Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK, SÍMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBlJaiCENTRUMÆ / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK * Islensk loðna í sædýra- görðum Flórída. Morgunblaðið. KARLKYNS loðna af fslands- miðum hefur heldur betur feng- ið uppreisn æru en hún hefur á undanfömum árum orðið að láta í minni pokann fyrir kven- kyns loðnu sem Japanir eru ólmir í og hafa keypt dýrum dómum frá íslandi. Markaður hefur nú opnast fyrir karlkyns loðnuna í sjávardýragörðum í Flórída og víðar um Bandaríkin. Innflytjandi íslenskrar loðnu til Flórída er Eugene McRo- berts en fyrirtæki hans McRo- berts Sales í Everglades City hefur um áratugaskeið séð sæ- dýragörðum í Bandaríkjunum fyrir síld, físki og loðnu sem nær eingöngu hefur verið keypt í Kanada. Nú eru Kanadamenn ekki lengur færir um að sjá fyrirtækinu fyrir fiski til eldis dýra í sædýragörðum og því var það sem McRoberts leitaði fyrir sér um loðnukaup á íslandi. Hann fór tvær ferðir til ís- lands, aðra áður en loðnuveiðin hófst á síðustu vertíð og hina eftir að loðna tók að veiðast. McRoberts, sem kominn er á gamalsaldur, leitaði víða fyrir sér og festi kaup á um 2.000 tonnum af frystri karlkyns loðnu á Islandi og er hluti henn- ar tekinn að berast til Flórída. Þessi loðna verður m.a. fæða hinna frægu höfrunga f Sea World og fleiri frægustu sæ- dýragörðum heimsins næsta árið. Erfiður vetur í Hlíðarfjalli EINN erfiðasti vetur i rekstri skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli í ald- arfjórðung er nú að baki, að sögn Ivars Sigmundssonar, forstöðu- manns Skíðastaða, en svæðið hef- ur samtals verið lokað 33 daga í vetur. Það viðraði hins vegar vel til skíðaiðkunar um helgina. Skíðasvæðið verður opið áfram næstu tvær helgar og þá gæla menn við að hafa einnig opið helg- ina 6. og 7. maí því nægur og góður snjór er í fjallinu. ■ Erfiðasti vetur/11 Aukin sókn sveitarfélaga eftir fjármagni á innlendum verðbréfamarkaði Seldu fyrir 1,5 milljarða kr. í janúar og febrúar SVEITARFÉLÖG hafa í auknum mæli sótt inn. á innlendan verðbréfamarkað til að afla sér lánsfjár en heildarsala á skuldabréfum sveitarfélaga á verðbréfamarkaði í fyrra nam 5,9 milljörðum króna, sem er nær tvöföldun frá árinu á undan. Mikill halli var á rekstri sveitarfélaga á seinasta ári og er hann áætlaður tæpir fimm milljarðar króna. Seðlabankinn og Þjóðhagsstofnun telja að rekstrarvandi sveitarfélaga og fjármögnunarþörf sé farin að hafa veruleg áhrif á fjármagnsmarkaði. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins seldu sveitar- félög skuldabréf í útboði á verðbréfamarkaði fyrir 731 milljón króna en 179 millj. kr. í sömu mánuð- um í fyrra. Auk þess seldu sveitarfélög skamm- tímavíxla á markaðinum fyrir 730 millj. í janúar og febrúar. Samtals hafa sveitarfélögin þannig aflað sér um 1,5 milljarða króna með útboðum á verðbréfamarkaði á fyrstu tveimur mánuðum árs- ins. Þetta bendi til enn aukinnar lántöku sveitarfé- laga í ár. Hafa skuldabréfin verið seld með ávöxt- unarkröfu á bilinu 5,93%-7,20%. Stefnir vaxtastiginu í hættu Á seinasta ári nam samanlagður halli ríkisins og sveitarfélaga um 17 milljörðum króna og Þórð- ur Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, segir að afkoma sveitarfélaga sé ekki síður áhyggjuefni en afkoma ríkissjóðs og brýnasta verkefnið í efna- hagsmálum sé að gengið verði í að leysa þennan vanda. „Þessi afkoma er að mínu mati ekki í sam- ræmi við það markmið að raunvextir hér á landi verði hóflegir á næstu misserum. Menn verða að horfast í augu við þetta, því ef afkoma hins opin- bera verður áfram svona slæm, þá er hætt