Morgunblaðið - 21.07.1995, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Fáðu
Moggann
til þín í fríinu
Morgunblaðið þitt sérpakkað
á sumarleyfisstaðinn
Viltu fylgjast með í allt sumar?
Morgunblaðið býður áskrifendum sínum
þá þjónustu að fá blaðið sitt sérpakkað og merkt
á sölustað nálægt sumarleyfisstaðnum
innanlands.
Hringdu í áskriftardeildina í síma 569 1 1 22
eða sendu okkur útfylltan seðilinn og þú
fylgist með í allt sumar.
JlfargiiiiHbifeife
Já takk, ég vil nýta þjónustu Morgunblaðsins
og fá blaðið sent á eftirfarandi sölustað
á tímabilinu
frá til
□ Esso-skálinn, Hvalfiröi □ Laufiö, HaUormsstab
□ Ferstikla, Hvalfiröi □ Söluskálar, Egilsstöðum
□ Sölustaðir'í Borgamesi □ Skaftárskáli, Kirkjubæjarklaustri
□ Baula, Stafholtst., Borgarf. □ Víkurskáli, Vík í Mýrdal
□ Munaöames, Borgarfirði □ Hlíðarlaug, Úthlíö, Biskupst.
□ Bitinn, Reykholtsd., Borgarf. □ Laugarás, Biskupstungum
□ Þjónustumiðstöbin Húsafelli □ Bjamabúö, Brautarhóli
□ Hvítárskáli v/Hvítárbrú □ Verslun/tjaldmiöstöb, Laugarv.
□ Sumarhótelið Bífröst □ Verslunin Gmnd, Flúöum
□ Hreöavatnsskáli Q Gósen, Brautarholti
□ Birú í Hrútafiröi Q Árborg, Gnúpverjahreppi
□ Staöarskáii, Hrútafiröi Q Syðri-Brú, Grímsnesi
□ Illugastaöir Q Þrastarlundur
□ Hrísey Q Ölfusborgir
□ Grímsey Q Shellskálinn, Stokkseyri
□ Grenivík Q Annaö
Q ReykjahlíÖ, Mývatn
NAFN ______________:__________________
KENNITALA__________' _________________________
HEIMILl___________________________________'__________
PÓSTNÚMER______________________SÍMI '__________
Utanáskriflin er:
Morgunblabib, áskriftardeild, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
Pennauinir
NÍTJÁN ára finnsk stúlka
með áhuga á bókmenntum,
tónlist og útreiðum:
Miia Löhönen,
Voisalmentie 13 D 29,
53920 Lappeenranta,
Finland.
FRÁ Ghana skrifar 24 ára
stúlka með áhuga á tónlist,
fiskveiðum, frímerkjum,
póstkortum og íþróttum:
Nana Ama Hanson,
c/o Postbox 1152,
Oguaa Town,
Central Region,
Ghana.
NÍU ára tékknesk stúlka
með áhuga á bókalestri,
hestum og ensku:
Celestyna Krausova,
507 81 Lazne Beloh.
65,
Czech Republic.
BANDARÍSKUR 44 ára
karlroaður sem segist
hvorki reykja né neyta
fíkniefna. Margavísleg
áhugamál:
Danny Lee Tetrick,
c/o Virgihia Cotton,
13405 Hinchbrook
Blvd,
Louisville,
Kentucky,
40272-1319,
United States.
TUTTUGU og þriggja
ára þýsk stúlka sem ein-
göngu skrifar á þýsku:
Anke Bantel,
Gropiusallee 81,
06846 Dessau,
Deutschland.
ÁTJÁN ára sænsk stúlka
með margvísleg áhuga-
mál:
Josipa Zarkovic,
Kohagsgatan 90,
561 49 Huskvarna,
Sweden.
