Morgunblaðið - 02.07.1995, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995 43
DAGBÓK
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG
Yfirlit:Yfir landinu suðaustanverðu er 1008
mb smálægð á hreyfingu austsuðaustur, en
1028 mb háþrýstisvæði er suðvestur í hafi.
Spá: Vestan- og norðvestanátt, víðast gola eða
kaldi. Þokusúld og 8-11 stiga hiti á Vestfjörð-
um og með vesturströnd landsins, en öllu
bjartara annars staðar og hiti allt að 17-20
stig suðaustan- og austanlands.
VEÐURHORFUR IMÆSTU DAGA:
Á mánudag er gert ráð fyrir hæglætisveðri og
bjartviðri víða um land, síst þó vestanlands.
Almennt verða hlýindi á landinu. Á þriðjudag
og miðvikudag snýst vindur til strekkings-suð-
austan- áttar með rigningu, einkum sunn-
anlands og vestan. Síðan má reikna með norð-
austanátt á fimmtudag og heldur kólnandi
veðri. Þá ætti að rofa til sunnan lands og vest-
an, en úrkoma verður á Norður- og Austur-
landi. _____________
Veðurfregnir eru lesnar frá Veðurstofu kl.
1.00, 4.30, 6.45, 10.03, 12.45, 16.30, 19.30,
22.10. Stutt veðurspá er lesin með fréttum
kl. 2, 5, 6, 8, 12, 16, 19 og á miðnætti. Svar-
sími veðurfregnir: 9020600.
FÆRÐ Á VEGUM
Þjóðvegir á landinu eru nú greiðfærir. Víða er
nú unnið að lagningu bundins slitlags og eru
vegfarendur beðnir að stilla hraða þar í hóf
og aka samkvæmt merkingum til að forðast
skemmdir á ökutækjum. Hálendisvegir eru nú
að opnast hver af öðrum. Þannig er nú orðið
fært í Laka og í Eldgjá úr Skaftártungu og í
Landmannalaugar að vestanverðu og þá eru
Uxahryggir orðnir færir. Austanlands er orðið
fært í Kverkfjöll. í lok vikunnar er gert ráð fyr-
ir að fært verði um Kjalveg, Kaldadal og í
Herðubreiðarlindir.
Helstu breytingar til dagsins í dag: Smálægðin sem eryfir
landinu hreyfist allhratt til austsuðausturs, en hæðin fyrir
sunnan landið heldur velli.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri 14 skýjað Glasgovu 12 skýjað
Reykjavík 8 súld Hamborg 15 skýjað
Bergen léttskýjað London 14 mistur
Helsinki 10 rigning Los Angeles 16 skýjað
Kaupmannahöfn 14 skýjað Lúxemborg 22 heiðskírt
Narssarssuaq 8 léttskýjað Madríd vantar
Nuuk 8 vantar Malaga 22 léttskýjað
Ósló 10 léttskýjað Mallorca 23 skýjað
Stokkhólmur 12 skýjað Montreal 22 heiðskírt
Þórshöfn 9 skýjað NewYork 21 léttskýjað
Algarve 18 heiðskírt Oríando 23 þoka
Amsterdam 15 skýjað París 22 skýjað
Barcelona 21 léttskýjað Madeira 20 iéttskýjað
Berlín 19 léttskýjað Róm 19 lágþokublettir
Chicago 17 léttskýjað Vín 20 léttskýjað
Feneyjar 21 þokumóða Washington 23 lóttskýjað
Frankfurt 17 léttskýjað Winnipeg 10 reykur
2. JÚLÍ Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólris Sól í hád. Sólset Tungl í suðri
REYKJAVÍK 2.55 0,5 9.00 3,3 15.04 0,5 21.16 3,6 3.08 13.30 23.51 16.58
fSAFJÖRÐUR 4.59 0,3 10.50 1,7 17.06 0,3 23.05 2,0 2.03 13.36 1.10 17.04
SIGLUFJÖRÐUR 1.03 1,2 7.18 0,1 13.49 111 19.23 0,3 1.01 12.50 0.28 16.13
DJÚPIVOGUR 0.06 0.4 6.03 AÆ 12.14 0,4 18.24 1,9 2.31 13.01 23.29 16.28
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru (Morgunblaðið/Sjómælingar Islands)
* * * * Rignmg
* jft *
* sflt *
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V7 Skúrir
Slydda Slydduél
Snjókoma Ú7 Él
•J
Sunnan, 2 vindstig.
