Morgunblaðið - 02.07.1995, Page 1

Morgunblaðið - 02.07.1995, Page 1
72 SÍÐUR B/C 147. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/RAX Laxveiðivertíðin er nú að komast á fleygiferð, en mjög er aflanum misskipt til þessa. Hefur veiðiskapur KASTAÐ FYRIR LAX í KJÓSINNI gengið langsamlega best í hvar hefur veiðin þó glæðst náði hámarki síðla í síðustu Borgarfjarðaránum. Víðast með stórstreyminu sem viku. Myndin er frá Kvísla- fossi í Laxá í Kjós þar sem Þjóðverjinn, Peter Pohl, egnir fyrir laxa með flugu sinni. Þingið fellir vantraust á stjórn Rússlands Moskvu, Grosní. Reuter. Spenna eykst milli Egypta og Súdana Kaíró, Karthoum. Reuter. OMAR Hassan al-Bashir, forseti Súdans, skoraði á föstudag á þjóð sína að grípa til vopna og veija landið gegn samsæri, sem hann sagði Egypta standa að baki, til að steypa stjórn sinni. Egypsk sunnu- dagsblöð helltu olíu á eldinn með því að skora á Hosni Mubarak, forseta Egypta- lands, að ráðast á Súdana til að hefna fyrir banatilræði, sem honum var sýnt í upphafi síðustu viku. Eitt dagblað kallaði ráðamenn í Súdan „djöfla, þjófa og blóðsugur". Egypska rannsóknarlögreglan hefur komist að því að þrír eþíópskir öryggisverðir og súdansk- ir njósnarar hefðu tekið þátt í morðtilræð- inu á hendur Mubarak, að sögn Reuter. Talið er að þrettán árásarmenn hafí skot- ið að bílalest Mubaraks í Addis Ababa á mánudag. Samkvæmt heimildum egypsku lögreglunnar var árásin gerð með fullri vitund og aðild leyniþjónustu Súdans. Aukin spenna hefur verið á landamærum ríkjanna í kjölfar tilræðisins.en Egyptar kváðust í gær ekki hyggja á árás. VANTRAUSTSTILLAGA á stjóm Viktors Tsjernomyrdíns, forsætisráðherra Rúss- lands, náði ekki fram að ganga í rússneska þinginu í gær og hefur stjórnarkreppu í Rússlandi þar með verið afstýrt. Borís Jelts- ín, forseti Rússlands, hefði annaðhvort orðið að víkja stjórninni frá eða leysa upp þing hefði tillagan verið samþykkt. Þessi niðurstaða styrkir Tsjernomyrdín í sessi og sagði hann í gær að nú væri „tími kominn til að vinna, ekki rífast“. 193 þingmenn studdu tillöguna, 117 greiddu atkvæði gegn henni og 48 sátu hjá. Meirihluti dugði hins vegar ekki til að van- trauststillagan næði fram að ganga, heldur þurfti atkvæði 226 þingmanna. Jeltsín hafði fyrir atkvæðagreiðsluna tek- ið öll tvímæli af um það að fremur myndi hann leysa upp þing en víkja stjórninni. Vantrauststillagan átti rætur að rekja til gíslatöku tsjetsjenskra skæruliða í bænum Búdennovsk í suðurhluta Rússlands um miðjan júní. Þingið gagnrýndi Jeltsín og stjórn hans harðlega fyrir meðferð málsins. 21. júní var samþykkt vantrauststillaga, sem var ekki bindandi. Tsjernomyrdín átti þá frumkvæðið að því að haldin yrði önnur atkvæðagreiðsla, sem hefði haft í för með sér að þingkosningarnar, sem haldnar verða í desember, færu fram mun fyrr. Stjórnarandstaðan sá því fram á stutta og erfiða kosningabaráttu við andstæðinga með sýnu betri áróðursaðstöðu. Þegar Jelts- ín friðaði þingheim á föstudag með því að víkja tveimur ráðherrum úr ríkisstjórninni auk yfirmanni leyniþjónustunnar og ríkis- stjórans í Stavropol, sem Búdennovsk heyr- ir til, var bjöminn unninn. Þetta var ekki afgerandi sigur, en Jeltsín heldur enn velli. Jeltsín komst upp með að sniðganga áskoranir um að víkja Pavel Gratsjev varnarmálaráðherra, sem hefur verið einn ötulasti stuðningsmaður hans. Þótt vantrauststillagaii hafi snúist um stjórn Tsjernomyrdíns, beindist hún ekki gegn honum. Forsætisráðherrann, sem hóf feril sinn í röðum kommúnistaflokksins og stjórnaði gasmálum í Sovétríkjunum, er einn af fáum rússneskum stjórnmálamönnum, sem nýtur aukins stuðnings meðal almenn- ings eftir Búdennovsk. Tsjernomyrdín lét lítið á sér kræla í upphafi gíslatökunnar, en samdi að lokum um lausn gíslanna. Samningamenn Rússa og Tsjetsjena héldu áfram viðræðum í Grosní í gær. Náðst hefur samkomulag um vopnahlé, en það er ekki sagt traust. Langt ber hins vegar enn á milli um erfiðustu samningsatriðin; stöðu Tsjetsjníu og framtíð Dzhokars Dúdajevs, leiðtoga aðskilnaðarsinna Tsjetsjena. Frétta- skýrendur spá því að úrslit atkvæðagreiðsl- unnar og mannabreytingarnar muni greiða fyrir viðræðunum. VIÐ ERUM EVRÓPUÞJÓÐ OR B0R6 í SVEIT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.