Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995 27 EIRÍKUR KJERÚLF + Eiríkur Kjerúlf fæddist á Arn- heiðarstöðum í Fljótsdal 15.3. 1903 og ólst þar upp með föðurmóður sinni Sigríði Sigfúsdóttur og seinni manni hennar Sölva Vig- fússyni hreppstjóra. Hann lést 19. júní sl. Eiríkur stundaði nám við alþýðuskói- ann á Eiðum. Hann kvæntist Önnu Andreu Andre- asdóttur frá Seyðisfirði, f. 21.6. 1911, d. 21.7. 1987. Hófu þau búskap að Húsum í Fljótsdal með foreldrum afa, fluttu til Reykjavíkur 1942, þar sem afi starfaði á bílaverkstæði í nokk- ur ár. Hann stundaði leigubíla- akstur á árunum 1948-1958 og var bíllinn sem hann keyrði kallað- ur 79 af stöðinni. Eftir 1958 stundaði afi ýmsa almenna vinnu. Árið 1971 fluttu þau hjónin svo austur til Seyðisfjarðar. Börn Eiríks afa og Önnu ömmu eru Guðröð- ur Jörgen, f. 27.4. 1933, d. 12.6. 1994, kvæntur Ingi- björgu Kristófers- dóttur. Þórey Sig- urrós, f. 18.1. 1935, ekkja eftir Eirík Einar Einarsson. Sölvi Sig- urður, f. 18.10. 1941, í sambýli með Ingibjörgu Ragnarsdóttur. Droplaug Margrét, f. 2.4. 1947, gift Sigurði Hilmarssyni. Systk- ini afa voru tólf og eru sex af þeim látin. í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt þeim svefni rænir enginn þig. (Steinn Steinar) HANN elsku afi okkar er dáinn, við systurnar fengum dánarboðið samdægurs. Hann var tæpur heilsu síðustu daga sína, og lést á sjúkra- húsi Seyðisfjarðar þar sem hann hafði aðsetur og hlynningu síðustu árin. Það er alltaf erfitt þegar mað- ur býr erlendis og hryggðarboð berast símleiðis. Afi skilur hlýjar minningar eftir sig, og mun lifa áfram í huga okkar. Þegar við systkinin vorum lítil gerðist það oft á tíðum að afi kom og tók eitthvert okkar með sér í bæinn um helgar. Oft var farið í Hressingarskálann, eða í bakarí. Afi bauð uppá ís eða góðgæti úr einhverjum söluturni, og áður en heim var haldið var oft laumað að okkur nokkrum aurum eins og hann komst að orði. Hann var líka óþreytandi við að sitja með okkur barnabörnin á hnjánum og ausa úr margbreyttu sögu og ævin- týrasafni sínu eða lesa fyrir okkur bækur. Við fórum bæði í víkinga- herferðir í huganum með afa eða til tunglsins með Jules Vernes. Afi var mikið fyrir bókalestur og las allt sem hann náði í og kímdi í barminn yfir hversu miklir bóka- ormar við systkinin urðum þegar við vorum orðin læs. Afi og amma söfnuðu alltaf aurum í saltstauka allt árið og fengum við barnabörnin þessa bauka fyrir jól að kaupa jóla- gjafir fyrir. Það er sárt að hugsa til þess að næst þegar til íslands er haldið þá getum við ekki hitt afa aftur. Hann mun þó alltaf lifa í huga okkar og endurminningum. Við systumar, ásamt fjölskyldum okkar í Svíþjóð, vottum móður okk- ar og systkinum hennar samúð okk- ar. Samtímis berum við söknuð og sorg í hjörtum okkar. Elsku afi er farinn á fund skapara síns og þang- að sem amma sálug tekur á móti honum. Blessuð sé minning þeirra. Anna Þóra Eiríksdóttir og fjölskylda. Edda Hrönn Eiríksdóttir og fjölskylda. GUÐMUNDA LILJA MAGNÚSDÓTTIR + Lilja Magnúsdóttir fæddist þann 16. mam 1916 að Hatt- ardalskoti við Álftafjörð í Isa- fjarðardjúpi. Hún lést á sjúkra- húsinu á Egilsstöðum þann 7. júní sl. Útför Lilju fór fram frá Egilsstaðakirkju fimmtudaginn 29. júní sl. ÞÚ BJÓST til bestu parta og skúff- utertur sem ég