Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ1995 25 mætt með því að bjóða greiðslukjör sem ekki hafa þekkst áður. Lán- tökukostnaður í þessum viðskipt- um, sem í eina tíð var nefnt vextir eru yfírleitt um 14-20% eftir láns- tíma og þegar allt er talið. Af þess- um sökum munu nú stórir hópar fólks festast í neti vaxtaokurs og þar að auki með gagnslausar vörur. Á meðan verður ríkissjóður af verulegum fjárhæðum vegna hinnar sósíalísku öfundarhyggju sem ræð- ur ferðinni á þessu sviði eins og mörgum öðrum. Hið hlálega við ástandið er að vegna okurs á að- flutningsgjöldum er það einmitt á færi sárafárra efnaðra einstaklinga eða fyrirtækja að kaupa bifreiðar af stærri eða dýrari gerðum. Þetta er klassískur sósíalismi í fram- kvæmd. En vaxandi íjöldi fólks hafnar því alfarið að láta ríkisstofn- anir stýra neyslu sinni í eina eða aðra átt. Ekki er nóg að segja að allir innflytjendur sitji við sama borð þrátt fyrir EES samninginn. Það er ekki aðalatriðið. Þetta málefni neyslustýringar og skattagleði snýst eins og allt á landi hér, um pólitísk prinsip. Sósíalistar á íslandi hafa frá upphafí alið á öfundarhyggju og ríg milli almenn- ings og þeirra fáu sem hafa skarað fram úr í atvinnulífí þjóðarinnar. Arðsemi af atvinnurekstri hefur verið bannfærð og talin heimil til upptöku í nafni félagslegs réttlætis. Þessi áróður leiðir svo til þess nú er rofar til í efnahagsmálum okkar að fáir forkólfar fínnast í atvinnulíf- inu sem hafa getu eða áhuga á að leggja fjármuni undir til að efla atvinnulíf og lífskjör. Hver á þá að hlaupa í skarðið? Ríkið? Öll loforð ríkisins um styrki til atvinnulífs eru ekki annað en ávísanir á hærri skatta. Menn skulu minnast þess að nánast öll afskipti ríkisins af kjarasamningum á undanfömum árum hafa leitt til aukinna skatta á bifreiðar. Hinn valkosturinn sem ríkið á er að lækka skatta og frelsa þannig fé sem atvinnulífíð og ein- staklingar geta notað til að auka umfang efnahagslífsins. Það leiðir til aukinna tekna fyrir ríkissjóð. Hér skortir áhættufé í því magni á frjálsum markaði er dygði til að við gætum varanlega fleytt okkur yfír hin efnahagslegu vatnaskil er nú blasa við okkur. Nokkur fijáls fjármagnsmarkaður er að komast á legg, vonum seinna og þá með þeim undrum að almenningur getur nú komið í fjármagnsfyrirtækin og keypt sér hlutabréf með rað- greiðsluskilmálum á kreditkortum sínum. Því er þetta dæmi tekið hér ásamt dæminu um innflutninginn frá Austur-Evrópu, að sú krafa á fullan rétt á sér að ef opinberir aðilar ætla að hlutast til um mjög óljós og umdeild þjóðfélagsmál með þeim hætti er verið hefur, þá verða þeir að vera sjálfum sér samkvæmir. Staðan er nefnilega sú að ekki sitja allir við sama borð. Þeir sem harð- ast verða fyrir barðinu á neyslu- stjóm ríkisins eru þeir þjóðfélags- hópar sem vegna búsetu, fjölskyldu- stærðar eða annarra hluta þurfa að nota stærri eða dýrari tæki en aðrir. Þetta fólk verður að ósekju fyrir barðinu á sósíalískri öfundar- hyggju og öðru sem telja má full- komlega óeðlilega og ástæðulausa tilhlutun um einkamál. Af hverju er t.d. stórum fjölskyldum gert ómögulegt að aka í stærri og traust- ari bílum? Öryggi þeirra er löngu þekkt. Þeir sem efast um sannleiks- gildi þessa ættu að gera sér ferð í tjónadeildir tryggingafélaganna. Þar fengju þeir að kynnast hinni alvarlegustu afleiðingu ríkisaf- skipta af tollamálum. Um gagnsemi hátollastefnu Varðandi auðvaldið sem stöðugt er reynt að beisla með háum