Morgunblaðið - 02.07.1995, Side 20
20 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó hefur tekið til sýninga myndina Don Juan De
Marco með Johnny Depp, Marlon Brando og Faye Dunaway í aðalhlutverkum
*
Astríður og
ævintýri
UNGUR maður (Johnny Depp)
tekur sér stöðu á ystu brún
auglýsingaksiltis á þaki fjörutíu
hæða stórhýsis. Hann er með
grímu fyrir andlitinu, skikkju-
klæddur, mundar sverð og kveðst
vera Don Juan, mesti elskhugi í
heimi sem hafi táldregið á annað
þúsund konur. Nú vill hann stytta
sér aldur af því að hann hefur
tapað ástinni sinni einu og finnst
hann ekki hafa neitt að lifa fyrir.
Lögreglan er viss um að við
geðsjúkling sé að eiga og snýr sér
til dr. Jack Mickler (Marlon
Brando) og honum tekst að telja
manninum hughvarf og tala hann
niður á jörðina. Síðan lætur geð-
læknirinn leggja unga manninn
inn á geðdeild og tekur sér 10
daga til að skoða sjúklinginn,
sjúkdómsgreina hann og mæla
fynr um meðferð.
í samtölum þeirra segir Don
Juan lækninum sögu sína; ævin-
týralega og ljóðræna sögu ótrú-
legra ævintýra og ásta. Eftir
fyrsta viðtalið sannfærist Mickler
um að ungi maðurinn sé heill á
geði og efasemdir hans um að
maðurinn sé sá sem hann segist
vera verða smám saman að engu.
Aðeins Don Juan sjálfur gæti
hafa upplifað slíka rómantík og
slíkar ástríður.
Sjálfur er Mickler að brenna
út eftir að hafa eytt þrjátíu árum
í að reyna að leysa vandamál
annarra og líf hans er orðið inn-
antím rútína hvort heldur er í
starfi eða í sambandinu við eigin-
konu sína, Marilyn (Faye
Dunaway). Upplifunin sem hann
verður fyrir í viðtölum við unga
manninn knýr hann hins vegar
út úr skelinni og til að líta í eigin
barm, skoða ástina og ástríðumar
í sínu eigin lífi. Mickler reynir að
endurlífga löngu slokknaðar
glæður í sambandi sínu og eigin-
konunnar og grípur það tækifæri
sem þessi mest heiilandi sjúkling-
ur • sem hann hefur haft færir
honum til að endurvekja ástríð-
umar og hreinsa sál sína.
Myndin um Don Juan DeMarco
er verk Jeremy Levens, sem bæði
leikstýrði og skrifaði hanrit mynd-
arinnar. Þetta er fyrsta kvikmynd
Levens sem leikstjóra en kvik-
myndir hafa verið gerðar eftir
tveimur handritum hans; Creator
og Playing For Keeps. Hann hefur
gefið út tvær skáldsögur og unnið
við leikstjóm í sjónvarpi en er þó
menntaður sálfræðingur og hefur
m.a. unnið sem slíkur á sjúkra-
húsi og kennt fræðin við Harvard
háskóla. Hann sótti því hugmynd-
ina að handriti myndarinnar um
Don Juans De Marco í bakgrann
sem hann þekkir vel.
En þótt Leven sé nýgræðingur
í leikstjórastóli eru framleiðendur
þaulreyndir og þar fer fremstur í
flokki Francis Ford Coppola.
Kvikmyndaiðnaðurinn hefur áður
notið góðs af samstarfi Coppola
og Marlon Brando og ber þar
hæst Guðföðurinn. Fyrir gerð
myndarinnar um Don Juan unnu
þeir síðast saman að gerð Apoc-
alypse Now.
Jeremy Leven segist engar sér-
stakar hugmyndir hafa haft um
hvaða leikarar ættu að fara með
hlutverk persónanna í myndinni
og hafi hann aldrei leitt hugann
að því meðan handritið var í
vinnslu. Jafnvel þótt svo hefði
verið er ólíklegt að honum hefði
dottið í hug að hann ætti eftir að
leikstýra þeim stjömufansi sem
raun varð á. Með Marlon Brando,
Johnny Depp og Faye Dunaway
fékk hann upp í hendumar þijá
af virtustu leikuram okkar tíma.
„Við fengum hæfileikaríkasta
leikarann yfír sextugu, þann hæfi-
leikaríkasta undir þrítugu og ein-
hverja virtustu ieikkonu í Holly-
wood. Betra gæti það ekki verið,“
segir Patrick Palmer, einn fram-
leiðenda myndarinnar.
