Morgunblaðið - 21.07.1995, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 21.07.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 7 FRÉTTIR Morgunblaðið/Emilía LEIKSVÆÐIÐ verður 400 fermetra stórt með leiktælqum fyrir Iítil börn. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum fyrir haustið.- Leikvöllur rís við Laugarneskirkju STARFSMENN garðyrkjustjóra í Reykjavík vinna nú að gerð leikvall- ar á svæði milli Hofteigs og Kirkju- teigs fyrir framan Laugarneskirkju. Gerð umrædds leiksvæðis var kynnt fyrir íbúum nærliggjandi gatna í bréfi dags. 4. júlí sl. Nokkr- ir íbúar hafa lýst óánægju sinni með leiksvæðið vegna þess að opna svæð- ið, þar sem það verður, væri eitt af fáum grænum svæðum í hverfinu. Þá ættu þeir leikvellir sem eru við leikskólann og barnaskólann að full- nægja þörf fyrir leiksvæði barna í hverfinu. Þá hefur verið gagnrýnt hve skammur tími gafst til athuga- semda en framkvæmdir hófust í síð- ustu viku. í bréfi embættis garðyrkjustjóra segir að Borgarskipulag hafi gert úttekt á dreifingu og ástandi leik- svæða, m.a. í þessu hverfi. Þá hafi komið í Ijós að langt væri á milli leiksvæða í þessum hluta hverfisins og lagt til að koma mætti fyrir ieik- aðstöðu á þessu svæði. í framhaldi af því væri fyrirhugað að koma fyr- ir leikaðstöðu á svæðinu. Við skipu- lag þess hafi verið haft að leiðar- ljósi að sýn til kirkjunnar úr vestri eftir svæðinu héldist og að núver- andi tijágróður nýttist til að skerma af leikaðstöðuna frá götunni. 400 fm með tækjum fyrir lítil börn Samkvæmt upplýsingum frá emb- ætti garðyrkjustjóra er um að ræða 400 fermetra svæði með leiktækjum fyrir lítil börn, sandkassa, gormadýr- um og litlum kastala. Þar að auki verða bekkir fyrir fullorðið fólk að tylla sér á. Leiksvæðið tekur aðeins lítinn hluta opna svæðisins og er alllangt frá kirkjunni. Þeir sem koma í kirkjuna ættu ekki að verða fyrir truflun frá svæðinu og jafnvel ekki sjá það. Stefnt er að því að ljúka fram- kvæmdum fyrir haustið og er áætl- aður kostnaður um 1,6 milljónir króna. Gerð leikvallarins var samþykkt í umhverfismálaráði og skipulags- nefnd Reykjavíkurborgar. Starfs- maður garðyrkjustjóra segir að emb- ættinu hafi borist mótmæli frá örfá- um íbúum hverfisins, þar af ein skrifleg. Þeir sem hafi lýst ánægju sinni séu mun fleiri og margir hafi gefið sig á tal við starfsmenn á staðnum og iofað verkið. Borgin hefur greitt 100 milljónir í húsaleigubætur 1.995 umsóknir frá áramótum ALLS hafa 1.995 umsóknir um húsaleigubætur borist síðan Reykja- víkurborg hóf greiðslu húsaleigubóta um síðustu áramót, en í uppháfi höfðu um sjö hundruð umsóknir borist. Að meðtalinni útborgun næstu mánaðamóta nemur upphæð greiddra húsaleigubóta frá áramót- um rúmum 99,8 milljónum króna en Reykjavíkurborg greiðir um 60-70% af öllum húsaleigubótum á landinu. Um seinustu mánaðamót bárust 167 umsóknir sem er töluverð aukn- ing frá seinustu mánuðum að sögn Ásdísar Leifsdóttur, deildarstjóra húsaleigubótadeildar Félagsmála- stofnunar Reykjavíkur. „Á tímabili var í gangi mjög neikvæð umræða um húsaleigubætur og fólk stóð í þeirri trú að það fengi engar bætur eða mjög lágar, sem virðist