilisins, því þótt báðir foreldrar
lékju á hljóðfæri og móðirin hefði
lært að syngja, kom í hans hlut að
yrkja ljóð og lausar vísur til barn-
anna í húsinu oft í gamansömum
stíl, sem óspart var haldið á lofti og
ennþá er gaman að rifja upp.
Þannig leið æska Valgerðar í frelsi
og áhyggjuleysi, en skyndilega dró
ský fyrir sólu. Heimilisfaðirinn
kenndi heilsubrests. I sviptingum
stjórnmálalífsins, sem var hans
starfsvettvangur, gildir, að standa
meðan stætt er. Fjölskyldan sá að
hveiju fór. Það var líkt og heimurinn
hryndi yfir eiginkonu og börn við
fráfall hans. Þótt öll systkinin fyndu
ábyrgðina sem breytingin olli, þá
urðu þijú elstu systkinin að leggja
sig mest fram, síðan hin fjögur
yngri, allt eftir því sem þroski og
geta leyfði. Það kom í hlut elsta
bróðurins að axla mesta ábyrgð með
móðurinni, sem bjó síðan það sem
hún átti eftir ólifað sem ekkja (í
rúma hálfa öld) undir vernd hans
og tengdadótturinnar, í Laufási.
Ekki hefur áfallið verið minnst fyrir
Valgerði, sem bókstaflega tilbað föð-
ur sinn. Eflaust hefur hann líka skil-
ið hana betur en aðrir og beitt sinni
mjúku lund til að sefa og setja gleð-
ina ofar öðru á meðan hann gat.
Það gat þó ekki dulist neinum, að
Valgerður þótti snemma mikillar
gerðar og ekki er grunlaust um, að
bræður hennar hafi kallað hana val-
kyijuna þegar mest sópaði að henni'
á stundum. Hún var ákveðin í skoð-
unum og bar sterkan persónuleika
strax sem unglingur. Hún afþakkaði
iangskólalærdóm og sagði sjálf, að
það hefði verið foreldrunum mikil
vonbrigði, því að þrátt fyrir knöpp
efni stóð til að styðja öll bömin til
mennta. Þótt Valgerður vildi ekki
eyða löngum tíma í skólanám, þá
fór hún út til Evrópu í strangan
skóla um tíma, sem hefur áreiðan-
lega verið henni mjög gagnlegur síð-
ar í lífinu, er hún tókst á hendur
störf, sem kröfðust ábyrgðar og
agaðra vinnubragða. Þótt líklegt sé,
að henni hafi ætíð fylgt arnsúgur
hinnar stórbrotnu konu, þá hef ég
fyrir satt, að Valgerður hafi verið
frábærlega skyldurækin og skipu-
lögð í öllum sínum störfum og í
reglusemi um alla hluti er máli
skiptu, átti hún trúlega fáa sína líka.
Þótt hún væri ekki allra, átti hún
til góða kímnigáfu og persónutöfra,
sem gerði návist hennar oft
skemmtilega.
Valgerður var síðust til áð yfir-
gefa æskuheimilið. Hún giftist á
fullorðinsárum menntuðum og mik-
ilhæfum tónlistarmanni. Þau áttu sér
um árabil bú á bökkum Ölfusár.
Heimili þeirra bar í senn brag heims-
borgara og hinna þjóðlegu íslensku
gilda og hvarvetna mátti sjá hluti
unna af höndum húsmóðurinnar af
mikilli smekkvísi. Oft reynist ungum
hjónum erfitt um vik þegar kemur
til að samsama. Hvað þá um tvo
einstaklinga, sem hefja fyrst sambúð
eftir hið svokallaða mótunarskeið.
Tíminn á bökkum fljótsins mikla sem
fellur í hafið, er söng fyrstu lögin í
eyru barnsins, sem átti eftir að verða
tónskáld, var trúlega þeirra besti
tími saman. Þau lásu hvort fyrir
annað athygliverðar bókmenntir og
ræddu efnið. Hún fékkst við hann-
yrðir, heimilisstörf og félagsmál.
Hann heyrði óminn af brimhljóðinu
við ströndina og hamfarir hafsins
breyttust í huga hans í tónaflóð, sem
of fáir skildu. Það voru tvær stór-
brotnar manneskjur sem bjuggu í
Vogi og það var ánægjulegt að heim-
sækja þau á góðum stundum. Alla
tíð skipti fyölskylda Valgerðar hana
miklu máli, ekki síst systkinaböm
hennar. Sérstöku ástfóstri tók hún
við systursoninn, sem bar fyrstur
nafn föður hennar, en sjálfri varð
henni ekki barna auðið. I huganum
geymist mynd, sem hefur ekki máðst
þótt liðin séu meira en fjörutíu ár.
Valgerður heldur barni undir skírn,
lítilli bróðurdóttur, sem aðeins kom
við frá Bandaríkjunum til Evrópu til
að fá nafn — í stofunni í Laufási, í
fanginu á Distu frænku, sem var
klædd íslenska upphlutnum. Ramm-
íslensk var hún þessi glæsikona og
hún trúði á framgang til góðs í þjóð-
lífinu eins og sönnum íslendingi
sæmir, þótt á ýmsu ylti. Síðustu
árin bjó Valgerður með eiginmanni
sínum uppi í Laufási. Hann lést á
síðastliðnu hausti og eru þau nú
komin bæði yfir á sama fljótsbakk-
ann. Að leiðarlokum skal ekki
gleymast að þakka Valgerði fyrir
hönd ættingjanna, sem hún sýndi
umhyggju og hugulsemi. Hún lést
úr lungnabólgu í Hátúni lOb eftir
skamma legu þar, en nokkurra vikna
þungbæra legu á Landspítala og
skal þökkuð frábær þjónusta hjúkr-
unarfólks og lækna á báðum stöðum.
