Morgunblaðið - 21.07.1995, Síða 26

Morgunblaðið - 21.07.1995, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ásdís María Sigurðardóttir fæddist á Bíldudai 26. nóvember 1928. Hún andaðist á heimili sínu í Reykjavík 12. júlí sl. Ásdís var dóttir Bjarneyjar Jónu Sigurgarðsdóttur Hólm, f. 12. ágúst 1908, og Sigurðar Sigurðssonar, f. 17. júní 1891, d._ 12. júní 1951. Ásdís giftist 27. maí 1950 eftirlifandi eigin- manni sínum, Bergi Þorvalds- syni frá Holti á Barðaströnd, f. 23. september 1927. Þau áttu fimm börn. Þau eru: Halldór Ólafur, f. 20.12. 1951, kvæntur Lilju Mósesdóttur, til heimilis í Reykjavík; Ester Sjöfn, f. AÐ BROSA gegnum lífíð er sú mynd er kemur í hugann, þegar ég sest niður og minnist þeirra horfnru stunda er við mamma mín og ég áttum saman, þá er lífið gaf okkur gleðistundir og tilefni til að tala um gleði hversdagsleikans. Hún varð því þungbær sú fregn er mér barst að morgni miðvikudagsins 12. júlí sl. Símifin hringdi og systir mín var í símanum. „Hún mamma er dáin.“ Það varð löng þögn. Gat það verið að mamma væri burt kölluð, þá er líf hennar reis hæst? Að líta til baka á slíkri stund getur aukið þann styrk er þarf til að komast yfir sáran söknuð og þess að eiga ekki oftar eftir að njóta glaðværðar og vináttu mömmu. Mamma ólst upp í Reykjavík hjá ömmu sinni, Viktoríu Bjarnadóttur, sem síðar tók mig, elstu dóttur hennar og Kristins Guðjónssonar (f. 4. október 1926, d. 24. júlí 1993), að sér. Mamma var þijú ár í Verslunar- skóla íslands og lagði jafnframt stund á fiðluleik hjá Birni Olafs- syni. Hún hafði yndi af tónlist og á fullorðinsárum bætti hún orgelleik 7.12. 1952, gift Ju- les Joseph Her- mele, þau búa í New Jersey; Berg- dís Harpa, f. 18.2. 1954, gift Joseph Mikcac og býr í Ohio; Bjarney Jón- ína, f. 9.8. 1957, gift Elvari Ólasyni, búsett í Reykjavik, og Sigrún, f. 29.12. 1963, sambýlismað- ur Benedikt Krist- jánsson, þau búa í Hafnarfirði. Aðal- heiður Dúfa Krist- insdóttir, elsta barn Ásdísar, f. 6. janúar 1947, er gift Kristni G. Kristjánssyni og búsett í Hveragerði. Útför Ásdísar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin ld. 13.30. við tónlistarmenntun sína. Hún starfaði hjá Brunabótafélagi ís- lands fyrstu árin eftir nám en síðan tók við uppeldi barna og umstang heimilis. Síðar vann hún við bók- band hjá ísafoldarprentsmiðju í fjölda ára og nú síðast við aðhlynn- ingu aldraðra hjá Reykjavíkurborg. Mömmu varð sex barna auðið og eru nú barnabörn hennar orðin 20. og barnabarnabörnin eru 5. Hún var því rík og gat glaðst yfir hópn- um sínum. Mamma gladdist yfir þeirri frétt að von væri á tvíburum í barnabarnahópinn, en nú hafa forlögin hagað því þannig að öðrum heilsast vel en hinn fær legstað í faðmi hennar. Mamma hefði orðið 67 ára nú í haust, en síðast er við hittumst hafði hún á orði að mikið hlakkaði hún til að hætta að vinna og verða löglegur eldri borgari. Þeir tímar voru eftir til að njóta og gleðjast og hefðu bætt upp lang- an vinnudag við uppeldi barna og amstur hvunndagsleikans. Gefur almættið okkur tíma og rúm til að fylgjast með framvindu afkomenda og gleðjast yfir unnum sigrum á lífsleið þeirra þegar áhyggjum jarð- vistar sleppir? Nú er okkur meinað að gleðjast með þér, mamma mín, en von mín og trú er sú að þú hald- ir áfram að glettast og gleðjast með hópnum þínum öllum, sem nú situr eftir og setur hljóðan er hlátur þinn er hættur að berast um heimkynni þín og þinna. Elsku mamma, tengdamamma, amma og langamma! Er heillandi brosið og hugurinn þinn, heimkynni okkar nú kveðja. Þú sýndir að gleðin var sigurinn þinn, og söngst þegar þurftir að kveðja. Þögul nú þökkum við ferilinn þinn, í þögninni felst okkar kveðja. Við gleðjumst í