tollum og sköttum er það að segja að lúxus nema skriffmnsku og kostnaði til ríkisins. Þess vegna var t.d. lúxus- skattur sem tekinn var upp í Banda- ríkjunum 1988 eða 89 lagður niður skömmu síðar. Sá skattur nam tíu prósentum. Okkar embættismenn hefðu naumast nennt að beygja sig eftir þeim smámunum. Hann var sniðinn að kaupendum skemmtibáta eða lystisnekkja. Einnig tók þessi skattur til bifreiða sem kostuðu meira en 30.000 dollara á útsölu- verði. Afleiðingar þessa skatts voru þær að tugþúsundir manna misstu atvinnuna og tekjur ríkissjóðs Bandaríkjanna lækkuðu um nokkra milljarða dollara. Grónar iðngreinar lágu eftir í rúst og mörg evrópsk fyrirtæki sem reynt höfðu að hasla sér völl á bandarískum markaði urðu að leggja upp laupana. " Sú ósk er sett fram hér að hætt verði að hringla með þessi mál og tekin upp stefna sem byggir á skyn- semi og sanngimi. Sú breyting sem samþykkt var á Alþingi nú í vor til breytinga á reglum um vömgjald gengur ekki nógu langt í frelsisátt. í stað núverandi fyrirkomulags verði eitt gjald innheimt af öllum bifreiðum, án tillits til búnaðar eða vélarstærðar. Fjármálaráðherra í fyrri ríkisstjóm hafði áhyggjur af því að flóðbylgjan frá 1986 verði endurtekin. Vemleg breyting á markaðinum er óhjákvæmileg þar til hann kemst í jafnvægi. Innflytj- endur verða einfaldlega að kunna sér hóf og taka ábyrgð á eigin breytni. Það vandamál er ekki á verksviði ríkisvaldsins. Afskipti rík- isins hafa aðeins orðið til að fresta hagkvæmni, valfrelsi og jafnvægi á þessum markaði. Um mengunina Að lokum skal hér vikið að þeirri röksemd starfsmanns fjármála- ráðuneytisins að þeir flokkar bif- reiða sem lendi í hæstu gjaldaflokk- unum mengi meira en aðrir. Það var til skamms tíma stað- reynd að hvarfakútar og annar hreinsibúnaður var eingöngu fáan- legur í bifreiðum sem framleiddar voru í Bandaríkjunum. Að stærri bifreiðar mengi meira en litlar er einföldun á mjög flóknu efnafræði- legu ferli. Sjálfsagt er hægt að sýna fram á hið gagnstæða með einföld- um útreikningum. Inn í það bland- ast skoðun á hámarksnýtingu elds- neytis. Vitað er að hún er mjög lág í bifreiðum sem eru vélarvana. Það er ein afleiðing reglnanna eins og þær standa í dag. Staðreyndin um beitingu reglna um hreinsibúnað i bílum er sú að Evrópuríkin nota þær til að koma í veg fyrir innflutning frá Banda- ríkjunum. Sérstaklega á notuðum bílum. Reglumar vom samdar vestra og Evrópumenn tóku þær upp með hálfgerðum ærslum til að leysa af hólmi verndartolla sem mjög hafa verið gagnrýndir, m.a. í nýyfirstöðnum GATT tollaviðræð- um. Á íslandi var þetta framkvæmt þannig að Bifreiðaskoðun íslands var fengið það verkefni að meina mönnum um nýskráningu á bifreið- um sem ekki standast afturvirkar reglur um útblástursmengun. Reglumar sem hér em notaðar em byggðar á bandarískri viðbótar- reglugerð (amendment) við meng- unarlögin frá 1970 (U.S. Clean Air Act 1970). Sú reglugerð tók gildi 1. mars 1987 (U.S. EPA 87/88). íslenska reglugerðin (495-1991) sem byggir á þeirri bandarísku tók gildi 1. júlí 1992 og náði til allra bifreiða sem hér komu til nýskrán- ingar. Framkvæmd hennar var þannig í reynd að maður sem flutti til landsins bifreið af 1986 árgerð eða eldri var meinað að skrá hana eða aka hér á landi. Nú hefur þessi regla verið sveigð að sérhagsmun- um enn frekar en áður var. Eins og áður segir em reglumar aftur- virkar í reynd. Er það ekki brot á meginreglum íslenskra laga? Full ástæða er til