Morgunblaðið - 26.04.1995, Page 23

Morgunblaðið - 26.04.1995, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 23 AÐSENDAR GREINAR Flugmálastj órn á villigötum FYRRI GREIN Inngangur Morgunblaðið fjallaði 12. apríl sl. um mál flugmanna með banda- rísk atvinnuflugmannsréttindi, sem erfiðlega hefur gengið að fá viðurkennd hér á landi, nema með því að gangast undir stöðupróf flugmálastjórnar. Þegar ég leitaði til Flugmála- stjórnar um viðurkenningu á rétt- indum sem ég hafði aflað mér í Bandaríkjunum rakst ég á hvern vegginn á fætur öðrum. Ekki nóg með það, við eftirgrennslan varð- andi aðra Bandaríkjamenntaða flugmenn, kom í ljós að þeir höfðu flestir sömu sögu að segja. Banda- rísk réttindi voru vart viðurkennd. Flugnám í Bandaríkjunum er mun ódýrara en hér á landi, kennslutæki og umhverfi til þjálfunar eru kjörin og veðurfars- lega hagkvæmara - hægt er að fljúga svo til allt árið um kring, a.m.k. í suður- og suðvesturríkjum landsins. Þangað hafa flugmenn einnig leitað til að víkka sjóndeild- arhringinn og kynnast nýjum að- stæðum. Vegna starfa minna við flug- kennslu í Bandaríkjunum hafði ég allvíðtækt samband og samstarf við flugmálayfírvöld (FAA) þar í landi. Beri ég saman þá reynslu mína og samskipti við Fiugmála- stjórn er það eins og dagur og nótt. Ákvað ég því að kynna mér starfsemi Flugmálastjórnar lítil- lega og er það tilefni greinar þess- arar. Réttindaöflun Þrátt fyrir þá kunnáttu og reynslu sem ég hafði aflað mér 'vestanhafs, varð ég að endurtaka öll próf hjá Flugmálastjórn, þegar ég sótti um viðurkenningu hér á landi á skírteini því sem ég var handhafi að og veitti mér heimild til atvinnuflugs í Bandaríkjunum. Þetta var bæði tímafrekt og kostn- aðarsamt - og að mínu mati Sigurður E. Sigurðsson óþarft. Auðvitað þarf að gang úr skugga um að atvinnuflugmenn ráði yfír sérþekkingu til flugs við íslenskar aðstæður - og próf Flugmálastjórnar eiga að takmarkast við það. í Noregi eru reglur í þessum efnum allt aðrar en hér á landi. Erlend atvinnuflug- mannsréttindi eru tekin gild í allt að einu ári - eftir þann tíma þarf að taka þarlent stöðupróf. Hér á landi eru erlend réttindi ekki tekin gild eins og að framan segir. Krafan um morse kunnáttu Krafist er kunnáttu í morse hér- lendis - en sem ekki er krafist t.d. í Bandaríkjunum og Kanada. í reglugerð um stöðupróf er hvergi minnst á morse kunnáttu - haft er eftir flugmálastjóra að náms- skrá Flugskólans útfæri slíkar reglur. Hvergi er þó minnst á Flug- skólann né námsskrá í téðri reglu- gerð svo þessi krafa hlýtur að byggja á vafasömum grundvelli. Flugmálastjórn vísar í að á Norðurlöndunum sé morse kunn- áttu krafist. Jafnvel þótt hin Norðurlöndin geri kröfu um morse kunnáttu, er þá nauðsynlega rétt að við öpum slíkt eftir? Staðreynd- in er sú að morse krafan í t.d. Svíþjóð er allt annars eðlis en hér, þar er áhersla lögð á að geta bor- ið kennsl á þrjá til fjóra bókstafi í einu við hlustun, en ekki að ná hraða upp á 35 bókstafi á mínútu eins og krafist er hér. í Danmörku er krafan um morse mjög sveigjanleg og er henni beitt mismunandi eftir því hvaða skóli á í hlut, en í Danmörku eru starf- andi nokkrir skólar fyrir atvinnu- flugmannsnám. Hef ég þetta eftir flugmanni er nam þar fyrir u.