hjarta við gluggann þinn og grátum, því sárt er að kveðja. Ég og fjölskylda mín þökkum burt liðnar stundir, sem okkur finnst að hefðu átt að vera fleiri, en lífið tekur sinn toll og hver um sig hefur um margt að hugsa. Eg votta systkinum mínum og Bergi mína innstu samúð og bið alvald heims og ljóss þess að sú gleði, er mamma veitti hvar sem hún fór, megi bera ljós inn um þær sorgar- dyr er þau nú ganga gegnum. Aðalheiður Dúfa Kristinsdóttir, Kristinn Gústaf Krisljánsson. t Við erum hér saman komnar frænkurnar tvær til að minnast elsku ömmu okkar. Heima hjá ömmu og afa ríkti ávallt mikil gleði. Alltaf var stutt í brosið og hlátur- inn hjá ömmu og munum við ekki eftir að hafa séð hana öðruvísi en káta og hressa. Amma var mjög músíkölsk, hún spilaði á gítar og söng fyrir okkur í afmælunum. Hún átti orgel og leyfði hún okk- ur oft að glamra á það. Amma var dugleg að skrifa dag- bók um helstu atburði og geymdi hún hana undir púðunum í sófanum. Amma bakaði alltáf mjög góðar kökur, við hlökkuðum ailtaf til að fara í afmæli til ömmu og afa og smakka góðu terturnar hennar ömmu og að fá brauðterturnar frá afa. Við minnumst ömmu þegar hún trítlaði á inniskónum og sloppnum með rúllurnar í hárinu og þegar hún ÁSDÍS MARÍA SIG URÐARDÓTTIR HALLSTEINN P. LARSSON + Hallsteinn Pét- ur Larsson fæddist 13.5. 1929 í Ringebö í Guð- brandsdal í Noregi. Hann lést 14.7. sl. í Noregi. Hallsteinn lauk prófi sem gar ð y r kj u m að u r 1952 og herþjón- ustu lauk hann vor- ið 1953. Til íslands flyst hann 1954 ásamt konuefni sínu, Hlíf Guð- mundsdóttur, f. 6.10.1929, fráFlat- eyri við Reyðarfjörð. Þau giftu sig í Reykjavík 30.10. 1954 og flytjast til Reyðarfjarðar 1955 og búa á Flateyri allt til 1978 að þau flytja til Nesbyen í Noregi, þar sem Hallsteinn Kristinn, f. stundaði verk- smiðjuvinnu. Börn þeirra eru: Sigur- borg Jertine, f. 21.1. 1954, búsett í Bolungarvík; Lars Guðmundur, f. 7.9. 1955, búsettur á Fáskrúðsfirði; Þór- dís Hanna, f. 18.9. 1956, býr i Nesbyen í Noregi; Þuríður Sólveig, f. 27.9. 1957, býr í Nesby- en; Heiðrún María, f. 27.7. 1959, búsett Nesbyen og Ivar 22.1. 1970, býr í Drammen. Barnabörnin eru 16 og eitt barnabarnabarn. Hallsteinn verður jarðsung- inn i dag frá Nesbyenkirke. FRÁ Noregi berst hingað sú napra fregn að nú sé allur góðvinur minn um gengin ár, Hallsteinn Larsson, og hugur reikar nú í hlýju þakklæt- is til liðinna stunda sem Ijósi bregða á brautina fram. Þar hvarf af lífs- vettvangi góður drengur svo alltof fljótt, en hörð og grimm mun hríð- in síðasta hafa verið Hallsteini og lausn frá þrautum þeim líkn um leið. Um röska tvo áratugi vorum við samsveitungar og áttum sam- skipti ágæt á ýmsan veg, sú sam- Ieið öll vörðuð mætum minningum um ágætisdreng mikils Ijúflyndis, trúmennsku tryggrar og um leið iðni góðrar við hvaðeina sem feng- ist var við. Hallsteinn varð mér hugþekkur góðvinur sem gott var að fá að finna á förnum vegi, hann var glaðlyndur og átti glettnistreng, heill og hreinlyndur var hann í ein- lægni opins hugar, hann kom sér hvarvetna hið besta og eignaðist hlýhug samferðamanna. Hann átti sínar einbeittu skoðanir og fylgdi þeim af festu og hógværð í senn. Löngum átti ég hann að liðsmanni traustum, enda kvaðst hann hafa skipað sér vel vinstra megin þegar á unga aldri heima í Noregi, far- sæld félagshyggju og samhjálpar var honum ekkert efamál. Hingað til lands fluttist Hallsteinn með Hlíf konu sinni, en þau höfðu kynnst í Noregi, þar sem Hlíf hafði dval- ist, og á Flateyri við Reyðarfjörð fóru þau að búa, en þar bjuggu þá foreldrar Hlífar. Búskap átti Hall- steinn svo að meginstarfi þó hann ynni ævinlega mikið utan heimilis til að afla stóru heimili meiri tekna til