Morgunblaðið - 26.04.1995, Síða 31

Morgunblaðið - 26.04.1995, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 31 gengur. Hjartansmál Hallgríms var að efla almennan tónlistaráhuga með þjóðinni, og hann Iagði sig all- an fram um að kanna þjóðlög, skrifa fræðirit, semja músikverk, kenna og stjórna söng. Hallgrímur var hálærður maður og stórhuga fyrir hönd sinna fræða. Hann hafði stundað nám við kunna háskóla í Sviss og Þýskalandi og var allar götur síðan vel metinn meðal þýsku- mælandi þjóða, flutti þar iðulega fyrirlestra um margra áratuga skeið og hlaut ýmiss konar viður- kenningu fyrir. Hins vegar fékk Hallgrímur aldrei starf við sitt hæfí hér heima, en hann hafði einkum hug á að fá embætti við Háskóla íslands til þess að geta gefíð sig allan að tónlistarmenntun þjóðar- innar. Hallgrímur taldi sig settan utangarðs af þeim sem réðu tónlist- armálum hér heima og þetta sveið honum sárt. Þetta er rakið hér, því að Valgerður, sem alltaf var heil í hverju máli, tók upp þykkjuna fyrir mann sinn, því að hún trúði stað- fastlega á hugsjónir hans og hæfni og studdi hann eftir bestu getu. Langæ beiskja er ekki vinsamleg sálarheillinni. Þetta dró m.a. þann dilk á eftir sér, að Hallgrímur hvarf af landi brott og gerðist prófessor í músikfræðum við háskólann í Saskatchewan í Kanada í átta ár, en Valgerður gegndi starfí sínu hér heima á meðan. Valgerður og Hallgrímur reistu veglegt hús úr timbri í Árbæjar- landi í Ölfushreppi, sem bar þeim fagurt vitni um smekkvísi og reisn. Mun einkum Valgerður hafa staðið fyrir byggingu þess. Nefndu þau hús sitt Vog. Þetta er ákjósanlegur staður fyrir þá, sem vilja reyna að skilja sjálfan sig og heimsmynd sína. Öðrum megin leið tímalaus Ölfusá fram til sjávar, hinum megin reis sögulegt Ingólfsfjall. Þar unir maður sér í tímaleysi veruleikans. Settust þau að í sveitinni, vinguð- ust við gott fólk og áttu oft að fagna góðum gestum, erlendum og inn- lendum. Þarna undu þau hag sínum vel, en höfðu orð á því, að samgöng- ur væru erfíðar á vetrum og stund- um snjóþungt. Hallgrímur sinnti hugðarefnum sínum og fékkst við ritstörf, en Valgerður gerðist öflug- ur liðsmaður í félagsmálum Ölfus- hrepps og Selfoss og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Kom enn í ljós hversu félagslynd hún var, framfarasinnuð og atorkusöm og átti auðvelt með að umgangast fólk. Hún þurfti jafnan að láta til sín taka, þegar hún sá að ýmislegt stæði til bóta. Búseta þeirra hjóna var fengur fyrir menningarlífíð í sveitum Ámessýslu. Svo fór, að þau hjónin seldu Vog fyrir nokkrum ámm og settust að í Laufási, þar sem þau bjuggu til æviloka. Ekki er víst, að þetta hafi verið þeim til heilla. Að þeim settist ellin og einmanakenndin. Þeim varð ekki bama auðið. Valgerður unni mjög Tryggva ívarssyni, syni Þor- bjargar, systur sinnar og bar móðurást í brjósti til hans. Hann dó langt um aldur fram, aðeins þrítugur að aldri. Undir lokin var svo komið, að hin félagslynda og þrekmikla kona kaus einvera á efri hæðinni í Laufási. Ellin leitaði huggunar til æskunnar. Þess var þá skammt að bíða, að heljarbönd reyrðust að síðum Valgerðar. Það var kært með okkur Val- gerði. Ekki vil ég láta liggja í lág- inni að leiðarlokum, að fáir studdu mig af meiri heilindum en hún, þegar ég endur fyrir löngu stóð í stjórnmálavafstri og átti aðild að Samtökum frjálslyndra og vinstri manna, sem lögðu kapp á að berj- ast gegn samtryggingu gömlu fjór- flokkanna í fjármálum og atvinnu- lífi. Margt af því