Morgunblaðið - 26.04.1995, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 39
I DAG
Fyllum Kolaportið af kompudóti
BRIDS
Umsjón tiuðm. Páll
Arnarson
ÞÓ AÐ sterku laufkerfin
séu almennt nákvæmari í
slemmusögnum en eðlilegt
kerfi, eru þau mun við-
kvæmari fyrir hindrunum
og blekkingum. Bandarísku
Ásarnir Hamman og Wolff
hafa spilað nokkurs konar
Blátt lauf svo lengi sem
elstu menn muna, en í því
kerfi sýnir svarhönd fjölda
„kontróla" (ása og kónga)
í fyrsta svari sínu við
laufopnun. Um liti er ekki
rætt fyrr en í öðrum sagn-
hring. En þá er það stund-
um of seint:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ ÁD52
▼ 84
♦ ÁG9654
♦ D
Vestur
♦ -
f K7632
♦ D83
♦ G10763
Austur
♦ 1098764
V DG93
♦ 7
♦ 93
Suður
♦ KG3
f ÁIO
♦ K102
♦ ÁK842
Þetta spil er frá undanúr-
slitum Spingold-keppninnar
síðastliðið haust. Aðeins á
einu borði af fjórum enduðu
NS í besta samningnum,
eða sex tíglum. Eitt par
spilaði sex grönd, sem eru
vafasöm, en unnust auð-
veldlega þar eð ekki kom
út hjarta. Levin og Weic-
hsel lögðu allt undir í sjö
gröndum og uppskáru vel
þegar Levin fann tígul-
drottninguna. Sem var ekki
mjög erfitt í ljósi spaðaleg-
unnar.
En Hamman og Wolff
fóru illa út úr spilinu gegn
Martel og Stansby:
Vestur Norður Austur Suður
Martel Hamman Stansby Wolff
Dobl (2) 2 lauf (3) 3 tíglar(4) Pass
3 hjörtu Pass Pass 3 grönd
Pass 4 hjörtu Pass 4 grönd
Pass Pass Pass
(1) Sterkt lauf, 17+
punktar.
(2) Hjarta og lauf eða
spaði og tígull.
(3) FJögur kontról (ás-
ar=2, kóngur=l).
(4) Hindrun í lit makkers!!
Eftir tvílita innákomu
Martels í vestur, var Stansby
í kjöraðstöðu til að grugga
vatnið. Hann var til í að spila
þrjá tígla ódoblaða ef makk-
er átti spaða og tígul, en
hitt var líklegra að litir vest-
urs væru hjarta og lauf, og
þá myndi Martel breyta í
þrjú hjörtu. Áætlunin heppn-
aðist fullkomlega. Hamman
bjóst við fjórlit í tígli í austur
og lét nægja að gefa al-
menna slemmuáskorun með
íjórum hjörtum.
Pennavinir
FRÁ eynni Cordowa á
Filippseyjum skrifar stúlka
fyrir hönd hóps 18-26 ára
kvenna sem vilja eignast
pennavini á aldrinum 20-50
ára:
Cora Degamo,
Poblaecion Cordowa,
Cebu 6017,
Philippines.
ÞRJÁTIU og tveggja ára
lettnesk stúlka með marg-
vísleg áhugamál. Vinnur í
ráðuneyti:
Inta Berke,
Lasu iela 3-44,
Jurmala,
Latvia.
TUTTUGU og eins árs
bandarísk stúlka með marg-
vísleg áhugamál:
Heather Endy,
109 7th Street, Apt.l,
Bridgeport,
PA 19405,
U.S.A.
Árnað heilla
Q /"vÁRA afmæli. í dag,
Ovfmiðvikudaginn 26.
apríl, er áttræð frú Kristín
Helgadóttir, Laugarnes-
tanga 60, Reylqavík. Eig-
inmaður hennar er Bernód-
us Finnbogason. Þau hjón-
in taka á móti gestum á
heimili sonar síns, Fljótaseli
14, laugardaginn 29. apríl
milli kl. 15 og 18.
rrrvÁRA afmæli. í dag,
| Dmiðvikudaginn 26.
apríl, er sjötugur Sigurður
Briem Jónsson, fulltrúi
sýslumannsins á Húsavík,
Asgarðsvegi 1, Húsavík.
Hann er staddur í Austur-
ríki á afmælisdaginn.
Ljósmyndarinn Lára Long„
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 11. mars sl. í Lága-
fellskirkju af sr. Jóni Þor-
steinssyni Birgitta Magn-
úsdóttir og Dagur Benón-
ýsson. Heimili þeirra er í
Vindheimum, Kjalarnesi.
L<jósmyndarinn Lára Long
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 25. mars sl. í Bú-
staðakirkju af sr. Pálma
Matthíassyni Elísabet
Unnur Jónsdóttir og Ár-
mann Rögnvaldsson.
Heimili þeirra er í Krumma-
hólum 10, Reykjavík.
Með morgunkaffinu
Áster
Að ganga öðru hvoru
í barndóm
TM Refl. U.S. Pat. Off. — all rtflhts n
(c) 1995 Los Angolos Tlmos Syndicato
ÉG vil fá að skila þessu
bindi, það þrengir svo að
hálsinum á mér.
LEIÐRETT
Rangt nafn
í frétt um samstarfs-
átakið Öryggi barna - okk-
ar ábyrgð á bls. 45 í blað-
inu í gær var rangt farið
með nafn konu er sat til
borðs með landlækni, hún
var sögð heita Eríka Frið-
riksson. Rétt nafn hennar
er Eiríka Friðriksdóltir og
er hún beðin velvirðingar á
mistökunum.
