Morgunblaðið - 26.04.1995, Qupperneq 20
20 MIBVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„Býr Islendingur
hér“ frumsýnt
í Berlín
Berlin. Morgunbiaðið.
Á MÁNUDAGSKVÖLD var frum-
sýnt í Berlín íslenska leikritið „Býr
íslendingur hér?“ Leikritið var sett
á svið í Maxim Gorky-leikhúsinu sem
er í gamla miðbæ Berlínar, og mættu
nokkur hundruð manns á frumsýn-
inguna. Þeirra á meðal voru gamlir
samfangar Leifs Mullers.
Leikritið er byggt á samnefndri
bók Garðars Sverrissonar sem fjallar
um Leif Muller, eina íslendinginn
sem lifði fangabúðir nasista af. En
hann var einmitt í Sachsenhausen-
fangabúðunum sem eru við Berlínar-
borg. Nú er þess minnst í Berlín að
50 ár eru iiðin síðan Sachsenhausen-
fangabúðimar voru frelsaðar af
Bandamönnum og var þessi sýning
á „Býr íslendingur hér?“ liður í því.
Áður en leikritið hófst fluttu Ingi-
mundur Sigfússon sendiherra og
doktor Gunther Morsch yfirmaður
Sachsenhausen-safnsins stuttar
ræður þar sem hörmunganna var
minnst, og undirstrikað mikilvægi
þess að hafa vakandi og gagnrýninn
huga til að ekkert í líkingu við þjóð-
emissósíalismann endurtaki sig. Því
eins og Leifur Muller sagði sjálfur:
„Ég er sannfærður um að pólitísk
þróun af þeirri gerð sem leiddi til
þjóðemissósíalisma, getur gerst í
hvaða lýðræðisríki sem er, líka á
íslandi.“ Fjöldi manna, bæði leikarar
og sviðsmenn, komu frá íslenska
leikhúsinu til að vinna við uppsetn-
inguna hér í Berlín. Leikritið var flutt
á þýsku og var Pétur Einarsson sem
fór með aðahlutverkið margklappað-
ur upp. Hann sagði að eftir á að
hyggja hefði það verið ansi djarft
hjá honum að taka hlutverkið að
sér. Hann hefði enga þýsku lært
áður utan það sem hann lærði í
menntaskóla á sjötta áratugnum.
„Þetta er búið að vera mikil vinna
og eftir undanfamar vikur skil ég
orðin „Arbeit macht frei“ á annan
hátt,“ sagði Pétur Einarsson.
Leikritið verður sýnt aftur á mið-
vikudaginn og fimmtudaginn en eft-
ir það snýr hópurinn aftur til íslands.
PÉTUR Einarsson var margklappaður upp.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
GUÐGEIR Matthíasson listmálari við nokkur verka sinna.
Utileikhús á
Egilsstöðum
Guðgeir sýndi
í Akóges
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
í SUMAR sýnir Útileikhúsið „Hér
fyrir austan" aftur í Selskógi við
Egilsstaði. Ákveðið hefur verið að
lækka verðið á aðalsýningar og til
bama, og nú er orðinn til sérstak-
ur afsláttur fyrir eldri borgara og
fatlaða.
Dagskrá 1995 hefur kostað mik-
inn undirbúning, vonast menn til
að hún eigi eftir að gera margan
ánægðan. Sýningamar sem úti-
leikhúsið byijar með 1993 heita
nú aðalsýningar og em enn á mið-
vikudagskvöldum, en margs konar
aðrar uppákomur hafa bæst við
og bjóðast a.m.k. öll föstudags-
og sunnudagskvöld.
Vegna aðalsýninganna hefur sú
stefna haldist að leita hvern vetur
til Austfirðinga um að semja nýtt
leikefni fyrir næsta sumar og höf-
undamir fara fljótlega ad ljúka
verkum sínum.
Að auki er útileikhúsið að standa
ásamt undirbúningshópi fyrir ráð-
stefnu 29. apríl um íslenskar vörð-
ur og um hefðbundnar fjallleiðir á
Austurlandi.
GUÐGEIR Matthíasson listmálari
var með málverkasýningu í Akóg-
eshúsinu í Vestmannaeyjum um
páskahelgina. Á sýningunni voru
45 verk, öll unnin í olíu og hlaut
Guðgeir góðar viðtökur hjá þeim
tæplega 500 gestum sem sóttu
sýningu hans.