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjöðrin S
vindstyrk, heil fjööur „ ^
er2vindstig. «
10° Hitastig
53 Þoka
Súld
Krossgátan
LÁRÉTT:
1 kaldhæðni, 8 munn-
biti, 9 gösla í vatni, 10
lengdareining, 11
þunnt stykki, 13 bleyt-
unnar, 15 lóu, 18 kær-
leika, 21 auð, 22 þolna,
23 viljugu, 24 sköpulag.
LÓÐRÉTT:
2 bölva, 3 jarða, 4
hæsta, 5 álíta, 6 stubb,
7 sægur, 12 hróp, 14
gála, 15 viljugt, 16
hrekk, 17 vínglas, 18
svipað, 19 fugls, 20
þvaður.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt:- 1 storm, 4 horsk, 7 lerki, 8 skjár, 9 sót, 11
garn, 13 snar, 14 Ólína, 15 flot, 17 ljót, 20 ata, 22
lifír, 23 urtan, 24 riðla, 25 auðna.
Lóðrétt:- 1 sálug, 2 orrar, 3 meis, 4 hest, 5 rýjan, 6
kærar, 10 ótítt, 12 nót, 13 sal, 15 fölur, 16 orfið, 18
játað, 19 tunna, 20 arga, 21 auga.
í dag er sunmidagur 2. júlí, 183.
dagur ársins 1995. Þingmaríu-
messa. Svitúnsmessa hin fyrri.
Orð dagsins er: Hegðið yður
eigi eftir öld þessari, heldur tak-
ið háttaskipti með endurnýjung
hugarfarsins, svo að þér fáíð að
reyna, hver sé vilji Guðs, hið
góða, fagra og fullkomna.
(Rómv. 12, 2.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn: í
dag er væntanlegt leigu-
skipið Kvant og jap-
anski togarinn Ánio
Maru nr. 7 til að taka
troll og vistir. Farþega-
skipið Astra kemur til
hafnar um hádegisbil og
fer aftur kl. 21 í kvöld.
Á morgun er Brúarfoss
væntanlegur.
Fréttir
Viðey. í dag kl. 15.15
verður staðarskoðun. Kl.
20-23 verður harm-
onikudansleikur í Viðey-
jamausti. Ljósmynda-
sýningin í skólanum er
opin og hestaleigan að
starfi. Veitingar eru
seldar í Viðeyjarstofu.
Bátsferðir hefjast kl. 13.
Samband dýravernd-
unarfélaga Islands er
með flóamarkað í Hafn-
arstræti 17, kjallara,
mánudaga til miðviku-
daga frá kl. 14-18. Gjöf-
um er veitt móttaka á
sama stað og tíma. Gjaf-
ir sóttar ef óskað er.
Félagið Barnamál,
áhugafélag um
bijóstagjöf, vöxt og
þroska bama, verður
með fulla starfsemi opna
hússins í sumar sem er
í Hjallakirkju í Kópavogi
kl. 14-16 1. og 3. mið-
vikudag hvers mánaðar.
Á staðnum era tvær
hjálparmæður sem flytja
fræðsluerindi tengd
brjóstagjöf og bömum
og umræður á eftir.
Næsta opna hús verður
miðvikudaginn 5. júlí
sem ber yfirskriftina:
Stór böm á bijósti/Að
hætta með bam á bijósti
og era allir hjartanlega
velkomnir.
