Morgunblaðið - 02.07.1995, Side 6
6 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
i
t
Þjóðverjar yfir
þröskuldinn
Þjóðveijar tóku sögulega ákvörðun þegar
þeir samþykktu að senda her til Bosníu
og stíga yfir þröskuldinn inn á athafna-
svið alþjóðlegra stjómmála. Karl Blöndal
skrifar um forsögu þessarar ákvörðunar.
AÐ ER ekki fjarri lagi að
Evrópu í núverandi
mynd megi rekja til við-
leitninnar til að halda
Þjóðverjum í skefjum eftir heims-
styijaldirnar tvær, sem þeir áttu
upptök að á fyrri hluta þessarar
aldar. Nú er þýskur her á leið til
átaka fyrsta sinni í 50 ár. Þessu
hefur verið fagnað um alla Evrópu,
þar sem Þjóðverjar eru ekki lengur
úthrópaðir andstæðingar, heldur
mikilsmetnir samherjar. En þótt
formerkin fyrir þessari herför séu
ný, vofir þó skuggi fortíðarinnar
yfir henni.
Þýska sambandsþingið sam-
þykkti á föstudag að senda 1.500
hermenn og orrustuþotur af gerð-
inni Tomado til Bosníu með drjúg-
um meirihluta, 386 atkvæðum
gegn 258. Sú niðurstaða þykir ótví-
ræður sigur fyrir Helmut Kohl
kanslara, sem um nokkurt skeið
hefur reynt að stuðla að þvi að
Þjóðveijar hættu að halda aftur af
sér og tækju frumkvæðið í alþjóða-
málum.
Frá hiki til frumkvæðis
Þjóðverjar hafa verið mjög hik-
andi við að skuldbinda sig hemað-
arlega í fyrrum Júgóslaviu. Þeir
hafa hins vegar ekki aflað sér mik-
illar virðingar meðal bandamanna
sinna með yfirlýsingum um nauð-
syn þess að leggja friðarsveitum
Sameinuðu þjóðanna og sveitum
NATO á Balkanskaga lið án þess
að geta stutt það í verki.
Sú utanríkisstefna hógværðar,
sem Vestur-Þjóðveijar fylgdu í
hálfa öld, var sprottin af nauðsyn.
Austur- og Vestur-Þýskaland lágu
þvert yfir skjálftasprunguna, sem
við of mikla virkni hefði breytt
kalda stríðinu í heitt stríð. Sovétrík-
in litu allan uppgang (Vestur-)Þjóð-
veija homauga og bandamenn áttu
(og eiga margir enn) erfitt með að
treysta þjóðinni, sem virtist þykja
sú íþrótt göfugust að leggja undir
sig grannríki sín.
Það kostaði Vestur-Þjóðveija
þrotlau.sa vinnu að sannfæra heim-
inn um að þeir væru sáttir við þá
fjötra, sem landamæri þeirra settu
þeim, og ekkert væri þeim fjær
lagi, en draumar um útþenslu og
Iandvinninga. Þeir fengu á sig orð
fyrir að vera efnahagslegur risi,
en pólitískur dvergur. Við sam-
einingu Þýskalands breyttist stað-
an. Það hefur hins vegar tekið sam-
einaða Þjóðveija tíma að laga sig
andlega að hinum breyttu aðstæð-
um: að nú dygðu orðin ein ekki
lengur, verk yrðu að fylgja.
Urslit atkvæðagreiðslunnar á
föstudag ber því hins vegar vitni
að nú séu Þjóðveijar að venjast
hugmyndinni um að beita vopna-
valdi erlendis. Kohl hefur aðeins
tíu sæta meirihluta á þingi, en fjöldi
græningja og sósialdemókrata
(SPS) lagðist á sveif með honum.
Óvirk friðarhreyfing
Þýska friðarhreyfingin virtist
óvirk milli þess, sem stjóm Kohls
tók ákvörðun um að senda hernað-
araðstoð á mánudag til þess að
þingið samþykkti hana á föstudag.
Aðeins þijú hundruð manns söfn-
uðust saman til að mótmæla í Bonn
og einstaka fréttatilkynning var
það eina, sem andstæðingar
ákvörðunarinnar sendu frá sér.
Umræður urðu þó mjög heitar á
þingi. Rudolf Scharping, leiðtogi
SPD, sagði að það myndi aðeins
leiða til þess að átökin ágerðust
að senda orrustuþotur af gerðinni
Tomado til Bosníu og vildi aðeins
senda hjálpargögn.
Giinter Verheugen, fram-
kvæmdastjóri SPD, setti allt á ann-
an endann þegar hann líkti kristi-
legum sósíalistum (CSU), hinum
bæverska systurflokki kristilegra
demókrata (CDU), við nasista.
