Morgunblaðið - 21.07.1995, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMIMINGAR
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1995 29
+ Markús Waage
fæddist í
Tungu I Auðkúlu-
hreppi við Arnar-
fjörð hinn 5. júní
1921. Hann lést á
Landspítalanum
14. júlí síðastlið-
inn. Foreldrar
hans voru Ólafur
M. Waage og Jens-
ína Jónsdóttir.
Systkini hans eru
Jóhann Waage og
Jensína Waage.
Hálfsystir hans er
Gyða Waage.
Vegna láts móður sinnar fór
hann í fóstur fjögurra ára
gamall að Skógum í Mosdal
við Arnarfjörð. Fósturforeldr-
ar hans voru Elías Eleseusson
og Hallfriður Jónsdóttir. Fóst-
ursystkini hans eru Petrína
MARKÚS Ólafsson Waage hóf
störf hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna 1. sept. 1959 sem eftir-
litsmaður. Þar var hann til sjötugs-
aldurs og gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum. Um tíma var hann þó
starfsmaður frystihúsanna við ísa-
fjarðardjúp (BEIS) og sá þar um
ákvæðisvinnu og hagræðingarmál,
en kom aftur til starfa hjá SH.
Markús var Amfirðingur að
uppruna, fæddur í Skógum 5. júní
1921, en ólst upp í Tungu í Arnar-
firði. Hann gekk í Héraðsskólann
að Núpi í Dýrafirði og var síðan
á Bíldudal uns hann fluttist suður.
Hann var verkstjóri í Hraðfrysti-
stöðinni í Reykjavík hf. hjá Einari
Sigurðssyni og réðst þaðan til SH.
Hann er af kunnum vestfirskum
ættum, sem ekki verða raktar hér.
Markús var hæfileikaríkur, fjöl-
hæfur og fljótur að tileinka sér
breytingar og nutu frystihúsin og
SH góðs af þeim eiginleikum hans.
Haustið 1960 var samið við norska
+ Hólmar Magnússon fædd-
ist á Sauðárkróki 14. októ-
ber 1914. Hann lést á Sjúkra-
húsi Akraness 8. júlí síðastlið-
inn og fór útför hans fram frá
Fossvogskirkju 17. júlí.
EITT KVÖLD fyrir rúmlega fjöru-
tíu árum var bankað á dyr og inn
komu myndarleg hjón. Voru það
Hólmar og Oddný, sem vildu bjóða
vin sinn Einar og hans útlendu
konu velkomin til íslands. Voru
það mín fyrstu kynni af þeim hjón-
um, og upphafið að áratuga vina-
sambandi milli heimilanna. Man
ég enn rósirnar gulu sem ég fékk
og gulldropana á flösku sem Ein-
ari var gefin.
Mikið var hlegið og spjallað
gegnum tíðina, og er margs að
minnast. Þau Hólmar og Oddný
voru gestir á öllum hátíðarstundum
á okkar heimili, og alltaf var tekið
vel á móti okkur á Miklubrautinni.
Oft var farið í leikhús saman og á
eftir var gagnrýnt fyrir kaffibolla.
Þorrablótin, sem við nokkur hjón
höfum haft að venju í yfir þijá
áratugi, og ekki má gleyma veiði-
túrunum. Einu sinni á ári var farið
til laxveiða með alla fjölskylduna,
og síðar bættust barnabörnin við.
Þetta var jafnan mikið tilhlökk-
unarefni.
Hólmar hafði gaman af að taka
lagið og hann kom alltaf með gleði
og birtu. íslenskar bókmenntir
voru hans yndi, og fróðlegt var að
heyra um allt sem hann las á hverju
ári.
Mannvinurinn Hólmar er allur.
Elíasdóttir og Har-
aldur Elíasson.
Markús kvæntist
Arnbjörgu Jóns-
dóttur frá Seyðis-
firði árið 1944.
Böm þeirra em:
Guðbjörg Hallfríð-
ur, Ágústa, Harald-
ur Elías og Guðný.
Þau skildu árið
1968. Markús hóf
sambúð með
Guðnýju D. Úlfars-
dóttur árið 1970.
