Morgunblaðið - 26.04.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 11
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
UM IV2 metra af snjó var blásið af KA-vellinum um helgina.
Snjónum blásið burt
Einkarek-
inn leik-
skóli hefur
starfsemi
LEIKSKÓLINN Ársól, Móasíðu 1,
hóf starfsemi á þriðjudag.
Mikil endumýjun hefur verið
gerð á húsnæðinu síðustu vikur.
Leikskólinn er ætlaður bömum frá
6 mánaða aldri til 6 ára. Hann er
einkarekinn og verður hver
klukkustund seld á 150 krónur.
Leikskólinn verður með
sveigjanlegan dvalartíma frá kl.
7.00 til 17.30, en ekki verður hægt
að kaupa færri en 80 klukkustund-
ir á mánuði.
34 börn í einu
I leikskólanum verða 34 börn í
einu. Leikskólinn verður rekinn
samkvæmt lögum'um leikskóla frá
því á síðasta ári og verður áhersla
lögð á skapandi starf, þ.e. hreyf-
ingu, myndlist, söng, vinnu með
leir og einingakubba. Innritun er
þegar hafin en tekið er á móti
umsóknum í leikskólanum.
Leikskólinn Ársól verður opinn
allt árið, verður ekki með sumar-
lokun. Opið hús verður á leikskó-
lanum 1. maí næstkomandi frá kl
13.00 til 16.00 þar sem áhugafólk
um leikskólamál getur komið og
skoðað leikskólann og fengið sér
kaffisopa.
Leikskólastjóri er Guðný Anna
Annasdóttir, leikskólakennari með
framhaldsnám í skapandi starfi frá
Fósturskóla íslands.
„ÞETTA eru auðvitað afleitar
aðstæður,“ sagði Áskell Gíslason
í sljórn knattspyrnudeildar
Knattspyrnufélags Akureyrar,
KA, en um helgina var unnið að
því að blása burtu um 1V2 metra
af jafnföllnum si\j ó af KA-vellin-
um á Lundartúni. Þá var klakinn
eftir og bíða KA-menn þolinmóð-
ir eftir að hann bráðni, völlurinn
þorni og hægt verði að spila þar
fótbolta.
Áskell sagðist vona að veðrið
færi að lagast en þá myndi völl-
urinn fljótt þorna, „við vonum
að við getum byijað að æfa þarna
í næstu viku,“ sagði hann.
Höfum dregist aftur úr
Bæði Akureyrarliðin, KA og
Þór, lejka í 2. deild í sumar og
sagði Áskell það talandi dæmi
um hversu Iangt aftur úr Norð-
anmenn hefðu dregist, aðstáeð-
urnar væru afleitar og engar
úrbætur í sjónmáli. „Það er ekki
nóg að geta hlaupið, menn verða
líka að geta spilað fótbolta,"
sagði hann og vísaði til þess að
upphituð göngugatan í Hafnar-
stræti hefur í vetur verið einna
snjóléttasta svæði bæjarins og
fótboltamenn hlaupið á þessu 400
metra svæði fram og til baka.
„Eg líki þeim aðstæðum sem
knattspyrnumönnum bjóðast á
Akureyri við það að skíðamenn
æfðu í Hlíðarfjalli ogjþar væru
engar lyftur," sagði Askell. „Við
höfum af mætti reynt að þrýsta
á bæjaryfirvöld um úrbætur en
það þýðir ekkert, það virðist
enginn áhugi vera fyrir að gera
eitthvað í okkar málum.“
Lokað í Hlíðarfjalli vegna veðurs í 33 daga á liðnum vetri
Erfiðasti vetur í aldarfjórðung
EINN erfiðasti vetur i rekstri skíða-
svæðisins í Hlíðaríjalli í aldarijórð-
ung er nú að baki. Skíðasvæðið
verður opið áfram næstu tvær helg-
ar og þá gæla menn við að hafa
einnig opið helgina 6. og 7. maí því
nægur og góður snjór er í fjallinu.
Lokað í 33 daga
ívar Sigmundsson, forstöðumað-
ur Skíðastaða, sagði að óstillt veðr-
átta hefði mjög sett svip sinn á
skíðatíðina í vetur og væri þetta sá
allra harðasti vetur sem hann myndi
á 25 ára starfsferli sínum. Frá ára-
mótum hefur skíðasvæðið verið lok-
að í 33 daga vegna veðurs og sagði
ívar það með allra mesta móti. Við
þessa lokunardaga bættust reyndar
fleiri, dagar þar sem skilyrði væru
svo slæm að aðsókn væri engin þó
í sjálfu sér hefði verið hægt að halda
lyftum gangandi. Einn slíkur var í
gær, þegar þoka grúfði sig yfir
skíðasvæðið.
„Veðurfarið hefur verið einstak-
lega erfitt í vetur, vindhraðinn hefur
í nokkur skipti verið á bilinu 70-80
hnútar eða 13-14 vindstig. Mælirinn
hjá okkur mælir mest 99 hnúta og
það gerðist einu sinni í vetur,“ sagði
Ivar. Þá nefndi hann einnig sem
dæmi um óstillta veðráttu að eitt
sinn hefði vegurinn úr bænum í
Hlíðarfjall verið mokaður þrisvar á
sama sólarhring og þá hefði stund-
um margoft þurft að troða brekkur.
