Morgunblaðið - 02.07.1995, Side 4
I
4 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Útför Davíðs Ólafssonar
ÚTFÖR Davíðs Ólafssonar fyrr-
verandi seðlabankastjóra var
gerð frá Dómkirkjunni í fyrra-
dag. Sr. Þórir Stephensen staðar-
haldari í Viðey jarðsöng og
Kjartan Siguijónsson var organ-
isti. Bryndís Halla Gylfadóttir lék
einleik á selló og Kammerkór
Dómkirkjunnar söng.
Eftirtaldir samstarfsmenn og
vinir Davíðs voru líkmenn við
útförina, talið frá vinstri. Þór-
hallur Asgeirsson, fv. ráðuneytis-
stjóri, Már Elísson, forstjóri Fisk-
veiðisjóðs og fv. fiskimálasljóri,
Eiríkur Guðnason seðlabanka-
sljóri, Jóhannes Norda.1, fv. seðla-
bankasljóri, Matthías Á. Mathies-
en, fv. ráðherra, Björn Tryggva-
son, fv. aðstoðarseðlabanka-
s^jóri, Bjarni Bragi Jónsson að-
stoðarseðlabankasljóri og Birgir i
ísleifur Gunnarsson seðlabanka- j
stjóri.
Listaverk
afhjúpað
Seyðisfirði. Morgunblaðið.
FORSETI íslands, Vigcdís Finn-
bogadóttir, afhjúpaði listaverkið í
„Útlit“ eftir Krisýán Guðmunds-
son á 100 ára afmælishátíð Seyð-
isfjarðarkaupstaðar, en lista- I
verkið og torgið fyrir framan
gamla skólann, sem nú er verð-
andi ráðhús, er afmælisgjöf
Seyðfirðinga sjálfra. Hátíðar-
höldin standa fram á sunnudags-
kvöld, en talið er að gestir hafi
þrefaldað íbúafjölda kaupstaðar-
ins. f gærmorgun var m.a. farið
í gönguferð um bæinn með leið- i
sögumanni. Margt bar á góma
og var göngufólki sögð saga
húsa í atvinnusögu bæjarins. Ut-
anbæjarmönnum lék forvitni á
að vita hvar snjóflóð féll í vetur
og hvaða atvinnutækifæri gætu
leynst 1 framtíðinni og var greitt
úr spurningum þeirra eftir bestu
getu. Formaður Skógræktarfé-
lags Seyðfirðinga, Emil Emils-
son, tók á móti fólki sem hugðist
taka þátt í gróðursetningu hátt |
í 300 plantna í Afmælislundinn á 1
Hjöllunum. Emil sagði að um 50
þúsund plöntur hefðu verið gróð-
ursettar á 5 árum.
VIKAN 25/6 - 1/7
►NIÐURSTÖÐUR ná-
kvæmrar málm- og stíl-
fræðirannsóknar danskra
og sænskra sérfræðinga á
danska þjóðminjasafninu
Ieiða í ljós að allir gripir í
silfursjóðnum frá Miðhús-
um beri skýr einkenni vík-
ingaaldarsmíði, utan einn
sem talinn er vera frá 19.
eða 20. öld.
►TVEIR lögreglumenn
voru mættir á frumsýningu
leikritsins Ég kem frá öðr-
um löndum með öll mín
ævintýri aftan á mér í Kaffi-
leikhúsinu í Hlaðvarpanum
á fimmtudagskvöld. Eftir
myndbirtingu Morgunblaðs-
ins frá æfingu verksins
barst leikhúsinu ábending
frá forsætisráðaneytinu um
að hugsanlega væru fánalög
brotin í leiksýningunni.
Haft var samband við lög-
regluna í Reykjavík sem
sendi tvo óeinkennisklædda
lögreglumenn á frumsýn-
inguna. Þeir höfðu meðferð-
is myndbandsupptökuvél og
ljósmyndavél og gripu til
þeirra þegar Guðrún S.
Gísladóttir leikkona fór í
svuntu gerða úr íslenska
fánanum.
►MEÐALEINKUNN á
samræmda prófinu í ís-
lensku í vor var lægri en
hún hefur verið síðustu ár.
Einungis tveir unglingar af
rúmlega 4.200 sem þreyttu
prófið fengu hæstu einkunn
fyrir úrlausnir sínar.
