Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 MININIINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Signrður Óskars- son, bóndi í Krossa- nesi í Skagafirði, var fæddur í Hamarsgerði í Lýtingsstaðahreppi 6. júli 1905. Hann lést i Sjúkrahúsi Skagfirð- inga 10. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Óskar Þorsteins- son, f. 6.12. 1873, d. 20.2.1967, bóndi í Ham- arsgerði, og kona hans Sigríður Hallgríms- ** dóttir, f. 1.12. 1872, d. 3.9. 1953. Systkini Sig- urðar voru: Laufey, f. 25.7. 1898, dó ung; Helga f. 22.1. 1901; Steingrímur, f. 1.5. 1903, nú látinn; Petrea, f. 30.6. 1904; Ingibjörg, f. 20.12. 1906, dó ung; Margrét, f. 1.6. 1908, dó ung; Vilhjálmur, f. 18.10. 1910; Skafti, f. 12.9. 1912, nú látinn; Ármann, f. 1.1. 1914, nú látinn; Guttormur, f. 29.12. 1916; og uppeldisbróðir Ragnar Örn, f. 7.10. 1921. Sigurður bjó í Krossanesi frá árinu 1934 til dauðadags. 5.5. 1934 kvæntist Sigurður Ólöfu Ragnheiði Jóhannsdótt- ur, f. 20.3. 1908, d. 3.4. 1991. Foreldrar hennar voru Jóhann Sigurðsson bóndi á Löngumýri í Skagafirði og kona hans Sig- urlaug Ólafsdóttir. Börn Sig- urðar og Ólafar Ragnheiðar eru: 1) Sigurlaug, f. 27.9. 1935, skrifstofumaður, býr í Kópa- MIG LANGAR til að þakka þér, afí, fyrir þann tíma sem við höfum átt saman. Mér fínnst eins og við séum nýkomnir úr reiðtúr og ný- búnir að hleypa okkar bestum hest- um á Krossanesbökkunum. Það var fátt sem gladdi þig meira en góður hestur á góðri stund. Það var ekki eingöngu hestamennskan sem ég lærði af þér, þú kenndir mér að meta söguna, bókmenntim- ar og íslensku skáldin. Sérstakar mætur hafðir þú á Einari Ben, Steini Steinari og Davíð. Mér fannst þú ekki vera verra skáld en þeir. Bókahillur bóndans standa auðar. Beislin liggja ónotuð á veggnum. Áður fyrr með sex og sjö til reiðar sást á ferð um lagða vegi og heiðar. Enginn hefði getað sagt þetta betur en þú. Guð blessi þig og minn- ingu þína. Sigurður Þorsteinsson. „Fljótt er nóttin dag að deyfa.“ Þessi hending úr kunnri vísu Sig- urðar Óskarssonar í Krossanesi kom mér í hug þegar ég spurði andlát hans fimmtudagskvöldið 10. ágúst sl. Þótt hann hafi á liðnum misserum verið veikur fyrir hjarta og leitað sér lækninga á sjúkrahús- ið á Sauðárkróki sneri hann alltaf aftur heim í Krossanes. Og ein- hvern veginn átti maður von á því að svo yrði einnig nú, að við mynd- um aftur hittast í Skagafirði áður •*t en haustið gengi í garð. En eigi má sköpum renna. Ég kynntist Sigurði og Ólöfu Ragnheiði Jóhannsdóttur konu hans fyrir um átta ámm þegar ég fór að heimsækja þau norður með Ragnheiði Elfu dótturdóttur þeirra. Olöf lést fyrir fjórum ámm og var þá mikill harmur kveðinn að Sigurði. Þessi heiðurshjón vom ólík en þó samrýnd og minnist ég þess ekki að hafa séð þau nema saman meðan bæði lifðu. Þau vom höfð- ingjar heim að sækja og nutu þess ^>að fá gesti. Saman gegndu þau '"‘gestgjafahlutverkinu óaðfinnan- lega. Meðan hann skemmti fólkinu með sögum og vísum dró hún fram allt það besta í búrinu. Bakkelsið sem hún gat galdrað fram virtist engan endi ætla að taka. Svo spurði hún hvort ekki mætti bjóða mönn- um meira um leið og hún afsakaði hvað þetta væri nú lítilfjörlegt. vogi, var gift Þorsteini Guð- laugssyni en þau skildu. Þau eiga fjögur börn, Sigurð kennara, Guð- laugu geðlækni, Ragnheiði Elfu lögfræðing og Ólaf nema. 2) Sigríður hús- mæðrakennari á Seltjarnar- nesi, f. 5.4. 