Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 40
iO SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FJOLBREYTT MAIMIMLÍF Á POLLAMÓTI í EYJUM SESSELJA Berndsen „Amma Stjama" SESSELJA Berndsen fylgdi barna- barni sínu úr Stjörnunni en blaða- maður heyrði fyrst af henni þegar einn pollinn kallaði „Amma Stjarna." Það var ekki barnabarnið, heldur einhver annar Stjörnupolli en nafnið var fast við hana. Einn daginn bakaði hún pönnu- kökur í tæpa fimm tíma og hurfu þær allar jafnóðum í pollana. „Þessir strákar eru allir vinir mínir og ég er alsæl með þá. Ég er búinn að lofa að koma aftur,“ sagði Sesselja um drengina en þeg- ar hún var spurð um pönnuköku- baksturinn og smurðu brauðin sagði hún: „Æ, þetta var nú ekkert og tekur því ekki að minnast á þetta.“ Af gubbukeppni og frá- bærum þernum í Herjólfi LIÐ KA frá Akureyri lenti í talsverður hremmingum á leið sinni til Eyja. Akureyringar sendu bíl suður með matinn og mest af farangrin- um en ætluðu sjálfir að fljúga. En það vildi ekki betur til en svo að ófært var alla flugleiðina til Eyja og því urðu þeir að lenda í Reykja- vík. Þá var brugðið á það ráð að keyra til Þorlákshafnar og fara með Heijólfí. Skyndibitafæðið, sem fólkið fékk sér í Reykjavík virðist ekki hafa farið vel í mannskapinn og sjógangurinn ekki verið á bætandi, því af 37 manna hóp barna og fullorðinna, köstuðu aðeins sex ekki upp. En keppnisskapið var til staðar og þegar á Ieið fannst strákunum ekki nein frétt að einhver væri að „gubba“, svo að þeir fóru að met- ast hver hefði kastað mestu upp og hver oftast. Sigurvegari í þeirri keppni var þó ekki krýndur og óvíst hvort þetta verði oftar „keppnis- grein" á Pollamótinu í Eyjum enda útgangurinn á keppendum frekar óyndislegur. Þernurnar í Heijólfi er alvanar og björguðu málinu. Þær tóku sig til, tóku öll óhrein föt, þvoðu og þurrkuðu svo að allir krakkarnir gátu gengið á land í hreinum og fallegum búningum og verið félagi sínu til sóma. Þessi vaska framganga Heijólfsþerna var mikið rædd á pollamótinu og kunnu foreldrar þeim miklar þakkir. Arieg „innrás" í Heimaey Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson ÁKAFIIMIM í þessum ungu drengjum leynlr sér ekki, enda þarna að taka þátt í sinni heimsmeist- arakeppni — svo mikilvægt er mótið í Eyjum að þeirra dómi. Myndin er úr leik ÍA og Týs. MANNLÍFIÐ í Vestamannaeyj- um fór á flug um sfðustu helgi þegar rúmlega 800 pollar ásamt álíka fjölda af foreldrum, þjálfurum og aðstoðarmönn- um, flykktust út í Eyjar og lögðu þær undir sig til að taka þátt í Pollamótinu í knattspyrnu. Áhugi pollanna var ákafur og einlægur, það fór ekki á milli mála, og foreldra ekki síðri en þeir áttu yfirleitt í meiri vand- ræðum með að hafa tök á til- finningum sínum íáhorfenda- brekkunum. Skrúðgangan í upphafi mótsins, með tæplega tvö þúsund manns, fékk líka marga til að klökkna. Það var stórkostlegt að ganga um Vestmannaeyjar meðan á mótinu stóð, hvarvetna voru litlir pollar einbeittir á Stefán svip enda staddir á Stefánsson sinni heimsmeistara- skrifar keppni. Ekki var minna íjör að fylgj- ast með sumum leikjunum því ef boltinn skaust eitthvað fylgdi skar- inn í heild sinni á staðinn eins og fuglager. Það var líka gaman að sjá þá stundum þegar boltinn