Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR LESBÓK/C/D 186. TBL. 83. ÁRG. LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ingvar Carlsson hyggst láta af embætti forsætisráðherra Segir tíma kominn til kynslóðaskipta Kaupmannahöfn. Morgunbiaðið. GLAÐUR og léttur í bragði til- kynnti Ingvar Carlsson í gær að hann hyggðist láta af embætti forsætisráðherra Svíþjóðar og hætta sem formaður Jafnaðar- mannaflokksins á aukaflokks- þingi í mars. Afsögn hans kemur ekki með öllu á óvart, því vitað var að hann hefði hug á að segja af sér, en fæstir bjuggust við að hann gerði það svo fijótt. Tímasetninguna rökstyður Carlsson með því að þar sem Jafn- aðarmannaflokkurinn sé nú í stjórn, ESB-aðildin í höfn og efna- hagurinn batni, þurfi að marka flokknum nýja stefnu. Því starfi eigi komandi formaður að stýra. Efnahagurinn er þó ekki styrkari en svo að vextir hækkuðu og krón- an lækkaði í kjölfar fréttarinnar. Forsætisráðherrann rakti ástæður fyrir afsögn sinni og nefndi fyrst að flokkurinn hefði náð aftur stjórnartaumum. Hann nefndi síðan ESB-aðild Svía, sem hann sagðist trúa eindregið að hefði verið hið rétta fyrir Svía, þó hann vissi að ekki væru allir flokksmenn hans sammála. Stuðningsmenn ESB-aðildar hafa legið Carlsson á hálsi fyrir að vera linur formælandi hennar, en svo var ekki í gær er hann sagði Svíum mikil- vægt að vera ekki háðir ákvörðunum annarra, eins og væri ef þeir hefðu verið áfram í EES. Carlsson hefur ver- ið í forsæti alþjóð- legrar nefndar um endurskipulagningu Sameinuðu þjóðanna og sú vinna hefur að sögn hans tekið mik- inn tíma. Erfiðast hefði þó verið að tak- ast á við efnahagsmálin undanfar- ið, þegar sjálfstæði landsins hefði verið í hættu vegna skuldasöfnun- ar. Nú þegar virtist bjartara fram- undan væri ástæða til að hugsa málin upp á nýtt. Búa þyrfti flokk- inn undir næsta árþúsund og það væri verk næstu kynslóðar. Carlsson hefur lengi sagt að hann ætli ekki að vera í stjórnmál- um að eilífu og hefði ekki áhuga á að slá met Tage Erlanders, sem var forsætisráðherra í 23 ár. Hins vegar velta menn vöngum yfir Ingvar Carlsson tímasetningunni, en í gær kynnti flokkur- inn stefnuskrá sína fyrir kosningarnar til Evrópuþingsins 17. september. Skiptar skoðanir eru um hversu heppilegt þetta sé. Bent er á að þetta sé aðferð hans til að þjappa flokknum saman fyr- ir kosningarnar, en flokkurinn er klofinn varðandi ESB-aðild. Einnig að þetta geti skapað flokknum velvilja kjósenda, þar sem vinsældir hans eru í lágmarki sem stendur, enda hafa aðrir flokksleiðtogar og -talsmenn látið í ljós vonbrigði með tímasetning- una, sem dragi athyglina frá kosningunum sjálfum. Ymsir andstæðingar hans láta í ljós kvíða yfir að forysta Carls- sons verði slöpp næsta hálfa árið, en því neitar Carlsson eindregið. Eðlilegt sé hins vegar að hann tilkynni afsögn sína í tíma, svo flokkurinn hafi tíma til að finna eftirmann á lýðræðislegan hátt. Reuter BANDARÍSKIR landgönguliðar í eftirlitsferð í Qatrana-eyði- mörkinni, 100 km suður af Amman í Jórdaníu. Heræfingum í Kúveit flýtt Kúveit, Amman. Reuter. BANDARÍKJAMENN og Kúveitar hafa ákveðið að flýta fyrirhuguðum heræfingum sínum í Kúveit. Eru þessar ráðstafanir þáttur í að vara Iraka við aðgerðum gegn Kúveit. Æfingarnar verða hafnar eftir tíu daga í stað þess að bytja í haust, eins og áætlað hafði verið. í gær voru bandarískar og jórd- anskar hersveitir á ferðinni í Jórd- aníu skammt frá landamærunum að Irak, en stjórnvöld í Baghdad gerðu lítið úr því sem þau nefndu „tilfæring- ar óvinarins." Irakar neituðu því að hersveitir þeirra væru á leið til landa- mæranna við Kúveit, en Bandaríkja- menn tilkynntu að svo væri. Kúveitar sögðust í gær ekki hafa prðið varir við að neitt benti til að írakar söfnuðu liði að landamærun- um, og liðsmenn Sameinuðu þjóð- anna þar tóku í sama streng. Her Kúveit er þó í viðbragðsstöðu vegna tilkynningar Bandaríkjamanna. Rúmlega 2500 bandarískir land- gönguliðar, studdir skriðdrekasveit- um, ásamt álíka íjölda