Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Pinochet býður stjórn- inni byrginn Herforíngjar í Chile hafa baríst gegn þeirrí kröfu stjómvalda að þeir sem gerðust sekir um morð og mannréttindabrot í stjómar- tíð hersins verði sóttir til saka. Óttast stjómvöld að andstaða hersins við þau hafí skaðað landið á alþjóðavettvangi ÆTTINGJAR þeirra sem hurfu sporlaust í tíð herforingja- stjórnarinnar í Chile krefjast upplýsinga um afdrif þeirra. Espinosa Contreras Pinochet ESPINOSA afplánar nú sex ára dóm fyrir að leggja á ráðin um morð. Contreras kveðst vera of veikur til að þola fangavist. AUGUSTO Pinochet Ug- arte hershöfðingi í Chile lýsti því eitt sinn yfir að enginn myndi nokk- urn tímann skerða hár á höfði manna hans. Til að tryggja það sat hann um kyrrt sem yfir- maður chíleanska heraflans þegar borgaraleg stjóm tók við völdum að nýju árið 1990 og heldur vernd- arhendi yfir mönnum sínum eins og honum er frekast unnt. Hefur hann gengið svo langt að Chilebú- um er ekki lengur rótt enda getur andstaða hersins við stjórnvöld valdið efnahag landsins óbætan- legu tjóni, þar sem hún rýrir traust erlendra fjárfesta. Ymis teikn eru þó á lofti um að herinn, með Pinoc- het í broddi fylkingar, sé að láta undan. Á fimmtudag fyrir rúmri viku var ofurstanum Pedro Espinosa stungið bak við lás og slá en hann og yfirmaður leynilögreglunnar, DINA, Manuel Contreras, hlutu fyrir skömmu sex og sjö ára fang- elsisdóma fyrir að hafa lagt á ráð- in um morðið á Orlando Letelier, fyrrum utanríkisráðherra í stjórn Salvadors Alliendes og útlægum andstæðingi Pinochets. Espinosa afplánar nú sex ára dóm en Contreras verst handtöku á herspítala í Talcahuano í suður- hluta Chile. Kveðst hann vera syk- ursjúkur og með of háan blóð- þrýsting. Hann fer hvergi fyrr en læknar á vegum stjórnvalda hafa gengið úr skugga um hversu veik- ur hann raunverulega er og hvort að hann hafi heilsu til að afplána sjö ára dóm. Ograði stjórninni Ástandið var lævi blandið í land- inu er Pinochet gerði úrslitatilraun til að koma í veg fyrir fangelsun Espinosas. Hershöfðinginn bauð landslögum birginn í blaðaviðtali þar sem hann dró í efa lögmæti úrskurðar hæstaréttar og fullyrti að Contreras og Espinosa hefðu ekki hlotið sanngjama málsmeð- ferð. Þá ögraði hann ríkisstjórn- inni með því að senda Contreras á hersjúkrahúsið án samþykkis yfirvalda en þar nýtur hann vernd- ar hersins. Stjórnmálaleiðtogar Chile reyndu allt til þess að gera Pinoc- het ljóst hversu mikinn skaða efnahagur landsins kynni að bíða vegna andstöðu hans. Sjö dagar liðu þó áður en Espinosa var svipt- ur foringjatign, væntanlega að skipun Pinochets. Contreras fer hins vegar hvergi. í raun er hann sjálfviljugur gísl hersins í þeim samningaviðræðum sem fara nú fram við yfirvöld. Herinn vill að Contreras afpláni dóm sinn í varðhaldi hersins. Þá vill hann að rannsókn á þeim pólit- ísku morðum sem framin voru á árunum 1973-1978 verði hætt. Þeir sem ábyrgð bera á morðunum njóta verndar laga um sakaruppg- jöf sem herstjórnin setti er hún var við völd. Lýðræðislega kjörin stjórn Chile vill hins vegar að hinir seku verði dregnir til ábyrgðar og kýs að túlka lögin svo að rannsaka verði ásakan- ir um morð áður en málunum verði lokið. Neitar stjómin að semja við herinn fyrr en að herforingjarnir verða báðir komnir bak við lás og slá. Eftirgjöf hersins Sú ákvörðun að afhenda yfir- völdum Espinosa er fyrsta merki þess að herinn kunni að gefa eftir í