var ekki nálægt, þá var oft bara spjallað við næsta mann, fylgst með hvort pabbi eða mamma væru ekki örugglega að horfa á eða þá bara að bora pínu- lítið í nefíð! Oft hefur verið rætt um agaleysi ungviðisins en þarna var annað upp á teningnum. Þjálfarar yngri liðanna í dag eru oft menntaðir íþróttakenn- arar eða reyndir leiðbeinendur sem kunna sitt fag, leggja til dæmis lín- urnar og setja ákveðnar reglur sem ekki er sveigt útaf enda kunnu krakkarnir ágætlega við það fyrir- komulag og hlýddu í einu og öllu. Auðvitað voru prakkarar inná milli en það truflaði ekki. Þessi regla gerði það að verkum að hrein unun var á að horfa, markmiðið var það eitt að spila fótbolta og skemmtunin frábær, oft mun meiri en þegar full- orðnir eigast við. Mótshaldarar hafa leyft 24 félög- um að taka þátt í mótinu en hvert lið getur sent 3 lið svo að fjöldi kepp- enda er 847 nákvæmlega. Þeir segja ekki koma til greina að auka við það því þá yrði varla gerlegt að halda utan um mótið. Þetta hefur gert það að verkum að biðlisti hefur myndast enda mikil ásókn. Njarðvíkingar duttu í lukkupottinn í ár því þeir fengu sæti Gróttudrengja sem sáu sér ekki fært að mæta. „Við vorum búnir að bíða í íjögur ár og erum komnir til að vera,“ sagði Freyr Sverrisson þjálfari þeirra Njarðvík- inga, „þetta eflir allt félagsstarf hjá okkur og nær að halda drengjunum við efnið í vetur því þetta er tvímæla- laust samsvarandi heimsmeistara- keppninni hjá þeim. Fögnuðurinn hjá krökkunum var nánast ævintýraleg- ur þegar við fengum jákvætt svar frá Eyjum og ekki var hann síðri hjá foreldrunum." í ár voru foreldrar og aðstoðar- menn aðeins fleiri en þátttakendur og tóku virkan þátt í mótinu. Áttu .reyndar oft bágt með sig í brekkun- um, langaði að skeiða inná völl og sína hvernig á að gera hlutina. Sum- ir héldu niðri í sér andanum en aðr- ir létu það fyrsta sem þeim datt í hug flakka. Það var oft ekki í neinu samræmi við vilja þjálfara en allt var þetta hluti af spennandi leik. Þeir voru einnig oft boðnir og búnir að ráðleggja hvernig skipulagið væri betra, stundum miðað við sínar þarf- ir. Reyndar segja þrautreyndir móts- haldarar að þetta sé ekkert nýtt en þeir taki þann pólinn í hæðina að gerast 10 ára í anda þegar kemur að því að setja niður greinar en skipuleggji síðan miðað við hvað krakkar á þeim aldri vilja. Það var ekki annað að sjá en það dæmi gengi upp og allir ánægðir í lokin. Morgunblaðið/Sigfús Yngist með hveiju árinu HJÓNIN Guðjón Magnússon og Anna Grímsdóttir mættu í lokahófíð, ásamt barnabaminu Guðjóni Magnússyni. „Mér finnst mjög gaman að vera í kringum þetta, maður heldur sér ungum og verður yngri og yngri með hveiju árinu í kringum þessi pollamót," sagði Guðjón, 74 ára, sem var formaður Týs og er nú formaður þjóðhátíðarnefndar í Eyjum. „Það hefur orðið gerbreyting á starfi íþróttafélaganna í Eyjum við þessi mót, þau rifa upp unglingastarfíð og lyfta upp bæjarlífínu því flest- allir fylgjast með,“ sagði Guðjón. „Drengimir hafa verið alveg til fyrir- myndar, þeir koma svo vel fram að mann langar til að knúsa þá,“ sagði Anna sem mætti alla morgna í sjálfboðavinnu upp úr klukkan 6 til að undirbúa morgunmat fyrir keppendur. „Spyr konuna bara um eitt ár f einu“ JÓNAS Sigurðsson sá um alla