LEIÐRÉTT
Hjá Fiskifélaginu en
ekki Fiskistofu
Þórarinn Árnason var rang-
lega sagður starfsmaður
Fiskistofu í baksíðufrétt
Morgunblaðsins á fimmtu-
dag. Hann er starfsmaður
Fiskifélags íslands. Morg-
unblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
IDAG
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Fermingarsystkin
frá Siglufirði fædd 1931
VELVAKANDA barst bréf frá fermingarsystkinum ættuðum frá Siglufirði, þar
sem segir að þau ætli að hittast í Félagsmiðstöðinni „Hóli“, Siglufirði, föstudaginn
28. júlí. Laugardaginn 29. júlí ætla þau í Héðinsfjörð eða út á Siglunes ef veður
leyfir. Sameiginlegur kvöldverður verður á Hótel Læk (Siglunesinu) og á sunnudeg-
inum er áætlað að fara í kirkju og taka mynd af hópnum á kirkjutröppunum eins
og gert var fyrir 50 árum og birtist hér.
Um samkomu
Benny Hinn
ÞÓRA hringdi og sagðist
ekki hafa verið ánægð
með samkomu sem hún
fór á með Benny Hinn í
Laugardalshöllinni. Þegar
hún kom á staðinn var
Höllin fallega skreytt með
blómum og notalegt and-
rúmsloft.
Þegar samkoman byij-
aði upphófust hinsvegar
hin örgustu skrílslæti.
Benny Hinn og áhangend-
ur hans’æptu og hrópuðu
þannig að mér varð nóg
um. Ég hálf vorkenni
þessu fólki því ég held að
þetta sé ekki rétta leiðin
til að nálgast guð. Ég er
fegin að ég skuli hafa
fundið mína aðferð til
þess, sem er alls ólík þess-
ari.
Tapað/fundið
Hjól hvarf
ÞÝSKUR ferðamaður sem
kom hingað til lands
gagngert til að hjóla um
landið varð fyrir því óláni
að hjólið hans hvarf við
sundlaugina í Laugardal
seinnipart sl. sunnudags.
Hjólið er nýtískulegt af
gerðinni Kaestler Degree
6,5, dökkblátt að lit og fer
út í svart, 24 gíra 3x8,
26 tommu. Gíraskipting
er í handfangi og upp úr
handfanginu ganga silfur-
lituð há horn sem hægt
er að halda í líka. Ferða-
maðurinn varð stranda-
glópur við hvarf hjólsins
og höfðar til heiðarleika
og skilvísi fólks sem getur
gefið upplýsingar um hjól-
ið svo hann geti haldið
ferð sinni áfram um land-
ið, þann stutta tíma sem
hann á eftir. Vinsamlega
hafið samband í síma
588-9696.
Budda fannst
LÍTIL budda úr mislitu
taui fannst á göngugötu
á efri hæð í Kringlunni
sl. þriðjudag. í henni voru
passamyndir af ungri, fal-
legri stúlku og margir
miðar í tívolí. Eigandinn
má hringja í síma
551-8070.
Úlpa tapaðist
BLÁ hlífðarúlpa með gráu
fóðri og rauðu í hálsmáli
tapaðist á Flúðum sl.
helgi. Úlpan var merkt í
fóðri. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma
557-7799.
Úr fannst
KVENÚR með svartri
leðuról fannst í Álfheim-
um sl. þriðjudag. Uppl. í
síma 588-2283.
Högna vantar
heimili
GRANNVAXINN, smá-
fríður gulbröndóttur og
hvítur, þriggja mánaða
gamall högni, vel vaninn,
óskar eftir góðu heimili.
Vinsamlega hringið í síma
552-0826.
Víkveiji skrifar...
Annar kafli bókar dr. Gylfa Þ.
Gíslasonar, „Vegsemd þess
og vandi að vera íslendingur“, ber
fyrirsögnina „Dýrt að vera íslend-
ingur“. Þar rifjar höfundur upp
sögu af nóbelskáldinu, Halldóri
Laxness, sem spurður var að því,
er hann tók við verðlaununum í
Stokkhólmi 1955, hvort ekki væri
dýrt að aka um íslenzka malarvegi
á vönduðum amerískum bíl, sem
skáldið átti þá. Spurningin var bor-
in upp af blaðamanni, sem heyrt
hafði að Halldór aðhylltist róttækar
skoðanir, en kynni þó að meta lífs-
gæði hagsældarþjóðfélags. Gylfi
segir að dauðaþögn hafi orðið eftir
að spurningin hafi verið borin upp,
en Halldór hafi hugsað sig svolítið
um, en sagt síðan: „Það er almennt
talað dýrt að vera íslendingur."