sem Samtökin börðust fyrir þá er nú orðinn sjálf- sagður hlutur. Samtökin voru vinstrisinnaður umbótaflokkur og höfðuðu því til Valgerðar. Hún studdi Samtökin allt til enda og sýndi þannig, hvað hún var heil- steypt. Það er svo auðvelt að hlaup- ast undan merkjum þegar á bratt- ann sækir. Hún hafði sjálf hið per- sónulega hugrekki, sem hún dáði svo mjög í fari manna. Þegar ég MINNINGAR var að stíga í vænginn við Önnu Guðrúnu, yngstu systur Valgerðar, var ég auralítill háskólanemi og gekk í næfurþunnum hvítum ryk- frakka í vetrarkuldanum. Valgerði rann trúlega til rifja að sjá þennan pilt, sem var fölleitari en frakkinn og kinnfískasoginn og virtist varla hluti af sjálfum sér. Einn kaldan aprílmánuð bar svo við, er ég kom í Laufás, að Valgerður dró allt í einu fram íslenska gæraúlpu, sem hún vildi gefa mér og sagði: „Það er hlýrra að ganga í úlpu.“ Þegar ég gekk seinna um kvöldið gamla Laufástúnið, rásaði lóan við Ijöm- ina. Mér var hlýtt í úlpunni og ég fann að ég var hluti af sjálfum mér. Skyndilega hóf lóan sig til flugs og hvarf út í buskann. Bjarni Guðnason. Nú þegar Valgerður mágkona mín er fallin frá þótti mér rétt að minnast henoar með fáum línum. Þau Hallgrímur bróðir minn og hún festu ráð sitt árið 1960 og bjuggu því saman í nær 34 ár, þar til Hall- grímur féll frá í september sl. Valgerður var merkiskona fyrir margra hluta sakir. Hún var forkur dugleg, vel skipulögð og kunni að ganga þannig til verka að árangur varð af. Langt og farsælt starf hennar hjá Ríkisútvarpinu og síðar hjá Þjóðleikhúsinu í ábyrgðarstöð- um bára vott um það. Valgerður átti sér mörg áhugamál, sem hún sinnti af áhuga og árvekni, enda hlóðst á hana fjöldi ábyrgðarstarfa þeim skyld - hún var eftirsótt vegna mannkosta sinna og forystu- hæfíleika. Margar góðar minningar era um heimsóknir til þeirra Valgerðar og Hallgríms þegar þau bjuggu í stórglæsilegu húsi sem þau reistu sér á bökkum Ölfusár í nágrenni Selfoss. Þar var vítt til lofts og hátt til veggja í tvöföldum skiln- ingi. Húsið bar vott um fágað list- rænt mat þeirra hjóna - og ef út var horft blasti við mikið og fagurt útsýni í allar áttir. Og ekki skorti gestrisni og myndarskap húsfreyj- unnar - þar voru ávallt hrúguð föt á borðum. En andleg fæða var einn- ig fyrir hendi - eftirminnilegar umræður um hverskonar málefni fóra fram, að ógleymdri tónlist húsbóndans. Það var mikil farsæld Hallgríms bróður míns að kynnast og festa ráð sitt með slíkri konu sem Val- gerður var. Hún skóp honum fag- urt heimili þannig að hann gat áfram unnið að hugverkum slnum af fullum krafti allt til hins síðasta. En ekki bara það, hún var honum mikill styrkur - hún hafði mikinn metnað fyrir hans hönd og trúði því staðfastlega að þau verk sem hann væri að skapa myndu standa um langan tíma - og hvorki mölur né ryð fá grandað. Valgerður var mjög fáguð kona - enda kom hún úr því umhverfí. Hún var afar dagfarsprúð, elskuleg í öllum samskiptum, hjálpsöm og skemmtileg viðræðu, enda vel fróð um hverskonar efni - naut hún þess sérstaklega að ræða málefni þjóðfélagsins en á þeim hafði hún markaðar skoðanir, sem hún rök- studdi einarðlega. Þótt Valgerði yrði ekki bama auðið var hún með afbrigðum hjálp- söm við yngri kynslóðina. Þau Hall- grímur og hún tók að sér í nokkur skipti að uppfræða um tíma börn okkar systkina þegar veigamikil skólapróf stóðu fyrir dyram. Oft vantaði aðeins að skerpa á og kanna hvort tilskilin kunnátta væri fyrir hendi áður en til prófs væri gengið. Þá