hef smakkað. Að vera sjö ára og mega borða eins mikið af skúffuköku með þykku kremi og maður vill í kvöldkaffínu er mikil sæla. Að vera sjö ára í heimavist viku og viku í senn var ekki alltaf sæla, þá var nú gott að geta leitað til þín, skælt svolítið, fá mola í munninn og heimurinn varð strax mun skárri á eftir. Þú eldaðir ofan í margan Jökul- dælinginn sem ráðskona í Skjöld- ólfsstaðaskóla og þeir muna örugg- lega líka eftir fyrrnefndum pörtum og kökum. Svo 11 árum seinna varð ég svo heppin að fá að kynn- ast þér betur þegar ég bjó hjá þér á Furuvöllunum. Þá vorum við Begga, sem einnig bjó hjá þér, á villta aldrinum. Margt var brallað og rassakastast út um hvippinn og hvappinn, en aldrei komu ræður um „ungdóminn nú til dags“ sem heyr- ast nú svo oft hjá eldra fólki. Frek- ar gerðir þú grín að okkur og ef við vorum afspymu guggnar þá heyrðist frá þér: „Horfast í augu grámyglur tvær.“ Þér var ekkert um illgjarnt slúð- ur, og fordómalaus varstu, en það var nú ekki ónýtt að heyra smellna sögu til að létta lundina. Þú varst alltaf óþrjótandi brunnur af stökum og ljóðum sem maður heyrði daginn út og inn, ég fékk alltaf Hörpuljóð annað slagið, en þá fannst manni lífið svo ungt að ekki var það Ijóð skrifað niður. Stundum sátum við í stofunni í Furuvöllunum og þú sagðir okkur frá skondnum mannlífssögum úr Jökuldalnum fyrr á árum. Eða ég settist í sófann við hliðina á stólnum þínum og suðaði: „Æi Lilja, segðu mér einhverja sögu af Þorvaldi afa.“ Þegar ég horfi til baka þá man ég aldrei eftir að þú haftr talað um veikindi þín, samt varstu oft slæm af gigt og öðrum fylgikvillum ár- anna en óskaplega gátu læknar farið í taugamar á þér þegar talað var niður til þín eins og barns: „Jæja vina mín, hvernig líður þér í hend- inni þinni.“ Það er svo alltof oft að þegar fólk eldist að komið er fram við það eins og börn, það er til óþurftar og mjög niðurlægjandi, það á að koma fram við eldri borg- ara af virðingu. Þú varst alltaf að sauma út og það var slæmt að þú skyldir ekki lofa hugarfluginu að njóta sín miklu fyrr. í dag liggja eftir þig ótal myndir, þar af nokkrar risastórar, fmmsamdar, þannig að minningin lifir. Oft rákust skoðanir okkar á, í sambandi við trúna, ég svona trú- laus en þú með þína trú. Þá tíndi ég allt til sem trúnni var til foráttu og þú komst alltaf með mótrök sem erfitt var að blása á. Þannig að komi andinn einhvern tíma yfir mig, þá vona ég að það verði svona fordómalaus trú sem þín sem engan særir, meiðir eða treður öðmm um tær. Svo er því farið, sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna, þeir eru himnamir honum yfir. (Hannes Pétursson) Lilja mín, ég þakka þér sam- fylgdina. Harpa Dögg Benediktsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd grcina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega linulengd — eða 3600-4000 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Blómastofa fnðfinns ■ Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar viö öil tilefni. Gjafavörur. m t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför, MAGNEU INGIBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR. Margrét Magnúsdóttir, Magnús Guðnason, Sigurður Magnússon, Anna Daníelsdóttir, Þorsteinn Magnússon, Ragnar Þór Magnússon, Signý Gunnarsdóttir, Asta Karen