Stjórnarþingmenn gerðu hróp að
honum þegar hann sagði að CSU
væri erfingi hinnar íhaldssömu
hemaðarhyggju, sem á fyrri hluta
þessarar aldar „steypti Þýskalandi
tvisvar í glötun".
Arfleifð Hitlers
Arfleifðin, sem herir Hitlers
skildu eftir sig í heimsstyijöldinni
síðari, er slík að Þjóðveijar eru nú
í vandmeðförnu hlutverki.
Nasistar bára ábyrgð á því að
þúsundir júgóslavneskra borgara
voru myrtar. Þýski herinn var send-
ur inn í Júgóslavíu eftir að stjóm,
sem hlynnt var íjóðveijum, var
steypt með valdaráni árið 1941.
Ástæðan fyrir valdaráninu var sú
að Serbar ásældust aukin áhrif.
Hin nýja stjóm, undir forystu her-
foringjans Dusans Simovic, lýsti
þegar yfír tryggð við Hitler, en
allt kom fyrir ekki og 6. apríl réðst
þýski herinn til atlögu.
Sprengjum rigndi úr lofti og á
jörðu niðri hófst stórsókn. Það
veikti varnir Júgóslava að Króatar
fögnuðu Þjóðveijum og í kjölfar
innrásarinnar fylgdi aðskilið fas-
istaríki í Króatíu.
Yfirvöld í Belgrad gáfust upp
17. apríl. Uppgjöfin batt þó ekki
enda á átökin, vegna þess að
skæraliðar þjóðemissinna og
kommúnista undir stjóm Josips
Bros Titos héldu áfram að beijast.
Þjóðveijar gerðu grimmilegar
tilraunir til að bijóta skæraliðana
á bak aftur. „Stefna þeirra fólst í
því að fremja fjöldamorð vegna
þess að hemaðarlega stóðu þeir
skæraliðunum ekki á sporði,“ sagði
austurríski fræðimaðurinn Walter
Manoscek í samtali við Reuter.
„Haustið 1941 voru milli 20 og 30
þúsund borgarar skotnir til bana í
Serbíu." Fórnarlömbin voru gyð-
ingar, sígaunar, granaðir stuðn-
ingsmenn skæraliðanna og
óbreyttir borgarar, sem lentu í
drápsvél nasista fyrir tilviljun.
100 drepnir fyrir einn
„Þeir skutu 100 gísla fyrir hvem
íjóðveija, sem féll, og 50 gísla
fyrir hvem Þjóðveija, sem særð-
ist,“ sagði Manoscek.
Þessir stríðsglæpir gera það að
verkum að það er pólitískur ógern-
ingur fyrir íjóðveija að senda land-
her til Bosníu. Ákvörðun þeirra
nýtur reyndar stuðnings Króata og
múslima í Bosníu. Bosníu-Serbar
mótmæltu hins vegar kröftuglega.
Tilgangur herliðsins, sem Ijóð-
veijar hyggjast senda til Bosníu,
er að veita fyrirhuguðu hraðliði
Breta, Frakka og Hollendinga
stuðning. Meðal aðstoðar Þjóðveija
verða orrastuþotur af gerðinni
Tornado og er sagt að hraðliðinu,
sem ætlað að veija friðargæslu-
sveitir Sameinuðu þjóðanna gegn
Bosníu-Serbum, sé mikið í mun að
fá þær til liðs við sig.
Tornado-þotur geta læst sig inn
á ratsjárgeisla þannig að hægt er
að senda sprengjur að upptökum
þeirra og eyðileggja ratsjárstöðvar
og þar með gera loftvarnir Bosníu-
Serba að engu.
Vikuritið Der Spiegel hefur hins
vegar eftir liðsforingjum friðar-
gæslusveitanna að hinar bresku
Harrier-þotur og bandarísku A-10-
þotur hentuðu betur vegna þess
að þær gætu flogið hægar og ættu
auðveldara með að hitta skotmörk,
sem mönnum SÞ stafaði bráð hætta
af. Auk þotanna hyggjast Ijóð-
veijar leggja til flutningavélar,
lækna og hjúkrunarlið.
Erfið ákvörðun
Wolfgang Sehauble, leiðtogi
kristilegra demókrata á þingi, sagði
í gær að þetta hefði verið erfið
ákvörðun: „Hér er verið að nota
hemaðarlegar leiðir til að vernda
líf og gera frið mögulegan, ekki
til að heyja stríð.“
„Atkvæðagreiðslan í dag hefur
sýnu víðtækari þýðingu, en [að
senda herlið til Bosníu],“ sagði
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, fyrir atkvæðagreiðsl-
una á föstudag. „í húfí er að koma
á sameiginlegri utanríkismála- og
öryggisstefnu Evrópu, í húfí er
staða Þýskalands og trúverðugleiki
í heiminum."