að láta hnekkja þessari reglugerð með dómi. Hinn raunverulegi tilgangur hennar er að koma í veg fyrir að einstakling- ar eða fyrirtæki sem standa utan „greinarinnar" geti staðið í bifreiða- innflutningi á eigin vegum og spar- að sér fé með þeim hætti. Nýlega var svo aukið við þessa rangleitni. Sennilega fyrir þrýsting frá ESB löndum eða hagsmunaaðilum inn- anlands. Með reglugerð nr. 411 frá 1993 eru notaðar bifreiðar frá ESB löndum nú undanskildar fyrri reglu- gerð um útblástursmengun, en bif- reiðar frá Bandaríkjunum eða Jap- an ekki. Þetta staðfestir enn frekar óhæfí opinberra afskipta af þessum málum. Nú er semsagt hægt að flytja til landsins 1986 eða eldri árgerð af bifreið skráðri innan ESB, án þess að þurfa að sýna fram á að hún standist mengu»arreglum- ar, en ekki ef hún kemur frá Banda- ríkjunum, Kanada eða væntanlega Japan. Bifreiðaumboðin verða fyrir sitt leyti einfaldlega að standast sam- keppni og láta af þeirri aðferð að láta ríkisvaldið smala viðskiptavin- unum inn í hús þeirra með lagasetn- ingu. Getum má leiða að því að embættismenn hafí ekki gert sér grein fyrir réttarfarslegum afleið- ingum gildistöku þessara reglu- gerða. Bandarílqamenn beita mjög ströngum reglum um innflutning sjálfír, en þar era þó seldar nokkrar milljónir innfluttra bíla á ári hveiju. Þar er reglan sú að bifreiðar stand- ist mælingu eftir þeim kröfum sem giltu á framleiðsludegi. Setning reglugerðar 411-1993 staðfestir að tilgangurinn var aldrei umhverf- isvemd, heldur hagsmunagæsla. Praktísk afleiðing þessa er hrein skerðing á verslunarfrelsi og sjálfsákvörðunarrétti. Umhverfisvernd á villigötum Verslunarfrelsi og stjómarskrár- vemduð mannréttindi era hér þrengd í nafni fyrirbæris sem á prenti hefur verið kallað umhverf- isfasismi. Umhverfisfasismi er rétt- nefni vegna þess að um allan hinn vestræna heim hafa bókstafstrúar- menn tekið umhverfísmálin og kæft alla skynsamlega umræðu um þau með pólitískri baráttu gegn iðnaði og stóratvinnurekstri. Velviljaðir stjórnmálamenn ganga í góðri trú undir þessu og öðra ranglæti með fyrirhyggjulausu framsali á framkvæmdavaldinu til embættismannakerfís, stofnana og ráða. Á því stigi er allt sigtað og vigtað í nafni hins kunnuglega slag- orðs sósíalista og annars forræðis- hyggjufólks að allir verði að vera jafnir. Tjónið sem þessar kreddur hafa fært okkur verður seint bætt, en hægt er að snúa á rétta leið. Ef menn hafa pólitískan kjark, er hægt að bæta kjör almennings og auka tekjur ríkissjóðs samtímis. Haftastefnan ásamt undanþágu- skóginum sem nú er verið að inn- leiða að nýju tilheyrir liðnum tíma. Breytingar á vörugjaldi og tollum Um einstök efnisatriði þessa er- indis má ræða á öðrum vettvangi, en þar sem tilefnið er opinber um- ræða að undanförnu um tollamál í bifreiðainnflutningi og stefnu okkar í þeim málum er rétt að setja fram kröfur um breytingar. 1. Alþingi setji traustan laga- ramma um þennan málaflokk. Hann skal sníða þröngan stakk valdi embættismanna eða ráðherra til að hringla með tollamál með setningu reglugerða eða með öðram tilhæfulausum breytingum á mark- aði sem með réttu á að vera fijáls og án ríkisafskipta. 2. Lögum nr. 29 / 1993 verði breytt þannig að ein flöt prósenta sé notuð fyrir allar bifreiðar sem fluttar era til landsins til einkanota. Tollur falli niður eða sameinist vörugjaldi þannig að nemi 30% af CIF-verði án tillits til vélarstærðar eða annars útbúnaðar. Afsláttur af aðflutningsgjöldum notaðra bif- reiða verði óbreyttur. 