Þessi sterka og glæsilega kona sem
var, leið burt yfirbuguð, en umvafin
kærleika systkina sinna og systurdótt-
ur. Guð blessi minningu Valgerðar.
Hildur.
• Fleiri minningargreinar um
Valgerði Tryggvadóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
□ GLITNIR 5995042619 I Lf.
I.O.O.F. 7 = 1774268V2 =
□ HELGAFELL 5995042619 VI 2
I.O.O.F. 9 = 1764268V2 =
Hörgshlíð 12
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
KROSSÍblN
Audbrckka 2 . Kópai'úgur-
Samkoma meö Paul Hansen
annað kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hallveigarstíg 1 »simi 614330
Dagsferð sunnud. 30.4.
Kl. 10.30 Blákollur. Brottför frá
BSÍ bensínsölu, miðar við rútu.
Helgarferð 29. apríl-1. maí
Gengið á Snæfellsjökul og skoð-
aðir áhugaverðir staðir á Snæ-
fellsnesi.
28. apríl-7. maí
Fjallamannahringur.
Nánari uppl. og miðasala á skrif-
stofunni.
Útivist.
SAMBAND ISLENZKRA
KRISTNIBœSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöid kl. 20.30 í
kristniboðssalnum.
Susie Bachmann og Páll Frið-
riksson sjá um efni og hugleið-
ingu. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Ffiadelfía
Skrefið kl. 18.00 fyrir 10 til 12
ára krakka. Biblíulestur kl. 20.30.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Kvöldvaka miðviku-
dagskvöld 26. aprfi
Hekla í máli og myndum
Kvöldvakan er í tilefni útkomu
árbókar F.í. 1995 um Heklu
(kemur út í maó í umsjá Árna
Hjartarsonar, jarðfræðings, höf-
undar árbókarinnar og Grétars
Eiríkssonar. Kvöldvakan verður
í nýja salnum í Mörkinni 6 og
hefst kl. 20.30 stundvíslega.
Myndagetraun. Leynigestir með
óvænt efni! Kaffi í hléi.
Aðgangur kr. 500.
Allir velkomnir, félagar og aðrir.
28. apríl-1.maí: Öræfajökull-
Skaftafell. Gist í svefnpoka-
plássi á Hofi. Brottför föstudag
kl. 18.00.
29. apríl-1. maí: Fimmvörðu-
háls-Þórsmörk. Gist á Fimm-
vörðuhálsi. Brottför kl. 09.00
laugardag.
Ferðafélag (slands.
ATVINNUAUGl YSINGAR
Bátsmaður
óskast á 450 tonna ísfisktogara.
Þarf að geta leyst annan stýrimann af.
Upplýsingar í síma 97-31143.
Rafeindavirkjar
Óskum að ráða rafeindavirkja til framtíðar-
starfa. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
á fjarskiptasviði og geti unnið sjálfstætt.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur og
fyrri störf, sendist afgreiðslu Mbl., merktar:
„Tele - 18075“, fyrir 4. maí.
FJOLBRAUTASKÚUNN
BREIÐHOITI
Námsráðgjafar
Umsóknarfrestur um stöðu námsráðgjafa við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti rennur út
28. apríl nk.
Nánari upplýsingar má fá á skrifstofutíma
í síma 557 5600.
Skólameistari.
Starf húsvarðar
Húsfélagið á Hjallabraut 33, Hafnarfirði, aug-
lýsir eftir húsverði, einstaklingi eða hjónum,
frá og með 1. júní nk. Gert er ráð fyrir að
húsvörður búi í húsinu. Sú krafa er gerð til
umsækjenda að þeir séu líkamlega og and-
lega heilsugóðir, almennt vel á sig komnir,
samvinnufúsir og skilningsríkir í samskiptum.
Jafnframt er æskilegt, en ekki skilyrði, að
viðkomandi hafi unnið á sviði öldrunar- eða
hjúkrunarmála. Hluti af starfi húsvarðar felst
í þrifum á sameign hússins.
Æskilegur aldur er 40-55 ára.
Launakjör eru samkomulagsatriði.
Frekari upplýsingar eru veittar af starfandi
húsverði (Rögnu) í síma 651912 virka daga
kl. 10-11.
Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. og skulu
umsóknir sendar húsfélaginu á Hjallabraut 3,
Hafnarfirði.
Lausar stöður
við Framhaldsskóla Vestfjarða
Við Framhaldsskóla Vestfjarða á ísafirði eru,
frá og með 1. ágúst nk., lausar eftirtaldar
stöður:
Heilar kennarastöður í viðskiptagreinum,
stærðfræði-eðlisfræði, vélstjórnargreinum
og rafiðngreinum.
Hálfar kennarastöður í frönsku og íslensku.
Hlutastöður kennara í veitingatækni, mat-
reiðslu-framreiðslu og tölvufræði.
Staða húsmóður og húsbónda á heimavist,
samtals heil staða á skólatíma.
Við útstöð skólans á Patreksfirði eru lausar
stöður stundakennara í íslensku, ensku,
stærðfræði, efnafræði, vélritun og íþróttum.
Umsóknarfrestur er til 25. maí nk.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist Framhaldsskóla Vest-
fjarða, pósthólf 97, 400 ísafjörður.
Frekari vitneskju veitir undirritaður í síma
94-3599 eða 94-4550.
ísafirði, 24. apríi 1995.
Skóiameistari.
i húsinu eru 59 ibúðir ætlaðar fólki 60 ára og eldra, Auk húsvörslu er tals-
verð þjónusta í húsinu, veitt af einkaaðilum, stofnunum og bæjaryfirvöldum.
Stjórn húsféiagsins.