„Ég frétti að Johnny langaði
til að leika í myndinni en því að-
eins að Brando tæki að sér að
leika geðlækninn. Þá hélt ég að
þessi saga ætti aldrei eftir að
komast á fílmu en fékk svo nýtt
sjokk þegar í ljós kom að Marlon
hafði áhuga á málinu," segir Le-
ven. Þriðji og síðasti sigurinn í
leikaravalinu vannst svo þegar
óskarsverðlaunahafinn Faye
Dunaway samþykkti að taka að
sér þýðingarmikið hlutverk Mari-
lyn. Þótt Marlon Drando sé dáð-
asti leikari sinnar kynslóðar er
það Johnny Depp sem er hin raun-
veralega stjama myndarinnar og
aðdráttarafl hans hefur verið
staðfest með könnunum meðal
áhorfenda eftir að myndin fram-
sýnd í aprflbyijun. Slíkar kannan-
ir era jafnan gerðar vestanhafs
og þeir sem sáu myndina um Don
Juan DeMarco gáfu henni meðal-
talseinkunnina 7,8 af 10 möguleg-
um. Um helmingur áhorfendanna
vora eldri en 35 ára. Tveir af
hveijum þremur áhorfendum vora
konur og kynjamunurinn var
meira áberandi eftir því sem
áhorfendur era yngri; stúlkur og
ungar konur sem streyma í bíó
til að horfa á Johnny Depp leika
Don Juan DeMarco enda reyndust
42% áhorfenda nefna Depp sem
helstu ástæðu þess að myndin
varð fyrir valinu en þriðjungurinn,
fólk um miðjan aldur og eldra,
kom þó fyrst og fremst til að sjá
goðsögnina Marlon Brando í
fyrstu kvikmyndinni sem hann
hefur tekið þátt i að gera í þijú ár.
AÐ verður tæpast um það deilt að
Marlon Brando er einn hæfileika-
ríkasti og dáðasti leikari sem bandarísk-
ur kvikmyndaiðnaður hefur af sér getið.
í þeim 35 kvikmyndum sem hann hefur
gert á 40 ára ferli hefur þessi 71 árs
gamla stórstjama skapað sumar af efdr-
minnilegustu persónum kvikmyndasög-
unnar, svo sem Don Corleone í Guðföð-
urnum. Fáar þeirra persóna hafa þó
hlotið þau harmsögulegu örlög sem orð-
ið hafa hlutskipti leikarans sem gat túlk-
að svo vel tilfinningar annarra en ekki
sínar eigin. Hann er nú bugaður maður
eftir að hver harmleikurinn á fætur
öðrum hefur riðið yfir fjölskyldu hans.
Eftir sjálfsmorð dóttur sinnar í vor hef-
ur Brando einangrað sig frá umheimin-
um og vinir hans óttast að hann vilji
ekki lengur horfast i augu við tilvemna.
Það gerðist um svipað leyti að Chey-
enne, 24 ára gömul dóttir Brandos,
hengdi sig á heimili móður sinnar á
Tahiti og myndin um Don Juan DeM-
arco, fyrsta kvikmynd Brandos í þrjú
ár, var framsýnd.
Meðan á gerð myndarinnar stóð hafði
verið til þess tekið að Marlon Brando
virtist búinn að jafna sig á því áfalli sem
hann varð fyrir í lgölfar þess að sonur
hans, Christian, var dæmdur til 10 ára
fangelsisvistar fyrir að myrða elskhuga
og bamsföður nefndrar Cheyenne.
Við gerð myndarinnar hafði Brando
verið hvers manns hug(júfi. Hjólhýsi
hans á tökustaðnum stóð öllum opið,
hann sat glaður fyrir á myndatökum
með tækniliðinu, eyddi löngum tíma með
leikstjóra og leikumm og með þeim
Johnny Depp, sem leikur titilhlutverkið,
tókst mikil vinátta. Þótt 70-80 kílóa
umframþyngd væri karlinum augljós-
lega fjötur um fót vom hinir fjölmörgu
aðdáendur hans og fáu vinir bjartsýnir
á að það væri að rofa til eftir svart-
nætti undanfarinna ára og að frammi-
staða hans í myndinni væri til marks
um að Brando hefði enn ekki sagt sitt
síðasta sem mikilhæfur kvikmyndaleik-
ari. Það orð hefur farið af honum lengi
að hann taki helst eingöngu að sér hlut-
Tragísk
goðsögn í
lifanda lífi
MARLON Brando í hlutverki geð-
læknisins Micklers í myndinni um
nútíma Don Juan.
verk sem gefa vel í aðra hönd en krefj-
ast lítillar fyrirhafnar. Don Juan þótti
til marks um að enn væri líf i glæðunum.
Þegar allt virtist leika í lyndi reið
áfallið yfir. Cheyenne hafði áður gert
fjölmargar sjálfsmorðstilraunir en nær-
staddir sögðu að fréttimar af dauða
hennar að morgni páskadags hefðu
fengið svo á Brando að hann hefði hnig-
ið niður aðframkominn og þurft læknis-
aðstoðar við. Hann sótti ekki jarðarför-
ina, einangraði sig algjörlega og neitaði
að taka við samúðarkveðjum og huggun-
arorðum vina sinna.
