Morgunblaðið - 02.07.1995, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995 11
Norðmenn og Rúss-
ar geta ekki reiknað
með því að það gildi
einhver allt önnur
lögmál í Barents-
hafi en á Reykjanes-
hrygg. Fram að
þessu hafa þeir ekki
verið tilbúnir að líta
á þessi hafsvæði
með sambærilegum
hætti og á meðan
er útilokað að mínu
mati að ná samning-
um um þau mál.
leika að við náum stofninum í þá hámarks-
stærð sem gefur hagkvæmustu nýtinguna."
Er þá réttlætanlegt að íslendingar sýni hóf-
semi í kröfum um kvóta til skemmri tíma?
„Ég veit ekki hvort orðið hófsemi á við í
samningum en ég get ekki neitað því að ég
tel að það þjóni langtímahagsmunum íslend-
inga að leggja nokkuð á sig við uppbyggingu
síldarstofnsins eins og ég tel að Norðmenn
hafi gert á síðustu fimm til sex árum. Þeir
hafa sýnt miklu meiri ábyrgð varðandi upp-
byggingu síldarstofnsins heldur en nokkru
sinni fyrr og við gerum miklar kröfur til þeirra
að þeir stilli veiðunum í hóf þannig að hann
nái sér á nýjan leik. Við hljótum að gera sam-
bærilegar kröfur til okkar sjálfra því að lang-
tímahagsmunirnir eru gífurlegir í þessu máli.
Ég vona að þjóðimar allar hafi manndóm til
að líta til þeirra því að komandi kynslóðir á
Islandi þurfa virkilega á því að halda. Ég hef
um margra ára skeið haldið því fram að þjóð-
irnar á norðurslóðum eigi að byggja upp sam-
starf sem feli í sér gagnkvæmni í veiðum. ís-
lendingar ættu þá veiðirétt í Barentshafi þegar
ástandið þar er gott og Norðmenn ættu hér
innhlaup þegar illa áraði hjá þeim. Með þessu
væri hægt að jafna sveiflurnar í fiskveiðunum
meira. Eg nefndi þetta fyrst í viðræðum við
Kanadamenn 1985. Því var illa tekið af ýmsum
þá. Ég er enn þessarar sömu skoðunar tíu
árum síðar að það eigi að vinna að þessum
málum hér í Norðurhöfum með gagnkvæma
hagsmuni allra þessara þjóða í huga, bæði að
því er varðar fiskistofnana og hvala- og sela-
stofnana. Ég vænti þess að það verði að veru-
leika að við stofnum norðurskautsráð og þar
verði hægt að taka upp ýmis pólitísk mál að
því er varðar nýtingu auðlinda. Öðru vísi verð-
ur aldrei hægt að ná neinu viti í samvinnu
þessara þjóða, allt frá Ameríku til Rússlands."
Síðasti fundur úthafsveiðiráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna verður um mánaðamótin júlí og
ágúst. Hvetjar eru horfurnar á að samkomulag
takist þar?
„Þetta er það mikið hagsmunamál og þjóð-
imar eru undir það miklum þrýstingi að ég
er vongóður. Annars kemur upp óvissuástand
þar sem einhver rlki munu grípa til þess að
færa út sína landhelgi enn frekar og það gæti
orðið upphafið að margvíslegum deilum um
allan heim. Hins vegar vil ég taka það fram
að niðurstaðan á þessari ráðstefnu mun ekki
leysa öll þau deilumál sem uppi eru. Þar mun
eingöngu verða samþykktur samningsgrund-
völlur og leikreglur fyrir aðila til að hafa í
huga fyrir frekari samninga. Ráðstefnan mun
til dæmis í sjálfu sér ekki leysa deiluna í Bar-
entshafi. Hún mun verða vísbending um hvem-
ig eigi að standa að því að leysa hana.“
Norðmenn binda augsýnilega miklar vonir
við úthafsveiðiráðstefnuna og telja að samning-
ur sem þar verði gerður heimili þeim að stjórna
veiðum í Barentshafi í formi tvíhliða nefndar.
Er þetta ásættanlegt fyrir íslendinga?
„Það getur út af fyrir sig verið ásættanlegt
ef sama skipulag verður á úthafínu suður af
íslandi þannig að við getum stjómað veiðunum
á Reykjaneshrygg í samvinnu við Grænlend-
inga.“
Fullveldisrök varðandi sjóvarútveginn
Ef ég má víkja að Evrópumálunum, hver
er afstaða utanríkisráðherra til aðildar að Evr-
ópusambandinu?
