Morgunblaðið - 26.04.1995, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
HÓPURINN sem var á námskeiði Slysavarnaskóla sjómanna.
Morgunblaðið/Silli
Fengu siglingaréttindi á 30 tonna bát
Húsavík - Nýlokið er á Húsavík námskeiði í
sjóvinnu sem skapar sjófarendum réttindi
til að sigla 30 tonna fari.
Kennari var Villyálmur Pálsson en hann
hefur sljórnað slíkum námskeiðum undanf-
arin 15 ár í samvinnu við Gagnfræðaskólann
og síðar Framhaldsskólann á Húsavík og
hefur þetta verið einn þáttur skólanna í því
að tengja nám við atvinnuvegina og telja
forráðamenn að þetta hafi borið góðan
árangur.
Námskeiðinu lauk um síðustu helgi með
kennslu starfsmanna Slysavarnaskóla sjó-
manna sem starfar á vegum Slysavamafé-
lagsins. Kenndu þeir m.a. hvemig best er
að slökkva eld, meðferð neyðarblysa og
björgunarbáta og var sú kennsla bæði munn-
leg og verkleg.
Alls Iuku 10 nemendur réttindaprófi en
auk þess vom á námskeiðinu nemendur úr
10. bekk Grunnskólans en þeir nutu fræðsl-
unnar en luku ekki prófi.
Þetta er mjög hagnýtt nám því margir sem
ekki stunda sjó að atvinnu em að leika sér
á hraðbátum og þá er gott að hafa fengið
þá fræðslu sem nýútskrifaðir nemendur hafa
fengið.
Uppbygging nýrrar byggðar í Súðavík hefst á sunnudag
Tæpar 10
milljónir í
snjómokstur
á Húsavík
Húsavík - Mikið var mokað af snjó
í vetur og ekki sjá menn eftir ann-
að en þægindi fyrir þá miklu pen-
inga sem Húsavíkurbær hefur kost-
að til snjómoksturs í vetur en það
eru 9,7 milljónir en á síðasta ári
kostaði snjómoksturinn 4,8 milljón-
ir. Fjáhagsáætlun bæjarins gerði
ráð fyrir 5,3 millj. kr. allt árið svo
mikið mun verða fram yfir áætlun.
Þeir sem muna árið 1951 mu'n '
eftir eins miklum snjóavetri. Þá
fennti býlið Knútsstaðir alveg í kaf
og mokað var meira en metra þykk-
um snjó af þaki hússins. Þá barst
viku gömul mjólk frosin í brúsunum
úr Reykjadal og Morgunblaðið
fengu menn hálfsmánaðar gamalt
og farartækin voru hestur og sleði.
En þá var ekki milljónum eytt í
snjómokstur og menn undu vel við
sitt eins og þeir gera í dag.
Þó vika sé af sumri hefur lítið
hlýnað og snjóél öðru hvoru.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Flutningamiðstöðin
tekur við umboði
* ____________
Islandsflugs í Eyjum
Vestmannaeyjum - Flutnínga-
miðstöð Vestmannaeyja hf. tók
nýverið við umboði íslandsflugs í
Eyjum. Samfara yfirtöku umboðs-
ins voru gerðar breytingar á af-
greiðslutíma skrifstofu íslands-
flugs á Vestmannaeyjaflugvelli og
verður þar framvegis opið allan
daginn.
Forsvarsmenn Flutningamið-
stöðvarinnar og íslandsflugs
kynntu þessa breytingu fyrir
skömmu. Hjá þeim kom fram að
ætlunin væri að bæta enn frekar
þjónustu við viðskiptavini íslands-
flugs. Flutningamiðstöðin sem
stofnuð var um síðustu áramót,
og er í eigu Samskipa og Vinnslu-
stöðvarinnar, færir með þessu
talsvert út starfsemi sína enda
sagði Þorsteinn Viktorsson, fram-
kvæmdastjóri, að starfssvið fyrir-
tækisins væri alhliða flutninga-
þjónusta og með því að taka við
umboði íslandsflugs í Eyjum víkk-
uðu þeir út starfsemi sína á þessu
sviði og gætu nú séð um vöruflutn-
inga bæði loftleiðis og sjóleiðis til
Eyja.
Aðspurðir um hvort ráðgert
væri með þessu samstarfi íslands-
flugs og Flutningamiðstöðvarinn-
ar að hefja flutning á ferskum fiski
með flugi beint frá Eyjum sögðu
forsvarsmenn fyrirtækjanna að
ráðagerðir væri ekki uppi um slíka
flutninga enn sem komið er en
sögðu þó að hugur væri opinn
fyrir öllum nýjum möguleikum á
sviði flutningaþjónustu.