Það er talið að Brando ásaki sjálfan
sig fyrir örlög Cheyenne og það hveraig
komið er fyrir elsta syni hans, hinum
dæmda Christian. Brando á 11 böm á
aldrinum 1-36 ára með 7 konum. Þrem-
ur var hann giftur og á með þeim fimm
böra, þrjú átti hann með ráðskonu sinni
til marga ára.og þijú önnur hvert með
sinni ástkonunni. Brando hefur litla
rækt lagt við uppeldi barnaskarans og
þykir hafa sýnt litla kunnáttu og innsæi
í afskiptum af lífi þeirra. Hann hefur
reynt allt til að bægja börnunum frá lífi
í Hollywood og návígi við kvikmyndaiðn-
aðinn og hefur í því skyni þráfaldlega
beygt þau undir vilja sinn og aga án
þess þó að geta gefið þeim — fremur
en öðm fólki — af sjálfum sér. Sagt er
að Cheyenne, sem hafði verið undir
læknishendi árum saman vegna þung-
lyndis og lyfjamisnotkunar, hafi verið
tilfinningalega illa leikin og reið föður
sínum, sem hún hafði dáðst að frá
bernsku en taldi hafa hafnað sér.
Brando fæddist í Omaha í Nebrasta
3. apríl 1924, sonur leikkonu og sölu-
manns. Báðir foreldrar hans vom alkó-
hólistar. Hann hætti námi í framhald-
skóla og fór til New York að læra leik-
list og nam í Stanislavski-skóla Stellu
Adler. Honum vegnaði vel frá upphafi,
sló í gegn á Braodway í hlutverki Stan-
ley Kowalskis i A Streetcar named Des-
ire eftir Tennessee Williams og fyrir það
sama hlutverk hlaut hann sína fyrstu
óskarsverðlaunatilnefningu eftir að Elia
Kazan kvikmyndaði verkið (1951).
Brando túlkaði unga ráðvillta reiða
menn af tilfinningu sem ekki hafði áður
sést á hvíta Ijaldinu og næstu árin var
brautin bein. Hver myndin rak aðra en
hæst risu án efa On The Waterfront, sem
færði honum fyrstu óskarsverðlaunin
árið 1954, og Young Lions (1958). Báðar
era enn í hávegum hafðar sem sígildar
perlur, ekki síst fyrir leik Brandos.
Sumir segja að það hafi orðið Brando
að falli að Hollywood hafi ekki risið
undir því að sjá honum fyrir krefjandi
hlutverkum sem vom samboðin hæfi-
leikum hans en hvað sem þvi líður fór
fljótt að halla undan fæti á ferli hans
sem listamanns og litt krefjandi hlutverk
í hverri „stórmyndinni" á fætur annarri
urðu hlutskipti hans.
Á áttunda áratugnum rofaði til og
Don Corleone, ættfaðir mafíósanna í
mynd Coppolas um Guðföðurinn (1972),
er án efa ein eftirminnilegasta persóna
hans Fyrir Guðf öðurinn hlaut Brando
seinni Oskarinn sinn. Honum tókst einn-
ig afbragðsvel upp í Apocalypse Now
(1979) — hinni Coppola myndinni hans
— að ógleymdri hinni alræmdu Last
Tango in Paris (1973). Aðrar stærstu
myndir Brandos, þ.e.a.s. þær sem hann
hlaut óskarsverðlaunatilnefningar fyrir,
era: Viva Zapata, Julius Caesar, Sayon-
ara og A Dry White Season, sem gerð
var 1980 en þá sneri Brando aftur á
hvíta tjaldið eftir 10 ára fjarvem. Sjálf-
ur er hann hins vegar ánægðastur með
frammistöðu sína í myndinni Burn!
(1969) ef marka má sjálfsævisögu leikar-
ans, sem kom út í vetur og þótti rista
grunnt en vekja vonir um að leikarinn
væri að reyna að bijóta niður múrana
sem hann hafði byggt upp i kringum
um sjálfan sig.
Meðal þeirra sem rituðu um sjálfsævi-
sögu Brandos í vetur var sú skoðun út-
breidd að óviðjafnanlegir leikhæfileikar
hefðu jafnframt verið hans versta bölv-
un. Vegna ómældra hæfileika hefði leik-
listin reynst honum svo auðvelt viðfangs-
efni að hann hafi farið að fyrirlíta það
sem honum reyndist svo auðvelt en öðr-
um óyfirstíganleg hindrun. Aðrir segja
að maðurinn Marlon Brando verði tæp-
ast skilinn til hlítar án þess að hafður sé
í huga uppmni hans sem sonur tveggja
alkóhólista. Hann hafi augljóslega aldrei
unnið úr þeirri tilfinningaflækju sem
slíku uppeldi fylgi og rogist þess vegna
um með tilfinningalegan farangur sem
hindrað hafí hann í að ná áttum og sátt-
um við sjálfan sig og sína nánustu.