við að vextir fari smám saman upp úr öllu valdi og það kæmi til með að skaða hagvaxtarhorfur," segir hann. Páll Pétursson félagsmálaráðherra segir nauðsynlegt að hefja viðræður við sveitarfé- lögin um leiðir út úr fjárhagsvanda þeirra eins og ríkisstjómin hafí boðað í stefnuyfirlýsingu sinni. ■ Skuldasöfnun/miðopna. Morgunblaðið/Rúnar Þór Verkefnaskrá sjávarútvegsins Veiðieftirlit með gervitunglum kannað í VERKEFNASKRÁ sjávarútvegs- ráðuneytisins sem lögð var fram á ríkisstjórnarfundi í gær er kveðið á um að veiðieftirlit verði eflt og í því sambandi sérstaklega kannað hvort eftirlit með gervitunglum sé vænlegur kostur. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra segir nauð- synlegt að það sé kannað hvort unnt sé að nýta sér þessa tækni við veiðieftirlit. „Þessi tækni hefur verið að ryðja sér til rúms og menn verið að skoða möguleika á þessu sviði annars staðar. Við þurfum að kanna hversu víðtækt eftirlitið gæti orðið með þessum hætti en fyrst og fremst hafa menn verið að horfa á það að hafa eftirlit með skipum að veið- um,“ sagði Þorsteinn. Hann sagði að sér þætti það al- veg fráleitt ef sjómenn settu sig upp á móti þessu. Sjómenn vildu að virkt eftirlit væri með veiðum og allir færu að settum leikreglum. „Það hefur komið skýrt fram af hálfu forystumanna þeirra að taka þátt í hvers konar aðgerðum sem miða að því að tryggja að leikregl- um sé fylgt,“ sagði Þorsteinn. Þróunarfélag íslands kaupir 65% hlutabréfa í Draupnissjóðnum SAMNINGAR tókust á mánudag um kaup Þróunarfélags íslands hf. á 65% hlutafjár íjárfestingarfyrir- tækisins Draupnissjóðsins hf. af Iðnlánasjóði og Iðnþróunarsjóði. Er stefnt að því að sameina félög- in um mitt þetta ár. Hlutabréfin sem skiptu um hendur eru að nafn- virði 355 milljónir og voru seld ^ miðað við gengið 1,37 eða fyrir samtals 486 milljónir króna, að sögn Þorgeirs Eyjólfssonar, stjórn- arformanns Þróunarfélagsins. Iðnþróunarsjóður var stærsti hluthafí Draupnissjóðsins með 54% hlut en næstur honum kom Iðn- lánasjóður með 20% hlut. Aðrir hluthafar eru einkum lífeyrissjóðir sem sumir eiga jafnframt hlutabréf Sameining um mitt ár í Þróunarfélaginu. Aðalfundi Draupnissjóðsins fyrir skemmstu var frestað vegna óvissu um framtíð félagsins. Hefur verið ákveðið að halda framhaldsaðal- fund þann 10. maí nk. þar sem ný stjórn verður kjörin. Eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu hafa viðræður staðið yfir um skeið milli forráða- manna sjóða iðnaðarins og Þró- unarfélagsins. Sú skoðun hefur verið uppi hjá Þróunarfélaginu að það þurfi að stækka til að geta borið þann lágmarkskostnað sem falli til í slíku félagi. Með því að sameina félögin verði unnt að búa til mun hagkvæmari rekstrarein- ingu. Sameiningin er einnig talin tryggja betri eignadreifingu en í hvoru félaginu fyrir sig. Draupnissjóðurinn hefur haft það að markmiði að fjárfesta í verðbréfum sem skráð eru á mark- aði en Þróunarfélagið fjárfestir einkum í óskráðum bréfum. Eigið fé Þróunarfélagsins var alls 600 milljónir í árslok 1994 og eigið fé Draupnissjóðsins 727 milljónir. Undirgöng á Vestur- landsvegi NU ER unnið að gerð undirganga gegnum Vesturlandsveg við Við- arhöfða í Reykjavík. Göngin eiga að tengja saman iðnaðarhverfin ofan og neðan Vesturlandsvegar, en að auki verður hægt að kom- ast frá Viðarhöfða inn á Vestur- landsveg í átt að miðbænum. Vest- urlandsvegur var rofinn í síðustu viku og fer umferðin nú um bráða- birgða'framhjáhlaup við Hestháls. I þessari viku verður svo gengið frá framhjáhlaupi sem mun þjóna umferðinni uns mannvirkin verða tekin í notkun siðla sumars.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.