Morgunblaðið - 21.07.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 11
ifptiaillQQ
i n
láníiGJfl Q&
SGÐ VBDOBaH
I TENGSLUM við Listasumar ’95
verður opnuð sýning á verkum Jane
Darovskikh í Deiglunni í kvöld, föstu-
dagskvöldið 21. júlí, en hún er banda-
rískur myndhöggvari sem dvalið hef-
ur í gestavinnustofunni í Grófargiii
á Akureyri undanfarna þijá mánuði.
Hún útskrifaðist frá New York ríkis-
háskólanum með meistaragráðu í
höggmyndalist og hefur síðan unnið
og starfað víða um heim. Hún dvelur
á Islandi sem Fulbright-styrkþegi.
Verkin sem hún sýnir í Deiglunni eru
öll unnin meðan á dvöl hennar á
Akureyri hefur staðið og hefur hún
m.a. gert tilraunir með íslenskt berg.
Sýningin stendur til 27. júlí og er
opin virka daga frá kl. 11-18 og um
helgar frá kl. 14-18.
Gítarfestival
Kristinn Árnason gítarleikari spil-
ar á tónleikum í Akureyrarkirkju kl.
20.30. í kvöld.
Glugginn
Jón Laxdal Halldórsson sýnir í
Glugganum, sýningarrými Lista-
sumars í glugga Vöruhúss KEA í
göngugötunni. Jón hefur gefið út
ljóðabækur og er starfandi myndlist-
armaður á Akureyri. Hann hefur
haldið fjölmargar sýningar bæði hér
heima og í Hollandi og Bretlandi.
Listasafnið
Nú um helgina eru síðustu forvöð
að sjá sýningu tékkneska lista-
mannsins Jan Knap á Listasafninu
á Akureyri, en henni lýkur á sunnu-
dag, 23. júlí.
Fatlaður Breti ferðast yfir ísland frá Eyrarbakka að Hraunhafnarvita
HÓPURINN fyrir utan Skeifuna, félagsheimili hestamannafé-
lagsins Léttis á Akureyri, I nepjunni í gær.
Byijaði á hjóli og
endar á hestbaki
JOHN Birdsall lætur sér ekki allt
fyrir brjósti brenna. Hann er mik-
ið fatlaður, en er á ferðalagi sem
hófst 6. júlí síðastliðinn á Eyrar-
bakka, en ferðinni er heitið þvert
yfir ísland og er lokaáfangastað-
ur hans og samferðamanna á
Hraunhafnartanga á Melrakka-
sléttu.
Með John Birdsall, sem jafnan
er kallaður JB, í för eru fjórir
samlandar hans, Bretar og er ferð
þeirra kostuð af fyrirtæki þar í
landi sem sérhæfir sig í íþrótta-
vörum og tækjum fyrir hreyfi-
hamlaða.
Áður hafði JB ferðast frá
syðsta odda Bretlands til þess
nyrsta og hófst Islandsferðin, sem
öll er fest á filmu og gerð verður
úr heimildarmynd, í sjónum fyrir
utan Eyrarbakka. Kappinn kemur
akandi á sérhönnuðu þríhjóli eins
og upp úr hafinu við suðurströnd
landsins.
Ferðin gekk eins og í sögu þar
til hópurinn var kominn umjiað
bil 15 kílómetra sunnan við Isólfs-
vatn á Sprengisandsleið, en þá
hrundi hjólið og tókst ekki að
gera við það þó mikið væri reynt
og til kostað. Sáu ferðalangar þá
fram á að hætta þyrfti við ferðina
og þótti súrt í broti, en þá vakn-
aði sú hugmynd að JB gæti hald-
ið förinni áfram á hestbaki.
Ferðafélagar hans komu sér í
samband við Baldvin Björnsson
hjá Goðheimum í Kinn og hann,
í samvinnu við járnsmíðaverk-
stæðið Varma og Hnakkvirki á
Akureyri, hefur smíðað eins kon-
ar söðul upp úr stól þríhjólsins
sem John Birdsall er fær um að
sitja i, en fyrirmynd undirbygg-
ingarinnar sækir hann i gömlu
Morgunblaðið/Rúnar Þór
JOHN Birdsall ætlar að ljúka ferðinni á hestbaki eftir að vél-
knúna þríhjólið hrundi og með honum verður Baldvin Björnsson
frá Goðheimum.
klyfjarnar. Lokahönd var lögð á
verkið í gær og þá ekkert því til
fyrirstöðu að hægt verði að halda
förinni áfram, en áætlað er að
leggja af stað frá Kiðagili á
Sprengisandi á morgun, laugar-
dag.