„Ég hef margoft sagt að ég sé andvígur
því að ísland sæki um aðild að Evrópusamband-
inu. Þróunin í Evrópu heldur áfram og við vit-
um ekkert um það hvemig Evrópusambandið
lítur út fljótlega eftir næstu aldamót. Við höf-
um þess vegna ákveðið að fylgjast vel með
þróuninni, kynna okkar sérstöðu og ástæðurn-
ar fyrir því að við viljum ekki sækja um. Þær
tengjast að verulegu leyti sjávarútvegsmálum.
Við getum ekki sætt okkur við að auðlindir
okkar séu sameign þjóðanna og undir sameig-
inlegri stjóm. Við getum ekki sætt okkur við
þá stjómunarstefnu og þá styrkjastefnu sem
kemur fram í sjávarútvegsstefnu Evrópusam-
bandsins. Ég er þeirrar skoðunar að værum
við undir þeim reglum til lengri tíma litið þá
kæmi það til með að eyðileggja samkeppnis-
stöðu okkar. Mér finnst að á þessu sé skilning-
ur ef það er útskýrt. Það eru margir sem spyija:
Af hveiju í ósköpunum eruð þið ekki með?
Við viljum hafa ykkur með . . .“
En viljum við vera með?
„Við erum Evrópuþjóð og viljum taka þátt
í samstarfi Evrópuþjóða. En við getum ekki
gert það á öðrum grundvelli en þeim sem sam-
rýmist hagsmunum okkar. Þar stendur málið.
Hvernig það mun síðan þróast ætla ég ekkert
að fullyrða um á þessari stundu, en það er
auðvitað nauðsynlegt að gera sér raunsæja
mynd af ástandinu."
Sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins er
það sem þú setur aðallega fyrir þig?
„Já.“
Má þá ekki segja að andstaða forsætisráð-
herra gegn aðild eins og hún birtist íþjóðhátíð-
arræðu hans sé á breiðari grundvelli þar sem
hann tínir einnig til fullveldisrök?
„Ég tel að það séu mikil fullveldisrök að
því er varðar sjávarútvegsstefnuna.Ég get
ekki hugsað mér að nýtingu auðlinda íslands
sé stjórnað frá höfuðstöðvum Evrópusam-
bandsins. Þetta er mjög stórt fullveldismál í
mínum huga. Að því er varðar sameiginlega
mynt, sameiginleg varnarmál og ýmislegt ann-
að sem er á pijónunum í Evrópusambandinu
þá sýnist mér að þróunin sé sú að það muni
ekki verða að veruleika. Andstaðan við þessar
hugmyndir fer vaxandi þannig að ég geri ekki
ráð fyrir að þróunin í átt til einnar ríkjaheildar
haldi áfram. Það verður gjörsamlega útilokað
að fá Norðurlandaþjóðirnar til dæmis til að
samþykkja slíkt.“
Þú nefnir ekki það sem forsætisráðherra
talaði um, það er að segja stöðu löggjafarþings-
ins?
„Hann var að tala um það meðal annars
út frá framtíðarspá um stóraukinn samruna.
Ég get verið sammála honum ef hún rættist.
Hinu er ekki að neita að eins og mál standa
núna erum við að yfírtaka margvíslegar réttar-
reglur sem gilda í Evrópu. Mikið af okkar lög-
gjöf hefur orðið fyrir áhrifum frá hinum Norð-
urlöndunum. Ef þetta er löggöf sem við getum
vel sætt okkur við og samrýmist okkar lýðræð-
ishefðum þá er ekkert athugavert við það að
verða fyrir áhrifum annars staðar frá. Þannig
hefur það alltaf verið í heiminum."
Þurfum að auka áhrif okkar
Þú víkur að stöðu okkar innan Evrópska
efnahagssvæðisins. Flokksbróðir þinn og sam-
ráðherra, Páll Pétursson, flutti EES-frumvarp
á Alþingi á dögunum og hóf mál sitt á því að
segjast vera með póst frá Brussel. Er staða
Alþingis viðunandi þegar ráðherrar flytja frum-
vörp með þessum formála?
„Nafnið sem frumvörpunum er gefið skiptir
að sjálfsögðu ekki máli. Aðalatriðið er að við
höfum ákveðið að vera aðilar að innri markaði
Evrópusambandsins og taka þátt í þeim reglum
sem þar eru settar. Aðalatriðið fyrir okkur er
að geta haft nægileg áhrif á tilurð þessara
reglna. Það þýðir það að við þurfum að geta
haft aðgang að sameiginlegum ráðum og
nefndum. Ef við getum haft þau áhrif og þurf-
um ekki að yfirtaka þessar reglur án þess að
koma nokkum tíma að málinu þá er það í lagi.“
En höfum við þessi áhrif?
