Morgunblaðið - 15.07.1995, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.07.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995 5 Sumarstarfsemi Iðnskólans og borgarinnar í fullum gangi NEMENDUR fást við matvælagerð. Morgunblaðið/Sverrir EINAR Örn Eiðsson stússar í bílaviðgerðum. SÓLVEIG Edda Vilhjálmsdóttir fæst við hárgreiðslu. RAKEL G. Magnúsdóttir að sýsla við tölvuna. DÍANA Ósk Ármannsdóttir á kafi í tölvunni. Fjölbreyttara nám en áður REYKJAVÍKURBORG og Iðnskólinn standa fyrir sumarstarfsemi fyrir atvinnulaus ungmenni á aldrinum 16-25 ára þriðja árið í röð. „I sumar var rúm fyrir 200 manns á nám- skeiðunum, en við hefðum getað fyllt það tvisvar sinnum,“ segir Helga Björnsdóttir, sem stendur að námskeiðunum fyrir hönd Iðnskólans ásamt Steini Guðmundssyni. Arngrímur Þór Gunnarsson og Anna Björk Birgisdóttir standa að verkefninu fyrir Reykjavíkurborg. „Það sóttu 400 um í vor og síðan hafa örugg- lega um 100 manns sóttum í sumar. Fólk erþá sett á biðlista og um leið og einhver dettur út er fyllt upp í skarðið," segir Arngrímur. Forsenda fyrir því að fá inngöngu í námskeið- in er að nemendurnir séu frá Reykjavík og at- vinnulausir. „Auk þess er leitast við að hleypa þeim að sem hafa verstu félagslegu aðstöðuna, búa í leiguhúsnæði eða hafa börn á sínu fram- færi,“ segir Arngrímur. I skólanum er boðið upp á ókeypis barnapössun fyrir nemendur á námskeiðunum og eru þar að jafnaði um 10-12 börn. Nemendur fá 30 þúsund krónur fyrir að sitja námskeiðin, að því gefnu að mætingin sé til fyrir- myndar. Þijú námskeið eru haldin á hveiju sumri og vonast aðstandendur námskeiðsins til að laun- in hækki um 5 þúsund krónur á hveiju nám- skeiði eftir því sem líður á sumarið, eins og var í fyrra. Það sem nemendum stendur til boða í sumar eru námskeið í bílgreinum, fataiðnaði, hársnyrt- ingu, matvælaiðnaði, málmiðnaði, rafiðnaði, tréiðn og á tölvusviði. Hver nemandi getur tekið þrjú námskeið yfir sumartímann. Ólíkar greinav Rakel G. Magnúsdóttir er 21 árs og sækir nám- skeið í hárgreiðslu, á tölvusviði og í tréiðn. „Ég hef mjög gaman af þessu,“ segir hún. Hún sam- þykkir fúslega að þetta séu ólíkar greinar, en segir að það sé gott og gagnlegt að kynnast ein- hverju nýju. Til dæmis hafi henni ekkert veitt af að læra á tölvur, sem hafi áður verið henni framandi heimur, Sólveig Edda Vilhjálmsdóttir er 19 ára og í óðaönn að greiða hár á gínuhaus þegar blaða- mann Morgunblaðsins ber að. Hún sækir nám- skeið í fataiðn, matvælaiðnaði og snyrtingu í sum- ar, en hefur einu sinni áður sótt þessi sumarnám- skeið: „Ég lærði liönnun og bókagerð fyrir tveim- ur árum. Þá voru allir að vinna við það sama í heilt sumar, en námið er mun fjölbreyttara núna.“ Vettvangsferðir lífga upp á námið Díana Ósk Ármannsdóttir er 24 ára og ber náminu vel söguna. Hún segir að kennararnir séu mjög góðir og þá lífgi það upp á námið að farið sé reglulega í vettvangsferðir. Díana sækir nám- skeið á tölvusviði og í hárgreiðslu. Auk þess von- ast hún eftir að komast í námskeið í annaðhvort málmiðn eða bílgreinum. Einar Örn Eiðsson er 17 ára og sækir námskeið í bílgreinum og auk þess í málmiðn og trésmíði. Hann segist fá námskeiðin metin í MH þar sem hann stundar nám yfir vetrartímann. Þá segir hann að það muni vafalaust nýtast sér vel að læra um grunnþætti vélarinnar á námskeiði í bíl- greinum, þegar komi að viðhaldi á eigin bíl í fram- tíðinni. Norski loðnubáturinn Fiskebass leitar ásjár í Þórshöfn Hér er mönnun- um vel tekið NORSKI loðnubáturinn Fiskebass bað um lóðs og lagðist að bryggju í Þórshöfn í gær eftir að björgunar- menn höfðu sótt slasaðan mann um borð. Að sögn Sigurðar Smára Óskars- sonar hafnarvarðar slasaðist norski sjómaðurinn á auga. Hann var sótt- ur tafarlaust um borð af meðlimum björgunarsveitarinnar Hafliða í Þórshöfn, eftir að beiðni hafði bor- ist. Maðurinn var fluttur á Kópasker en ekki er enn vitað hversu alvarleg meiðsli hans eru. Eftir að maðurinn hafði verið sóttur barst beiðni frá bátnum um lóðs og hafnarpláss í Þórshöfn. „Mér fannst það óneitanlega svo- lítið skrýtið að þeir skyldu ekki biðja strax um að fá að leggjast að bryggju. Það hvarflar óneitanlega að manni að þeir hafi óttast synjun vegna nýliðinna atburða í tengslum við togarann Má. Þeim hefur eflaust þótt viðbrögðin í tengsium við hinn slasaða það góð að hér væri í lagi að koma í land. Því spássera hér milli 12-14 Norðmenn um götur bæjarins og er tekið með kostum og kynjum, það er engin ástæða til annars,“ segir Sigurður Smári. Stolnir tékkar hjá gTunuönm fíkniefnasala FÍKNIEFNALÖGREGLAN fann í fyrrakvöld stolna tékka fyrir mörg hundruð þúsund krónur í húsleit hjá manni sem grunaður er um fíkni- efnasölu. í húsinu fundust einnig um 15 grömm af hassi og margs konar munir sem taldir eru þýfi úr innbrot- um. Þá var einnig í húsinu mikið af persónuskilríkjum, sem talið er að notuð séu sem pantur í undir- heimaviðskiptum. Maðurinn var færður til yfir- heyrslu en RLR vinnur að rannsókn þess úr hvaða innbroti tékkarnir geti verið. Opið 8-18 & um helgar 9-17. Sími 564-1777 Tilboð þessa helgi: ALLIR kvistir á kr. 350 (áður 570). Dreyrakvistur Ennfremur birkikvistur, döglingskvistur, lágkvistur, loðkvistur, mánakvistur, perlukvistur, rósakvistur, stórkvistur, víðikvistur. Bogkvistur Ódýr arinviður kr. 450 Bjarkeyjarkvistur Fossvogsstöðin, ^^ossvogsstöiin I Fossvogsbletti 1, f. neðan Borgarspítala.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.