Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Sumartónleikaröð Hallgrímskirkju að hefjast í þriðja sinn ORGELLEIKARARNIR sem leika á tónleikunum í kvöld. Morgunbiaðið/Þorkeii ORGELTÓNLEIKARÖÐIN Sum- arkvöld við orgelið hefst þessa helgi í Hallgrímskirkju. Þetta er þriðja sumarið í röð sem Hall- grímskirkja og Listvinafélag Hallgrímskirkju efna til sumar- tónleika. Á sunnudagskvöldum í júlí og ágúst eru haldnir orgel- tónleikar og hefjast þeir kl. 20.30. Aðgangseyrir er 800 kr. en 500 kr. fyrir lífeyrisþega, námsmenn og félaga Listvinafé- lags Hallgrímskirkju. Þá er líka leikin orgeltónlist í hádeginu á fimmtudögum og laugardögum og er aðgangur þá ókeypis. Um er að ræða sjö orgeltón- leika, eina tónleika með trompet- um og orgeli, eina kórtónleika og 17 sinnum verður orgelleikur í hádeginu. Þá verða einir auka- tónleikar þriðjudaginn 4. júlí, þar sem danski kórinn Vokalerne syngur undir stjórn Mogens Hel- mer Petersen. Á tónleikunum koma fram 7 orgelleikarar, 6 orgelnemendur og tveir trompetleikarar auk kóranna. Efnisskrá tónleikanna er nyög fjölbreytt en mest ber þar á verk- um tónskálda 19. aldarinnar, vel þekktum tónskáldum orgeltón- listar eins og Guilmant, Widor, Vierne og Reger. Auk þess verð- ur boðið upp á tónverk sem sjald- an eða aldrei hafa heyrst hér á íslandi eftir Schoenberg, Nielsen „Sumar- kvöld við orgelið“ og Lubrich . Af verkum tón- skálda 20. aldar má nefna Um- myndun Krists eftir franska tón- skáldið Edouard Andres og Dauðadans Hamborgar og Potsd- am, forleikur eftir þá Guy Bovet og Barry Ferguson Um verslunarmannahelgina verður brugðið út af hefðinni því þá syngur Madrígalakór Heidel- bergs í Þýskalandi. Með kórnum syngur Margrét Bóasdóttir sópr- an einsöng. Um síðustu tónleikana, 27. ágúst, má segja að þeir séu hefð- bundnir að því leyti að þar leiða saman hesta sína í þriðja sinn trompetleikaramir Ásgeir Her- mann Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson og Hörður Áskels- son organisti Hallgrimskirkju og ljúka þriðju tónleikaröðinni „Sumarkvöld við orgelið“. Couperin á fyrstu sumartónleikunum Fyrstu tónleikar tónleikarað- arinnar verða sunnudaginn 2. júlí kl. 20.30. Þar leika orgelnem- endur Harðar Áskelssonar, org- anista Hallgrímskirkju, og skipta með sér 21 þætti í stórri orgel- messu eftir franska tónskáldið Francois Couperin. Það em þau Bjarni Þór Jóna- tansson, Douglas A. Brotchie, Guðjón Halldór Óskarsson, Guð- mundur Sigurðsson, Hrönn Helgadóttir og Jóhann Bjarna- son sem Ieika, en i mars tóku þau þátt í námskeiði sem þýski orgel- leikarinn Hans-Dieter Möjler hélt í samvinnu við Hörð Áskels- son, kennara þeirra, þar sem þetta verk var aðalviðfangsefnið. Couperin var aðeins 21 árs þegar hann hafði lokið við orgel- messurnar tvær en þær voru gefnar út árið 1690. Verkið er skrifað í vixlsöngsstíl þar sem orgelið yfirtekur hlutverk safn- aðar og spilar hugleiðingar um messutextann á móti þeim vers- um sem presturinn syngur. Næstu tónleikar Kammerkórinn „Vocalerne" syngur þriðjudaginn 4. júlí kl. 20.30. Fimmtudaginn 6. júlí og laugardaginn 8. júlí verða hádeg- istónleikar og sunnudaginn 9. júlí leikur Lothar Knappe verk eftir ýmsa höfunda kl. 20.30. Guðrún sýnir í Osló SÝNING á verkum Guðrúnar Gunnarsdóttur myndlistar- manns stendur þessa dagana yfir í sýningarsal norskra textíllistamanna á Konungs- gaten 2 í Osló. Á sýningunni eru ofín vegg- teppi og vírskúlptúrar. Sýning- in er haldin í boði norskra text- íllistamanna í tilefni norræna myndlistarársins 1995. Þetta er ellefta einkasýning Guðrúnar, en hún hefur auk þess tekið þátt í fjölda samsýn- inga á íslandi og erlendis. Guðrún á einnig fimm ofin veggteppi á sjöunda norræna textílþríæringnum, en sú sýn- ing er sett upp á öllum Norður- löndunum og er um þessar mundir í Liljevalchs Konsthall í Stokkhólmi. Sýningin stendur til 9. júlí. FRÁ opnuninni í Osló. F fyrir félagsheimili, samkomu staði, hótel eða hvar sem er. <Uen& húsgögn Ármúla 44, Reykjavík, sími 553 2035, Til afgreiðslu strax. Nýjar