„Við höfum þau að ákveðnu marki en ekki
nægileg og ég legg mikla áherslu á það að
auka okkar áhrif í þessu sambandi."
Er búið að hnýta alla hnúta sem röknuðu
upp við það að nokkur EFTA-ríkjanna gengu
í ESB?
„Nei, það er ekki búið að hnýta þá hnúta
og auðvitað voru þessi hnútar aldrei hnýttir
nægilega í upphafi eins og gengur og gerist
I samningum. Samskiptin eru lifandi og þau
taka stöðugum breytingum. Þess vegna verða
menn ávallt að vera á verði. Það verður aldrei
gengið frá þeim í eitt skipti fyrir öll.“
En er ekki rétt að skömmu eftir að þú tókst
við formennsku í Framsóknarflokknum þá sett-
ir þú fram hugmyndir um áheyrnaraðild að
stofnunum ESB.
„Það voru nú sumir sem túlkuðu þetta svo
að ég vildi að við yrðum aukaaðilar að Evrópu-
sambandinu sem er algerlega rangt. Ég var
að leggja áherslu á hversu mikilvægt það
væri að við hefðum áhrif á það sem þarna
væri að gerast innan samningsins um Evr-
ópskt efnahagssvæði. Norðmenn fóru inn á
nákvæmlega sömu braut þegar samningurinn
um aðild þeirra var felldur og hafa sótt mjög
fast á um áhrif innan Evrópusambandsins á
grundvelli samningsins um Evrópskt
efnahagssvæði sem þeir gerðu ekk-
ert úr þegar norsk stjórnvöld voru
að beijast fyrir inngöngu Norðmanna
í Evrópusambandið. Forystumenn í
norskum stjómmálum héldu því fram
að þessi ákvæði væm lítils virði en
snem síðan blaðinu við. Þannig að
ég tel að það sem' ég sagði á sínum
tíma hafi verið réttmætt og ég stend
við það og mun vinna á þeim grund-
velli hér í ráðuneytinu."
Var þar ekki um að ræða hug-
myndir um áheyrnaraðild utan vé-
banda EES?
„Það sem ég sagði var að EES-
samningurinn tryggði okkur pólitísk
áhrif. Það yrði miklu erfiðara að reka
pólitísk samskipti á gmndvelli
tveggja stoða kerfis eftir að flest rík-
in væru farin inn og þess vegna
væri miklu einfaldara, bæði fyrir
okkur og ESB, að leysa þessi mál
með meiri aðgangi okkar að nefndum
og ráðum. Það hefur að hluta til
verið komið til móts við kröfur sem
þessar en ekki í nægilegum mæli og
við hljótum að vinna að því áfram.
Ég er þeirrar skoðunar að það hefði
verið einfaldara og líklegra að við
næðum meiri árangri ef Norðmenn
hefðu gengið inn.“
Eru Norðmenn með einhvern ein-
leik gagnvart Evrópusambandinu?
„Nei, en ég tel að þeir hafi sýnt
visst fmmkvæði í þessum efnum á
sínum tíma. Fmmkvæði sem ég hefði
gjaman viljað sjá í meira mæli af
hálfu íslenskra stjómvalda. í þessu
sambandi má nefna að Norðmenn
skynja mikilvægi Norðurlandasam-
starfsins til þess að hafa óbein áhrif í Evrópú-
sambandinu. Þeir hafa fjölgað verulega í sendi-
ráðum sínum í Danmörku, Svíþjóð og Finn-
landi, löndunum sem eru komin inn. Því miður
höfum við ekki efni á því, en ég vil samt beita
sendiráðunum í þessum löndum í auknum
mæli. Norðurlandasamstarfíð hefur aldrei ver-
ið mikilvægara."
Hver eru helstu áhersluatriðin í samskiptum
við ESB? Ríður ekki á að standa við sínar
samningsskuldbindingar skv. EES samanber
vörugjaldsmálið?
„Við höfum gert það, við vorum að sam-
þykkja breytingar á áfengislöggjöfinni sem var
ekkert auðvelt pólitískt mál. Við verðum að
sjáifsögðu að fara eftir þeim reglum sem við
höfum samið um, hvort sem það er á því sviði
eða öðru. Ef það er eitthvað sem við getum
alls ekki sætt okkur við gegnir öðru máli. Við
getum ekki yfirtekið hvað sem er og hljótum
að hafa okkar sjálfstæðu skoðanir í þeim efn-
um. Ég á von á því að það þurfí að verða ein-
hveijar breytingar varðandi yörugjöld. En mér
fínnst nú stundum að túlkanir á ýmsu frá ESB
séu umdeilanlegar."