Markús fluttist úr
Amarfirði árið
1950 og hóf þá störf þjá Hrað-
frystistöð Reykjavíkur. Árið
1958 tók hann til starfa hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna þar sem han vann þar til
hann hætti störfum sakir ald-
urs árið 1991.
verkfræðifyrirtækið IKO um að
hefja kerfisbundnar vinnurann-
sóknir í hraðfrystihúsum SH, með
það fyrir augum að koma á ákvæð-
isvinnu í húsunum. Sérfræðingar
komu frá Noregi og var Markús
einn þeirra sem valdir voru þeim
til aðstoðar. Hann sótti þá nám-
skeið í vinnurannsóknum og gerð-
ist starfsmaður framleiðnideildar
þegar hún var sett á laggirnar til
að vinna að hagræðingarmálum í
frystihúsunum, leiðbeina um
vinnubrögð, annast verkkennslu
og stuðla að aukinni framleiðni.
Þar nutu hæfíleikar Markúsar sín
vel.
Um 1970 fluttist Markús aftur
til eftirlitsdeildar er hann tók við
starfi deildarstjóra þar og gegndi
með ágætum, eins og öðrum störf-
um sem honum voru falin. í lok
starfstímans, þegar þrekið tók að
dvína, sinnti hann ýmsum sérverk-
efnum, þar sem þekking hans,
Einar og ég, börn og barnabörn
kveðjum og þökkum fyrir að hafa
átt þig að vini.
Hvíldu í friði, Hólmar. Oddný,
við sendum þér og þínum samúðar-
kveðjur.
Inger.
Þegar Hólmar var ungur maður
þá stóð hugur hans til sjós. Hann
réði sig á árabát, þar sem ekki var
um annað að ræða á þeim tímum.
Þegar trillubátar komu til sögunn-
ar þá tók hann þátt í því og var
á trillubátum um langt skeið. En
svo stefndi hugur hans stærra,
hann fór í Stýrimannaskólann og
lauk þaðan prófi.
reynsla og lagni kom að góðu
haldi.
Markús var einstaklega hand-
laginn og átti sérstaklega auðvelt
með að umgangast fólk, leiðbeina
og kenna, enda sjálfur frábær
verkmaður, góður flakari og kunni
manna best að skera úr. Hann
naut því mikilla vinsælda í frysti-
húsum um land allt og var alltaf
velkominn.
Markús var snyrtimenni, höfð-
inglegur í fasi og virtur af yfír-
mönnum, undirmönnum og ekki
síst kaupendum. Hann var yfírveg-
aður og nákvæmur og kom það
sér vel þegar hann tók að sér að
stjórna eftirlitsdeildinni, því þar
þurfti oft á tíðum að taka á, en
þó að beita lagni, því aðfínnslur
éru ekki alltaf vel séðar og mikil
verðmæti í húfi. Það er mál manna
að Markús hafí komist frá hlut-
verki sínu með sóma og vinsældir
hans komu berlega í ljós þegar
hann kvaddi hópinn á verkstjóra-
fundi SH í lok starfstímans.
Markús var góður fríhendis-
teiknari og kom það sér einkar
vel þegar senda þurfti skýringar-
myndir með pökkunarreglum til
frystihúsanna. Myndir hans eru
margar enn í notkun. Þá skal þess
getið að Markús var góður hagyrð-
ingur og pökkunarreglur SH nr.
P-600, frá febrúar 1990, um
blokkavinnslu, eru í ljóði og hanga
uppi á vegg í allmörgum frystihús-
anna. Margar lausavísur hans eru
fleygar.
Ég gat þess hér að ofan að
Markús hafi verið prýðilega lag-
hentur. í frístundum fékkst hann
við smíðar, smíðaði m.a. húsgögn,
auk þess sem hann skar út og
liggja eftir hann góðir gripir.
Undirritaður, sem var náinn
samstarfsmaður Markúsar í ára-
tugi, á margs að minnast og margt
að þakka. Guðrúnu, börnum,
barnabörnum og aðstandendum
eru færðar hugheilar samúðar-
kveðjur frá samstarfsmönnum í
Sölufniðstöðinni. Hinn stóri vina-
hópur um land allt mun sakna
góðs drengs.
Hjalti Einarsson.
