Morgunblaðið - 21.07.1995, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 21.07.1995, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ h FRÉTTIR Viðbrögð fólks við bresku heimildarmyndinni Biðsalir dauðans Óhiig’iianleg’ og sorgleg Morgunblaðið/Árni Sæberg RÓBERT Marshall formaður Verðandi, samtaka ungs Alþýðu- bandalagsfólks og óháðra, les upp áskorun til kínverskra stjórn- valda um að endurskoða afstöðu sína til mannréttindamála. Mótmælum stungið í bréfalúgu ÁHORFENDUR bresku heimild- armyndarinnar, Biðsalir dauðans, sem sýnd var í Sjónvarpinu á mið- vikudagskvöld eru flestir sammála um að hún hafí verið óhugnanleg og dregið upp ófagra mynd af ástandinu í Kína. Myndin fjallar um hlutskipti kínverskra stúlkubarna sem fæð- ast í óþökk foreldra sinna en til að stemma stigu við fólksfjölgun- arvanda í Kína hafa yfirvöld grip- ið til þess ráðs að heimila hveijum hjónum að eignast einungis eitt barn. Margir óska þess að eignast son svo nafn fjölskyldunnar lifi og hefur það orðið til þess að sum hjón neyta allra bragða til að losna við stúlkur sem þeim fæðast. Fékk hroll frá toppi til táar „Myndin er afar ógnvekjandi og síðasta atriðið var hryllilegt," segir Gunnlaug- ur Pétur Er- lendsson. „Ég fékk hroll frá toppi til táar. Það er vart trú- andi að svona ómannúðlegt at- hæfi fyrirfinnist í heiminum. Mér fannst erfítt að horfa á myndina." Gunnlaugur segir að íslending- ar eigi auðvitað að senda fulltrúa á Kvennaráðstefnuna sem haldin verður í Kína í haust því að „þó við séum ekki stór þjóð erum við þjóð og rödd okkar er sterk“. Síðasta atriði myndarinnar ljótt Pálmar Sigurðsson er sama sinnis og Gunnlaugur og segir að myndin hafi ver- ið óhugnanleg og dregið upp mjög ljóta mynd. „Sér- staklega fannst mér atriðið í lok þáttarins ljótt.“ Pálmar segist ekki hafa mynd- að sér skoðun á því hvort íslendingar eigi að senda fulltrúa til Kína en að það sé ljóst að það verði að vekja frekari at- hygli á þessu máli. Megum ekki dæma Kínverja út frá okkar forsendum Unnur Halldórsdóttir segir að myndin hafi snortið sig töluvert. „Við megum hins vegar ekki dæma Kínverja út frá vestræn- um forsendum." Unnur telur að hægt sé að vinna gegn þessu ástandi með fræðslu og upplýsingum til fólksins og minnir á að við þekkjum ekki þann vanda sem kínversk stjórnvöld séu að glíma við, þ.e.a.s. fólksfjölgun- arvandann. Hún tekur undir þá gagnrýni að í raun sé engin skipulögð her- ferð í gangi í Kína gegn stúlku- bömum en það sé látið í veðri vaka í myndinni. „Ég hallast að því að við eigum ekki að hunsa Kvennaráðstefnuna í haust og að við getum frekar haft áhrif með því að fara. Við getum beitt kínversk stjórnvöld þrýstingi og skapað umræður því það er ljóst að þeim finnst umræð- an óþægileg. Þá sé það umhugsunarvert hve framlög íslendinga til þróunar- mála séu naum. Myndin sorgleg Kolbrúnu Ólafsdóttur fannst myndin sorgleg og segir að sér hafí liðið illa þegar hún horfði á hana. Kristjáni Hjaltasyni kom UM 70 manns tóku þátt í mót- mælastöðu við kínverska sendi- ráðið síðdegis í gær í tilefni af sýningu myndarinnar Biðsalir dauðans í Ríkissjónvarpinu sl. miðvikudag. Að mótmælunum stóðu ungliðasamtök stjórnmála- flokkanna, Þjóðvaki og Kvenna- listi. Ætlunin var að afhenda starfsmönnum sendiráðsins áskorun til kínverskra stjórn- valda, en mótmælendur komu að lokuðum dyrum. Því var gripið til þess ráðs að lesa upp áskorun- ina á tröppum sendiráðsins og var henni þvínæst stungið