►hólmaborgin var
aflahæst á síðustu loðnu-
vertíð, frá 1. júlí 1993 til
mars 1994, með yfir 50.184
tonn. Margir hafa trú á því
að þetta sé heimsmet hvað
veiðar á loðnu áhrærir.
Emil Thorarensen, útgerð-
arstjóri Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar, hefur reynt að fá
metið skráð í Heimsmetabók
Guinness og á von á staðfest-
ingu á því innan tíðar.
Flugmaður fórst í
Geitahlíð
FLUGMAÐUR fórst, þegar flugvélin
TF-VEN rakst í tjallshlíð skammt suð-
ur af Kleifarvatni á föstudag. Flugmað-
urinn fór frá Reykjavík kl. 14.10 og
var ferðinni heitið til Selfoss. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Flugmála-
stjóm var flugmaðurinn reyndur en
ekki með blindflugsáritun. Síðast var
haft flarskipta- og radarsamband við
flugvélina kl. 14.15 þar sem hún var
stödd við Kleifarvatn og amaði þá ekk-
ert að en hún hafði flugþol til kl. 16.10.
Þegar flugvélin kom ekki fram á tilsett-
um tíma hóf Flugstjóm þegar eftir-
grennslan. Flugvél flugmálastjórnar
hóf strax leit og sama gerðu þyrla
Landhelgisgæslunnar og einkaflug-
menn frá Selfossi. Vélin fannst um kl.
19.
Verkfalli farmanna
frestað
VERKFALLI yfirmanna á kaupskipum
og ferjum var frestað í fyrrinótt þegar
nýir kjarasamningar fímm farmannafé-
laga í Farmanna- og fískimannasam-
bandi íslands og viðsemjenda þeirra
voru undirritaðir í húsnæði ríkissátta-
semjara. Farskip létu strax úr höfn
eftir að verkfalli hafði verið frestað.
Samningamir kveða m.a. á um 11,4%
launahækkanir á samningstímanum,
sem gilda til ársloka árið 1996, sér-
staka 12.000 kr. eingreiðslu undir lok
samningstímans, sérstaka greiðslu fyr-
ir yfírvinnu á stórhátíðum og breyting-
ar á starfsaldurshækkunum stýri-
manna. í tengslum við gerð kjarasamn-
inganna gáfu farmannafélögin út hlið-
stæða yfírlýsingu og starfsmenn ISAL
gáfu í seinustu viku um samræmda
afgreiðslu samninga og gerð heild-
arkjarasamninga fyrir félögin öll.
Feðgar biðu bana
FEÐGAR, 37 ára gamall maður og 6
ára gamall sonur hans, létust þegar
dráttarbíll fór út af veginum í Víkur-
skarði í Eyjafirði norðanverðum seint
á mánudagskvöld. Feðgamir voru að
koma frá Vopnafirði og voru á suður-
leið þegar slysið átti sér stað.
FRÉTTIR
ísland aðili að tillögu
um reglur um förgun
mannvirkja í hafinu
Þýskur her til Bosníu
ÞÝSKA þingið samþykkti á föstudag
tímamótaákvörðun stjómar Helmuts
Kohls kanslara um að senda orrustu-
þotur af gerðinni Tornado og 1500
hermenn til Bosníu. Aðildarríki Atl-
antshafsbandalagsins fögnuðu þessari
ákvörðun, en hávær mótmæli bámst
frá Serbum. Lítið var um mómæli í
Þýskalandi, þótt harðar umræður
spynnust á þingi.
Enn harðnaði á dalnum í Bosníu í
júní og í síðustu viku kom fram ágrein-
ingur milli Frakka og Bandaríkja-
manna um lausn mála þar. Stjóm Bosn-
íu kvaðst ekki mundu hafa frekari sam-
skipti við Yasushi Akashi, sendimann
Sameinuðu þjóðanna, á þeirri forsendu
að hann væri hallur undir Serba.
Viðskiptastríði
afstýrt
JAPÖNUM tókst að afstýra viðskipta-
stríði við Bandaríkjamenn á síðustu
stundu þegar þeir lofuðu á miðvikudag
að opna japanska bíla- og varahluta-
markaðinn. Bandaríkjamenn höfðu
hótað að skella refsitollum á dýrari
gerðir japanskra bfla á miðnætti sama
dag ef Japanir gæfu ekki eftir.