xxx.
essi saga af Halldóri rifjaðist
upp, er Víkverji var staddur
í Bandaríkjunum nú fyrir nokkrum
vikum, leigði sér þar bíl og ók sam-
tals um 11 ríki og fór þar að auki
til Ontario í Kanada og heimsótti
borgina Toronto. Alls ók Víkveiji á
bílaleigubíl um Bandaríkin rúma
5.300 kílómetra og tók eldsneyti 8
sinnum, þ.e.a.s. notaði um 9 tanka
fulla af bensíni. Eldsneytiskostnað-
urinn á allri þessari leið náði ekki
9 þúsund krónum, varð aðeins rúm-
ar 8.800 krónur. Það lá við, að
Víkveiji ætlaði vart að trúa bensín-
afgreiðslumanninum, sem hann
keypti fýrst af bensín, er hann
nefndi upphæðina fyrir tankfýlli,
15 dali eða um 900 krónur.
Óneitanlega varð Víkverja hugs-
að heim til okurprísanna, er hann
kaupir bensín hér heima. Áfýlling
á bílinn hans kostar þar um 3.500
krónur eða nærri fjórfalt það verð,
sem greitt er fyrir bensínið í Banda-
ríkjunum og Kanada. Gallonið af
bensíni kostar í Bandaríkjunum um
1,20 dollara og þar sem í galloninu
eru 3,785 lítrar leggur lítrinn sig á
rétt um 20 krónur. Víkverja virtist
lítrinn þó eilítið dýrari í Kanada eða
um 25 krónur. Já, það er dýrt að
vera íslendingur!
xxx
En mismunurinn á dýrtíð kemur
ekki aðeins fram í bensínverð-
inu, heldur eru allar aðstæður og
mismunur á þeim þannig að kostn-
aðurinn verður enn meiri við akstur
á bíl hér á Islandi. Vegirnir eru
allir eins og hefluð fjöl og hraðatak-
markanir á bandarískum þjóðveg-
um gera það að verkum að ekið er
á afskaplega hagkvæmum hraða
miðað við bensíneyðslu. Óheimilt
er að aka hraðar en 65 mílur, sem
jafngilda 104 km á klukkustund í
flestum ríkjum og önnur hafa há-
markshraðann 55 mílur, sem jafm
gildir 88 kílómetrum á klukku-
stund. Þessi hraði er líklegast mjög
hagkvæmur og bensínsparandi og
allar þessar aðstæður hafa það í för
með sér að menn komast leikandi
létt um og yfir 500 mílur á einum
tanki eða 800 km vegalengd. Slíka
vegalengd hefur Víkveija aldrei
tekizt að komast á ejnni tankfylÞ
ingu á íslandi. Hér á Íslandi kostar
og bensínlítrinn 66,50 og er því
232,5% hærri en í Bandaríkjunum',
x x x
Já, það er hveiju orði sannara
að dýrt sé að vera íslendingur.
Það nálgast hreint okur. Um síð-
ustu helgi skrapp Víkveiji upp á
Akranes og þegar þangað kom og
hann hafði annaðhvort verið með
hjartað uppi í hálsi eða niðri í nára
alla leiðina vegna lélegs undirlags
undir slitlag vegarins, hafði hann
orð á því við kunningja sinn þar.
Sá þekkti til sjúkraflutningamanna
sem sagt höfðu honum frá því að
ef flytja þyrfti veikan eða slasaðan
mann til Reykavíkur og ekið væri
á hámarkshraða, þyldi sjúklingur-
inn vítiskvalir vegna bylgnanna *í
veginum. Það er nefnilega eins og
að fara eftir rússíbana að aka greitt
um beztu þjóðvegi á íslandi. Það
getur því líka verið þjáningarfullt
að vera sjúklingur á Islandi.