1939, gift Birni Árnasyni skrif- stofumanni. Þau eiga fjögur börn: Gyðu, búsetta í Svíþjóð, Ólöfu Ragnheiði myndlistar- nema, Sif snyrtifræðing og Árna menntaskólanema. 3), Ingibjörg, f. 29.8. 1945, hjúkr- unarkona i Noregi, gift Jan Raabe. Þau eiga tvær dætur: Anne sjúkraliða og Marit þroskaþjálfa. Barnabarnabörn- in eru sjö. Sigurður var einn af stofn- endum hestamannafélagsins Stiganda í Skagafirði og for- maður þess í 20 ár. Sigurður var kunnur hagyrðingur og hafa margar vísur hans birst á prenti. Hann var formaður Veiðifélags Húseyjarkvíslar um árabil. Utför Sigurðar fer fram frá Glaumbæjarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Eitt það fyrsta sem Sigurður Óskarsson spurði mig að þegar ég heimsótti þau hjónin með Ragnheiði var hvort mér líkaði betur við Einar Ben eða Davíð Stefánsson. Þegar ég sagði að mér þætti Einar Ben. meira skáld kom glampi í augun á honum. Hann horfði á mig, fór með nokkrar hendingar úr Messunni á Mosfelli, þar á meðal lok kvæðisins sem hann flutti með leikrænum til- þrifum: „Og það voru hljóðir og hógværir menn,/ sem héldu til Reykjavíkur." Á eftir sagði hann: „Það yrkja nú ekki margir svona!“ Sigurður lifði að mörgu leyti í skáldskap. Hann átti gott bókasafn, var víðlesinn og vel heima á mörgum sviðum. Ýmsir þættir úr sögu ís- lands stóðu honum þannig fyrir hug- skotssjónum að þegar hann sagði frá var eins og maður væri staddur á sviðinu miðju. Mér er t.d. minnis- stæð sagan um Jón Arason Hóla- biskup þegar hann túlkaði síðasta andvarp ekkju nokurrar á þann veg að nú hefði hún enn verið að gefa kirkjunni kostajörð. Það þótti Sig- urði nokkuð langt seilst hjá biskupi. Hann hafði ekki aðeins unun af því að lesa skáldskap annarra held- ur var hann sjálfur hagmæltur og kastaði iðulega fram stökum af minnsta tilefni. Hann var alþýðu- skáld í fremstu röð og hafa ýmsar af vísum hans orðið fleygar. Sigurður var hluti af menningu sem nú á undir högg að sækja, þar sem menn svöruðu fyrir sig með kviðlingum ef sá gállinn var á þeim. Þannig gátu þeir afvopnað þá, sem gert höfðu á hlut þeirra, með einni ferskeytlu og heyrðist þá ekki frá viðkomandi meir. Máttur orðsins var virkjaður, - hvað er enda verra en vera hæddur í frægri stöku? Sumar vísur Sigurðar urðu til í stemmningu augnabliksins og lifa sem minning um stund og stað en aðrar eru hafnar yfir tíma sinn. Einkum hafa hestavísur Sigurðar orðið frægar. Þótt þær virðist ein- faldar og áreynslulausar - eins og er aðall góðs skáldskapar - þá vísa þær langt út fyrir sig. Þær bera gjarnan vott um samlíf manns og hests, virðingu fyrir öllu því er líf- sanda dregur, - virðingu fyrir nátt- úrunni. Þessu lýsir ágætlega vísa, sem hann sagðist raunar vera búinn að gleyma þegar Margrét vinkona hans á Löngumýri færði honum hana skrautritaða fyrr í sumar. Myndin er einföld og falleg, lýsir kannski mestri hamingjustund hestamanns þar sem hann ríður einn í morgunkyrrð með fugla him- ins yfir höfði sér: Ég söðla hest minn og sest á bak, sólin rís, það er að morgna, sem bergmál er hestsins hófatak, í háloftunum vængjablak, og döggvota grasið í dalnum er tekið að þoma. Það er ekki að undra að hestar skjóti víða upp kollinum í kveðskap Sigurðar í Krossanesi. Hann var annálaður hestamaður, ferðaðist um landið á gæðingum sínum, auk