Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ STJÖr ÓDAUÐLEG ÁST Gary Oldman, Isabella Rossellini, Jeroen Krabbé, Valeria Golino og Johanna Ter Steege í stórkostlegri mynd um ævi Ludwigs van Beethoven. „Meistaraverk! Ein albesta mynd ársins." John Korcoran, KCAL-TV „Svona eiga kvikmyndir að vera!" Jan Wahl, KRON-TV, San Francisco „Þessi mynd dáleiðir mann!" Janet Maslin, The New York Times „Tveir þumlar upp! Heillandi ráðgáta." Roger Ebert, Siskei & Ebert Framleiðandi: Bruce Davey Handrit og leikstjórn: Bernard Rose Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.15. Bönnuð innan 12 ára. nUBÍÓ VINDAR FORTÍÐAR ★★★ A. I. Mbl LEGENDS o m FALL Sýnd kl 6.30 og 8.50. BARDAGAMAÐURINN Sýnd kl. 5 og 11.15. B.i. 16. STREET FIGHTER LEIKURINN STJÖRNUBlÓLlNAN SlMI 991065 Taktu þátt I spennandi kvikmyndagetraun. Verðlaun: Derhúfur og boðsmiðar á myndir í STJÖRNUBÍÓi. Verð kr. 39,90 minútan. Opið hús í Operunni ÍSLENSKA óperan var með opið hús á sumardaginn fyrsta og not- uðu margir tækifærið til að kom- ast inn úr kuldanum og kynnast starfsemi óperunnar. Þar gátu gestir skoðað gamlar blaðaúr- klippur, fylgst með förðun og hárgreiðslu söngvara, kíkt í öll skúmaskot og fengið sér kaffi og kleinur. Bömin fengu að máta bæði búninga og grímur og mörg þeirra létu mynda sig. Einsöngv- arar og kór tóku syrpu úr La tra- viata fyrir nánast fullu húsi og seinna gátu gestir fylgst, með Garðari Cortes stjóma kóræfingu. Virtust bæði háir og lágir skemmta sér hið besta. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir GESTIR fengu að fylgjast með förðun, frá vinstri: Diddú, Sigurður Steingrímsson og Garðar Cortes. MEÐLIMIR úr Óperukórnum spjalla saman. UNGUR gestur fylgist með hárgreiðslu. HRÖNN Hafliðadóttir að heilsa gestum. FOLK Morgunblaðið/Halldór HULDA Ólafsdóttir, Birna Willardsdóttir, Haraldur Dungal og Erla Ellingsen eru nokkur af starfsmönnum staðarins. BJARNI Óskarsson og Marjan Zak. * Operudraug- ur opnar SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld var opnaður nýr veitingastaður undir nafninu Óperudraugurinn sem er til húsa undir veitingastaðn- um Cafe Óperu i Lækjargötu. Veit- ingastaðirnir eru báðir undir sömu eigendum og framkvæmdastjóra. í tilefni af opnuninni var efnt til glaðnings þar sem gestum var boð- ið upp á léttar veitingar. Til gamans má geta þess að Óperudraugurinn eða „Phantom of the Opera“ er skírskotun til sam- nefnds söngleiks sem gerður var eftir sögu sem gekk um brunann á óperuhúsinu í París. Sagan er af grímuklæddum manni sem bjó und- ir sviði óperuhússins og varð ást- fanginn af einni söngkonunni. „Óperudraugurinn _er einmitt undir „sviðinu" á Cafe Óperu og þannig er nafngiftin til komin,“ segir Har- aldur Dungal, framkvæmdastjóri bæði Cafe ðperu og Óperudraugs- ins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.