Biskup íslands, herra
Ólafur Skúlason, aug-
lýsir í Lögbirtingablað-
inu eftirtalin óveitt emb-
ætti: Skeggjastaðir í
Múlaprófastsdæmi,
(Skeggjastaðasókn) sem
veitt verður frá 1. ágúst
1995. Seyðisfjörður í
Múlaprófastsdæmi,
(Seyðisfjarðarsókn) sem
veitt verður frá 1. ágúst
1995. Bjamanes í
Skaftafellsprófasts-
dæmi, (Stafafells-,
Bjamaness- og Hafnar-
sóknir) sem veitt verður
frá 1. september 1995.
Staða fræðslustjóra við
fræðslu- og þjónustu-
deild kirkjunnar á Bisk-
upsstofu sem veitt verð-
ur frá 1. október 1995
og staða verkefnisstjóra
í safnaðarappbyggingu
við biskupsembættið
sem veitt verður frá 1.
ágúst 1995. Umsóknir
þurfa að berast Biskupi
Islands, Laugavegi 31,
150 Reykjavik, fyrir 14.
júlí nk.
Mannamót
Aflagrandi 40. Félags-
vist kl. 14. Leikfimi fell-
ur niður í júlí vegna
sumarleyfa.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og ná-
grenni. Dansað í Goð-
heimum, Sigtúni 3 í
kvöld kl. 20. Félagsstarf
í Risinu, Hverfisgötu
105. Lokað í júlí.
Vesturgata 7. Á morg-
un mánudag er handa-
vinnustofan opin frá kl.
9-16. Ganga með Sig-
valda kl. 10.30. Dans-
kennsla, framhalds- og
byijendur kl. 12.15-
14.30. Kaffiveitingar.
Grillveislan verður 14.
júlí nk. Skráning í síma
562-7077.
Vitatorg. Á mánudög-
um er smiðjan opin kl.
9-12, létt leikfimi kl. 11,
þriðjudagar: smiðjan kl.
9-12, leikfimi kl. 10,
golf kl. 11. Miðvikudag-.
an Smiðjan opin kl.
9-12, boccia kl. 14-15.
Fimmtudagar: létt leik-
fimi kl. 11. Föstudagar:
Leikfimi kl. 10, golf kl.
11. Félagsvist á þriðju-
dögum kl. 14 og bingó
á föstudögum kl. 14. _
Nánari uppl. í síma
561-0300.
Kirkjustarf aldraðra í
Kópavogi. Orlofsdvöl á
Löngumýri í Skagafirði
verður dagana 29. júlí
til 4. ágúst nk. Þar er
m.a. boðið upp á íþrótt-
ir, útivist, nudd, heitan
pott, ferðir og helgi-
stundir. Skráning og
nánari upplýsingar í
kirkjunum og hjá Önnu
í síma 554-1475.
Kristniboðsfélag karla
heldur fund á morgun
mánudag kl. 20.30 í
Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 56-58.
Hið íslenska náttúru-
fræðifélag heldur opin-
beran fræðslufund á
morgun mánudag kl.
20.30 ístofu 101 íOdda,
Hugvísindahúsi Háskóla
íslands. Á fundinum
flytur Alicia Warren,
starfsmaður Náttúru-
vemdarráðs Nýja-Sjá-
lands erindi sem hún
nefnir: „Áhrif Russel-
lúpínu á gróður og dýra-
líf á Nýja-Sjálandi“. Er-
indið verður flutt á
ensku og eru allir vel-
komnir.
Árbæjarsafn. í dag er
Fombíladagurinn og
munu félagar í Fombíla-
klúbbi íslands sýna glæ-
sikerrur sínar kl. 14-17.
Kirkjustarf
Friðrikskapella.
Kyrrðarstund í hádegi á
morgun mánudag. Létt-
ur málsverður í gamla
félagsheimilinu að
stundinni lokinni.
Seltjarnameskirkja.
Fundur æskulýðsfélags
í kvöld kl. 20.30.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavik. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 669 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 669 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.1S / Áskriftargjald 1.500 kr. 4 mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
--------- 'j
Myndbandib
Gæbastjórnun
í heyöflu
getur sparab
bændum verulegar
upphæbir
í fóöurbætiskaupum.
myndbærhf.
Suðurlandsbraut 20, sími 55 35150.