baráttunni við stjórnvöld. Stjórn- inni var stórum létt en hún hafði óttast að Pinochet hefði ef til vill ekki fulla stjórn á mönnum sínum og að hætta væri á uppreisri innan hersins og valdaráni. Mikil óánægja er innan hersins með lág laun og litlar framavonir. Hinn strangi agi sem ríkir í her Chile og virðingin fyrir yfirmönn- um kom í veg fyrir uppreisn, þrátt fyrir að Pinochet þyrfti að beita öllum ráðum til að halda aftur af sínum mönnum. Segja stjórnvöld að árásir hans á dómstóla og ríkis- stjórn hafi aðeins verið ætlaðar til þess að róa foringja í hernum, Pinochet hafi ekki ætlað að ögra stjómvöldum. Fyrstu málin gegn hernum Contreras og Espinosa eru fyrstu hermennirnir sem sóttir eru til saka fyrir mannréttindabrot. Mál þeirra fór fyrir dóm vegna þrýstings frá bandarískum yfir- völdum en Letelier lét lífið í bíl- sprengju í Washington ásamt bandarískum aðstoðarmanni sín- um, Ronnie Moffit, árið 1976. Bandaríkjamaður og nokkrir kúb- verskir útlagar voru á sínum tíma dæmdir fyrir tilræðið en þeir sem rannsökuðu málið kváðust þess fullvissir að leyniþjónusta Chile, DINA, hefði staðið að baki því. Málið var tekið upp í Chile árið 1993, sautján árum eftir morðið. Réttarhöldin drógust á langinn en 30. maí sl. voru Contreras og Espinosa dæmdir fyrir að hafa lagt á ráðin um morðið. Eiga þeir að afplána dóminn í Punta Peuco, nýju fangelsi sem byggt var til að hýsa þá sem hljóta dóma fyrir mannréttindabrot. Verða Contre- ras og Espinosa fyrstu fangarnir. Dómurinn yfir foringjunum tveimur varð hernum mikið áfall. Þar á bæ er litið á hann sem dæmi um vanþakklæti almennings með 17 ára stjórnartíð hersins, þrátt fyrir að herstjórnin segi að tekist hafi að koma á lögum og reglu í landinu, endurreisa efna- haginn og að síðustu að efna til lýðræðislegra kosninga. Þá var Contreras og Espinosa illa brugð- ið. „Herinn, sem ég þjónaði í 46 ár, hefur svikið mig,“ sagði Espin- osa. Herinn valdamikill Atburðir síðustu vikna hafa minnt almenning í Chile á hversu miklu herinn ræður enn. Sam- kvæmt stjórnarskránni hefur for- setinn ekki vald til þess að reka foringja í hernum. Fuiltrúar hers- ins eiga fjögur sæti í öldungadeild þingsins og helmingur öryggisráðs landsins er skipað herforingjum. Þá þiggja þeir ekki laun sín beint frá ríkinu, heldur rennur 10% af hagnaði koparnáma ríkisins til hersins. \ Herinn berst hatrammri baráttu gegn öllum breytingum á stjómar- skránni, sem kynnu að verða til þess að farið yrði í saumana á mannréttindabrotum sem framin voru á valdatíma hans. Stjórnvöld, sér í lagi vinstri flokkarnir, em hins vegar harðákveðin í því að láta þessi mál ekki liggja í þagnar- gildi. Hafa þau lagt hart að hernum að upplýsa almenning um örlög um 900 pólitískra fanga sem „hurfu“ úr varðhaldi og ekkert hefur spurst til. Stórt skref afturábak Átök hers og stjórnvalda er al- varlegasta hættan sem steðjað hefur að stjórn Eduardos Frei, frá því að hún tók við völdum árið 1990. „Þessi átök hafa orðið til þess að staða landsins á alþjóða- vettvangi hefur beðið mikinn hnekki,“ segir Alejandro Foxley, formaður Kristilegra demókrata. Ekki er talið að þau verði til þess að fresta inngöngu Chile í Fríversl- unarbandalag Norður-Ameríku (NAFTA) en það er engu að síður ljóst að glímunni við skugga fortíð- arinnar er hvergi nærri lokið. • ByggJ 4 The Economist og Time. Lokaó mánudag og þríðjudag, iltsalan hpfst miðvikudaginn 5. jiílí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.