þ.b. 2 árum - honum var ekki gert að læra morse. ísland er aðili að AJþjóða flugmála- stofnuninni (ICAO), sem sendir frá sér mik- ið magn bæklinga og upplýsinga til aðildar- ríkjanna sem eru um 170. í bæklingi um flugnám frá 1975 er vikið að morse kunn- áttu sem einni grein slíks náms. Reglur eða ábendingar ICAO eru ekki á neinn hátt bind- andi gagnvart aðildar- ríkjunum eins og dæmin um Bandaríkin og Kanada sanna. Það sem hugsanlega á við í svörtustu Afríku varðandi morse kunnáttu á ekki nauðsynlega við hér í hinum þróaða vestræna heimi með þeirri fullkomnu fjarskiptatækni sem til staðar er. Skv. frásögn í Mbl. 12 apríl sl. voru reglur Flugmálstjórnar varð- andi nauðsyn á morse prófi hertar í ársbyijun 1993. Fram til þess tíma var slíkrar kunnáttu ekki krafist af þeim sem stundað höfðu flugnám erlendis. Morse hafði að vísu verið kennt í Fjölbrautaskóla Suðurlands, en aðeins lítill hluti nústarfandi flugmanna hér á landi gekk í þann skóla. Með öðrum orðum 18 árum eft- ur útkomu ICAO bæklingsins um morse kunnáttu, sem eingöngu er ábending, tekur Flugmálsstjórn sig til og krefst morse kunnáttu hjá öllum nýjum skírteinishöfum til atvinnuflugs. Þetta er lítt skiljan- legt, engin tæki eru til morse sam- skipta í einni einustu flugvél skráðri á íslandi í dag. Ef þessi íslenska krafa um morse kunnáttu er svona mikilvæg fyrir atvinnuflugmenn hvernig stendur á því að flugmenn t.d. Flugleiða, Atlanta, íslandsflugs og Cargolux eru ekki látnir sanna hæfni sína í þeirri grein eins og þeir þurfa að gera í fluginu sjálfu? Mér er kunnugt um að stór hluti þessara flugmanna ræður ekki yfir þeirri morse hæfni sem íslensk flugmálayfirvöld krefjast. Sé krafa Flugmálastjórnar raun- veruleg og mark á henni takandi er það hættulaust að mati starfs- manna Flugmálastjórnar að meiri- hluti flugmanna hér á landi kunni ekki þetta kerfi? Mér var tjáð það nú nývérið af flugmanni með yfír 30 ára starfsreynslu í flugi, að það hafi aldrei háð honum í starfi að geta ekki gert skil á 35 bókstöfum á mínútu í morsi! Samræmdar kröfur ESB og EES landa sem taka eiga gildi 1998 gera engar kröfur um morse, enda skiljanlegt miðað við þá full- komnun í fjarskiptatækni sem nú Bandarísk flugréttindi eru vart viðurkennd hér, segir Sigxirður E. Sigfurðsson, sem hér fjallar um starfsemi Flugmálastjórnar. er staðreynd. Að þessari kröfu um morse kunnáttu af hálfu Flugmála- stjórnar er haldið til streitu sýnir hve langt frá raunveruleikanum starfsmenn stofnunarinnar eru, því á sama tíma tilkynnir Bandaríska strandgæslan með fréttatilkynn- ingu 7. apríl sl. að morse skuli aflagt fyrir fullt og allt vegna full- komnunar fjarskiptabúnaðar. Vinnureglur Flugmálastj ór nar Vandamál Flugmálastjórnar er m.a. það að ýmsar reglur eru á reiki um það hvernig afgreiða skuli mál, sem upp koma - og þá háðar breytingum sem skyndilega eru gerðar - stundum fyrirvaralaust. Hér fylgja dæmi. Varðandi svokallað ATP (Air Transport Pilot) námskeið sem nú stendur yfir hafði Flugmálastjórn auglýst að a.m.k. 1.000 fartíma reynslu (flognar klukkustundir) þyrfti til að fá að sitja námskeiðið og kostnaðurinn væri kr. 150.000 á mann. Heilsurækt í dag n Börn og unglingar, hreyfing og heilsa Ekki er ég nú gömul en hef samt áður séð miklar breytingar síðast- liðin 20 ár eins og allir þeir sem eitthvað eru komnir yfir tvítugt. Hver man ekki eftir því að hafa verið „úti að leika sér“ daginn út og daginn inn? Maður hékk a.m.k. ekki yfir teiknimynda- og sjón- varpsglápi á sínum uppvaxtarárum og ekki var tölvan og þeir leikir sem henni fylgja í dag algeng nema síð- ur væri. Hún er auðvitað orðin jafn mikilvæg og penni og blað hefur verið frá því menn byijuðu að skrifa (teikna) en öflugur hugur í óstarf- hæfum eða óheilbrigðum líkama fer sjaldan vel