Morgunblaðið - 29.07.1995, Síða 1
56 SÍÐUR B/C
Reuter
Dæmdí
lífstíðar-
fangelsi
SUSAN Smith, 23 ára bandarísk
kona, var í gær dæmd í lífstíðar-
fangelsi í Suður-Karólínu fyrir
að drekkja tveim sonum sínum,
þriggja ára og 14 mánaða. Konan
hafði verið dæmd sek um að
binda drengina í bíl og láta hann
renna út í stöðuvatn. Málið vakti
mikinn óhug meðal Bandaríkja-
manna og kviðdómurinn hefði
getað dæmt konuna til dauða ef
allir, sem áttu sæti í honum, sam-
þykktu það. Myndin var tekin
þegar Smith var leidd fyrir rétt-
inn í gær.
-----»■♦■■■♦-
Bandaríkin
Gengisfall
og minni
hagvöxtur
London. Reuter.
GENGI dollars féll gagnvart þýsku
marki í gær eftir að birtar voru
tölur um landsframleiðslu í Banda-
ríkjunum, sem staðfestu að dregið
hefði úr hagvexti. ,
Hagvöxtur í Bandaríkjunum á
öðrum fjórðungi ársins var hinn
minnsti í 3‘/2 ár sökum þess að
fyrirtæki gengu á uppsafnaðar
birgðir af óseldri vöru. Þyngst veg-
ur minni framleiðsla á bílum og
vörubifreiðum. Var hagvöxtur á
öðrum ársfjórðungi 0,5% en var
2,7% á þeim fyrsta.
Lágt gullverð
Hlutabréf hækkuðu í verði í
London en lækkuðu í kauphöllum
annars staðar í Evrópu. Þá var
verð á gulli hið lægsta í níu vikur
í London en það hefur verið lágt
frá því að Alan Greenspan, banda-
ríski seðlabankastjórinn, gaf í skyn
fyrir ellefu dögum að lítil hætta
væri á að verðbólga ykist eða að
efnahagur landsins yrði fyrir ann-
ars konar áföllum. Sjá fjárfestar
því ekki ástæðu til að auka kaup
sín á gulli að svo stöddu.
Her Króatíu tekur þátt í sókn inn á yfirráðasvæði Serba í Bosníu
Króatar ná tveim mikil-
vægum bæjum á sitt vald
Sameinuðu þjóðirnar vara við
allsherjarstríði í gömlu Júgóslavíu
Sarajevo, Zagreb, Washington. Reuter.
KROATÍSKIR hermenn náðu í gær
tveim mikilvægum bæjum á sitt
vald í stórsókn inn á yfirráðasvæði
Serba í vesturhluta Bosníu. Fall
bæjanna er mikið áfall fyrir Serba
og 5.000 serbneskir íbúar voru
fluttir af svæðinu. Allt að 10.000
manns úr stjórnarher Króatíu tóku
þátt í sókninni, sem ásamt liðsflutn-
ingum króatíska hersins að Krajina-
héraði í Króatíu gæti leitt til alls-
heijarstríðs í gömlu Júgóslavíu, að
mati embættismanna Sameinuðu
þjóðanna.
Króatíska sjónvarpið sagði að
Króatar hefðu náð 220 ferkm á sitt
vald í ijögurra daga sókn í Bosníu.
Króatísku hermennirnir náðu bæj-
unum Glamoc og Grahovo eftir
harða bardaga.
Radovan Karadzic, leiðtogi Bos-
níu-Serba, setti herlög á serbneska
yfirráðasvæðinu og fyrirskipaði
allsheijar herútboð til að stöðva
sóknina. Heimildarmaður í her
Bosníu-Serba sagði að Króatar
væru að sækja í átt að Knin, höfuð-
stað Krajina-héraðs, sem er á valdi
Serba. Knin er aðeins 20 km frá
Grahovo.
„Þetta er mjög alvarleg og
hættuleg hernaðaruppbygging,“
sagði embættismaður Sameinuðu
þjóðanna í Zagreb um liðsflutninga
Króatíuhers að Krajina-héraði. „Við
óttumst að hernaðaraðgerðir verði
hafnar hér í Króatíu á næstunni,
hugsanlega innan nokkurra daga.“
Króatar hófu sóknina í vestur-
hluta Bosníu til að einangra Kraj-
ina, ná á sitt vald vegum og járn-
brautum sem tengja héraðið við
yfirráðasvæði Serba í Bosníu og
Serbíu. Serbar í Króatíu höfðu hafið
sókn inn á Bihac-svæðið í norðvest-
urhlutanum, að því er virtist til að
hindra árásir Króatíuhers á Krajina.