dvöldu þau í nokkum tíma hjá þeim á Ölfusárbakka í góðu yfír- læti við uppriíjun og tilsögn - og aldrei brást það, að prófin vora háð og settum árangri náð. Blessuð sé minning öndvegiskon- unnar Valgerðar Tryggvadóttur. Sigurður Helgason. Eftir að Valgerður móðursystir mín, sem var jafnan kölluð Dista af fjölskyldunni, skildi við aðfara- nótt föstudagsins langa, sátum við systumar og riíjuðum upp samvera- stundimar með henni. ína systir mín man hana heima í Laufási. Þá var hún á fertugs- aldri, glæsileg kona sem sópaði að hvar sem hún kom. Hún var sann- kallaður kvenskörangur með ákveðnar skoðanir á flestum málum og óhrædd við að láta þær í ljós. En þó hún héldi heimili með ömmu og væri í krefjandi starfí, hafði hún alltaf tíma fyrir systkini mín, pass- aði þau oft, tók þau með sér í sum- arfrí og var þeim nánast sem önnur móðir. Ég fæðist svo um svipað leyti og hún giftist Hallgrími. Eftir sem áður var hún næstum daglegur gestur heima. Þegar Hallgrímur vann í Kanada borðaði Dista alltaf með okkur og þau hjónin vora hjá okkur flesta hátíðis- og tyllidaga. Mörg kvöldin sátu þau og mamma og spiluðu þriggja manna brids, Hallgrími og mömmu til mikillar ánægju en ég held að Dista hafí alltaf haft mjög takmarkaðan áhuga á spilum. Að því leyti var hún ólík hinum systkinum sínum, sem öll hafa brennandi áhuga á brids. Minningarnar um Distu era margar, þær góðu stundir sem ég átti með þeim hjónum á sumrin við Þingvallavatn. Þar kenndi Hall- grímur mér að veiða og Dista kom í búið til mín og bragðaði á blóma- kökubakstrinum. Og ég var ekki há í loftinu þegar ég fór að heim- sækja hana upp I Þjóðleikhús, þar sem hún var skrifstofustjóri. Yfír Þjóðleikhúsinu var ákveðinn ævin- týraljómi og mér fannst spennandi að koma þar við. Þaðan fór maður aldrei tómhentur og svo var alltaf von til þess að einhver frægur leik- ari klappaði manni á kollinn eða viki að manni orði. Hún hafði gam- an að áhuga mínum á leikhúsinu og tók mig oft með á leikrit. Metið var, ef ég man rétt, þegar ég sá Dýrin í Hálsaskógi átta sinnum og hafði alltaf jafn gaman af. Dista hætti að vinna um leið og hún hafði rétt til þess og þá fluttu þau Hallgrímur austur fyrir íjall. Þar dvaldi ég oft þegar ég taldi mig þurfa á ró og næði að halda, t.d. við próflestur, og naut þess að láta Distu stjana við mig. Stundum gat þó slest upp á vin- skapinn, þegar mér fannst hún taka sér of mikið foreldravald, en henni fannst eðlilega að hún hefði fullan rétt til að aga mann og leggja manni lífsreglurnar. Það skil ég nú, þó ég hafi ekki verið sátt við það á sínum tíma. Þó að Dista hafi ekki eignast böm sjálf, held ég að það sé óhætt að segja að hún taldi sig eiga nokk- uð mikið í okkur systkinabörnunum, en stærsta plássið í hjarta hennar átti þó Tryggvi bróðir minn. Mamma var lengi að ná sér eftir fæðingu hans og sá Dista um hann fyrst eftir að þau komu af fæðingar- deildinni. Allar götur síðar sá hún ekki sólina fyrir honum. Þegar Tryggvi dó, eftir fímm ára baráttu við nýmaveiki, var sorg hennar mikil, enda elskaði hún hann eins og eigin son. Ég held að henni hafí aldrei tekist að sætta sig við það að hann var kallaður burt í blóma lífsins. Hallgrímur og Dista fluttu fyrir sjö áram aftur til Reykjavíkur og settust að á æskuheimili hennar, Laufási. Fýrir nokkram áram tók svo að haila undan fæti hjá henni. Dista sem hafði alltaf verið svo lif- andi og sterk varð gömul fyrir ald- ur fram og missti þá lífsgleði sem áður hafði einkennt