Morgunblaðið - 02.07.1995, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995 13
LISTIR
Styrkur veittur úr Minningarsjóði Jean Pierre Jacquillat á föstudag
Morgunblaðið/Sverrir
RANNVEIG Sig-urbjörnsdóttir veitti styrknum til Sigurbjörns viðtöku úr hendi formanns sjóðs-
stjórnar, Erlendar Einarssonar, á föstudag. Cecile Jacquillat, ekkja Jean Pierre Jacquillat kom
hingað til lands og var viðstödd afhendinguna.
stundaði hann nám í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð árin
1987-1990.
Haustið 1991 hélt hann til
framhaldsnáms í Bandaríkjun-
um og hefur numið þar síðan
hjá hjónunum Amitu og Roland
Vamos, fyrst við Minnesota-
háskóla, en síðan við Tónlistar-
háskólann í Oberlin (Oberlin
Conservatory), þar sem hann
lauk Bachelor of Music-prófi á
sl. vori. Við þá stofnun hefur
hann notið „Dean’s Talent Aw-
ard“, sem veitti honum fullan
styrk til námsins. Hann hefur
og hlotið sn. „Honorary Society
Membership" við háskólann.
Sigurbjörn hefur verið kon-
sertmeistari í Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar 1988-91, í
hljómsveit Tónlistarskóla
Reykjavíkur, í strengjasveit
sama skóla og í hljómsveit Minn-
esota-háskóla. Einnig var hann
einn af leiðurum strengjasveit-
ar ESPA á Englandi 1988 undir
stjórn Y. Menuhins. Sigurbjöm
hefur haldið einleiks- og kamm-
ermúsíktónleika í Reykjavík,
Boston, Minneapolis, Glasgow,
Vermont og víðar.
Jean Pierre Jacquillat fædd-
ist í Versölum árið 1935. Hann
kom fyrst til starfa með Sinfón-
íuhljómsveit íslands árið 1972,
en var síðan ráðinn aðalhjóm-
sveitarsljóri hyómsveitarinnar
árið 1980 og gegndi því starfi
til loka starfsársins 1985-86.
Þetta er fjórða sinn sem veitt-
ur er styrkur úr Minningarsjóði
Jean Pierre Jacquillat. Aður
hafa hlotið styrk úr sjóðnum:
Þóra Einarsdóttir sópransöng-
kona, 1972, Tómas Tómasson
bassasöngvari, 1993, og Guðni
A. Emilsson hljómsveitarstjóri,
1994. Þessum styrkþegum hef-
ur öllum vegnað vel á tónlistar-
brautinni.
Sigurbjörn
fékk
500.000
krónur
SIGURBIRNI Bemharðssyni
fiðluleikara hefur verið veittur
500.000 króna styrkur úr Minn-
ingarsjóði Jean
Pierre Jacquill-
at. Erlendur
Einarsson, for-
maður stjórnar
sjóðsins afhenti
styrkinn í
fyrradag, sem
Rannveig
Sigurbjörns-
Bernharðsson dóttir, móðir
Sigurbjörns
veitti viðtöku, fyrir hönd sonar-
ins.
Sigurbjörn er fæddur í
Reykjavík 4. maí 1972, en flutt-
ist níu mánaða gamall með for-
eldrum sínum og tveimur eldri
systkinum til Eþíópíu, þar sem
þau dvöldust í fjögur ár. Þaðan
lá leiðin til Bandaríkjanna og
þar hóf Sigurbjörn fiðlunám
fimm ára gamall í Edwardsville.
Ári síðar fór hann í Tón-
menntaskóla Reykjavíkur og
nam hjá Gígju Jóhannesdóttur
til fjórtán ára aldurs, en síðan
hjá Guðnýju Guðmundsdóttur í
Tónlistarskóla Reykjavíkur.
Þaðan lauk hann einleikara-
prófi vorið 1991. Jafnhliða
Bandarískar
djassperlur
á Sóloni
GÍTARLEIKARINN Björn
Thoroddsen leikur með tríói
sínu á djasskvöldi Sólons Ís-
landusar, næstkomandi þriðju-
dagskvöld kl. 22.
Tríóið mun leika úrval af
bandarískum djassperlum í til-
efni þjóðhátíðar Bandaríkj-
anna og meðal djasstónskálda
sem þeir gera skil eru, Monk,
Silver, Ellington og Fanner.
Þá munu þeir leika bandarísk
blús-stef frá ýmsum timum.
Light
Nights
FYRSTA sýning Ligth Nights
á þessu sumri verður á morg-
un, mánudag, kl. 21 í Tjamar-
bíói, Tjarnargötu 12.
Leiknir verða þættir úr ís-
lendingasögum og þjóðsögum,
fluttir á ensku. Sýningar eru
öll kvöld nema sunnudags-
kvöld.
Orgelstund í
Kristskirkju
ORGELSTUND verður í
Kristskirkju, Landakoti,
þriðjudaginn 4. júlí kl.
12-12.30.
Douglas Brotchie leikur á
orgel kirkjunnar. Aðgangur
ókeypis.
■/'
/
\
\
gallery SARA
HAFNÁRFIRÐI og Reykjavík
í umarútsalc n
stendur sem hæst
Glæsilegir Ai-rilD
t ií skartgripir með n ino/n ftfSlATlOI»
ish n.iiiknft á 1U“/V'®. fataeff,urí1
r
■ .* • -
■ . / ;
h é
■P¥:':",
18k. gullhúð á
frábæru verði
af öllwm
Æ r
Mf
Æm
■■■
«
«
MlkfU
SARA
rrönuhrauni 6 • Hatnavliröi • Sinii 565 1660
Opið mánud.-fpstud. 9-18. laugard. 10-14
Suðurlandsbraut 50 V/Fákafcn • Síini 588 4545
Opið mánud. liinnmul. 10 18. föstud. 10-19. laugard. 10-16
m
w
1 *S*
& f-
«r*:
'm
j?