Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Grant í Englandi ► HUGH Grant, sem hand- tekinn var í Los Angeles síð- astliðinn miðvikudag fyrir að borga fyrir þjónustu vændis- konu, hélt til Englands í gær. Hann er því kominn aftur til unnustu sinnar, Elísabetar Hurley, sem lýst hefur yfir stuðningi sínum við hann. Dyravörður á hóteli í New York hafði reyndar séð hjartaknúsarann síðastliðinn fimmtudag. Hann hafi verið í eðalvagni með farangur í far- teskinu. Engum sögum fer af endurfundum parsins þokka- fulla, enda vafalaust fáir til EKKI er öllum svip eins að trúa. frásagnar. Novell hittir Hanks GEIMFARINN fyrrverandi, Jim Novell, er ánægður með að Tom Hanks skuli túlka persónu hans í Apollo 13, sem frumsýnd var síðastliðinn föstudag í Bandaríkjunum. Hann segir að misheppnuð för Apollo 13 til tunglsins fái loks verðskuldaða athygli, en stjórnendur NASA hafi alla tið reynt að gera sem minnst úr henni. „Margir eru á því að þetta hafi verið sigurför fyrir alla sem að henni stóðu, hvað varðar hug- vitssemi, samvinnu og ákveðni," segir þessi 67 ára fyrrverandi geimfari. Hann hitti Hanks í frumsýningarhófi myndarinnar. AUSTURLENSK TEPPI OG SKRAUTMUNIR Hringbraut 121, sími 552 3690 Raðgreiðslur til 36 mán. KafíiLeikiiusit Vesturgötu 3 I HI.ADVAHPANUM Herbergi Veroniku í kvöld kl. 21, fim 6/7 kl. 21 MiSi m/matkr. 2.000 Matargestir mæti kl. 19:30 Jónas Árnason og Keltar mán 3/7 kl. 21 MiSaverSkr. 1.000 Eg kem frá öðrum löndum..., þn 4/7 kl 19:30 fös 7/7 kl. 19:3oS MiSim/matkr. 1.500 1 Salka Valka; sfage reading at 16:00, sat. & sun. gj Eldhúsið og barinn opin fyrir & eftir sýningu ■ Miðasala allan sólarhringinn i síma 551-9055 Svarthöfða- gríma á markað ► AÐDÁENDUR Stjörnustríðs- myndanna hafa fengið eitthvað við sitt hæfi. Nýlega kom á mark- að í Bretlandi nákvæm eftirlíking grímu illmennisins Svarthöfða, sem Logi geimgengill háði harða rimmu við. Gríman er í tveimur hlutum, svo hún umlykur algjör- lega höfuð þess sem ber hana. Verðið á þessari nýjung er frekar í hátt, eða um 5.000 kr. í Bretlandi. BORGARLEIKHUSIÐ sím. 568-800G r LEIKFÉLAG REYKJAVfKUR Rokkóperan: Jesús Kristur SÚPERSTAR eftir Tim Rice og Andrew Loyd Webber. Frumsýning föstudaginn 14. júii, örfá sæti laus. Sýning laugardaginn 15. júlí, sunnudaginn 16. júlí. Miðasala hafin. Miðasalan verður opin frá kl. 15-20 alla daga og einnig tekið á móti miðapöntun- um í sima 568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga. Faxnúmer er 568-0383. ii'i'i'iili'n'iliri'í Morgunblaðið/Þorkell Beðið eftir Frejrju Á LANDNÁMSSÝNINGUNNI í Hafnarfirði, sem stendur til 9. júlí, stunda erlendir gestir nú list sína af miklu kappi. Dani er að gera Bautarstein fýrir Fjörukránna og þýsk hjón skera út goðalíkneski og vefa teppi að hætti víkinganna. Dönsk fyndni meitluð í stein Magnus Krogh Andersen er danskur myndhöggvari. Hann er nú í óða önn að festa myndir á granít- stein eftir teikningum Hauks Hall- dórsonar myndlistarmanns. Anders- en er þekktur listamaður í heima- landi sínu en hefur ekki unnið verk um víkinga áður. Hann segist hafa byrjað steininum heima hjá sér og ætlar að ljúka honum hér. Hvern dag frá tvö eftir hádegi til sjö á kvöldin glímir hann við steininn með hamar og meitil að vopni í umferð- arnið Strandgötunnar. Steinninn á að vera minnisvarði um víkingana. Steinninn stendur við sýningarsal- inn Portið en Andersen sýnir nokkur verk sín þar, meðal annars steinrólu. Rólan segir margt um listamanninn sjálfan. Það má snerta hana og róla í henni. Fyndni hans birtist í því að karlmenn eiga setjast í róluna öðru megin og kvenfólk hinumegin. Tákn opinbera kynjunum hvoru megin rétt er róla. Lifa og hrærast á öldum víkinganna Þýsku hjónin Dieter og Andrea Scholz eru gagntekin af lifnaðar- háttum víkinganna sem ferðuðust um á 9.-11. öld til að ræna, versla og nema land. Heimili þeirra í Þýska- landi er líkt víkingasafni, meira að sega hjónarúmið er smíðað í stíl við rekkjur víkinganna. Það er nú til sýnis fyrir almenning í Portinu. Diet- er og Andrea fluttu sérsmíðaða og útskoma innanstokksmuni úr húsi sínu til Hafnafjarðar til sýningar. Dieter og Andrea iðka list sína á Landnámssýningunni. Dieter hefur lokið við að skera út stóra tréstyttu af Frey, guði frjósemi og ástar. Út- skurðarmaðurinn mun nú hefjast handa við Freyju systur hans. Andrea sérhæfir sig í vinnubrögð- um kynsystra sinna á víkingaöldun- um. Hún vefur, spinnur og þæfir og fræðir áhugasama um störf víkinga- kvenna. Andrea Scholz segir að þau Dieter fari stundum í skólaheimsóknir og fræði börnin um hætti og hugsun víkinganna og haldi námskeið til dæmis á Norðurlöndunum og í og Þýskandi, Hollandi, Belgíu. Hún tel- ur að það sé hollt að öðlast þekkingu á lifnaðarháttum víkinganna. Þeim fylgi sterkur og uppbyggjandi andi. Andrea og Dieter fara í slóð vík- inganna og kenna víkingafræðin í löndum sem þeir sóttu forðum. Þau eru ennfremur að undirbúa víkinga- ferðalag sem verður að öllu leyti í fornum stíl. ANDREA Scholz kembir ull. ; i DIETER Scholz lýkur við Frey, Brosandi Brooke ► LEIKKONAN Brooke Shields sýnir ljósniyndurum hring nokk- urn sem unnusti hennar, tennis- leikarinn Andre Agassi, gaf henni. Á myndinni er hún á leið- inni frá Wimbledon- tennisleik- vanginum, en Agassi hafði fyrr um daginn borið sigurorð af Pat McEnroe, yngri bróður hins skapmikla Johns McEnroe.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.