En þegar ráðherrar viðurkenna að seina-
gangi ístjómkerfinu sé um að kenna er það þá
viðunandi?
„I öllum svona málum tekur ákveðinn tíma
að fara yfír mál og undirbúa þau. Ég er nú
helst á því að það sé einhvers staðar annars
staðar seinagangur en hér. Ég veit að ríki
Evrópusambandsins eru ekki öll búin að taka
upp allar reglugerðirnar. Ég er ekki viss um
að það séu gerðar jafnmiklar kröfur til marg-
víslegrar starfsemi í ýmsum ríkjum Evrópu-
sambandsins eins og er hér á landi.“
Ég hjó eftir því að nú nefndir ekki landbún-
að í sambandi við ESB-aðiId. Liggur eitthvað
fyrir um áhrif ESB-aðiIdar á íslenskan land-
búnað?
„Nei, það liggur ekki nákvæmlega fyrir og
er eitt af því sem þyrfti að fara betur yfir.
Það er hins vegar alveg ljóst að þar eru bæði
kostir og gallar. Kostirnir eru þeir að við fengj-
um meiri markaðsaðgang með okkar lamba-
kjöt og hesta. Við fengjum stuðning við ýmsar
greinar landbúnaðarins. Gallamir em hins veg-
ar þeir að margvíslegur innflutningur mundi
vaxa á kostnað innlendrar framleiðslu. Aðalat-
riðið hlýtur að vera að halda uppi atvinnustarf-
semi í sveitum landsins. Þótt hún minnki á
einu sviði þá má bæta það upp á öðram. Mér
er nú sagt að áhrifin séu neikvæðari í Finn-
landi og Svíþjóð en landbúnaðurinn hafi gert
ráð fyrir þannig að tilhneigingin hafi verið að
fegra þessa mynd. Þetta þarf að fara yfir ef
menn setja það einhvern tíma á dagskrá að
ganga þama inn, sem er ekki núna.“
F-15 þoturnar ómissandi
I janúar 1994 sömdu Bandaríkjamenn og
íslendingar um varnarmálin til tveggja ára.
Er bytjað að huga að endurskoðun þess samn-
ings?
„Það er undirbúningur í gangi. Við höfum
verið í viðræðum við Bandaríkjamenn út af
þessu máli. Við væntum þess að fá niðurstöðu
í það í haust. Það er afar óheppilegt að það
ríki óvissa í þessu sambandi. Ég tel að það
sé algerlega nauðsynlegt út af vörnum íslands
að F-15 vélarnar séu hér. Ég er sannfærður
um að það er ekki hægt að reka hér eftirlit
með kafbátum og umferð I Norður-Atlantshafí
án þessara tækja. Ég trúi því og treysti að
Bandaríkjamenn vilji standa við sínar skuld-
bindingar sem koma fram í varnarsamningnum
og hef enga ástæðu til að ætla annað.“
Og enga ástæðu til að ætla annað en að
þeir muni fallast á að orrustuþoturnar fjórar
verði hér áfram?
„Ég tel að vera þeirra hérna sé liður í því
að standa við þær skuldbindingar sem fram
koma í vamarsamningnum.“
Breytir einhverju varðandi þyrlubjörgunar-
sveitina á Keflavíkurflugvelli að við erum búin
að fá nýja þyrlu til landsins?
„Nei, það breytir því ekki að björgunarsveit-
in á Keflavíkurflugvelli er algerlega nauðsyn-
leg út af umferð og eftirliti á Norður-Atlants-
hafí. Það er algerlega útilokað að Islendingar
einir geti annast þau mál, þannig að viðvera
hennar hér á landi er alveg jafnnauðsynleg
og áður. Björgunarþyrla okkar er mjög mikil-
væg viðbót en hins vegar vonast ég eftir því
að það verði hægt að auka samstarf og það
eru enn umræður í gangi um það hvort við
getum með einhveijum hætti komið meira inn
í rekstur sveitarinnar á Keflavíkurflugvelli.“
íslenskir aðalverktakar
Hver e&framtíð íslenskra aðalverktaka?