3. Reglugerðum 495 / 1991 og 411 / 1993 verði breytt þannig að útblástursmengun sé mæld eftir þeim reglum sem giltu á fram- leiðsludegi ökutækis. 4. Aðflutningsgjöld af atvinnu- bifreiðum og vinnuvélum verði lækkuð eða felld niður. Sé stjórn- málamönnum alvara með að stuðla að bættu atvinnuástandi og lífs- kjörum í landinu gefst þar tæki- færi til. Höfundur er rekstrarhagfræðingur. OPIÐ HliS í dag frá kl. 14-16 Skemmtilegt endaraðhús ... ... á tveimur hæðum ásamt innb. bílsk. alls 197 fm. Eignin er næstum fullb. Parket og flísar. Beykikiædd loft m. innfelldrí lýsingu o.fl. Gervihnattadiskur. Áhv. 6,1 millj. Verð 13 millj. Sveinbjörn og Hansína taka vel á móti ykkur. Grasarimi 14 f—““■ Þingholtin Til sölu mjög glæsileg „Pentho- use“-íbúð í húsi sem byggt var 1991. Hér er um óvenjulega og skemmtilega íbúð að ræð sem skiptist í stórt eldhús með þvottaherbergi innaf, borð- stofu, stóra stofu, 2 svefnh. og baðherb. Innréttingar eru allar í sérfl. Stórar svalir. Bílskúr. Áhv. byggsjóður 4,4 millj. Verð 12,7 millj. 3411. Hrafnhólar - 3ja herb. Virkilega góð endaíb. á 1. hæð í nýviðg. húsi. Parket. Austursval- ir. Laus strax. Verð 6.250 þús. Miðbraut - parhús Rúmgott ca 113 fm parhús á einni hæð á góðum og skjól- sælum stað á Seltjarnarnesi. Húsið er 17 ára gamalt og sér- staklega vel umgengið. Snyrti- legur garður. Stórar stofur. Verð 9,5 millj. 212. Víkurás - Selás Mjög góð 2ja herb. rúmg. íb. á 3. hæð (2. hæð. Góðar innr. Hús og lóð í góðu standi. Verð 5,3 millj. 1117. f ÁSBYRGI if Suðurlandsbraut 54 viA Faxafen, 108 Raykjavik. sími 568-2444, fox: 568-2446. INGILEIFUR EINARSSON, lögglltur fasteignasali. SÖLUMENN: Þórður Ingvarsson og Lárus Hauksson. J LOGMENN Ingi H. Sigurðsson, hdl. Ólafur Rafnsson, hdl. Gunnar Ólafsson, lögg. fast. HAFNARFIRÐI Alhliða lögfræðiþjónusta - Sala fasteigna Hringbraut 63 - Hafnarf. Neðri hæð og hluti af jarðhæð, ca 186 fm í þessu reisulega húsi, ásamt bílsk. Ekkert áhv. Eign með mikla mögul. Skipti á minni eign í Hf. Ásett verð 10,8 millj. Efstaieiti - Keflavík Parhús í smíðum, ca 105 fm. Innb. bílsk. ca 33 fm. Afhendist fullbúið (án gólfefna) 1. sept. 1995. Skipti á minni eign koma til greina. Sveigjanleg kjör. Ásett. verð 10,5 millj. H 3ja herb. íbúð, ca 90 fm, ný yfir- farinn. Stórar svalir - lyfta. Laus nú þegar. Góð kjör. Engihjalli 5E - Kópav. Heiðarból - Keflavík Sérl. vandað og glæsil. einbhús, ca 151 fm. Bílsk. 40 fm. Maka- skipti á minni eign á Suðurnesjum eða á höfuðborgarsvæðinu koma til greina. Ásett verð 13,7 millj. Parhús, ca 141 fm, m. bílsk. ca 40 fm. 6 herb. Upplagt að bæta við sólstofu til suðurs. Góð eign. Sjón er sögu ríkari. Byggðarendi 1 - Rvík Stórglæsil. og vandað einbhús, ca 317 fm. Gott útsýni. 5 herb. á efri hæð. Arinn í stofu. Hægt að hafa 2ja herb. íbúð á neðri hæð. Innb. bílsk. Ekkert áhv. Gott verð 18,5 millj. Sumarbústaður í landi Snorrastaða Tilboð óskast í þennan vandaða sumarbústað, ca 50,5 fm. Eignar- lóð 3.300 fm. Stendur í hlíð í nágrenni við Laugarvatn. Glæsil. útsýni. Smiðshús á Hvalsnesi í Miðneshreppi Upplagt hús sem sumarbústaöur. gott ástand. Eignarland. Grunn- flötur húss ca 64 fm. íbúð uppi, geymsla niðri. Stendur við sjávar- síðuna, nærri Hvalsneskirkju. Lítið áhv. Tilboð óskast. Viljir þú kaupa eign eða selja eign, þá erum við til þjónustu reiðubúnir. Nánari upplýsingar: Gunnar Ólafsson í síma 565 5155.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.