Sýning Guðgeirs var hans
níunda einkasýning en auk þess
hefur hann tekið þátt í þremur
samsýningum. Guðgeir sýndi tals-
vert nýja hlið á sér á þessari sýn-
ingu og braut upp það form sem
hann hefur haldið sig við til þessa.
Verkin á sýningunni voru unnin á
striga, glerdiska og postulínsflísar
og vora öll olíuverk.
Guðgeir sýndi síðast fyrir tæp-
um tveimur áram en myndimar á
sýningunni nú vora allar unnar á
síðasta einu og hálfu ári og ramm-
aði Guðgeir sjálfur myndimar inn
og gekk á allan hátt frá þeim fyr-
ir sýninguna.
Guðgeir sagði að myndimar á
sýningunni hafí bæði verið róttæk-
ar og svo hafí verið þar mildar
landslagsmyndir, nokkurskonar
smásögur, eins og hann kallaði það
sjálfur. Um helmingur verkanna
vora landslagsmyndir en helming-
urinn fantasíur og er mikill hluti
myndefnisins sóttur í heimabyggð
Guðgeirs í Eyjum.
Guðgeir Matthíasson er með
öllu sjálfmenntaður í myndlistinni.
Hann segist hafa byijað að fikta
við listmálun árið 1978 fyrir ein-
kennilega tilviljun. „Ég var að
vinna við að mála íbúðarhús, en
var ekki með réttindi sem málari.
Ég var kærður fyrir að vinna við
iðngrein sem ég hafði ekki réttindi
til að vinna við og varð því að
hætta að mála húsið. Þá kom það
einhvem veginn yfír mig að mig
langaði að prófa að leika mér með
liti til að geta haldið áfram að
mála og upp frá því hef ég verið
að þróa mig áfram við málaralist-
ina,“ sagði Guðgeir. Hann sagði
að sem unglingur hafi hann alltaf
verið laginn við að teikna; „Ég
fékk alltaf tíu í teikningu í skólan-
um, svo þetta hefur líklega blundað
undir niðri í mér,“ sagði Guðgeir.
Sýning Guðgeirs í Akógeshúsinu
í Eyjum var skemmtilega upp sett
og ný myndform hans koma sann-
arlega á óvart en Guðgeir segist
sífellt vera að læra og þróast sem
listamaður. Han segist mjög
ánægður með þær viðtökur sem
hann fékk og segir að. vel hafí
selst á sýningunni.
Exultate, jubilate
TONOST
Kristski rkja
KIRKJUTÓNLIST
EFTIR MOZART
Flytjendur: Kór Hafnarfjarðar-
kirkju Kammersveit: konsertmeist-
ari Hildigunnur Halldórsdóttir.
Einsöngvarar: Margrét Bóasdóttir,
Ingunn Ósk Sturludóttir, Guðlaug-
ur Viktorsson og Valdimar Másson.
Orgelleikari: Marteinn H. Friðriks-
son. Stjórnandi Helgi Bragason.
Miðvikudagur 24. apríl 1995.
HELGI Bragason orgelleikari
við Hafnarfjarðarkirkju hefur
byggt upp vel syngjandi kór og
stóð fyrir tónleikum í Kristkirkju
sl. mánudag, þar sem flutt voru
eingöngu kirkjuverk eftir Mozart.
Til samstarfs fékk hann Kammer-
sveit, einsöngvara og einleikara á
orgel og verkefnin vora; Regina
coeli (K.108), eins konar „concert-
ante“ kórverk, Kirkjusónata
(K.336), fyrir orgel og strengja-
sveit, Exutate, jubilate, mótettan
fræga og Krýningarmessan
(K.317), fyrir Qóra einsöngvara,
kór og hljómsveit.
Fyrsta verkið Regina coeli,
Drottning himna, er glaðlegt og
var það í heild nokkuð vel flutt,
sérstaklega af hljómsveitinni og
sömuleiðis af kórnum, sem þó geld-
ur þess hve karlaraddimar era
fáliðaðar. Margrét Bóasdóttir flutti
einsöngsþáttinn af öryggi og sér-
staklega vel aríuna.
Kirkjusónatan er einþáttungur
fyrir orgeleinleik og strengjasveit.
Marteinn lék þessa „orgelsónötu"
mjög vel en hefði þurft hljómmeira
hljóðfæri, auk þess sem stjómandi
og einleikari vora ekki sammála
um hraðann, er olli ónákvæmni í
samspili í upphafi verksins.