þess að temja hross og selja um áratuga skeið. Er margt valin- kunnra hrossa ættað úr Krossa- nesi. Hann tók einnig ríkan þátt í félagsmálum hestamanna, var m.a. einn af stofnendum hestamannafé- Iagsins Stíganda og formaður þess í tvo áratugi. Hann lét sig sjaldan vanta á samkomur félagsins. Á páskum 1993 vígði félagið nýtt hesthús í Torfgarði að viðstöddu fjölmenni. Við Ragnheiður fórum með honum þangað og áttum með honum eftirminnilegan dag. Þar sýndi hann- á sér allar sínar bestu hliðar. Áður en við var litið stóð hann ásamt aldavini sínum Dúdda á Skörðugili, sem nú er látinn, í miðj- um hópi sér miklu yngri manna og sagði skemmtisögur frá liðnum ára- tugum og gott ef nokkrir kviðlingar fuku ekki líka. Og ekki spillti held- ur fyrir að þegar hallaði í miðnætti komu vinir hans - nokkrum áratug- um yngri en hann - ríðandi úr Torfgarði í Krossanes, tóku hús á gamla manninum og þáðu svolítið tár. Enn voru sagðar sögur og vís- ur. Manstu eftir gráa klárnum sem... Þar var ekki að sjá að færi tæp- lega níræður maður, veill fyrir hjarta. Sigurður hélt reisn sinni allt til dauðadags. Þótt ekki hafi verið auðvelt fyrir hann að búa einn í Krossanesi eftir að Ólöf lést undi hann sér hvergi annars staðar. Þar var hann til hinsta dags. Þegar við Ragnheiður vorum hjá honum núna í júní hafði hann þó aðeins látið á sjá - líkamlega. Hjartað angraði hann, sjónin hafði versnað til muna, hann var hættur að geta lesið blöð og bækur. Hugurinn var hins vegar skarpur sem fyrr. Hann fylgdist gjörla með gangi landsmála, kast- aði fram stökum, var snöggur að svara fyrir sig, ræddi um hesta, fór með hluta úr Messunni á Mosfelli og sagði að svona hefðu nú ekki margir ort. Það var ekki eins og maður væri að tala við gamalmenni - enda leit hann heldur ekki þann- ig á sig. Hann hafði sem fyrr gam- an af því að keyra um sveitina eða út á Krók til að sjá hvað menn væru að aðhafast í kringum hann. Við ætluðum að heimsækja hann á ný með haustinu þegar við kæmum aftur að utan. En af því verður ekki. Sigurður Óskarsson í Krossanesi hefur söðlað hest sinn og sest á bak og riðið af stað yfir í aðra veröld þar sem Ólöf kona hans bíður eftir honum. Við horfum á bak eftirminni- legum manni sem var gaman og hollt að kynnast. Og kannski er reið- skjóti hans nú hesturinn góði sem hann orti um forðum: Fljót er nóttin dag að deyfa, dimma færist yfir geim. Undir Biesa skröltir skeifa, skyldi hún ekki tolla heim? Pétur Már Ólafsson. Ég söðla hest minn og sest á bak sólin rís, það er að morgna. Sem bergmál er hestsins hófatak í háloftunum vængjablak, og döggvota grasið í dalnum er tekið að þoma. (Sig.Óskarson) Þetta er ein af þeim mörgu mynd- um sem koma upp í huga minn er ég minnist vinar míns Sigurðar í Krossanesi. Frá því fyrsta að ég kom að Löngumýri var ég tíður gestur í Krossanesi, naut þar elsku- semi og gestrisni Ólafar og Sigurð- ar. Sem barn og unglingur var ég mikið á hestbaki, og svo var mín fyrstu ár í Skagafirði að ég fór oft á hestbak með Sigurði og lánaði hann mér ávallt góða hesta. Ég get líka sagt að hann hafi lagt grund- völlinn að hestaeign minni hér, því hann gaf mér fyrsti Létti, sem varð að fella langt fyrir aldur fram, og síðar Blesu sem er ættmóðir flestra minna hrossa. Sigurður hafði allt það til að bera sem ég tengi við hugtakið góður hestamaður. Honum þótti vænt um