Morgunblaðið - 21.07.1995, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSmÓLF 3040, NETFANG MBLÞCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
TVÖFALDUR1. vinningur
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Eftirlit fyrir
verslunarmannahelgi
Númer
* klippt
af bílum
LÖGREGLAN í Reykjavík klippti
skráningamúmer af 18 ökutækjum
frá miðvikudagsmorgni til fimmtu-
dagsmorguns og af 15 til viðbótar
í gærmorgun.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns eru
þessar aðgerðir aðdragandi frekara
eftirlits fyrir verslunarmannahelgi
sem ákveðið hefur verið á vettvangi
■4 samstarfsnefndar lögreglunnar á
Suðvesturlandi í umferðarmálum.
Ómar Smári segir að þau öku-
tæki sem ekki hafa verið færð til
aðalskoðunar, þótt búið eigi að vera
að gera það reglum samkvæmt,
verði færð til skoðunar með tilheyr-
andi kostnaði. Ef ástand ökutækis
telst verulega ábótavant verði
skráningarnúmer tekin af.
Ómar Smári segir tilganginn með
þessu átaki vera tvíþættan. I fyrsta
lagi að ná til þeirra ökutækja, sem
ekki eiga erindi út á vegina vegna
lélegs ástands og í öðru lagi að
vekja athygli ökumanna, sem eiga
eftir að koma sínum málum í lag,
svo að þeir geri það fyrir verslunar-
mannahelgi.
Eftirlitinu verður fylgt eftir úti
á vegum landsins.
Höfðáb'akki
Lokun
undirbúin
*** LOKASPRETTURINN við bygg-
ingu brúar yfir Vesturlandsveg er
hafinn og vegna framkvæmdanna
verður Höfðabakka lokað í 25 daga
frá og með næsta þriðjudegi.
Lokunin hefur mikil áhrif á eina
fjölförnustu umferðaræð landsins,
enda er Höfðabakkinn aðalleið úr
og í fjölmenn íbúða- og atvinnu-
hverfi.
Allri umferð þarf að beina annað
á meðan og lokunin hefur einnig
áhrif á almenna umferð að og frá
höfuðborgarsvæðinu.
■ Umferð örvar/23
ÚTLIT er fyrir að Landsvirkjun fái
afslátt á raforku sem veittur er ís-
lenska járnblendifélaginu árin 1993-
^ 1997 að fullu til baka vegna hlut-
deildar Landsvirkjunar í hækkandi
afurðaverði Jámblendifélagsins.
Rafmagnsverðið sem Járnbiendi-
félagið greiðir byggist á sérsamningi
sem gerður var 1993 og gildir til
ársloka 1997 og var framlag Lands-
virkjunar til þess að fírra Járnblendi-
félagið gjaldþroti og lokun.
. Samkvæmt samningnum fær
Landsvirkjun 40% af því sem greitt
AÐSTÆÐUR til að mála og
vinna aðra útivinnu hafa verið
einstaklega góðar sunnan- og
suðvestanlands undanfarna
daga. Enda hefur fólk látið
hendur standa fram úr ermum,
bæði til sjávar og sveita. Sól-
dýrkendur hafa einnig notað
er umfram 3.800 norskar kr. fyrir
hvert tonn af jámblendi á heims-
markaði. Hækki tonnið t.d. í 4.800
norskar kr. fær Landsvirkjun í sinn
hlut 400 norskar kr. Landsvirkjun
fær 40% hlut óháð því hve míkið
verð á járnblendi hækkar, jafnvel
þótt það leiði til þess að tímabundið
verð á raforkunni verði mun hærra
en upphaflegt, samningsbundið verð
var. Þó má endanleg hlutdeild Lands-
virkjunar ekki vera hærri en sem
Málað í
blíðviðrinu
dagana vel til að fá brúnku á
kroppinn og sundlaugar hafa
nemur afslættinum á samningstím-
anum.