Hann var stýrimaður á mörgum
skipum. En svo skipti hann um
hlutverk í lífinu og hætti á sjónum.
Fór að læra trésmíði og vann sem
smiður mörg seinni árin hjá Leikfé-
lagi Reykjavíkur.
Ég kom oft til Hólmars á Miklu-
brautinni og við spjölluðum um
daginn og veginn, en við minnt-
umst aldrei á pólitík. En ekki vor-
um við alltaf sammála, hvor hafði
sína skoðun á málunum, en allt
féll í ljúfa löð þegar Oddný sagði:
„Strákar, komið þið í kaffi,“ þar
með var ailt þras út úr heiminum.
Hólmar var reglumaður bæði á
tóbak og áfengi, en var hrókur
alls fagnaðar þegar vel lá á hon-
um, þá átti hann til að hlæja stóra
hlátrinum sem hann var frægur
fyrir.
Blessuð sé minning Hólmars
Magnússonar.
Margeir Valberg
Hallgrímsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls og útfarar
INGVA JÚLÍUSSONAR, iH. W \ Jff
Ránargötu 27,
Akureyri. V. " „ i*
Gufirún Jónsdóttir,
María E. Ingvadóttir,
Herdís Ingvadóttir,
Jón Grétar Ingvason, Hjördís Arnardóttir,
Bjarni Rafn Ingvason, Rósa Þorsteinsdóttir,
Áslaug IManna Ingvadóttir, Oddur Sigurðsson,
Ingvi Júlíus Ingvason, Unnur Björnsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini hins látna.
MARKÚS O.
WAAGE
HÓLMAR
MAGNÚSSON
t
Útför elskulegs eiginmanns míns,
SVEINS MÁS GUNNARSSONAR
læknis,
Leirutanga 4,
Mosfellsbæ,
fer fram frá Lágafellskirkju miðvikudaginn 26. júlí kl. 14.00.
Lára ingibjörg Ólafsdóttir.
t
Bróðir okkar,
KARL JÓNSSON,
lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum
12. júlí sl.
Útförin fer fram frá Landakirkju laugar-
daginn 22. júlí kl. 13.00.
Bogi Jóhannsson,
Ásbjörg Jónsdóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
ÞÓRHILDUR KRISTINSDÓTTIR
frá Raufarhöfn;
til heimilis í Bólstaðarhlið 14,
Reykjavík,
er lést 15. júlí sl., verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 26. júlí
kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Hjartavernd.
Þorgeir B. Hjaltason,
Sturla Hjaltason,
Stefán Ö. Hjaltason,
Ragnheiður Hjaltadóttir,
Guðný S. Hjaltadóttir,
Sverrir K. Hjaltason,
Friðgeir Hjaltason,
Hjalti Hjaltason,
Örn T. Hjaltason,
Þórunn Hjaltadóttir,
Konráð Hjaltason,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Signý Einarsdóttir,
Björg G. Einarsdóttir,
Þorsteinn Sæmundsson,
Jakobína Stefánsdóttir,
Herdis Óskarsdóttir,
Gestur Ásólfsson,
Halldóra Gréta Pálsdóttir,
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug við jarðvistarlok
GUÐLAUGAR BENEDIKTSDÓTTUR
rithöfundar,
Hraunkoti,
Sigurlaug Árnadóttir,
Skafti Benediktsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
BJÖRGVINS BJARNASONAR.
Starfsfólki á C-gangi dvalarheimilisins Hlíðar eru færðar
sérstakar þakkir fyrir góða umönnun.
Bjarni Björgvinsson, Kristín Sigurðardóttir,
Jónína Hetga Björgvinsdóttir, Arnaldur M. Bjarnason,
Árni Pétur Björgvinsson, Laufey Vilhjálmsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
GÍSLA HJÖRLEIFSSONAR
frá Unnarholtskoti.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Borgarspítalans.
Helga Runólfsdóttir,
Hjörleifur Gíslason, Sigþrúður Siglaugsdóttir,
Gufilaug Gísladóttir, Guðmundur Þórðarson,
Hildur Gísladóttir, Kristján Rafn Heiðarsson,
Unnar Gislason, Hjördís Harðardóttir,
Helga Hjörleifsdóttir, Hlynur Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.