hestana sína og reyndar öll dýrin, og þó mun síðasti hundur- inn hans, tíkin Skoppa, hafa verið honum kærust. Eftir að hann varð einsamall í Krossanesi var hún hon- um góður félagi og vinur. Er hún féll frá sl. vetur fannst hún honum góður félagi og vinur. Er hún féll frá sl. vetur fannst honum ennþá tómlegra en fyrr í Krossanesi. Én þó vildi hann hvergi annars staðar dvelja, hafði enda búið þar í rúm- lega 60 ár, og átt þar sínar stærstu gleði- og sorgarstundir. í raun og veru tel ég Sigurð mikinn hamingju- mann. Hann átti einstaklega ljúfa og góða konu, góðar dætur og mannvænlega afkomendur. Barna- börnin voru honum mikils virði og sá ég hann vart gleðjast jafnmikið og þegar hann frétti um velgengni þeirra. Sigurður var mikill bóka- maður, las mikið og átti gott bóka- safn. Var það honum því þung raun síðustu árin þegar sjónin brást og hann gat ekki stytt sér stundir við lestur. Sigurður var líka frábærlega hagorður og eru sumar vísur hans landsþekktar. Einnig kunni hann mikið af vísum og ljóðum annarra skálda og hagyrðinga. Á síðustu árum eftir að hann varð einn í Krossanesi höfðum við nær því dag- legt samband ef ekki dvöldu ein- hveijir hjá honum. Því finnst mér að nú sé allmikill breyting í lífi mínu, þótt ég viðurkenni að aldur hans var orðinn hár og oft erfiðir dagar sökum lasleika. Mér þótti Sigurður aldrei gamall í anda sín- um. Hann fylgdist furðu vel með því sem var á döfinni hveiju sinni og hafði skoðun á hiutunum. Skap- mikill var hann og stoltur og varð mjög sár ef hann taldi sig órétti beittan, en undir niðri bjó mjög við- kvæm lund en jafnaðarlega var hann glaðsinna og oftast hrókur alls fagnaðar meðal vina sinna. Mælifellshnjúkurinn var í hans aug- um fegurstur ijalla og leit hann jafnan til hans út um stofugluggann og minntist liðinna daga í göngum, og öðrum ferðum á gæðingum sín- um. Daginn áður en hann dó fórum við í alllangan bíltúr. Við ókum fram Blönduhlíð og fram á Kjálka. Sagði hann mér þá eins og svo oft áður ýmislegt frá gamla tímanum m.a. er hann leit yfir í Reykjatunguna minntist hann daga sinna á Vind- heimum sem ungiingur og hversu mörg spor og reiðtúra hann hafði átt í landi Vindheima. Þar sagðist hann hafa átt góða daga. Hann dáði fegurð landsins, einkum Skagafjarðar, og þakklæti hans til forsjónarinnar birtist stundum í vís- um hans. Ég sef ekki seinnipart nætur er sólin á himninum skín. Guð ekki gleyma sér lætur gleðina sendir til mín. Það er tóm í hjarta og söknuður í sálu nú, en samt hef ég ástæðu til þess að gleðjast vegna þess að ég trúi því að vinur minn Sigurður sé laus við veikindi og elli, á meðal ástvina og vina bæði mennskra og ferfætlinga. Ég hef aldrei ætlað mér það að vita hvemig þar er umhorfs, veit það eitt sem nægir mér, að hann er í Guðs hendi um tíma og eilífð. Skagafjörður kveður í dag einn sinna bestu sona. Ég verð ávallt þakklát fýrir kynni mín af þeim Krossaneshjónum og blessa minningu þeirra. Margrét K. Jónsdóttir, Löngumýri Léttur hófadynur á hvítu hjarni, fagur ijallahringur, snævi þakinn SIGURÐUR ÓSKARSSON upp á efstu brún. í Vallhólminum stirndi á hvítar snjóbreiður í morg- unbirtunni. Sigurður í Krossanesi reið í hlað á Löngpimýri á góðum fáki. Þannig minnist ég þessa mæta manns við fyrstu kynni. Alltaf var hann boðberi einhverrar tilbreytni með sínu góða skapi, glettni og hlýja