Flutningamiðstöðin réð Bjarna
Sighvatsson sem umsjónarmann
með skrifstofu íslandsflugs á
Vestmannaeyjaflugvelli og mun
skrifstofan þar verða opin allan
daginn, alla daga vikunnar. Á
skrifstofunni verður þjónusta fyrir
farþegana auk þess sem þar verð-
ur afgreiðsla fyrir vöruflutninga
með Islandsflugi.
Forseti Islands
tekur fyrstu
skóflustunguna
Isafirði - Uppbygging nýrrar
byggðar í Súðavík hefst nk. sunnu-
dag kl. 14 með því að forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
tekur fyrstu skóflustunguna á hinu
nýja byggingarsvæði. Síðan mun
sr. Magnús Erlingsson sóknarprest-
ur flytja blessunarorð en ráðgert
er að hátt í þijú hundruð manns
verði viðstödd athöfnina. Að henni
lokinni mun Slýsavarnadeild Súða-
víkur bjóða til kaffisamsætis í
Grunnskólanum auk þess sem deild-
in mun efna til dansleiks í félags-
heimilinu um kvöldið.
„Forseti íslands mun taka fyrstu
skóflustunguna rétt utan við grunn-
skóla staðarins og verður hér um
táknræna athöfn að ræða. Á þeim
stað sem fyrsta skóflustungan verð-
ur tekin, verður ekki byggt hús
heldur er hér um að ræða fyrsta
vísirinn að gatnagerð í bænum. Við
ráðgerum að hefja framkvæmdir
mjög fljótlega en þær byggjast að
sjálfsögðu á því að nýtt hættumat
liggi fyrir um bæði svæðin. Verði
niðurstaðan sú að svæðið í „gömlu“
Súðavík verði yfirlýst sem hættu-
svæði og nýja byggingarlandið
hættulaust munum við fara þess á
leit við Ofanflóðasjóð að hann kaupi
upp þær eignir sem eru í „gömlu“
Súðavík. Á því byggist framhaldið.
Jón Gauti Jónsson, starfandi sveit-
arstjóri, hefur verið að funda með
ráðuneytisnefndinni og Ofanflóða-
sjóði og um leið og hann kemur
vestur, munu þessi mál væntanlega
skýrast," sagði Sigríður Hrönn El-
íasdóttir, hreppsnefndarmaður, sem
nú er í leyfi frá störfum sveitar-
stjóra.
Eins og að framan greinir hefur
fjölmörgum aðilum verið boðið að
vera viðstaddir athöfnina, auk for-
seta íslands, öllum ráðherrum nýrr-
ar ríkisstjórnar, þingmönnum, full-
trúum bæjarfélaga, sjóðsstjórn
Samúðar í verki og forsvarsmönn-
um hinna ýmsu stofnana á svæðinu
auk íbúa Súðavíkur.
100 krakkar
tóku þátt í
HIÐ árlega KH-mót í frjálsum
íþróttum, fyrir börn í 1.-7. bekk
grunnskóla, var haldið um helg-
ina á Blönduósi. Um 100 börn
tóku þátt í mótinu eitt fyrir hvert
ár Kaupfélagsins en það verður
100 ára á þessu ári. Allir krakk-
ar fengu sérmerkta boli frá
kaupfélaginu. Mörg barnanna
voru að keppa í fyrsta sinn á
móti og hljóta sín fyrstu verð-
- - laun.
ÞÁTTTAKENDUR í opnum degi björgunarsveita á Suðurnesjum. _________________________________________
Góð þátttaka á „opnum degi“
björgunarsveita á Suðurnesjum
Garði - Milli 40 og 50 manns fóru
vítt um Suðurnesin sl. laugardag í
boði svæðisstjórnar 2 sem gekkst
fyrir „Opnum degi“ björgunarsveita.
Tii skoðunarferðarinnar var boðið
fulltrúum Almannavarna ríkisins
sem og fulltrúum Almannavarna á
Suðumesjum, félögum í landsstjóm
og svæðisstjórnum, sveitarstjómar-
fulltrúum og fulltrúum lögreglu og
brunaliðs.
Menn tóku daginn snemma og var
mætt í rútu í Keflavík kl. 9.30. Fyrst
var haldið í Garðinn en síðan farið
allan hringinn, gegnum Sandgerði í
Voga, Grindavík og Hafnir og endað
hjá sveit Landsbjargar á Suðurnesj-
um.
Vel þótti til takast en markmið
dagsins var að auka tengsl þeirra,
sem tengjast björgunar- og almanna-
varnastarfí á Suðurnesjum og kynna
bæði félögum björgunarsveitanna
sem og forsvarsmönnum byggðar-
laganna þann tækjakost, húsakost,
mannafla og búnað, sem björgunar-
sveitimar hafa yfir að ráða.
KH-mótinu