Morgunblaðið - 07.05.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MAÍ1995 B 13
gera at í mér, en því miður var sú
ekki raunin."
Sem von var brá þeim hjónum
og flýttu sér á vettvang. Aðkoman
var ljót. Nýju innréttingarnar, tæk-
in og húsgögnin voru útötuð í sóti
og vatni. Allt orðið grákrímótt, skít-
ugt og ljótt, að ekki sé minnst á
reykjarbræluna sem fýllti vitin.
Húseigendatrygging bætti
skemmdir sem urðu á húsnæðinu
og föstum innréttingum. Garðar var
ekki búinn að ganga frá innbús-
tryggingu og olli eldsvoðinn og
rekstrarstöðvunin honum tilfinnan-
legu tjóni. Við lögreglurannsókn
kom í ljós að brennuvargur hafði
kveikt í við hliðina á rakarastofunni
og eldurinn breiðst þaðan út.
Brennuvargurinn þekktist á ljós-
mynd af vettvangi, þar sem hann
hafði vakið sérstaka athygli fýrir
dugnað við björgunarstörf.
Bjartsýni og sálarþrek
Nú tók við erfiðleikatímabil, sem
Anne segist helst vilja gleyma. Það
rættist hið fornkveðna að sjaldan
um 1900 til 1905 eftir því sem
Garðar kemst næst. Um árabil var
hér samkomustaður lútherskra
heimatrúboðsmanna, haldnar sam-
komur og lesið úr Guðs orði ásamt
bænagjörð. í áranna rás þynntist
hópurinn sem hér átti sitt andlega
athvarf. Svo kom að inn í þennan
helgidóm fluttu þjónar Mammons
og settu hér upp kontóra og lager.
Þessir athafnamenn sáðu í vindinn
og seldu loftræstikerfi. Reksturinn
í bænhúsinu lagði upp laupana líkt
og bænahaldið fyrrum og húsið var
sett á sölu. Það stóð autt og yfirgef-
ið í um eitt og hálft ár þar til þau
Anne og Garðar festu kaup á því.
Líkir íslendingum
Garðar er sammála Önnu um að
íbúar Kristiansunds séu líkir land-
anum. „Maður nærri drukknar í
velvilja og innilegum móttökum
þegar maður flytur hingað. Menn
eru hreinskilnir og tala tæpitungu-
laust líkt og íslendingar."
En er ekkert sem þau sakna frá
Islandi? „Jú, ég sakna fjölskyldunn-
Á Stai Salong
Garðar og Janne á raka:
rastofunni Star Salong. í
bakgrunni má sjá verð-
launabikara Garðars.
er ein báran stök. Reksturinn í
Kristiansund var rjúkandi rúst - í
orðsins fyllstu merkingu - og erfið-
leikar komu upp í fyrirtækjunum í
Bergen. Efnahagsástand versnaði
mjög í Noregi á þessum tíma og
ekki síst í Kristiansund. Garðar lét
ekki deigan síga, þrátt fýrir að öll
sund virtust lokuð. Garðar þakkar
það meðfæddri bjartsýni og sálar-
styrk að hann gafst ekki upp í þessu
mótlæti. „Þegar við vorum að þrífa
stofuna eftir brunann sagði eigandi
hreingernigarfyrirtækisins við mig:
Hvernig er þessi maður þinn eigin-
lega, hann heldur öllum uppi,“ seg-
ir Anne. Garðar opnaði Star Salong
aftur 1990 og rekur nú stofuna
með þremur starfsmönnum.
Baenhúsió
Fyrstu árin í Kristiansund bjuggu
þau í svo litlu húsi að sæta varð
lagi ef tveir ætluðu að mætast í
stofunni, að sögn Anne. Þau fréttu
af bænhúsinu á Goma, sem var í
niðurníðslu, en sáu möguleika í að
gera það upp og keyptu. Auk þess
að vera hárskeri er Garðar húsa-
smiður að mennt og nú reyndi á
smíðakunnáttuna. Hann bretti upp
ermarnar og hóf endurbætur á hús-
inu. Endurbæturnar hafa tekist
mjög vel og vakið athygli í norskum
blöðum.
Það var Heimatrúboðið sem reisti
Gomalandets bedehus við Strand-
götu laust eftir aldamótin, á árun-
ar og Fram,“ segir Garðar hlæj-
andi. „Ég á enn húfuna og Fram-
flaggið sem ég fór alltaf með á
völlinn þegar Fram spilaði. Við átt-
um marga góða vini á íslandi sem
við söknum, en það fennir fljótt í
sporin og tengslin vilja rofna. Þegar
við komum til Islands rifjast þó
fljótt upp gömul kynni.“
Garðar segist ekki finna fyrir því
að vera útlendingur í Noregi, nema
í Smugudeilunni og þegar Islend-
ingar og Norðmenn heyja lands-
leiki. „Þegar íslendingar keppa við
Norðmenn get ég alltaf sagt: Við
vinnum," segir Garðar.