Barnakórar syngja
hátíðarmessur
í frétt í blaðinu á skírdag
um að Skólakór Kársness
syngi hátíðarsöngva Bjarna
Þorsteinssonar í Kópavogs-
kirkju á páskadag stóð að
það væri í fyrsta sinn sem
bamakór syngi heila hátíð-
armessu hér á landi. Borist
hefur ábending um að kór-
bamaskóla Akureyrar hafi
í um 30 ár sungið hátíðar-
söngva Bjarna ásamt sálm-
um við hátíðarmessu á ann-
an dag jóla í Akureyrar-
kirkju og einnig við jóla-
messu á dvalarheimilinu
Hlíð á aðfangadag. Öll
þessi ár hefur Birgir Helga-
son verið stjórnandi kórsins
og undirleikari við mess-
umar.
Rangt persónu-
fornafn
í minningargrein um
Ingibjörgu Indíönu Jóns-
dóttur í biaðinu í gær
brenglaði rangt persónu-
fornafn merkingu setning-
ar. Rétt er setningin svo:
„Ingu var mjög annt um
fjölskyldu sína, dæturnar
Lilju og Kristínu og þeirra
fjölskyldur, systkini sín og
þeirra fólk.“
Beðist er velvirðingar á
þessu.
Sjóður, ekki fundur
Ömurleg fljótfærnisvilla
slæddist inn í Staksteina
gærdagsins. Þar stóð „að
setja á stofn fund“ en átti
að standa „setja á stofn
sjóð“. Þarna þvældist ensk-
an fyrir þýðandanum og er
margfaldlega beðizt afsök
unar á klaufaskapnum.
STJÖRNUSPA
J
NAUT
20. apríl - 20. maí
Afmælisbarn dagsins: Þú
þarft að vera opnari ísam-
skiptum viðaðra ogkunná að
tjá þig.
stKi.
ÁflDEiÐtk
á dag fyrir þá sem seija kompudól um heigina
Hafðu samband og EII4A
fryggðu þér pláss i síma DQA 3VvV
KOLAPORTIÐ
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hikaðu ekki við að segja álit
þitt í vinnunni, og reyndu að
koma í veg fyrir að einhver
misnoti sér framtak starfsfé-
laga.
Naut
(20. aprfl - 20. maí)
Gerðu ekki' þrasgjörnum
starfsfélaga það til geðs að
taka þátt í illdeilum í vinn-
unni. Láttu sem þú heyrir ekki.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Gættu þess að vanrækja ekki
það sem gera þarf í vinnunni
í dag þótt þér gefíst smátími
til að sinna einkamálunum.
Krabbi
(21. júnf - 22. júlí) H§£
Láttu þér ekki bregða þótt
mörg verkefni bíði lausnar f
vinnunni. Með því að skipu-
leggja starfið tekst þér það
sem þú ætlaðir þér.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Taktu enga áhættu í fjármál-
um í dag og reyndu að hafa
hemil á eyðslunni. Hafðu ást-
vin með í ráðum áður en þú
tekur ákvörðun.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) $2
Láttu ekki tímabundið önug-
lyndi ástvinar á þig fá, þvf
bráðlega birtir til á ný. Þér
tekst að leysa vandamál í vinn-
unni.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú hlakkar til að takast á við
nýtt verkefni, en láttu ekki
óþolinmæði ná tökum á þér.
Hlustaðu á góð ráð ástvinar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það verður í mörgu að snúast
heima í dag. Sumir vinna að
umbótum á heimilinu, aðrir eru
að undirbúa væntanlegt helg-
arsamkvæmi.
o
—t
P6
3
p>r
►-t
S>
85
o
a.
cra.
gH
w
Hagatorg i
Tónleikar Háskólabíói
fimmtudaginn 27. apríl, kl. 20.00
Hljómsueitarstjóri: Owain Arwel Hughes
Einsönguari: Ingibjörg Guðjónsdóttir
Efnisskrá
Vinsælar óperuaríur, forleikir og fleira
3
2
'3
ts
o
•u.
<c
'C
. -y
cn
-03
3
K
i-
O
Miðasala er alla viika daga á skrifstofutíma 09 við innganginn við upphaf tónleika. Greiðslukortaþjónusta.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Einhugur ríkir hjá ástvinum í
dag, en f vinnunni er ráðamað-
ur nokkuð stirðlyndur og þú
ættir að hafa þig lítt í frammi.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Einbeittu þér að því sem gera
þarf f dag, bæði heima og í
vinnunni. Hugmyndir þínar
falla í góðan jarðveg hjá ráða-
mönnum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Vanræktu ekki að hugsa um
heilsuna þótt mikið sé að gera
í vinnunni. Þú þarfnast meiri
hvíldar en þú hefur fengið
undanfarið.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þér gefst timi til að gleðjast
með góðum vinum í dag og
einhver sem þú hefur átt f
deilum við snýst á sveif með
þér.
Stjömuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
2
ÆUŒRAiCVÖLD
Aðeins þessi tvö kvöld verðum við með
glæsilegan kvöldverð þarsem höfuð-
áhersla er lögð á fjölbreytni og gott
úrvalshráefni og í boði eru m.a. réttir sem
ekki sjást á hverjum degi á matseðlum
veitingahúsa í höfuðborginni.
með eðalvínum.
Kaffi og koníak eða Ifkjör á eftir.
BORÐAPANTANIR I SIMA 552 5700
Sjabu hlutina
í víbara samhengi!
- kjarni málsins!