Mestu munar um hærra álverð
Verð á járnblendi hefur hækkað
undanfarið og horfur eru á enn frek-
ari hækkunum. Afsláttur Landsvirkj-
unar hefur því farið lækkandi þegar
tekið er tillit til hlutdeildar í hærra
afurðaverði. Meðalverð á járnblendi
á fyrri hluta þessa árs er á bilinu
4.400-4.500 norskar kr. tonnið.
verið fullar frá morgni til
kvölds. En nú eru veðrabrigði
framundan. Lægð nálgast land-
ið og um helgina mun vindur
snúast til suðlægrar áttar með
tilheyrandi vætu sunnanlands
en bjartara veðri fyrir norðan
og austan.
Halldór Jónatansson forstjóri
Landsvirkjunar segir að samningur-
inn geti að einhverju mafki dregið
úr áætluðum 350 milljóna kr. rekstr-
arhalla Landsvirkjunar á þessu ári
en hann segir að mestu muni um
hækkun á álverði sem komi fram í
hærra raforkuverði til ÍSAL. Verði
raforkuverð til ÍSAL t.d. að meðal-
tali 18,5 mill á næsta ári í stað 17
mill, eins og það hefur verið að með-
altali á þessu ári, aukast tekjur
Landsvirkjunar um 150 milljónir kr.
sagði 'Halldór.
Þijár nýjar
plöntur
finnast í
Surtsey
ÍSLENSKIR og danskir líffræðing-
ar rannsökuðu í vikunni gróður og
dýralíf í Surtsey. Leiðangursmenn
fundu þrjár háplöntutegundir sem
ekki hafa áður fundist í eynni en
þær eru hvítmaðra, mýrasef og
grasvíðir.
Fundur síðustu tegundarinnar
má telja til mestra tíðinda að mati
dr. Sturlu Friðrikssonar, líffræð-
ings og eins leiðangursmanna, þar
sem þetta er fyrsta sinn sem víði-
tegund finnst í Surtsey.
Líffræðingarnir fundu 35 teg-
undir háplantna en nokkrar af
þeim plöntum sem áður hafa fund-
ist eru horfnar. Gerðar voru athug-
anir á útbreiðslu plantna og þekja
gróðurs mæld. Sturla segir að
sunnanvert á eynni sé að myndast
samfelldur svörður á þeim stað sem
mávar eigi sér varpstöðvar. Máv-
um fjölgar ár frá ári og töldust
nú vera í eynni yfir 450 fullorðnir
fuglar.
Óvænt
loftárás
Á fyrsta degi leiðangursins kom
þyrla úr flugflota NATO til eyjar-
innar. Hafði hún verið fengin til
að fjarlægja steyptan þyrlupall
sem notaður var af Vitamálastofn-
un. Svo óheppilega vildi til að í
flutningnum skullu steypuplöturn-
ar saman í einni ferðinni og
splundruðust úr þeim stór steypu-
stykki sem féllu til jarðar steinsnar
frá skýli leiðangursmanna. Grófust
brotin í sandinn eða tættust á
hrauninu með miklu gijótkasti í
allar áttir. Sturla segir að leiðang-
ursmenn hafi verið í nokkurri
hættu staddir í þessari „óvæntu
loftárás“ æfingahersins.
Lyfjaverslun
Islands
Boðið í
hlutabréfin
HLUTABRÉF Lyfjaverslunar
íslands hf. hækkuðu í verði
í gær þegar verðbréfafyrir-
tækið Landsbréf gerði hlut-
höfum tilboð í þau á genginu
1,65 fyrir hönd 5-10 stórra
fjárfesta.
Kauptilboðið hækkaði verð
bréfanna á Verðbréfaþingi
Íslands og þar var hæst boðið
í bréfin á genginu 1,67 áður
en dagurinn var á enda.
Hlutabréf Lyfjaverslunar-
innar hafa hækkað um 24%
á því hálfa ári sem liðið er
frá einkavæðingu fyrirtækis-
ins. Þeir, sem keyptu hluta-
bréf í fyrirtækinu í janúar
fyrir 250 þúsund krónur og
nýttu sér tilboð um að greiða
aðeins fimmtung kaupverðs-
ins út, geta þó hagnast um
rúmlega 60 þúsund krónur á
kaupunum, selji þeir bréfin á
þessum kjörum.
■ 123% ávöxtun/13
Landsvirkjun fær hlutdeild
í hærra jámblendiverði
Hærra álverð dregur úr halla