tölvuvinnslu á mótinu, eins og hann hefur gert frá upphafi, setti niður tímasetning- ar, útbjó viðurkenning- arskjölin og gaf að auki út Shellmótsfréttir, sem er fjórblöðungur í A4 formi með öllum úrslit- um og fullt af myndum. Jónas er Vestmanna- eyingur sem flutti upp á land fyrir þremur árum en hann hefur unnið á pollamótunum öll tólf árin og tölvu- væðingin stöðugt undið uppá sig. En ætlar Jónas að halda áfram að starfí sínu við mótin? „Ég þori nú ekki annað en spyija kon- una um eitt ár í einu svo að ég get ekki gefið neinar yfírlýsingar." Það er ekki bara að Jónas sitja innilokaður í Týsheimilinu næstum allt mótið og sinni nauðsynlegum verkum, heldur „fékk“ hann herbergi uppi á lofti í Týsheimilinu og „þarf“ því ekkert endilega að fara undir bert loft á daginn. Reyndar héldu stúlkurnar í veitinga- sölunni í Týsheimilinu fengi „samlokueitrun" Jónas Sigurðsson að Jónas hvað úr hveiju á sunnudeginum. Kleópatra FARIÐ var með pollanna í skoðunarferðir um Vest- mannaeyjar og í einni slikri var drengjunum sýndur stór steinn sem kallaður er Kleóp- atra. Einn þeirra rak þá upp stór augu og sagði: „Kleóp- atra, var það ekki drottning í Róm? Kom hún hingað?“ Heitir molar ÞJÁLFARAR fór með krakk- ana út í hraunið í Eyjum til að leyfa þeim að finna ylinn sem enn kemur úr jðrðinni. Það lá auðvitað beinast við að keppa í einhveiju og úr varð að krakkarnir kepptu i að finna heitasta hraunmolann. Frumraun NJARÐVÍKINGAR voru að taka þátt i Pollamótinu i fyrsta sinn og gekk ekki sem best í frumraun sinni. Þeir náðu þó einu markalausu jafn- tefli og sýndu þá kunna fagn- aðartakta úr síðustu heims- meistarakeppni. Leikrænir tilburðir DÓMARAR stóðu sig með sóma á Pollamótinu. Þeir sögðust oft sjá bregða fyrir stórkostlegum Ieikaratöktum, sérstaklega úr itölsku knatt- spyraunni, þar sem pollarnir veítust um í grasinu. Sögðust dómarar oft hafa átt erfitt með að skella ekki upp úr. Flugfreyjur? FORELDRAR Stjörnupoll- anna komu vel undirbúnir til Eyja og höfðu meðal annars með sér sparifötin og mættu í þeim á fararstjóraballið á föstudeginum. Þar vöktu kon- umar athygli og í bænum var rætt um „hvort menn hefðu séð allar flugfreyjurnar sem voru á ballinu.“ A sunnudegin- um færðist enn sælubros á konurnar úr Garðabænum þegar minnst var á „flugfreyj- urnar.“ Spámaður BJÖRGVIN Eyjólfsson mót- stjóri sló í gegn hjá pollunum. Hann sagði í hátalarakerfið í greryandi rigningu á laugar- deginum: „Svo sjáumst við í sól og blíðu morgun." Daginn eftir var sól og blíða og þeir litu á hann með lotningu eftir það. Getspakir DRENGIRNIR í KA vora get- spakastir þegar liðin áttu að giska á hvað væru margir molar í stóram sælgætispoka. Þeirra tala var 404 og fengu þeir að eiga innihaldið. For- eldrar voru ekki kátir en fögnuður drengjanna var slík- ur að ein mamman í hópnum sagði að hann hefði ekki orðið meiri ef þeir hefðu sigrað í niótinu. Lukkupen- ingurinn EINN leikmanna kom til dóm- ara og sagði að annar strákur væri með pening I lófanum svo að dómarinn fór að skoða málið. Það stóð heima því leik- maðurinn var með hundrað krónu seðil í lófanum og bað dómarann auðmjúklega að leyfa sér að hafa hann áfram því seðilinn væri happapen- ingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.