framfærslu. Þar dró Hallsteinn aldrei af sér, enda enginn svikinn af verkum hans og hann vel liðtæk- ur í öllu því sem að var unnið. Hallsteinn var annars lærður garð- yrkjufræðingur og miklu miður svo vel fær sem hann var í því að auðn- an skyldi ekki gefa honum gott tækifæri til þeirrar ástundunar. Hann var hamingjumaður í öllu einkalífi sínu, lífsförunautur hans einstök ágætiskona að allri gerð eins og allt hennar fólk. Börn þeirra dugnaðarfólk, mýndvirk og mætir þegnar í þjóðlöndum tveim. Héðan fluttu þau hjón svo út til Noregs 1978 og þar var erjað af iðjusemi góðri allt þar til illvígur sjúkdómur lagði Hallstein að velli í harðri glímu. Traustur drengur og trúr í hverju einu er allur en eftir eru vermandi minningar um vænan mann. Hér á íslandi var hann hinn gegni þegn góðra verka, farsæl var fylgd hans alla þá tíð er hann átti ísland að fósturlandi. Ég færi hon- um við leiðarlok hugumhlýja þökk fyrir mætakær kynni sem öll voru á besta veg. Við Hanna sendum eftirlifandi eiginkonu hans okkar einlægar samúðarkveðjur svo og börnum þeirra og barnabörnum beggja vegna Atlantsála sem og öðrum þeim er áttu hann að. Hinum hugumprúða íslenska Norðmanni fylgja hlýjar kveðjur út í heiðið him- inblátt. Með kveðju og þökk, Helgi Seljan. sat í sófanum með teppið sitt. ' Elsku amma, minning þín mun ávallt vera í huga okkar og viljum við þakka þér fyrir stundirnar sem við áttum saman. Þínar nöfnur, Ásdís María og María Björk. Með örfáum orðum langar mig að kveðja elsku tengdamóður mina og vinkonu, Ásdísi Sigurðardóttur, en hún lést á heimili sínu 12. júlí. Ég kynntist tengdamóður minni - fyrir 25 árum er mér var boðið inn á heimili hennar að Útskálum við Suðurlandsbraut. Ásdís og Bergur bjuggu þar ásamt fjórum dætrum og syni, elsta dóttirin var þá gift og farin að búa. Þegar ég kom þar í fyrsta sinn var mér boðið upp á kokteilávexti með rjóma. Þetta þótti mér óvenjuleg gestrisni við mig unglinginn en ísinn var þar með brotinn og tókst strax með okkur Ásdísi vinátta sem hefur haldist óslitið síðan. Ég hef sjaldan kynnst annarri eins kátínu og glaðværð sem þeirri er ríkti á heimilinu. Dóri kynnti allar systur sínar fyrir mér á sinn sérstaka hátt og hann og Ásdís voru mjög náin. Ég bar strax virðngu fyrir vináttu þeirra sem hélst alla tíð og er missir hans mik- ill. Fyrir 20 árum fluttu þau upp í Breiðholt. Höfum við búið stutt hvor frá annarri í 13 ár og hefur verið gott að vita af nálægðinni. Ásdísi var ýmislegt til lista lagt. Hún var mikil tungumálamanneskja og lágu enska og danska létt fyrir henni. Nutu börn hennar góðs af og kom það sér vel fyrir hana í heimsóknum til Bandaríkjanna, því þar átti hún bæði systur, dætur, tengdabörn, barnaböm og móður- bróður, sem nú er nýlátinn. Ásdís var mjög gefin fyrir tón- list, hún lærði bæði á fiðlu og org- el, en spilaði annars á ýmis hljóð- færi. Hún var hrókur alls fagnaðar og spilaði gjarnan á gítar í ijöl- skylduboðum og skeytti þá ekki um þó blæddi úr fingrunum. Þannig var hún, lífsgleðin ofar öllu. Hin síðari ár fór hún ásamt manni sínum, bróður hans Bjarna og konu hans í ferðalög bæði innan lands og utan og voru þau hinir rnestu mátar. Lengst af vann Ásdís við bók- hald í Isafoldarprentsmiðju, en hin síðustu ár vann hún við heimilis- hjálp. Hún leit fram veginn og horfði glöð til þeirra ára þegar hún hætti að vinna og gæti notið efri áranna. Þau Bergur voru nýbúin að kaupa sér nýjan bíl, sem hún var svo ánægð með og þau voru að skipuleggja ferðalög þegar kallið kom svo óvænt. Ásdís hefur verið mjög heilsulaus síðustu árin. Samt kom fráfall hennar mjög snöggt, öllum að óvör- um. Ég var stödd á Snæfellsnesi hjá Fríðu vinkonu ^minni þegar ég frétti lát