Minni tekjur
Af þessum sökum eru tekjur af
rekstrinum mun minni en vænst
var. Gert var ráð fyrir um 22 millj-
óna króna innkomu í fjarhagsáætl-
un, en Ijóst að sögn ívars að sú
upphæð næst ekki. Hann sagði að
þó yrði ekki ljóst fyrr en í lok maí
hver niðurstaðan yrði nákvæmlega
„en við vitum að þessi upphæð
næst engan veginn."
Góður endasprettur
Endaspretturinn, Andrésar and-
ar-leikarnir með um 870 þátttak-
endum, var þó einkar góður, en þá
var sól og blíða alla mótsdagana og
fjöldi fólks í fjallinu. „Þetta endaði
virkilega vel, það var feikileg aðsókn
og allir hér sólbrúnir og ánægðir,"
sagði forstöðumaðurinn og bætti við
að ef 20 sólríkir logndagar kæmu
á hveijum vetri væru Skíðastaðir
öflugt gróðafyrirtæki.
Ákveðið hefur verið að hafa
skíðasvæðið opið næstu tvær helgar
enda nægur snjór enn í fjallinu.
Verði aðsókn viðunandi sagðist ívar
gæla við að hafa einnig opið dagana
6. og 7. maí. Reynslan kenndi mönn-
um hins vegar að flestir pökkuðu
skiðunum inn í geymslu að loknum
Adrésarleikunum.
Harður
árekstur
HARÐUR árekstur varð á mót-
um Þingvallastrætis og
Byggðavegar um fimm leytið í
gær og valt önnur bifreiðin við
áreksturinn. Tveir voru fluttir
á slysadeild, en þeir eru taldir
lítið meiddir samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar.
Pollamót Þórs
og Bautabúrsins
HIÐ árlega Pollamót Þórs og Nýja
Bautabúrsins fyrir leikmenn 30
ára og eldri verður haldið á félags-
svæði Þórs við Hamar dagana 30.
júní til 1. júlí næstkomandi.
Vegna fjölda liða sem sækjast
eftir þátttöku eru forsvarsmenn
íþróttafélaga hvattir til að skrá lið
til þátttöku hjá framkvæmdastjóra
Þórs í Hamri sem fyrst og eigi
síðar en 15. maí næstkomandi.
Aðalfundur ÚA
Starfs-
mönnum
hefur
fjölgað
um sjötíu
STARFSMÖNNUM Út-
gerðarfélags Akureyringa hef-
ur fjölgað um 70 á undanförn-
um misserum, voru 400 en á
liðnu ári störfuðu 470 manns
hjá fyrirtækinu. Skiptingin er
nokkuð jöfn milli starfsfólks á
sjó og í landi. Launagreiðslur
ÚA á árinu námu um 1.159
milljónum króna.
Gunnar Ragnars fram-
kvæmdastjóri gerði að umtals-
efni á aðalfundi félagsins þá
miklu umræðu sem orðið hefði
um flutning fyrirtækja og
starfa til Akureyrar á liðnum
vetri í tengslum við afurða-
sölumál ÚA. Þar hefði umræð-
an snúist um 70-90 störf. Fólk
þyrfti líka að skoða þann at-
vinnurekstur sem fyrir væri í
bænum og hvað hann væri fær
um skapa af störfum.
Kvótakaup
fyrir 100
milljónir
GUNNAR Ragnars fram-
kvæmdastjóri ÚA sagði á aðal-
fundinum að það væru fleiri
en smábátarnir og Vestfírð-
ingarnir sem hefðu mátt þola
skerðingu á aflaheimildum á
síðustu árum. Skerðing afla-
heimilda veldur forsvarsmönn-
um ÚA mestum áhyggjum
hvað varðar rekstur félagsins
í framtíðinni. Aflaheimildir
hafa verið skertar um 9.000
tonn á síðustu sjö árum, voru
20.800 tonn árið 1988 en
11.800 tonn fyrir yfirstand-
andi fiskveiðiár.
Framkvæmdastjórinn sagði
að sá skattur sem félagið hefði
orðið að greiða til að ná nokk-
urn veginn fyrri stöðu með
kaupum á kvóta, ýmist varan-
legum eða innan ársins, næmi
um 100 milljónum króna. „Það
hefur kostað okkur um 100
milljónir að endurheimta fyrri
stöðu,“ sagði Gunnar.
50 milljónir
í tryggingar
ÚTGERÐARFÉLAG Akur-
eyringa greiðir um 50 milljón-
ir króna á ári í tryggingar af
ýmsu tagi.
í svari við fyrirspurn á aðal-
fundi ÚA í fyrradag um hvort
ekki væri eðlilegt að bjóða út
tryggingar félagsins, sagði
Gunnar Ragnars að um flókið
mál væri að ræða og erfiðara
viðureignar en t.d. útboð á
olíu sem gaf góða raun á liðnu
ári.
„Við höfum haft það á dag-
skrá að kanna þetta mál,“
sagði Gunnar. „Útboð eru
ágæt og eiga rétt á sér, en
liggja ekki ævinlega beint við.“
Hann sagði að til að mynda
væru skip félagsins tryggð
gegnum Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna og full-
yrti Gunnar að ekki væri um
há iðgjöld að ræða, náðst
hefðu hagstæðir samningar
vegna þess hversu margir aðil-
ar tryggðu saman.