jórdanskra hermanna hófu æfingar í Jórdaníu, um 300 km frá landamærum íraks. Æfingarnar hófust samkvæmt áætl- un sem gerð var fyrir nokkru, en aukin áhersla var lögð á þær eftir að bandarísk stjórnvöld hétu stuðn- ingi við Jórdana yrði þeim ógnað fyrir að hafa tekið við háttsettum flóttamönnum frá írak i síðustu viku. Forseti Króatíu segist vilja fnðarsamninga Kveðst forðast frekara stríð Zagreb. Reuter. FRANJO Tudjman, forseti Krótíu, kvaðst í gær vilja komast hjá frek- ara stríði gegn Serbum og neitaði því að hafa gert samning við forseta Serbíu um að skipta Bosníu milli Króata og Serba. Embættismenn Sameinuðu þjóð- anna sögðu hins vegar að 10.000 króatískir hermenn væru komnir til króatísku borgarinnar Dubrovnik við Adríahaf og væru að undirbúa inn- rás í Bosníu til að stöðva stórskota- árásir Serba á nágrenninu. Ýmsir fréttaskýrendur telja að sigur Króata í Krajina geri það freistandi fyrir þá að leiða deilurnar við Serba til lykta með hernaði. Tudjman neitaði þessu og kvað Kró- ata vilja stöðva árásimar á nágrenni Dubrovnik og endurheimta Austur- Slavoníu, við landamærin að Serbíu, með samningum. „Við hefðum viljað geta haldið uppi eðlilegri ferðaþjónustu [við strönd Adríahafsins] án þess að grípa til hernaðaraðgerða í Krajina," sagði forsetinn. „Þetta voru blóðug átök. Við misstum 200 menn og 1.300 særðust. Við viljum að Austur- Slavonía sameinist Króatíu að nýju með friðsamlegum hætti. Við viljum komast hjá frekara mannfalli og setja kraft í friðarumleitanirnar." Þegar forsetinn var spurður hversu lengi Króatar gætu þolað árásirnar á nágrenni Dubrovnik svaraði hann: „Við munum þola það þar til þolinmæði okkar.er á þrotum, þegar allar samningaumleitanir okk- ar reynast gagnslausar." Anægður með friðartillögur Tudjman lét þessi orð falla á biaðamannafundi eftir að hafa rætt við Richard Holbrooke, aðstoðar- utanríkisráðherra Bandaríkj anna, sem er að kynna nýja friðaráætlun Bandaríkjastjórnar. Áður hafði Holbrooke rætt við Slobodan Mi- losevic, forseta Serbíu, sem lét í ljós ánægju með áætlunina. „Þetta er alvarlegasta tilraunin [til að koma á friði] til þessa,“ sagði Tudjman um friðaráætlunina og kvaðst vona að hún næði fram að ganga á næstu vikum. Tudjman kvað ekkert hæft í frétt- um breskra fjölmiðla þess efnis að hann hefði teiknað kort, sem sýndi skiptingu Bosníu milli Króata og Serba, í veislu í London nýlega. „Við Milosevic höfum ekki gert samning um skiptingu Bosníu. Þetta kort er rugl. Samkvæmt því á ég að hafa samþykkt að Serbía innlim- aði Austur-SIavoníu." Reuter VERKAMENN smíða vegg umhverfis marmaraskál frá endur- reisnartímabilinu til að verja hana vegna hugsanlegra árása Serba á Dubrovnik. Mörg mannvirki í borginni hafa verið varin með þessum hætti að undanförnu og þykir þetta minna á viðbúnaðinn fyrir stríðið gegn Serbum árið 1991. Deilt um Kínaför Hillary Washington. The Daily Telegraph. HILLARY Clinton, eiginkona Bandaríkjaforseta, og ráðgjaf- ar forsetans í utanríkismálum deila nú hart um hvort rétt sé að forsetafrúin sitji kvenna- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Peking í næsta mánuði. Eru nokkrir embættismenn þeirrar skoðunar að það hafi mikið áróðursgildi fyrir Kínveija sæki hún ráðstefnuna. Ákveðið hef- ur verið að fresta endanlegri ákvörðun um Kínaför Hillary Clinton á meðan kostir og gail- ar slíkrar ferðar eru metnir. Leiðtogar repúblikana á Bandaríkjaþingi og margir háttsettir menn í stjórn Clint- ons telja rangt að hún fari á meðan bandaríski ríkisborgar- inn Harry Wu situr í haldi í Kína. Hefur hann verið sakaður um njósnir. Opinberlega vilja ráðgjafar Clintons ekki tjá sig um málefni eiginkonu forsetans en margir þeirra láta hins vegar í ljós efa- semdir í einkasamtölum. Warr- en Christopher utanríkisráð- herra átti í vikunni fund með Hillary Clinton þar sem hann ræddi „hina mörgu diplómat- ísku ókosti og hugsanlega kosti“ Kínafarar, líkt og einn embættismaður orðaði það.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.