hennar. Ég horfði út um gluggann hjá Fríðu á Snæfellsjök- ul, fallegan í sólinni og bað Guð um að styrkja fjölskyldu okkar. En þetta er leiðin okkar allra, eins og hún sagði sjálf,- nokkuð sem við getum ekki flúið. Ásdís trúði að það væri líf eftir þetta líf og trúi ég að það hafi verið tekið vel á móti henni hinum megin. Þar sem Ásdís átti fimm dætur og einn son var ég eina tengdadótt- irin sem hún átti. Oft höfum við setið og spjallað yfir góðum kaffi- bolla. Þá hefur verið rætt um lífið og tilveruna og ýmislegt annað hefur borið á góma. Flest eigum ■ við vini sem okkur þykir vænt um, berum virðingu fyrir og treystum. Vinátta milli manna getur verið með ýmsu móti, sum vinátta er skammvinn meðan önnur endist æviveginn á enda og jafnvel út yfir gröf og dauða. Ásdís mín. Alltaf varst þú svo hress og yndisleg, tilbúin að hlusta þegar til þín var leitað og sást allt- af björtu hliðarnar á tilverunni. Þakka þér fyrir allt sem við höfum átt saman. Þín er sárt saknað. Elsku Bergur, ég vona að Guð gefi þér styrk til að sjá að lífið heldur áfram. í Jesú nafni. Snert hörpu mína himinborna dís, svo hlusti englar Guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt. Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína himinboma dís, og hlustið, englar Guðs i Paradís. (Davíð Stefánsson) Lilja S. Mósesdóttir. Við systkinin fréttum af fráfalli elsku ömmu okkar hvert í sínu lagi. Eitt okkar var statt úti á landi og hin tvö í Reykjavík, öll áttum við virkilega bágt með að trúa þessu. Ásdís amma sem var svo ótrúlega lífsglöð og sífellt hlæjandi er farin yfir móðuna miklu, langt fyrir aldur frarm Minningarnar hrannast upp um Ásdísi ömmu. Hún var alltaf hrókur alls fagnaðar í fjölskyldu- boðum og „húmorinn" var alveg meiriháttar, brandararnir komu á færibandi. Börn hennar erfðu þessa eiginleika öll sex, og mun sú minn- ing um ömmu okkar lifa í föður okkar og frænkum. Það var hægt að tala við Ásdísi ömmu um allt milli himins og jarðar, hún var bæði víðlesin og vel meðvituð um atburði líðandi stundar og höfum við systkinin notið góðs af því öll okkar uppvaxtarár. Orð fá ekki lýst væntumþykju okkar systkinanna til ömmu og er því erfitt að kveðja hana í blóma lífsins. Við vonum að þér líði vel núna, elsku amma okkar. Afi, Guð gefi þér styrk til að takast á við þessa erfiðu daga. Við vottum þér dýpstu samúð okkar. Við elskum þig. • Nú er sál þín rós í rósagarði Guðs kysst af englum döggvuð af bænum þeirra sem þú elskaðir aldrei framar mun þessi rós blikna að hausti. (Ragnhildur Ófeigsdóttir) Móses Helgi Halldórsson, Ester Rut Halldórsdóttir, Ólöf Sif Halldórsdóttir. KRISTÍN JÓNSDÓTTIR Kristín Jónsdóttir var fædd 14. júní 1923 í Stíflisdal i Þingvallasveit. Hún lést á Land- spítalanum 8. júlí síðastliðinn. Útför Kristínar fór fram frá Fossvogskirkju 20. júlí. VIÐ systurnar urðum svo lánsamar að fá að njóta nærveru Stínu frænku frá því við munum eftir okkur, þar sem hún tók að sér að koma inn á heimili okkar og passa okkur á meðan foreldrar okkar voru við vinnu. Á þeim tíma las hún og kenndi okkur ótal vísur og síðar er við stækkuðum fór hún að kenna okkur hannyrðir og alltaf var hún jafn ráðagóð. Alltaf voru umburðar- lyndið og hlýindin í fyrirrúmi, hvort sem hún var heima hjá okkur eða er við heimsóttum hana í Nökkva- voginn, þar sem við nóg var að vera, því Stína átti allt til alls, s.s. leikföng, spil og handavinnudót. Öll þessi umhyggja varð þess vald- andi að við fórum ósjálfrátt að kalla hana ömmu. Nú kveðjum við þig að sinni með sárum söknuði og þakklæti fyrir allt. Guð blessi ömmu Stínu. Þínar stelpur, Edda Hrönn, Eva Hrund og Ellen Harpa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.