350 saknað í Seoul
ÓTTAST er að um 350 manns hafi
farist þegar verslunarhús hrundi í Seo-
ul, höfuðborg Suður-Kóreu, á fímmtu-
dag. Haft var eftir húsverði í húsinu
að yfirmenn þar hefðu vitað af hætt-
unni og flúið án þess að gera öðrum
viðvart. Yfírmennimir hafa nú verið
handteknir.
►BORÍS Jeltsín, forseti
Rússlands, hafði betur í gær
þegar þingið gekk til at-
kvæða um vantrauststillögu
á stjórn hans. Tilraun Jelts-
íns til að koma til móts við
þingið með því að sam-
þykkja afsagnarbeiðni
tveggja ráðherra og tveggja
embættismanna bar greini-
lega einhvem ávöxt.
►HOSNI Mubarak, forseta
Egyptalands, var sýnt bana-
tilræði er hann kom til leið-
togafundar Einingarsam-
taka Afríkuríkja í Addis
Ababa, höfuðborg Eþíópíu,
á mánudag. Egyptar kváð-
ust gruna Súdani um aðild
að tilræðinu, en þeir neit-
uðu.
►FRESTURINN til fram-
boðs í leiðtogakjöri breska
íhaldsflokksins rann út í vik-
unni og fékk John Major
aðeins eitt mótframboð.
John Redwood, ráðherra um
málefni Wales, sagði af sér
embætti á mánudag og skor-
aði Major á hólm. Leiðtoga-
Ig'örið verður á þriðjudag.
► stjórnarandstaðan á
Spáni hefur skorað á ríkis-
stjórnina að segja af sér
vegna hlerunarhneykslisins.
Felipe Gonzalez forsæt-
isráðherra segir stjórnina
ekki hafa vitað að símar
konungsins og helstu
frammámanna landsins hafi
verið hleraðir.
ÍSLENDINGAR standa ásamt tíu
öðrum þjóðum að tillögu um reglur
varðandi förgun mannvirkja í haf-
inu, sem lögð var fram á nýloknum
fundi aðildarríkja svokallaðs
OSPAR-sáttmála um umhverfís-
vernd í Norðaustur-Atlantshafí.
Samkvæmt tillögunni yrði tafar-
laust hlé gert á allri förgun bor-
palla og annarra slíkra mannvirkja
á hafí úti og stefnt að því að setja
reglur sem kvæðu skýrt á um fram-
tíðarbann við slíkri förgun.
Fundi OSPAR lauk í Brussel síð-
astliðinn fímmtudag. Umrædd til-
laga kom það seint fram að um
hana var ekki tekin ákvörðun á
fundinum, en formleg afgreiðsla á
að fara fram 4. ágúst næstkom-
andi. Að tillögunni standa öll ríki
innan OSPAR nema Bretland og
Noregur, þ.e. ísland, Belgía, Dan-
mörk, Finnland, Frakkland, Hol-
land, írland, Portúgal, Spánn, Sví-
þjóð og Þýskaland. Að sögn Davíðs
Egilssonar, forstöðumanns meng-
unarvarna hjá Hollustuvernd ríkis-
ins, sem sat fundinn fyrir íslands
hönd, verður ákvörðunin bindandi
fyrir þau ríki sem samþykkja hana,
en ekki aðra.
Að sögn Davíðs er talið að erfítt
verði fyrir Breta og Norðmenn að
ganga í berhögg við samþykktina
þó þeir greiði atkvæði gegn henni
eða sitji hjá, því hún eykur þrýsting
gegn förgun borpalla á hafi úti. Sá
þrýstingur var reyndar mikill fyrir,
eins og kom í ljós þegar Shell-olíufé-
lagið hætti við áform um að sökkva
breska olíuborpallinum Brent Star.
Samkvæmt tillögu ríkjanna 11
sem standa að tillögunni á vinnu-
hópur innan OSPAR að taka saman
lista yfir öll mannvirki á þeim haf-
svæðum sem samningurinn tekur
til og væntanlegan endingartíma
þeirra. Vinnuhópurinn mun síðan
leggja fram fullmótaðar tillögur um
bann við förgun borpalla og svip-
aðra mannvirkja á hafi úti og leggja
þær fram á næsta fundi OSPAR.