hafa komið frá leigusölum ef marka má fullyrðingar leigjenda sem við okkur hafa rætt, Að meðaltali hafa 100-110 umsóknir borist á mánuði," segir hún. Endurskoðunar þörf Húsaleigubótakerfið var hugsað sem tilraun til eins árs, en Asdís kveðst telja ósennilegt að það verði lagt af miðað við núverandi eftir- spurn og reynslu af því. Hins vegar sé full þörf á að endurskoða lög um húsaleigubætur, enda megi finna á þeim ýmsa vankanta. Þess má geta að samráðsnefnd um greiðsluvanda heimilanna leggur m.a. til í áfanga- skýrslu sinni til félagsmálaráðherra, að við endurskoðun laga um húsa- leigubætur verði reglugerð um fjár- hæð bóta endurskoðuð með tilliti til tekjuviðmiðs og reynt að gæta sam- ræmis við vaxtabætur, auk þess sem skattlagning húsaleigubóta verði afnumin. Nú greiða 28 sveitarfélög hérlendis húsaleigubætur og greiða mörg minnstu sveitarfélögin aðeins einum einstaklingi húsaleigubætur. Mismunað eftir búsetu Ásdís segir bagalegt misræmi á milli sveitarfélaga og nefnir sem dæmi Fellahrepp sem er nær sam- tengdur Egilsstöðum og greiðir húsaleigubætur öfugt við Egils- staðakaupstað. Sama máli gegni um t.d. Kópavog sem greiði ekki húsa- leigubætur, eitt sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. „Þarna er ver- ið að mismuna fólki eftir búsetu," segir hún og kveðst telja brýnt að lagfæra samsvarandi ágalla. Að sögn Ásdísar nema húsaleigu- bætur allt frá nokkrum krónum upp i 21 þúsund krónur hæst, en aldrei er greitt meira en sem samsvarar helmingi leigu. Að meðaltali eru greiddar bætur til hvers einstakling 10.700 krónur. „Fjöldi þessara um- sókna er ívið minni en gert var ráð fyrir, en þetta hefur farið mjög hægt af stað og fólk er enn að beij- ast við að fá húsaleigusamninga. Leigusalar virðast mjög tregir en krafa leigjenda er háværari nú þeg- ar það veit um þennan rétt sinn,“ segir Ásdís. veitir góðan afslátt og þú safnar inneign að auki Viðskiptakort BYKO er sparnaðarkort sem tryggir þér 5% staðgreiðsluafslátt þegar þú verslar við BYKO verslanirnar og Byggt & Búið. Að auki veitir kortið stigvaxandi afslátt sem færist sem inneign á viðskiptareikning þinn í árslok. Grunnafsláttur Allt að 200.000 kr. 200.000-500.000 kr. 500.000 kr. og yfir 5% stgr.afsláttur 2% viðbótarafsl. 4% viðbótarafsl. 6% viðbótarafsl. Reglur uin Víðskiptnkort BYK0 1. Allir viöskiptavinir BYKO geta fengið Viðskiptakort. 2. Til aö viðskiptin safnist upp á viðskiptareikning þarf að framvísa Viðskiptakortinu. 3. I árslok færist inneign vegna stigvaxandi afslátta á viöskiptareikning. 4. Korthafi fær sent viðskiptayfirlit ársfjórðungslega. \ 5. Viðskiptakort BYKO er skráð á nafn. Hægt er að gefa út fleiri eA eitt Viðskiptakort á sama viðskiptareikning. \ 6. Glatist kort skal tilkynna það til BYKO strax. 7. Verði breytingar á reglum um Viðskiptakort verða þær sendar út til viðskiptavina á næstu yfirlitum. BYKO BYK0 byggir með þér Já, ég vil fá sent ViósKiptakort BYK0 Klipptu út og sendu okkur þennan skráningarmiða f umslagi merktu: Skrifstofur BYK0, Breiddinni, 200 Kópavogur. Einnig getur þú sent okkur eyðublaðið með myndsendi 515-4199.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.