Morgunblaðið - 02.07.1995, Qupperneq 44
SYSTEMAX
Kapalkerfi
fyrir öll kerfi
hússins.
NÝHERJI
SKIPHOLTI 37 - SlMI 88 80 70
Alltaf skrefi á undan
MORGUNBLADW, KRINGLAN I, 103 REYKJAVtK, SÍMI B69 1100, SÍMBRÉF 669 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 86
SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Getum sett kvóta á karfa
á Reykjaneshryggnum
Halldór Asgrímsson utanríkisráð-
herra vill samstarf við Grænlendinga
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir í viðtali við Morgun-
blaðið sem birtist í dag að íslending-
ar geti sett kvóta á karfann á
Reykjaneshrygg í samvinnu við
Grænlendinga með sama hætti og
Rússar og Norðmenn áskilji sér
rétt til að mæla fyrir um nýtingu
þorsksins í Barentshafi.
„Norðmenn og Rússar geta ekki
reiknað með því að það gildi ein-
hver allt önnur lögmál í Barents-
hafi en á Reykjaneshrygg. Fram
að þessu hafa þeir ekki verið tilbún-
ir að líta á þessi hafsvæði með sam-
bærilegum hætti og á meðan er
útilokað að mínu mati að ná samn-
ingum um þau mál,“ segir Halldór.
Hann segir að það hafi verið sett
í gang vinna til að taka upp nánara
samstarf við Grænlendinga um
stjórnun veiða á Reykjaneshrygg.
„Við getum í sjálfu sér gert ná-
kvæmlega eins og Rússar og Norð-
menn í Barentshafi og skipt þessu
úthafi á milli strandríkjanna."
Utanríkisráðherra var spurður
hvort þau áform Rússa og Norð-
manna að stjóma veiðum í Barents-
hafí í formi tvíhliða nefndar að lok-
inni úthafsveiðiráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna væru ásættanleg.
„Það getur út af fyrir sig verið
ásættanlegt ef sama skipulag verð-
ur á úthafínu suður af íslandi þann-
ig að við getum stjómað veiðunum
á Reykjaneshryggi í samvinnu við
Grænlendinga.“
Alvarleg yfirlýsing
af hálfu Norðmanna
í viðtalinu ræðir Halldór einnig
hina óljósu réttarstöðu á Svalbarða-
svæðinu. Hann segir það alvarlega
yfirlýsingu af hálfu Norðmanna að
rækjuveiðar á Svalbarðasvæðinu
séu lokaðar fyrir íslenskum skipum.
„Með þessu eru Norðmenn að stíga
skref sem ef til vill þvingar okkur
til að leggja málið fyrir Alþjóðadóm-
stólinn í Haag,“ segir utanríkisráð-
herra.
■ Við erum Evrópuþjóð/10-11
*
Islendingar
áttundu
Vilamoura, Morgunblaðið
ÍSLENZKA bridslandsliðið
hafnaði í áttunda sæti á Evr-
ópumótinu, eftir 21-9 sigur
yfír Sviss í síðustu umferðinni
í gær. Italir urðu Evrópu-
meistarar með 547 atig, en
íslendingarnir hlutu 523.
Frakkar urðu í öðru sæti
með 545,5 stig, Svíar náðu
542,5 stigum og bronsinu
með sigri gegn Pólveijum í
síðustu umferð. Pólveijar
höfnuðu við það í fimmta
sæti með 539,5 stig, en Hol-
lendingar komust upp í fjórða
sæti og þar með áfram í
heimsmeistaramótið. ísraels-
menn voru í sjötta sætinu og
Danir í því sjöunda með hálft
annað stig umfram Islend-
inga.
Orsak-
anna að
leitaí
lélegu
skyggni
FLUGMAÐURINN, sem lést þegar
flugvél hans fórst í norðanverðri
Geitahlíð, skammt suður af Kleifar-
vatni, á föstudag, hét Gunnlaugur
Jónsson, til heimilis að Heiðmörk 1
á Selfossi.