John Birdsall hefur aldrei á
ævinni komið nálægt hestum, en
Baldvin mun ríða með honum það
sem á vantar til að ljúka ferð-
inni. „Við förum bara fetið,“ seg-
ir hann og bjóst við að vera kom-
inn að Hraunhafnartanga um
næstu mánaðamót.
Friðarhlaup í 5. sinn
FRIÐARHLAUP verður hlaupið í
fimmta sinn hér á landi, en það
hefst á Ráðhústorgi á Akureyri á
morgun kl. 12.30.
Friðarhlaupið var fýrst hlaupið
á íslandi árið 1987 og síðan ann-
að hvert ár. Þetta er boðhlaup í
ólympískum anda þar sem friðar-
boðskap er komið á framfæri á
táknrænan hátt, en yfir milljón
manns hlaupa allt frá nokkrum
metrum upp í marga kílómetra
og láta logandi kyndla ganga sín
í milli. í ár er hlaupið í öllum sjö
heimsálfunum og yfir 80 löndum
en áætlað er að mannfjöldinn
hlaupi um 80 þúsund kílómetra
vegalengd í þágu friðar.
Á íslandi verður hlaupið dag-
ana 22. til 30. júlí. Hlaupið hefst
á Ráðhústorgi á Akureyri á morg-
un og verður hlaupið til Reykja-
víkur og yfir Snæfellsjökul á leið-
inni. Hlaupinu lýkur á Ingólfstorgi
kl. 15.00 sunnudaginn 30. júlí,
en áætlað er á hlaupa um 80 kíló-
metra daglega. Allir sem þá.tt taka
fá viðurkenningarskjal og einnig
verður hægt að kaupa boli Friðar-
hlaupsins.
Frá Akureyri verður hlaupið til
Dalvíkur en þar hefst Friðar-
hlaupið kl. 16.10 á morgun, í Ól-
afsfirði verður byrjað kl. 17.40,
en á sunnudag verður byijað á
Lágheiði kl. 9.00, á Hofsósi hefst
hlaupið kl. 13.35, Sauðárkróki
16.45 og í Varmahlíð kl. 18.35.
Yfirlögregluþjónn
Tíu sækja um
TÍU umsóknir bárust um stöðu yfir-
lögregluþjóns á Akureyri, en frestur
til að sækja um stöðuna rann út
nýlega.
Þeir sem sóttu um eru Daníel
Guðjónsson, varðstjóri, Húsavík,
Daníel Snorrason, lögreglufulltrúi,
Akureyri, Felix Jósafatsson, settut;
lögregluvarðstjóri, Dalvík, Gunnar
Jóhannsson, rannsóknarlögreglu-
maður, Akureyri, Gunnar Rand-
versson, lögregluvarðstjóri,’ Akur-
eyri, Jóhannes Sigfússon, rann-
sóknarlögreglumaður, Akureyri,
Karl J. Kristjánsson, aðstoðarlög-
regluvarðstjóri, Akureyri, Ólafur
Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn, Akureyri, Sigurður Björns-
son, fyrrverandi lögregluvarðstjóri,
Ólafsfirði og Þórður Jónsson, lög-
reglumaður, Reykjavík.
Erlingur Pálmason hefur gegnt
stöðu yfirlögregluþjóns síðustu ár
en lætur af störfum fyrir aldurs
sakir í næsta mánuði. Erlingur hef-
ur starfað í lögreglunni á Akureyri
frá árinu 1948.
Þórir Baldursson
á&wtt ■ .
Jóni Rafnssyni
í léttri sveiflu
frákl. 10.00-01.00.
Öl(
Danssveiti n
áatunt
Evu Ásrúnu
IWT''
Stebba í Lúdó.
1 ‘Kótd %%A
sími 462 2200.
Grillsérfrœóingarn ir
óskar Finnsson og Ingvar
Sigurðsson áArgentínu
kynna grísakjöt i
verslunum i allt sumar
Að mati sérfræðinga er grísakjöt góður kostur
á grillið. Það er einfalt að grilla grísakjöt, það er alltaf ferskt,
verðið er mjög hagstætt og svo er það bara
svo gott. Grísahnakki, grísarif VJfj
grisakótilettur, grisalœrisneióar og
grisalundir eru tvímælalaust
\' I
grillmatur sumarsms. Helsti
■filSs. kostur grisakjötsins er þó sá
að þú þarft ekki að vera
gHrafýpk sórffæðingurtil að grilla það, því grisakjöt
l(líA svínvirkar án sérfræðinga.
Grísakjöt r
án sérfrœðinga