„Ég sakna ekki íslands,“ segir
Anne. „En það er ekki þar með
sagt að mér hafi ekki líkað vel að
búa þar, mér fannst ég aldrei vera
útlendingur þar. Ég vildi samt að
við hefðum flutt fyrr hingað.“ Hún
segir að það hafi verið dýrt og erf-
itt að flytja aftur og aftur og vera
sífellt að byija upp á nýtt. „Þetta
var spennandi, en ekki skynsam-
legt.“ Garðar telur að afkoma fólks
sé almennt betri nú í Noregi en á
íslandi. Launin séu þar hærri og
vöruverð svipað og hér heima. Þau
segjast verða vör mikils áhuga á
íslandi í Noregi. Margir tala um
að þá langi til Islands og þeir sem
þangað hafa farið segjast vilja fara
þangað aftur. „Ég hef aldrei hitt
neinn sem hefur verið neikvæður
gagnvart íslandi eftir að hafa verið
þar,“ segir Anne.
Sjábu hlutina í víbara samhengi!
Sjálfsvarn-
arnámskeið
fyrir konur
MÁNAÐARNÁMSKEIÐ verður
haldið á vegum Aikido-klúbbsins
fyrir allar þær konur sem vilja
nýta sér kvenlega ímynd til sjálfs-
styrkingar.
Sjálfsvarnartæknin er byggð á
mjúkri hreyfingu sem hæfir kon-
um á öllum aldri. Námskeiðið hefst
þriðjudaginn 9. maí kl. 18.30 og
er mæting í Steinabæ, Laugar-
dalsvelli, í íþróttasal stúkunnar
(gengið inn við enda stúkunnar).
Kennt verður tvisvar í viku þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 18.30.
Kennari er Marteinn Bj. Þórðar-
son, 1. Dan Aikido, formaður
Aikido-klúbbs Reykjavíkur.
Erum fluttir úr Lágmúlanum.
Fellihýsin mest
seldu á íslandL
Coleman Fellihýsi frá USA
EVRÓ HF
Suðurlandsbraut 20, sími 588-7171.
Æfingabekkir í Hafnarfirði
Þú ert í...
...betri málum
...efþú stundar líkamsþjálfun.
Dúndur sumartilboð 8.-22. maí.
Sjö bekkja æfingakérfið hentar mjög
vel fólki á öilum aldrl, sem ekki hefur
stundað líkamsþjálfun lengi. Einnig
þeim sem ekki geta iðkað almenna
leikfimi af ýmsum ástæðum s.s.
vöðvabólgu. Það liðkar, styrkir og
eykur blóðstreymi til vöðva þannig
að ummál þeirra minnkar.
Ókcypis kymiingartími.
Opið:
Mán.-fim. kl. 8.10-12.00 og 15.00-21.00.
Fös. kl. 8.10-13.00 og lau. kl. 10.00-13.00.
Lokað þriðjud. eftir hádegi.
12tímarkr. 6.000
- Nú kr. 4.900
25 tímar kr. 11.600
- Nú kr. 8.900
Erum með nýjan sólbekk
betíi ma
í ÆFINGABEKKJUM
Ath! Ellilfeyrisþegar og öryrkjar fá 20% afslátt. LÆKJARGOTU 34a - s 653034
Húsib og garburinn
Sunnudagsblaði Morgunblaösins, 14. maí nk., fylgir blaöauki sem heitir
Húsib og garburinn. í þessum blaöauka veröur fjallaö um viöhald húsa og
hvaöa kostir bjóöast í því sambandi, til dæmis málning og fúavörn. Litiö veröur á
úrval af garöhúsgögnum, hellum, heitum pottum og möguleikum á lýsingu garöa.
Einnig veröur fjallaö um vorverkin í
garöinum, tré, runna og plöntur, æskilega staösetningu þeirra í garöinum,
ávaxtaræktun utan dyra, garöverkfæri og garöskreytingu.
Þeim, sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blabauka, er bent á ab
tekib er vib auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 8. maí.
Nánari upplýsingar veita Rakel Sveinsdóttir og Dóra Gubný
Sigurbardóttir, sölufulltrúar í auglýsingadeild, í síma 569 1171 eba
meb símbréfi 569 1110.
- kjarni málsins!