Gunnlaugur var þrítugur, fæddur
4. apríl 1965 og starfaði sem flug-
maður hjá Flugfélagi Vestmanna-
eyja. Hann lætur eftir sig unnustu
og einnig níu ára dóttur.
Ekkert bendir til bilunar
Starfsmenn loftferðaeftirlitsins
og rannsóknarnefndar flugslysa
fóru á slysstað efst í Geitahlíð í
gær. Sveinn Bjömsson, sem sæti á
í flugslysanefndinni, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að á þessu
stigi rannsóknar benti ekkert til að
slysið mætti rekja til .bilunar í
tækjabúnaði vélarinnar. Hins vegar
hefði verið mikil þoka og afar lélegt
skyggni og líklega væri orsakanna
þar að leita.
Morgunblaðið/Þorkell
FLAK flugvélarinnar, sem bar einkennisstafina TF-VEN, efst í Geitahlíð sunnan Kleifarvatns í fyrrinótt.
Níu manns slösuðust
við framúrakstur
Hugmyndir um útflutn-
ingsskóla á Sauðárkróki
Sauðárkrókur. Morgunblaðið.
NÍU manns slösuðust í bflslysi við
Sauðárkrók í fyrrinótt, þar af einn
svo alvarlega að ákveðið var að
flytja hann með sjúkraflugi til
Reykjavíkur til frekari aðhlynning-
2f. Hann var þó ekki talinn í lífs-
hættu.
Slysið varð um kl. 4 um nóttina,
á móts við bæinn Kimbastaði,
skammt innan við Sauðárkrók. Það
virðist hafa orðið með þeim hætti,
að BMW-fólksbíl hafí verið ekið
fram úr öðrum bfl, en lent á Mazda-
sendibfl, sem kastaðist út af vegin-
um.
Níu manns voru í sendibílnum
og slösuðust allir. Bfllinn er gjör-
ónýtur og var tækjabíll slökkviliðs-
ins kallaður á staðinn til að ná þeim
slösuðu úr bílflakinu. Sjö þeirra
voru fluttir á sjúkrahúsið á Sauðár-
króki í sjúkrabflum, en tveir voru
minna slasaðir og voru fluttir á
einkabílum. í framhaldi af skoðun
á sjúkrahúsinu var ákveðið að senda
einn hinna slösuðu til Reykjavíkur.
Hann var talinn mikið brotinn, en
ekki í lífshættu.
Ökumaður og farþegar í BMW-
bílnum sluppu án meiðsla.
HUGMYNDIR um stofnun útflutn-
ingsskóla á háskólastigi á Sauðár-
króki eru nú til skoðunar. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
er rætt um að setja á fót náms-
braut til sex eða níu mánaða, í
nánum tengslum við útflutningsfyr-
irtæki á Sauðárkróki og annars
staðar á Norðurlandi vestra. Áform-
in hafa verið kynnt fyrir Birni
Bjarnasyni menntamálaráðherra og
þingmönnum Norðurlandskjör-
dæmis vestra.
Þórólfur Gíslason, kaupfélags-
stjóri á Sauðárkróki, er helzti hvata-
maður þess að skólanum verði kom-
ið á fót. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins er horft til danska útflutn-
ingsháskólans sem fyrirmyndar að
skóla á Sauðárkróki og hefur verið
leitað ráða hjá Dönum.
Áherzla á
hagnýtt nám
Rætt hefur verið um að í skólan-
um yrði lögð áherzla á hagnýtt nám
og að nemendur ynnu verkefni fyr-
ir útflutningsfyrirtæki á Norður-
landi vestra og víðar.
Þá hefur verið rætt um að skól-
inn myndi tengjast náið Samvinnu-
háskólanum á Bifröst og hugsan-
lega viðskiptaháskóla Verzlunar-
skóla íslands, sem áformað er að
koma á fót.
Talið er að nægt húsnæði sé fyr-
ir hendi á Sauðárkróki, meðal ann-
ars hús sem Fjölbrautaskólinn hafði
áður á leigu.