Exultate, jubilate, er eitt af
frægustu söngverkum Mozarts og
var það liðlega flutt af Margréti
Bóasdóttur, einkum „Alleluja"
þátturinn, sem er eins konar „ein-
leikskonsert“ fyrir söngrödd, þar
sem mikið reynir á raddleikni
söngvarans. Hægi þátturinn var
og mjög vel sunginn og í heild var
flutningur verksins góður, bæði af
hálfu söngvara og hljómsveitar,
undir stjórn Helga Bragasonar.
Síðasta verkið á eftiisskránni,
Krýningarmessan, er samanrekið
tónverk en samkvæmt fyrirskipun-
um mátti Mozart ekki leika sér að
vild og þurfti t.d. að hafa Gloria
og Credo þættina báða í samfelldu
formi en ekki skipta þeim upp í
sjálfstæða þætti, eins og hafði
lengi verið tíðkað og m.a. í messum
barokktónskáldanna. Þrátt fyrir
að hafa nokkuð bundnar hendur,
tókst Mozart að leika sér með tón-
málið af snilld. í heild var flutning-
ur verksins góður, sérstaklega hjá
kórnum í Gloria og Credo, þrátt
fyrir smá misfellur um miðbik
Credo þáttarins. Einsöngvararnir
sungu af þokka, sérstaklega í
Benedictus og Agnus Dei þáttun-
um en þar mæddi mest á Margréti.
Með þessum tónleikum hefur
Helgi Bragason náð því að skapa
sér nafn sem dugandi stjómandi,
komið sér upp góðum kór og gerir
sig líklegan til að geta tekist á við
flutning stærri tónverka í framtíð-
inni.
Jón Ásgeirsson
Nýtt
tímarit
VORBLAÐ Tímaritsins Hús-
freyjunnar er komið út. Meðal
efnis er viðtal við leikkonuna
Guðrúnu Ásmundsdóttur,
„Ástin hefur engan kvóta“
og einnig er viðtal við unga
athafnakonu, Aðalheiði Héð-
insdóttur, en hún rekur kaffí-
brennslu í Njarðvík. Þá fjallar
dr. Eiríkur Orn Amarson um
svefnleysi og- svefntraflanir
og bendir á úrræði án lyfja.
Tímaritið Húsfreyjan er að
vanda með matreiðsluþátt í
umsjá Kristjönu Steingríms-
dóttur. Handavinna er að
þessu sinni fengin úr smiðju
frú Láru. Blaðinu er ætlað
að verða fyrir alla fjölskyld-
una.
Ritstjóri Húsfreyjunnar er
Hrafnhildur Valgarðsdóttir.
Sýning í
Listmuna-
húsi Ófeigs
ÞESSA dagana stendur yfír
kynning í listmunahúsi Ófeigs
að Skólavörðustíg 5 á verkum
Helgu Magnúsdóttur og Sig-
urðar Þóris.
Á sýningunni era málverk,
pastel * og vatnslitamyndir
ásamt pennateikningum.
Efnistök listamanna eru ólík,
en það sem tengir þau saman
er að landið og náttúran kem-
ur fyrir í verkum þeirra. Sig-
urður fjallar um manninn og
hans nánasta umhverfi, en
Helga túlkar landið og veðra-
skil þess. Kynningunni lýkur
15. maí.
Jón Jóns-
son sýnir í
Eden
NÚ STENDUR yfír sýning á
málverkum eftir Jón Jónsson,
en hann hef-
ur verið
meðlimur í
Myndlista-
klúbbi
Hvassaleitis
í 15-20 ár.
hann hefur
haldið sýn-
ingar með
klúbbum og
einnig hald-
ið nokkrar einkasýningar.
Sýningin stendur til 7. maí.
Nýjar plötur
• SKÍFAN hf. hefur gefíð
út nýju geislaplötuna Núna
með átta lögum sem Björgvin
Halldórsson hefur sungið í
Söngvakeppnum Sjónvarps-
ins frá upphafi, en alls hefur
Björgvin sungið ellefu lög í
keppnunum. Auk þessara átta
laga er á nýju plötunni titil-
lagið Núna sem er framlag
íslands í Eurovision-keppn-
inni sem framundan er í Dubl-
in 13. maí nk. Núna heitir í
enskri útgáfu If it’s Gonna
End in Heartache.
Lögin á plötunni eru; Núna,
Ef, Sóley, Mig dreymir, Ég
lifi í draumi, Mín þrá, Lífs-
dansinn, Ég leyni minni ást,
í tangó If it’s Gonna End in
Heartache.