hana. Síðastlið- ið haust lést Hallgrímur og var hún þá farin að kröftum. Fyrir tveimur mánuðum fékk hún lungnabólgu og náði sér ekki eftir það. Ég held að Dista hafí verið hvíld- inni fegin, hún lifði góðu lífi og var sátt við að deyja. Nafn hennar lifír þó áfram. ína systir skírði næst elstu dóttur sína Valgerði Höllu í höfuðið á þeim hjónum og nú á páskum bættist ný Valgerður I hóp- inn þegar Þóra Éllen, bróðurdóttir hennar, skírði dóttur sína. Við sem eftir sitjum munum geyma með okkur minningu um mæta konu. Anna Guðrún ívarsdóttir. Þegar mér bárast fréttir af and- láti Valgerðar birtust minningar í huga mínum frá þeim tíma sem ég dvaldi hjá henni og eiginmanni hennar Hallgrími Helgasyni föður- bróður mínum að heimili þeirra Vogi við Ölfusá. Þannig var mál með vexti að í gegnum tíðina hafði Hallgrímur tekið að sér að kenna ungum frænd- um sínum bæði þýsku og íslensku og Valgerður dönsku ef svo bar undir. Það var svo á framhalds- skólaáram mínum sem ég sló slöku við í þýskunáminu og augljóst þótti að ég þurfti á utanaðkomandi hjálp að halda. Það var auðsótt að fá vist hjá þeim við Ölfusá og tóku þau vel á móti mér. Hallgrímur var mjög kappsamur kennari og tók mjög föstum tökum á viðfangsefninu, það var því degin- um ljósara alveg frá upphafi að mér yrði engin miskunn sýnd varð- andi ástundun. Ég fór jafnan til þeirra með rútu frá Reykjavík síð- degis á föstudögum og kom aftur í bæinn með síðustu rútu á sunnu- dagskvöldum. Eg minnist þess þegar Valgerður sótti mig niður á Selfoss í fyrsta skiptið sem ég fór austur, hún ók þá um á pínulitlum austur-evrópsk- um bíl sem mig minnir að hafí heit- ið „Zestava". Henni þótti afar vænt um bílinn og sagði mér að þessi bíll gengi undir nafninu „Sést- Varla" af því að það væra í fyrsta + Elskuleg móðir okkar, tengdamófiir, amma og langamma, JÓHANNA KRISTJANA SIGFINNSDÓTTIR, áðurtil heímilis Löngumýri 15, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Seli 23. april. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 2. maí kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hennar, láti hjúkrunarheimilið Sel njóta þess. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. SJÁ NÆSTU SÍÐU Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir, OKTAVÍA J. ARNDAL, sem lést á sjúkradeild Hrafnistu iaugar- daginn 15. aprfl, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 27. apríl kl. 15.00. Guðbjörg Arndal, Stefán Arndal, Rósa Kristjánsdóttir, Finnbogi Kr. Arndal, Guðný Halldórsdóttir. + Bróðir minn og föðurbróðir okkar, THORR.STYFF, andaðist 12. þ.m. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunarfólks, Guðnýjar Guðjónsdótt- ur og Sveinbjörns Erlingssonar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Sigurðsson, Þórunn Gisladóttir Styff, Óli Sven Styff. + Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, fósturföður, afa og langafa, KRISTINS HELGASONAR, Hringbraut 87, Keflavik. Málfríður Larsdóttir, Lárus Kristinsson, Kristín Rut Jóhannsdóttir, Þuríður Kristinsdóttir, Arnór H. Hannesson, Jakobína B. Jónsdóttir, Gunnar Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Við þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KAJU CH. GUÐMUNDSSON, Mávabraut 11A, Keflavík. Þorbjörg Guðmundsdóttir, Henning L. Guðmundsson, Birna Björnsdóttir, Pétur Guðmundsson, Ester Hansen, Randý S. Guðmundsdóttir, Magnús Fr. Hjelm, Steinunn Guðmundsdóttir, Skarphéðinn R. Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.