„íslenskir aðalverktakar hafa einkarétt á
ákveðnum framkvæmdum á Keflavíkurflug-
velli. Það hefur engin breyting verið gerð á
því. Ég hef átt ágætar viðræður við stjórn
Islenskra aðalverktaka um stefnumótun fyrir
fyrirtækið til framtíðar og lagði á það áherslu
að íslenskir aðalverktakar sæktu meira út á
við og tækju þátt I verkefnum annars staðar
í heiminum. Það era viðræður í gangi milli
ráðuneytisins og íslenskra aðalverktaka um
framtíðarstefnumótun en ég ætla ekki að segja
til um hver niðurstaðan verður.“
Er eignaraðild íslenska ríkisins æskileg til
frambúðar?
„Það er alveg opið af minni hálfu en ég tel
ekki tímabært að tala um sölu á þessu fyrir-
tæki fyrr en við höfum mótað stefnu þess.“
Nú var einkaréttur fyrirtækisins varðandi
framkvæmdir á vegum Mannvirkjasjóðs Atl-
antshafsbandalagsins afnuminn fyrr á árinu.
Eru fyrirsjáanlegar frekari breytingar á einka-
rétti fyrirtækisins til framkvæmda á Keflavík-
urflugvelli?
„Það liggur alveg fyrir að útboð verða auk-
in. Það var útboð um daginn sem var verulega
undir kostnaðaráætlun sem verður til þess að
Mannvirkjasjóðurinn mun áreiðanlega auka
framkvæmdir hér á landi. Ég veit ekki betur
en það sé fullkomlega ásættanlegt. Við höfum
líka lýst okkur reiðubúna hér til að draga úr
kostnaði í sambandi við reksturinn í Keflavík.
Á dögunum átti ég viðræður við aðila á Kefla-
víkurflugvelli og spurði þá hvort það væri ekki
ódýrara fyrir þá að geta reiknað með því að
geta nýtt Egilsstaðaflugvöll sem varaflugvöll
í staðinn fyrir Skotland. Það hafa þegar kom-
ið viðbrögð við því þannig að mér finnst sjálf-
sagt að það verði gert.“
Verðum að berjast fyrir hvalveiðum
Menn hafa dregið þá ályktun af Shell-mál-
inu, þar sem stórfyrirtæki hætti við að sökkva
olíubirgðastöð í Norðusjó, að taka verði mót-
mæli umhverfissinna mjög alvarlega í málum
sem þessum og beygja sig ef því er að skipta
til að vernda viðskiptahagsmuni sína, jafnvel
þótt skynsemisrök mæltu með því að halda
sínu til streitu. Dregur þú einhvern lærdóm
af þessu máli fyrir hugsanlegar hvalveiðar ís-
lendinga?
„Það er ljóst að það verður alltaf hægt að
beita menn þvingunum. Ég vil samt ekki leggja
sama skilning í mengun hafsins og skynsam-
lega nýtingu þess. Mér fannst til dæmis alveg
fráleitt að ætla að beina þessum þvingunum
gagnvart Skeljungi á íslandi, sem er sjálf-
stætt félag, en forstöðumenn þess höfðu tekið
afstöðu gegn því að pallinum yrði sökkt. Við
getum alltaf reiknað með því að ýmsir aðilar
muni reyna að þvinga okkur til að láta að vilja
sínum. Hvalveiðar verða ekki teknar hér upp
á nýjan leik nema með baráttu. Ég tel hins
vegar að við eigum engan annan kost en að
heyja þá baráttu. Ef við gerum það ekki mun
ekki verða neitt jafnvægi til langframa á höfun-
um í kringum okkur. Við getum ekki látið
hóta okkur í þessu máli. En menn verða þá
líka að vera tilbúnir að taka áföllunum."
Hvenær drögum við sverðið úr slíðrinu?
„Ég ætla ekki að segja til um það, en ég
varð var við það á sínum tíma að allir voru
tilbúnir til að taka undir kröfuna um hvalveið-
ar þegar vel gekk, en þegar ýmsar hótanir
komu og fyrirtæki tóku að lýsa því yfir að þau
ætluðu að hætta að kaupa af okkur afurðir,
þá snerast nú stundum ýmsir og sögðu að nú
yrði að breyta um stefnu. Svona mál kallar á
stefnufestu og ef við förum af stað þá verðum
við að vera tilbúnir að taka áföllum."
Ef Shell-fyrirtækið hefði sýnt stefnufestu
þá hefði tilvera þess ef til vill verið í hættu.
„Ég held að Shell-fyrirtækið hafí tekið
skakka ákvörðun í upphafi. Ef okkur íslending-
um er hótað þannig að við munum hafa verra
af ef við hættum ekki að nýta okkar auðlindir
þá eigum við engan annan kost en að beijast
því þá erum við að beijast fyrir tilveru okkar.“