Morgunblaðið - 07.05.1995, Blaðsíða 16
16 B SUNNUDAGUR 7. MAÍ1995
-H
MORGUNBLAÐIÐ
Hæstu tindar Afríkn
Texti og myndir: Helgi Benediktsson
NÚ í vetur voru Helgi Benediktsson og
kona hans Depy á ferðalagi í Kenya í
Afríku í nokkrar vikur. Helgi notaði tæki-
færið og kleif tvö hæstu fjöll álfunnar,
Kilimanjaro 5.896 m og Mt. Kenya 5.188
m, en hann mun vera fyrstiir íslendinga
að klífa það fjall. Helgi er einn reyndasti fjallamað-
ur landsins, hefur klifið sum hæstu fjöll í fjórum
heimsálfum og hann hefur klifið hæst allra íslend-
inga, Himalaya-tindinn Diran 7.273 metra, í Pakist-
an 1985.
Berfætt á hvítri strönd
á nýársnótt
Þó nokkrir íslendingar hafa klifið hæsta fjall
Afríku, Kilimanjaro, en enginn þó hæstu tinda Mt.
Kenya, Nelion og Batian, það var því ekki nema
sjálfsagt að hafa þá með þegar við skipulögðum
„sumarleyfisferð til Kenya“ í desember og janúar í
mesta skammdeginu. Það tók okkur tvær vikur að
aðlagast sól og hita við hvítar strendur Indlands-
hafs í Malindi og á eyj-
unni Lamu, þar sem við
heilsuðum nýju ári dans-
andi berfætt á strönd-
inni við dynjandi dans-
músík alla nýársnótt.
Ekið til fjalla
Síðan héldum við til
Nairobi þar sem leiðir
skildu. Depy hélt í 9
daga trukkaferð um fáf-
arnar slóðir í norður-
hluta Kenya ásamt syst-
ur sinni sem býr í
Kenýa. Ég fór hinsvegar
til Moshi í Tanzaníu við
rætur Kilimanjaro þar
sem ég fann fylgdar-
mann og burðármann,
en það er skylda að hafa
fylgdarmann þegar
ferðast er í Kilimanjaro
þjóðgarðinum. Á fyrsta
degi gengum við í þijá
tíma á skógarstíg upp í
Mandara-skála í 2.700
m. hæð. Þar eru þægi-
legir skálar og rennandi
vatn sem Norðmenn
hafa aðstoðað heima-
menn með.
Næsta dag var geng-
ið uppfyrir skógarmörk
og þar tók við Afro-alpa flóra með einkennilegum
plöntum sem aðeins finnast hátt í hlíðum Kilimanj-
aro og Mt. Kenya, en það stafar af því að dagar
eru brennheitir en nætur mjög kaldar allan ársins
hring. Eftir fjögurra tíma göngu náðum við Ho-
rombo-skála í 3.720 m. Daginn eftir náðum við,
fyrstir allra þann dag, upp í Kiko-skála 4.700 m á
fjórum tímum. Gengið var m.a. yfir hásléttueyði-
mörk eina sem svipar mjög til Öskju. Það kom mér
þægilega á óvart hversu vel ég aðlagaðist þunna
loftinu og gat haldið góðum gönguhraða miðað við
aðra sem voru þarna á ferð.
Á Uhuru-tind
Skömmu eftir miðnætti lögðu allir þeir sem í
skálanum voru af stað. Ég hinsvegar átti erfitt með
að skilja hvers vegna Iagt var svo snemma af stað
og var ekki laust við að mönnum þætti ég sérvitur.
Ég vaknaði um þrjúleytið og þótti það snemma
mjög. Mér og báðum fylgdarmönnum sóttist ferðin
vel og hjálpaði mikið í bröttum skriðunum gott
tunglskin. Það kom að því að annar fylgdarmaður-
inn kvartaði sáran undan slæmum höfuðverk sem
fylgir því að fara of geyst upp og er það eitt fyrsta
merki um fjallaveiki og ekki um annað að ræða
fyrir hann en að fara aftur niður. I efsta hluta skrið-
anna bröttu, rétt áður en komið er upp á brún þar
sem heitir Gillman’s Pt. komumst við framúr öllum
þeim er höfðu lagt af stað fyrr um nóttina. Meir
en helmingur göngumanna sneri við á þessum stað
og voru það örfáir sem héldu áfram. Það tók okkur
klukkutíma að fylgja brúninni yfir snjó og ís í bruna-
gaddi og roki (-20°) á hæsta tindinn Uhuru 5.896
m. Klukkan var 7.55 að morgni 17. janúar. Eftir
aðeins tveggja mínútna stopp fyrir myndatöku
geystumst við niður í Kiko-skála á innan við einni
og hálfri klukkustund. Þennan sama dag héldum
við alla leið niður í Mandara-skála.