Blaðið Die Welt var öllu berorð-
ara og sagði að málið snerist um
að forða því að „Ijóðveijar verði
hafðir að háði og spotti fyrir geld-
ingapólitík, sem skora á aðra til
athafna, en sitja sjálfir víðs fjarri
víglínunni, blýfastir í ódýrum
siðaprédikunum".
Nú hafa Þjóðveijar stigið stórt
skref í áttina að öðlast þann sess
í samfélagi þjóðanna, sem þeim var
fyrirmunað eftir heimsstyijaldim-
ar. Evrópubandalagið var stofnað
til að halda Þjóðveijum í skefjum
með því að gera hagsmuni þeirra
sameiginlega öðrum Evrópuríkjum
og Atlantshafsbandalagið snerist
meðal annars um að nýta þann
mannafla, sem Þjóðveijar höfðu,
til hermennsku án þess að þeir
hefðu snefil af hemaðarlegu frum-
kvæði. Nú er Þýskaland eimreiðin,
sem knýr Evrópu, og þýskir her-
menn búa sig undir að taka þátt í
hernaði á erlendri grundu.
Ileimildir: Der Spiegel, Die Seit og
Reuter.
EBLEIMT
Handtökur
í Seoul
FJÓRIR forstjórar úr verslunar-
byggingunni, sem hrundi í Seoul,
höfuðborg Suður-Kóreu, á fimmtu-
dag, voru handteknir í gær og verða
sakaðir um vangá og að láta undir
höfuð leggjast að tæma bygging-
una, þótt þeir hafí vitað að hún
væri að hrani komin.
Björgunarmönnum tókst að ná
hópi manna á lífi úr rústum bygg-
ingarinnar í gær eftir að hafa verið
heilan dag að komast að kjallara,
sem vitað var að fólk var lokað
inni í. Talið er að 24 hafi verið
bjargað í kjallaranum og þar við
bætast átta, sem var bjargað fyrr
í gær.
Opinberlega er sagt að 90 manns
hafí látið lífið þegar húsið hrandi,
en alls er 362 manna saknað og
með hveijum degi, sem líður,
minnkar vonin um að þeir séu lífs.
Óttist ekki
NATO
WILLIAM Perry, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í Kaup-
mannahöfn í gær að Rússar hefðu
ekkert að óttast við það að Atlants-
hafsbandalagið yrði stækkað og
ríkjum Austur-Evrópu veitt aðild
að því. Perry hvatti ráðamenn í
Moskvu til samstarfs um að reisa
nýja og öruggari Evrópu.
Herör gegn
mafíunni
ÍTALSKA lögreglan kvaðst í gær
hafa handtekið granaðan for-
sprakka mafíunnar og leitaði 150
manna til viðbótar. Þessi aðgerð er
hluti af herför á hendur mafíunni
pg nær hún allt frá norðurhluta
Ítalíu til Sikileyjar. Þetta er öðru
sinni á þessu ári, sem lögreglan
grípur til fjöldahandtakna til að
hemja mafíuna.
Tölvuvæðing
gagnslaus?
ÓGRYNNI fjár hefur verið varið í
tölvuvæðingu frá því a áttunda ára-
tugnum, en nú er komið í ljós að
tölvur virðast engu máli skipta um
það hve vel við leysum störf okkar
af hendi.
Thomas Landauer, prófessor við
Háskóla Colorado í Bandaríkjunum,
birti í síðustu viku niðurstöður sínar
um að framleiðni helstu hagkerfa
heimsins hefði skroppið saman um
helming frá því, sem var upp úr
lokum heimsstyijaldarinnar síðari.
Landauer segir vandann vera
þann að enn sé of erfitt að vinna
á tölvu, þær séu misnotaðar og
notaðar til að gera hluti, sem þær
henta ekki til. Hann segir gagnsemi
tölva blekkingu og hin ýmsu kerfi
helst til flókin.
Byltingar-
gáta Ieyst
FRANSKIR fræðimenn kveðast
hafa leyst eina af gátum frönsku
byltingarinnar árið 1789 og þar
með afsannað hina opinberu útgáfu
um andlát sonar Loðviks XVI., sem
var hálshöggvinn. Vísindamennirn-
ir komust að því með aðstoð tölvu-
tækni að beinagrind líkama þess,
sem arið 1795 var lagður fram og
sagður vera hinn tíu ára gamli ríkis-
arfi, væri í raun líkami 14 ára gam-
als drengs. Sonur Loðvíks, sem
konungssinnar kölluðu Loðvík
XVII, var geymdur í einangrun og
var sagt hann hefði dáið af veikind-
um. Niðurstöður vísindamannanna
voru birtar í nýjasta hefti tímarits-
ins Scientific American og nú spyija
menn hvort sonurinn hafi komist
undan og jafnvel átt börn.
|
i
I