inn um bréfalúgu. Áskorunin var svohljóðandi: „Ungt fólk í öllum stjórnmála- flokkum landsins hefur sameinað krafta sína og boðað til þessarar mótmælastöðu í þeim tilgangi að hins vegar á óvart hve börnin voru fá miðað við hve stórt Kína sé og telur að það sé auðvelt að falsa svona myndir. Margréti Sig- urðardóttur fannst myndin hræðileg. Hún segist þeirrar skoðunar að konur eigi ekki að sitja heima heldur sé sjálfsagt að þær fari til Kína á ráðstefnuna. lýsa yfir þungum áhyggjum af stöðum mannréttindamála í Kína og þá sérstaklega grófum mann- réttindabrotum gagnvart konum og börnum. Markmið þessarar mótmælastöðu er að koma á fram- færi þeim skilaboðum að um- heimurinn fylgist með og lætur sig þessi mál varða. Vilji kínversk stjórnvöld pjóta viðurkenningar og virðingar í samfélagi þjóðanna er óhjákvæmilegt að mannrétt- indamál verði tekin föstum tök- um. Við skorum á kínversk stjórnvöld að endurskoða afstöðu sína til mannréttindamála og hafa það hugfast að mannréttindi til- heyra öllum, börnum jafnt sem fullorðnum. Það er von okkar að þrýstingur þjóða heimsins verði til þess að hraða úrbótum og að þjáningum saklausra linni." Einbirnisstefnan fáránleg „Það er ótrúlegt að þetta sé til. Myndin var óþægileg og það fór hrollur um mig, sérstakega í lok hennar," segir Vignir Arnarson, sem telur ein- birnisstefnu stjórnvalda í Kína fáránlega. „Hún kallar ekki á nema eitt í þjóðfélagi þar sem karlleggurinn er númer eitt“. Innflutningur á kjúklingum tefst enn Vottorð ekki stimpluð án heimildar ráðherra YFIRDÝRALÆKNIR synjaði í gær versluninni Bónus um staðfestingu á heilbrigðisvottorðum fyrir innflutn- ing á sænskum kjúklingum, á þeim forsendum að hafa yrði samráð við landbúnaðarráðherra áður. Ekkert varð því af innflutningi kjúklinganna í gær, en um eitt bretti er að ræða. „Samkvæmt lögunum heimilar landbúnaðarráðherra inn- flutninginn að fengnu áliti yfirdýra- læknis, þannig að ég hef ekki heim- ild tii að leyfa innflutninginn án þess að fá grænt ljós hjá ráðherra," segir Brynjólfur Sandholt yfirdýralæknir. Hann minnir á að ráðuneytið hefur sent frá sér upplýsingar þess efnis að setja verði reglugerðir og innflutn- ingskvóta áður en innflutningur á hráum landbúnaðarvörum verði heimilaður, sem geti tekið nokkrar vikur, og því sé heilbrigðisþátturinn ekki einvörðungu til staðar. Framvísaði öllum gögnum Jóhannes Jónsson kaupmaður í Bónus reyndi árangurslaust að ná í ráðherra í gær. Hann kveðst hafa verið búinn að sýna yfirdýralækni viðkomandi skjöl og fylgt kröfum hans í einu og öllu um þau fylgiskjöl sem hann þyrfti að framvísa. „Jó- hannes er búinn að láta mig hafa ýmis gögn en mér finnst rétt að ráð- herra fái að ákveða hvað er nóg,“ segir Brynjólfur. „Yfirdýralæknir var búinn að segja mér að þessi vott- orð væru fullgild en hann hlýtur að hafa fengið fyrirmæli um að skrifa ekki upp á þau án samráðs við ráð- herra. Þetta ruglar mig alveg í rím- inu en ég ætla að freista þess að ná í ráðherra hið fyrsta og fá samþykki hans. Þessi innflutningur er orðinn svo tímafrekur að má líkja við fullt starf,“ segir Jóhannes. Afgreiðsla óljós Brynjólfur segir óljóst hvenær ráð- herra muni taka ósk Jóhannesar um innflutning til meðferðar. Hann muni vart ganga á fund ráðherra, frekar sé líklegra að ráðherra kalli á hann. „Hrátt kjöt hefur ekki verið flutt inn til landsins í nokkra áratugi, þannig að menn gera ekki svona lag- að einn, tveir og þrír. Þetta mál er þannig eðlis að ég held að hann þurfi að velta þessu fyrir sér og fá ráð- gjafa sína til að skoða málið líka.