saman. Líkami okkar er hulstrið sem geymir hugann og það eina sem okkur gefst í þessu lífi. Ung að árum erum við samt markvisst að eyðileggja það með fyrst og fremst hreyfingarleysi og óhollu mataræði og síðar jafnvel reykingum og áfengisdrykkju. í mínu starfi er algengt að sjá unglinga og jafnvel börn í miklu verra ásigkomulagi en fólk á miðjum aldri. Þó svo að full- orðna fólkið hefði ekki stundað neina sérstaka líkamsþjálfun á sín- um yngri árum, þá var það kannski duglegt við að dansa og/eða hreyfa sig og er það nóg til þess að áhugi á hreyfíngu sé til staðar og hæfi- leiki til þess að hreyfa sig. Unglingur sem hefur alla tíð hreyft sig lítið og komist t.d. upp með það í leikfimi í skólanum (fékk 3 í leikfimi og hvað með það?), hefur í fyrsta lagi engan áhuga á hreyfingu, öðru lagi mjög lélega samhæf- ingu hreyfinga (ruglast ef hönd þarf að gera eitt en fótur annað) og í þriðja lagi hefur hann litla með- vitund um eigin lík- ama. Líkaminn er bara þarna en er vart not- hæfur til annars en að sitja, standa, liggja eða ganga! Þessi unglingur á eftir að vera í þessum líkama í von- andi 70-80 ár til viðbótar, en í þessu ásigkomulagi um 14 ára ald- ur ásamt lélegu mataræði, kannski óhóflegri kaffidrykkju síðar meir, einhveijum reykingum og jafnvel áfengisneyslu, er óhætt að spá hon- um frekar stuttu og óþægilegu lífi nema kraftaverk séu enn að gerast! Áskorun til menntamála- og heilbrigðisráðuneyta! Eftir að hafa haft marga ung- linga með offituvandamál bæði á námskeiðum og í þolfimitímum, og farið yfir mataræði þeirra, stendur uppúr hve ábótavant fæði í skólum landsins er. Þá er ég að tala um þegar krakkar hafa ekkert nesti meðferðis en þurfa að kaupa sér fæðu í skólanum. Erfitt virðist fyrir krakkana að fá léttar mjólkuraf- Urðir s.s. léttjógúrt, skyr (án ijóma), und- anrennu eða fjörmjólk og magurt álegg ofan á brauð, að ég tali nú ekki um grænmeti sem t.d. val um brauðálegg. Yfirleitt er bara um að velja mjög fituríka fæðu s.s majonessalöt, kökur og annað bakkelsi o.fl. Það er í lagi fyrir suma, í hófi þó, en þeim fækkar óðum samt sem áður því hreyfingarleysi barna og ungl- inga fer stöðugt vaxandi. Það verð- ur að bjóða uppá val! Að hægt sé að velja fitusnautt og auðvitað hollt fæði. Meira þarf að vera um að seldir séu ávextir og grænmeti t.d. ofan á gróft brauð og í salatbökkum sem og magrar mjólkui-vörur og annað álegg (magurt) eins og fyrr sagði. Mjólkursamsalan kom loks með þá nýjung að vera með léttmjólk í 'A lítra umbúðum en bæta mætti um betur og selja undanrennu eða helst fjörmjólk í slíkum umbúðum. Glódís Gunnarsdóttir Og hvernig væri nú að koma með léttkókómjólk? Hreinir ávaxtasafar standa svo auðvitað alltaf fyrir sínu. Þegar kemur að því að gagnrýna mataræði sem í boði er í skólum, mætti auðvitað segja hið sama um marga þá vinnustaði sem bjóða uppá/selja mat handa starfsfólki sínu. Matvælaframleiðendum er auðvitað ekki um að kenna, úrvalið er að verða nokkuð gott, en þeir sem sjá um að kaupa inn og mat- reiða ofan í starfsfólk og skólabörn ættu að líta sér nær. Með óhollu mataræði og hreyfingarleysi veg- um við að heilbrigði okkar, segir Glódís Gunnarsdóttir, og sama máli gegnir um reykingar og áfengisneyslu. Heilbrigðis- og menntamálaráðu- neyti eiga einnig að beita sér langt- um meira að meiri og betri fræðslu í skólum um mikilvægi hreyfingar (að öðru leyti en því að krakkarnir hljóti lægri einkunn fyrir að skrópa í eina leikfimitímanum í viku sem boðið er uppá og er svo kannski hundleiðinlegur!) og