Magnúsdóttir, Hrafnkell Gislason, barnabörn og barnabarnabörn. ^andaðír legsteinar lVaranleg minning BAUTASTEINN Brautarholti 3,105. R J Sími 91-621393 ÞÓRÐUR KRISTJÁNSSON + Þórður Krist- jánsson fæddist á Bíldudal 12. októ- ber 1919. Hann lést á Vífilsstöðum 17. júni síðastliðinn. Foreldrar hans voru Kristján Sig- urður Magnússon, skipstjóri, Bíldudal, og Guðmundina Árnadóttir. Þórður kvæntist Þóru Sæ- mundsdóttur _ 12. júní 1948. Útför Þórðar var gerð frá Fossvogskirkju 27. júní sl. EKKI er allt hægt að segja í svona stuttri minningargrein sem þessari. En þetta vildi ég sagt hafa. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Faðir minn, Þórður Kristjánson, sem þeir sem þekktu til kölluðu Dodda, lést eftir löng og erfið veikindi. Veikindin fannst mér hann alltaf bera með karlmennsku. Tel ég það hafa hjálpað honum mikið hversu vongóður hann var um að ná bata þó að hann vissi að annað gæti orðið. Einnig veit ég, því það sagði hann mér sjálfur, að hann átti trú á frelsara okkar Jesúm Krist. Þar sem hann vissi að ég á einnig slíka trú þá sagði hann mér oft til uppörvunar að hann bæði fyrir sér og sínum. Þegar allt annað bregst þá er bænin hendi næst. Eg var staddur erlendis þegar sú frétt barst til mín að faðir minn væri látinn. Einhvern veginn þegar maður er búinn að vera svona lengi í burtu byrjar maður að sjá margt öðruvísi. Það sem maður á sínum yngri árum oft taldi sjálf- sagt, og þar af leiðandi vanmat, er í dag þakk- arvert. í dag þekki ég betur af eigin reynslu að lífið og brauðstritið er ekki alltaf auðvelt, svo að núna er ég föð- ur mínum afar þakk- látur fyrir það sem hann lagði af mörkum. Þig, elsku pabbi minn, vil ég að lokum kveðja með þeim sálmi sem ég veit að þér var svo kær. Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré. í öllum sálmum sínum hinn seki beygir kné. Ég villtist oft af vegi. Ég vakti oft og bað. Nú hallar helgum degi á Hausaskeljastað, í gegnum móðu og mistur ég mikil undur sé. Ég sé þig koma, Kristur, með krossins þunga tré. Af enni daggir dijúpa og dýrð úr augum skín. A klettinn vil ég kijúpa og kyssa sporin þín. (D. Stefánsson frá Fagraskógi.) Ami Þór Þórðarson. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HARÐAR H. BJARNASONAR fyrrv. simstöðvarstjóra, Holtsbúð 27, Garðabæ. Bryndís Bjarnason, Camilla Bjarnason, Garðar Sverrisson, Pétur Bjarnason, Herdís Gunnlaugsdóttir, Elísabet Bjarnason, Ingi B. Guðmundsson, Bryndís Bjarnason, Þórður J. Skúlason, Hildur Bjarnason, Jean Posocco, Hörður Bjarnason, Kristín Pálsdóttir og afabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, MATTHÍASAR GUÐMUNDSSONAR vélsmiðs, Þingeyri. Sérstakar þakkirtil lækna og hjúkrunar- fólks Landakotsspítala. Camilla Sigmundsdóttir, Jónas Matthíasson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Gerður Matthíasdóttir, Ólafur Bjarnason, Guðmundur Jón Matthiasson, Margrét Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúðarþakkir fyrir veitta samúð og hlý- hug við andlát og útför ástríkrar eigin- konu minnar, móður, fósturmóður og ömmu, SIGRÍÐAR (Dollu) SIGURÐARDÓTTUR, Espigerði 4. Friðrik L. Guðmundsson, Þórarinn Baldvinsson, Margreth Baldvinsson, Friðrik Óðinn Þórarinsson, Guðbjörg Friðriksdóttir, Gylfi Friðriksson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.