geisla- plötur • HUÓMPLÖTUÚTGÁFAN Fimmund sf. hefur gefið út geislaplötuna Römm er sú taug með hljómsveitinni Is- landicu. Hljómsveitina skipa; Gísli Helgason, Guðmundur Bene- diktsson, Herdís Hallvarðs- dóttir og Ingi Gunnar Jó- hannsson. Auk þess koma fleiri hljóðfæraleikarar við sögu. Þetta er annar geisla- diskur hljómsveitarinnar, en sá fyrri Rammíslensk kom út árið 1990 og hefur verið settur á alþjóðamarkað. Á nýja geisladiskinum eru alls 20 lög og spanna þau og textamir tímabilið frá 10. öld og allt fram á þennan dag. Lögin eru þekkt alþýðu- og þjóðlög. Einnig er að fínna lög eftir Pál Ísólfsson, Áma Thor- steinsson, Emil Thoroddsen,_ Magnús Eiríksson og fleiri. Ljóðskáldin á plötunni eru til dæmis Egill Skalla-Grímsson, Jónas Hallgrímsson, Páll Jónsson, Davíð Stefánsson og Hallgrímur Pétursson. Með diskinum fylgir bæklingur á þremur tungumálum. Nýjar bækur Dagar Þórarins ÚT ER komin ljóðabókin Dagar eftir Þórarin Guðmundsson. Áður á árinu kom út eftir sama höfund ljóðabókin Ljós og skuggar. í kynningu seg- ir: „Efni Dags er margvíslegt. Greina má næma tilfinningu fyrir litum og fegurð. í mörgum ljóðanna kemur fram að- dáun á sköpunar- verkinu hvort sem það birtist í persónum, blómum, list- um eða dægra- og árstíðaskiptum. Vegferð mannsins með áhyggjum sínum, gleði og hamingu eru gerð skil í ljóðunum. Tæpt er á samspili dulúðar og drauma.“ Höfundur gefur bókina út. Bókin er 88 bls. 62 Ijóð. Um prentun og frágang sá Offsetstofan á Akureyri. Káputeikningu gerði Gígja Þórarins- dóttir myndlistarkona. Bókin kostar 1.300 krónur. • INDÆLA Reykjavík — 6göngu- leiðir um Þingholtin og sunnanvert Skólavörðuholt eftir Guðjón Frið- riksson sagn- fræðing og rit- höfund er komin út. Þar er fjallað um sögu og mannlíf hverfís- ins, menningu, byggingarlist, gróður og garða. Þetta er leið- sögubók um gró- in hverfi höfuðborgarinnar, þar sem nánast hvert hús á sína sögu eða hefur sérkenni sem vert er að skoða. Mikill fjöldi mynda er í bókinni. í kynningu segir: „Hér er ítarlega lýst sex gönguleiðum um Þingholtin og Skólavörðuholtið og ber margt fyrir augu: Stórhýsi og skipstjóravill- ur, steinbæi og falin bakhýsi, torg og sund, gróskumikla garða, sér- -kennileg tré ... Saga húsagerðarlist- ar í hverfínu er rakin og athygli les- andans beint að margvíslcgum smá- atriðum og sérkennum í stíl þeirra húsa sem verða á vegi. Sagt er frá íbúum hverfísins fyrr og nú og koma þar margir við sögu, prestar og ösku- karlar, skáld og sjómenn, kaup- mannsekkjur og listakonur, kynlegir kvistir og stórbokkar. Rifjaðar eru upp frásagnir af litríku mannlífí og menningu fyrri ára. Sérstök áhersla er lögð á gróður og umhverfi og at- hygli vakin á fögrum görðurfi og merkilegum tijám, sem víða er að fir.na í hverfinu." Bókina prýða myndir af flestum húsanna sem þar er sagt frá og auka þær mjög gildi hennar sem leiðsögu- bókar. Myndii-nar tók Valdimar Sverrisson. Útgefandi er Bókaútgáfan Iðunn. Bókin er 161 bls. að stærð, prentuð íPrentbæhf. Verð 2.880 krónur. • ÚT er komin bókin „Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar“ eftir Þóru Guðmundsdóttur. Þóra er fædd á Seyðisfirði árið 1953. Hún hefur farið víða, en heimili hennar hefur alltaf staðið traustum fótum á Seyðisfírði, þar sem hún hefur jafnframt arki- tektastörfum rek- ið gistiheimili. Strax á unglingsárum kviknaði áhugi hennar á gömlu byggðinni á Seyðis- fírði og hefur hún verið baráttukona fyrir varðveislu hennar síðan. Á Seyðisfírði er að finna fjölbreytt safn gamalla húsa og ber þar mest á timburhúsum sem mörg hver voru flutt tilhöggvin frá Noregi. Síðustu ár hefur átt sér stað á Seyðisfirði umræða um húsavernd og áhugi fyr- ir því að varðveita eitthvað af gömlu byggðinni fer vaxandi meðal bæj- arbúa. Bókin ergefín út í tilefni af 100 ára afmæli bæjarins og útgefandi er Safnastofnun Austurlands og bæjar- sjóður Seyðisfjarðar. ísafoldarprent- smiðja sá um prentun ogFlatey hf. um bókband. Bókin er 464 bls.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.