“ > ! I i í i I I i I ft I i i Í AÐ SÖGN Eiríks Sigurbjörnssonar, framkvæmdastjóra sjónvarpsstöðv- arinnar Ómega, voru gestir á sam- komum predikarans alls 11 til 12 þúsund. „Þetta tókst vonum fram- ar,“ segir hann, en Benny Hinn kom hingað til lands í samvinnu við Ómega. „Það komu margir sem höfðu aldrei farið á svona samkomur áður og það var mjög gleðilegt að sjá biskup íslands. Mikill fjöldi fólks kom upp á svið á samkomunum og vitnaði um lækningu sína við ýmsum kvillum og sumir sögðust hafa fund- ið hlýjan straum fara um sig. Við tókum niður tugi nafna og við mun- um hafa samband við þetta fólk til að sjá árangurinn. Það er andleg vakning hérna á íslandi. Við höfum orðið vör við að fólk er mjög opið í dag, það er til- búið til að ganga á Guðs vegi og gefast Kristi. Fólk er mjög þyrst í Guðs orð og lifandi kraft, ekki neina lognmollu. Ef prestar Þjóðkirkjunnar myndu leita Guðs meira í bæn og predika með krafti heilags anda, þá myndu kirkjurnar-fyllast,“ segir Éi- ríkur. Mjög áhugavert Morgunblaðið innti hr. Ólaf Skúlason biskup íslands eftir skoðun hans á samkomum Benny Hinn. „Ég 11-12 þúsund mánns sáu Beniiy Hinn Bandaríski predikarínn Benny Hinn flaug af landi brott í fyrrakvöld eftir að hafa haldið þrjár vel sóttar samkomur í var viðstaddur fyrstu samkomu hans og þetta var mjög áhugavert, ekki síst hve fag- mannlega var að öllu staðið. Pred- ikarinn hafði mjög sterka sviðsfram- komu og stjórnaði aðstoðarfólki sínu eins og herforingi. Ég söng með í öllum lögunum sem ég kunni, enda var ég kominn þarna af allri þeirri einlægni sem ég á til þegar ég fer í guðsþjónustur. Mér féll mjög vel sá þáttur pred- ikunar hans þegar hann talaði um Jesú Krist kross- festan og -uppris- inn og að við ætt- um að snúa okkur beint til hans. Hvaða prestur sem er innan Þjóð- kirkjunnar hefði getað tekið sér þessi orð í munn og sagt Amen við því. Ég vil aftur á móti ekkert fullyrða um það hvort fólk geti fengið lækn- ingu á svona samkomum. Einstakl- ingar eru misjafnlega bænheitir og Hr. Ólafur Eiríkur Sigur- Skúiason björnsson Benny Hinn móttækilegir fyrir áhrifum, þannig að ég er viss -um að þettá fólk sem telur sig hafa fengið einhvetja bót meina sinna segir það í fullri ein- lægni. Ég er viss um að kraftaverk geta gerst á þessum stað eins og í venjulegum messum hjá okkur þar sem meiri ró og friður ríkir. Trúin er lifandi í fyrra þegar Benny Hinn kom hingað til lands var snúið út úr orð- um mínum og þau rangtúlkuð. Eg veit að Guði er ekkert ómögulegt og hann notar menn bæði til þess að boða trú og eins til þess að sanna trú í verki. Við í Þjóðkirkjunni biðjum í hverri einustu messu fyrir sjúkum og sumsstaðar eru sérstakar fyrir- bænasamkomur, þannig að það sem Benny Hinn er búinn að vera að gera er okkur alls ekkert framandi, við stöndum bara öðruvísi að verki. Við vonum að þúsundirnar sem komu í Laugardalshöllina haldi áfram að leita Guðs og ég býð þetta fólk innilega velkomið í söfnuðinn sinn. Við lítum á vakningu sem holla en það er fyrst og fremst framhald- ið sem skiptir máli og það er eins með lækningarnar. Trúin getur kviknað við svona samkomur, hún er lifandi og hún visnar ef hún fær ekki næringu en styrkist ef að henni er hlúð. Það viljum við gjarnan gera og bjóðum fólki aðstoð Þjóðkirkjunn- ar til þess.“ ft I ft ft I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.