mikilvægi þess að neyta hollrar fæðu. Það þarf einnig að vera ráðgjafi í hveijum Þegar í ljós kom að hluti af flug- mönnum þeim sem nýlega voru ráðnir til Flugleiða og sem undir- gangast þurftu þetta próf, höfðu ekki þennan tilskilda fjölda far- tíma, var reglunum breytt og krafan um 1.000 fartíma algjör-' lega aflögð. Á sama tíma var kostnaðurinn við námskeiðið lækk- aður í kr. 75.000 á mann. í Banda- ríkjunum eru skýrar og afdráttar- lausar reglur um slíkt. Flugmanni er ekki heimilt að undirgangast þetta próf fyrr en 1.500 fartímum er náð. Þessu til viðbótar var síðan ákveðnum nýráðnum flugmönnum Flugleiða, sem samkvæmt reglum Flugmálastjórnar er skylt að hafa bóklegt ATP próf áður en starf hefst, heimilað með undanþágu að heQa þjálfun og síðar störf á F-50 flugvélum félagsins, án þess að þessi krafa væri uppfyllt. Þessi regla Flugmálastjórnar kom reyndar eins og þruma úr heiðskíru lofti gagnvart Flugleið- um, og var jafnvel flugrekstrar- stjóra þeirra ekki kunnugt um þessa kröfu fyrr en eftir ráðningar flugmannanna til félagsins eins og kom fram í grein Morgunpóstsins ekki alls fyrir löngu. Nú er í sjálfu sér ekkert athuga- vert við að undanþágur séu gerðar á reglum og það getur hafa verið fullkomlega réttlætanlegt að veita þessar undanþágur. Þáð sem er athugavert er að gagnvart einstak- lingum koma undanþágur ekki til greina - aðilum er mismunað. Beiðni okkar félaganna um undan- þágu frá - eða frestun á morse prófinu var synjað. Annað skýrt dæmi um formfest- una gagnvart einstaklingum og skort á sveigjanleika er sú stað- reynd að til stöðuprófs aðila sem numið hafa t.d. í Bandaríkjunum, er gerð krafa um að taka ensku- próf. Engin undantekning frá þessu er heimil - þótt ég sé lang- skólagenginn í Bandaríkjunum þurfti ég að taka hér enskupróf. Svo var líka um aðra félaga mína. í síðari grein minni verður fjall- að um Flugskóla íslands og rekst- ur Flugmálastjórnar á eigin flug- vél. Höfundur er með BS prófí flugtæknifræði (Flight Technology) og hefur stundað flugkennslu í Bandaríkjunum. skóla eða a.m.k. fyrir skólakerfið sem tekur upp á sína arma þau börn og unglinga sem á því þurfa að halda, og leiðbeinir þeim til betri lífsstíls. Þegar þessir ófáu ungling- ar leita loks til heilsuræktarstöðva með sína vanliðan (andlega sem lík- amlega) er oft orðið mjög erfítt að hjálpa þeim og þeir fá auðvitað misskilningsríkar móttökur og hjálp. Það eru ekki einu sinni allar stöðvar sem taka á móti unglingum innan við 16 ára og við skulum ekki gleyma þeim sem geta ekki hugsað sér að vera innan um „alla kroppana" og hvert eiga þau að leita? Það hlýtur að vera ósk okkar allra að börn og unglingar eigi völ á sem bestri líkamlegri og andlegri líðan, því skora ég hér með á heil- brigðis- og menntamálaráðúneyti að taka höndum saman og gera það sem í þeirra valdi stendur til þess að stuðla að heilsusamlegu lífi barna okkar og unglinga. Með þessari grein minni er ég ekki að gagnrýna eina heisu- ræktarstöð frekar en aðra (sjá fyrri hluta greinarinnar) né einn ein- stakan þolfimileiðbeinanda eða þjálfara frekar en sjálfa mig. Ég vil bara minna okkur á okkar starf, að sumir gleymi sér ekki í hita samkeppninnar og fari að láta hana snúast um einskisverða þrætu þeg- ■ar okkar starf ætti fyrst og fremst að snúast um samstöðu, samstöðu um það að betur má ef duga skal í því að koma landanum til betri heilsu og líðanar! Höfundur er einkaþjálfari og þolfimileiðbeinandi (ACE).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.