viðmóti, samfara hjálpsemi og góðvild. Þetta var árið 1944, þegar húsmæðraskólinn á Löngu- mýri var stofnaður. Minnist ég þá, að oft varð verkfall í skólaeldhús- inu, þegar ungu námsmeyjarnar fögnuðu góðum gesti. Sigurður í Krossanesi átti oft erindi að Löngumýri. Þar heimsótti hann tengdaforeldra sína, sem hætt voru búskap og var þeim til hjálpar ef með þurfti sem og mágkonu sinni, Ingibjörgu, forstöðukonu skólans, sem þurfti oft til hans að leita. Sigurður var kvæntur Ólöfu Jóhannsdóttur, dóttur hins "merka bónda á Löngumýri, og konu hans, Sigurlaugar Ólafsdóttur. Ólöf var góð og falleg kona, mikil húsmóðir, hógvær og greind, og stóð við hlið manns síns með reisn. Ég minnist þess, er þessi mynd- arlegu hjón komu fyrst í jólaboð í húsmæðraskólanum ásamt þrem fallegum, prúðbúnum telpum. Einn- ig er það ánægjuleg minning, er þau hjón buðu okkur kennurum og nemendum heim um jólin. Ógleym- anlegt var, er við tróðum yfir hjarn- ið með ljósker við hlið í tunglskins- birtu kvöldsins, syngjandi í kvöld- kyrrðinni með öruggan samfylgdar- mann, Sigurð bónda. Heima í Krossanesi vorum við í vinargarði, heimilið hlýtt og uppljómað og veit- ingar rausnarlegar og bornar fram af mikilli gestrisni. Hjónin voru samstillt að gera kvöldið skemmti- legt og eftirminnilegt. Þessi hjón urðu mér ávallt kær. Á heimilinu í Krossanesi var öll- um gott gert, ekki síst þeim, sem minni máttar voru. Börn dvöldu lengur eða skemur á heimilinu, auk þess sem börn voru tekin til sum- ardvalar á hveiju ári. Þess naut einnig sonur minn, sem hændist mjög að heimilinu, er við, foreldrar hans, dvöldum um sumar- tíma á Löngumýri. Upp frá því fékk hann að dvelja í þijú sumur í Krossanesi. Ekki má gleyma allri þeirri um- hyggju er Ólöf húsfreyja veitti, er hún á kyrrlátum stundum ræddi við börnin og kenndi þeim, því að hún var hafsjór af fróðleik og frásagnar- snilld. Margar eru minningar eftir nærri hálfrar aldar kynni og minnst hægt að rekja, en margt að þakka góðum samferðamönnum. Síðustu minningar um Sigurð heima á Löngumýri frá síðastliðnu sumri eru ógleymanlegar. Ég og vinkona mín, Guðrún Briem frá Noregi, fórum á vegum Ingibjarg- ar, fyrrverandi skólastýru, í mót- töku hjá Margréti, núverandi for- stöðukonu, sem var mikill og góður vinur Krossanesheimilisins. Þótt Sigurður væri þá á sjúkrahúsi á Sauðárkróki lét hann sækja sig. Áttum við saman ánægjulega stund og nutum góðrar máltíðar. Margrét ók okkur vítt og breitt um sveitina og nutum við í sameiningu undra- fegurðar þessa skagfirska kvölds. Víða voru hestaréttir og vaskir menn að leggja á hesta sína sér til upplyftingar eftir annir dagsins. Ekið var að hverri rétt til að Sigurð- ur gæti heilsað upp á sveitunga sína. Ekkert hafði breyst. Sigurður síungur í anda, skemmtilegur, glett- inn og ljúfur. Þannig lifir endur- minningin um þennan góða mann í mínu minni. Við geymum minning- una um líf hans og störf og þessa heilbrigðu gleði náttúrubarnsins, sem hann gaf okkur svo mikla hlut- deild í. Aldrei ríður hann framar í garð á góðum fáki, því að annars staðar hefur verið lagt að landi. En minn- ingin um hann gefur okkur trú á gildi jákvæðrar lífsgleði og velvild til annarra manna. Ég kveð hann svo, ásamt syni mínum og fjölskyldu og þakka sam- fylgdina. Blessuð sé minning hans. Jóna Kristín Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.