Bandarísk vopn til Bosníu?
Franski hershöfðinginn Bernard
Janvier, yfirmaður friðargæsluliðs
Sameinuðu þjóðanna í löndum
gömlu Júgóslavíu, ræddi í gær við
embættismenn NATO um hugsan-
legar loftárásir bandalagsins til að
vernda svokölluð griðasvæði músl-
ima í Bosníu. Janvier sagði að frið-
argæsluliðið hefði hvorki umboð né
nægilegan styrk til að veija svæði
múslima. „En með hjálp NATO
getum við hindrað árásir á griða-
svæðin.“
Richard Holbrooke, aðstoðarut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær ekkert hæft í fréttum
um að Bandaríkjastjórn hefði gerst
brotleg við vopnasölubannið á Bosn-
íu og stæði fyrir leynilegum vopna-
flutningum til bosnískra múslima.
Washington Post hafði eftir
leyniþjónustumönnum í Evrópu að
Bosníu-her hefði fengið vopn fram-
leidd í Bandaríkjunum og talið væri
að Bandaríkjastjórn stæði fyrir
vopnaflutningum múslimaríkja til
Bosníu.
Reuter
Gíslum
SÉRSVEIT lögreglunnar í Köln
réðst síðdegis í gær inn í rútu
og skaut vopnaðan mann til
bana eftir að hann hafði haldið
20 farþegum í gíslingu í sjö
klukkustundir. I rútunni voru
lík eins farþega og bílstjóra
rútunnar, sem maðurinn hafði
drepið um morguninn. Áður
hafði hann skotið á lögreglu-
mann og sært hann alvarlega.
Ekki var vitað hver maðurinn
var eða hvað vakti fyrir honum.
Einn gíslanna sagði að maður-
inn hefði verið farþegi í rút-
unni og rifist við bílsljórann,
tekið upp byssu og skotið hann
til bana.
Á myndinni ræðst sérsveitin
inn í rútuna eftir að hafa brot-
ið rúður með járnkylfum.
Tævanir íhuga að
afla sér kíarnavopna
Taipei. Reuter.
LEE Teng-hui, forseti Tævans,
sagði í gær að Tævanir myndu
kanna hvort þeir þyrftu að afla sér
kjarnavopna, en áður hafði hann
lofað aukinni vígvæðingu til að
fæla Kínveija frá árásum á eyjuna.
„Eins og staðan er nú er það
mjög stór spurning hvort ekki sé
þörf á þessu,“ sagði forsetinn á
þingi Tævans eftir að þingmaður
hafði lagt til að Tævanir keyptu
kjarnavopn til að efla varnir lands-
ins.
„Allir vita að við höfðum áður
slík áform en þau vöktu athygli
umheimsins og höfðu áhrif á ímynd
landsins," bætti Lee við. „Varðandi
það hvort við þörfnumst verndar
kjarnavopna. .. eigum við að kanna
þetta mál að nýju með tilliti til
hagsmuna okkar til lengri tíma.“
Kínverjar lióta hernaði
Miklir úfar hafa risið með Kín-
veijum og Tævönum eftir að kín-
verskum eldflaugum var skotið í
tilraunaskyni á svæði sem er aðeins
140 km norðan við eyjuna. Hátt
settir embættismenn í Tævan hafa
sagt að tilraununum hafi verið ætl-
að að skjóta Tævönum skelk í
bringu og minna þá á hernaðar-
mátt Kínveija.
Samskipti Tævans og Kína tóku
að versna eftir að Lee fór í einkaer-
indum til Bandaríkjanna í júní. Kín-
veijar hafa síðan veist harkalega
að Lee, sakað hann um að vera að
undirbúa á laun að lýsa yfir sjálf-
stæði Tævans, og ítrekað hótanir
um að því yrði svarað með hernað-
araðgerðum.
Dularfull
öskur
Lundúnum. Reuter.
GREINST hafa dularfull hljóð,
sem líkjast öskri og stunum, í
hlustunarbúnaði dvergkafbáts,
sem rannsakar hin myrku djúp
Loch Ness-vatnsins í Skotlandi.
Þessi furðulegu hljóð heyrð-
ust í 30 mínútur og kafbátur-
inn var um 150 metrum undir
yfirborði vatnsins.
„Eg hef oft heyrt hljóð sjáv-
arspendýra þegar ég hef kafað
í úthöfunum," sagði Alan
Whitfield, sem fjarstýrir kaf-
bátnum. „En þetta er allt öðru-
vísi. Þetta vekur vissulega
nokkrar áhugaverðar spurn-
ingar.“