Síðdegis næsta dag var ég kominn til Nairobi,
þar sem ég hafði viðdvöl í einn dag áður en ég hélt
til Naro Moro við rætur Mt. Kenya.
Mt. Kenya
Ég fékk akstur upp í 3000 m hæð en þar tók
við löng ganga með Peter burðarmanni upp í
McKinder-skála 4.300 m. Það tók okkur 6 tíma
með þungar byrðar af klifurútbúnaði að komast í
skálann og síðustu tvo tímana í myrkri með ennis-
ljós. Mt. Kenya er mjög frábrugðið Kilimanjaro þó
bæði séu eldfjöll. Talið er að Mt. Kenya hafi náð
7.000 m.y.s. fyrir þó
nokkrum milljónum ára.
í dag standa gígtapparn-
ir eftir, en þeir eru úr
mjög hörðu og grófu
djúpbergi, mjög fallegir
tindar. Á leið upp í Aust-
urríska skálann í 4.750
m hitti ég tékkneskan
þaulreyndan Ijallamann
sem hafði verið að klífa
Nanga Parkat 8.128 m
í Pakistan nokkrum
mánuðum áður. Það
varð úr að við skildum
klifra saman á Nelion
og Batian næsta dag.
Uppi í skála hittum við
tvo klifrara frá Kalifor-
níu sem slógust í hópinn.
Það tók okkur hálfan
tíma frá skálanum að
ganga á Point Lenana
4.985, þar sem við fylgd-
umst með fögru sólsetr-
inu.
Ekki fyrir lofthrædda
Að morgni hinn 23.
janúar lögðum við af
stað í morgunskímunni
gangandi yfir Lewis-jök-
ul, en hann er sá stærsti
á Mt. Kenya og rétt við
miðbaug. Talið er að eftir 20 ár verði allir jöklar á
Mt. Kenya horfnir vegna hækkandi hitastigs (gróð-
urhúsaáhrif). Það tók okkur rúman hálftíma að
ganga upp að klifurleiðinni á suðausturhlið Nelion.
Klifrið var um 500 m, mjög bratt og af gráðu IV
þar sem erfiðast var. Bergið var mjög gott og auð-
velt að tryggja í því. Við skiptumst á að leiða kli-
frið og það tók okkur 6 tíma og 18 spannir í klifri
að ná tindinum. Kl. 13.00 stóðum við á tindinum
eftir mjög ánægjulegt og áhugavert klifur í góðu
bergi sem miðbaugssólin vermdi. Eftir tveggja tíma
hvíld og sólbað á tindinum sigum við niður í áföng-
um og notuðum allar línur í samfloti. Þetta er eitt
hæsta sig sem ég hef lent í og er óhætt að segja
að það er ekki fyrir lofthrædda.
Við náðum niður í skála rétt við myrkur. Þarna
skildi ég við klifurfélagana og fór ásamt Peter
burðarmanni áfram niður í McKinder-skála. Kolniða-
myrkur var og þurftum við að ganga með ennisljós.
Næsta morgun gengum við alla Ieið niður og í
Naro Moro skildu leiðir. Ég komst til Nairobi með
rútu hluta leiðarinnar og síðan sérstökum hraðtaxa
sem kallaðir eru fljúgandi kistur vegna tíðra umferð-
arslysa sem þeir Jenda í.
í Nairobi náði ég næturlestinni til Mombasa og
morguninn eftir var ég kominn á ströndina við
Malindi, þar sem ég hélt áfram þar sem frá var
horfið við að synda, kafa og sigla í hlýjum og nota-
legum sjó.
KLIFURLEIÐ sú er Helgi og félagar fóru.
MT. KENYA, 5.199 m, er gamalt eldfjall og annað hæsta fjall Afríku.
VIÐ sólarlag á tindi Point Lenana, 4.940 m, en hann er þriðji hæsti
Kenya og frekar auðveldur uppgöngu, enda vinsæll meðal göngum
VIÐ sólarlag í Nairobi-þjóðgarðinui
HELGI á tindinum 23. janúar ’95.
„ÞAÐ tók okk
i
1